Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987.
51
Markakóngar í úrslita-
keppni 4. flokks karla
Þeir Jason Ólaf'sson, Fram, og Karl
F. Karlsson, KA, skoruðu 27 mörk
hvor í úrslitakeppni 4. flokks karla er
fram fór að Varmá um sl. helgi. Jason,
sem er sonur hins kunna handknatt-
leikskappa og fyrrum landsliðsfyrir-
liða, Ólafs Jónssonar, hefur verið
óstöðvandi í allan vetur. Alls hefur
Jason gert 176 mörk í opinberum
keppnisleikjum á þessu keppnistíma-
bili. Leikimir eru 28 þannig að að
meðaltali skorar Jason rúmlega sex
mörk í(leik. Þetta er athyglisvert þeg-
Karl F. Karlsson.
ar haft er í huga að oftast er settur
„yfirfrakki" á piltinn.
Karl F. Karlsson er líka mikill
markaskorari. Bogdan landsliðsþjálf-
ari telur Karl eitt mesta efni sem
fsland á í handknattleiknum um þess-
ar mundir. Ekki lítið hrós það. Eins
og Jason þarf Karl að þola það hlut-
skipti að vera tekinn úr umferð leik
eftir leik. Unglingasíðan hitti Karl að
máli um síðustu helgi og spurði hann
hvort hann væri ánægður með árang-
ur KA í úrslitakeppni 4. flokks karla.
„Við stefridum á verðlaunasæti svo að
ég er ekki ánægður með 6. sætið í
keppninni.
Það sem háir okkur er skortur á
leikreynslu, við spilum þetta einn til
tvo æfingaleiki á mánuði og alltaf við
sömu liðin. Því má kannski segja að
árangur okkar sé eðlilegur miðað við
aðstæður," svaraði Karl.
Ríkharður Daðason, Aftureldingu,
varð þriðji markahæsti leikmaður úr-
slitakeppninnar í 4. flokki karla.
Ríkharður skoraði 21 mark. Hann er
dóttursonur Skagamannsins fræga,
Ríkharðs Jónssonar.
Auöur Agústa Hermannsdóttir, fyrirliöi SeKoss í 4. flokki kvenna.
Handknattleikur unglinga
íslandsmeistarar Fram í 4. flokki karla.
Lið Týrara sem kom skemmtilega á óvart og náði 2. sæti.
Islandsmeistarar SeKoss í 4. flokki kvenna.
Lið Grindavikur hafnaði í öðru sæti.
!wp»S.