Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987.
55-
Menning
Emn? tveir, einn, 1 tveir,
einn, tveir, þrír, fjór
Einn, tveir, einn, tveir-einn, tveir, þrir, fjór.
Hljómplata meö leik Skólahljómsveitar,
Hornaflokks og Djassbands Kópavogs.
Stjórnendur: Bjöm Ásgeir Guójónsson og
Árni Scheving.
t
Tuttugu ár? Það hlýtur að vera
lygi. Kópavogur sjálfur er rétt þrí-
tugur sem kaupstaður og Skóla-
hljómsveitina segja þeir tvítuga. En
sagan er skráð og skjalfestum sann-
leikanum tjóar ekki að mótmæla.
Þó get ég ekki að því gert að mér
finns eins og það hafi veríð í gær -
í hæsta lagi í fyrradag, að Bjössi
blásari (vonandi fær nú enginn
hiksta þótt gömul viðurnefni séu
notuð) marséraði út með legíó af
krökkum sem varla voru búin að
læra C-dúr skalann en spiluðu samt.
Til að ala upp „sveitamenn"
Síðan hefur Bjöm lagt ótrauður á
brattann og ávallt við óskorað fylgi
sinna ungu liðsmanna. I ýmsu hefur
Skólahljómsveit Kópavogs og
reyndar Homaflokkurinn líka, verið
í fararbroddi í málefnum bama- og
unglingalúðrasveita. Þar var til
dæmis þegar í byijun byggt á fjölda
til að létta hinum ungu blásurum
leikinn. Þau fóru strax að blása sam-
an, og út að blása það sem þau
kunnu, um leið og þau höfðu lært
nokkra tóna. Kennsluaðferðimar
miðuðust líka, í fyrsta sinn held ég
á íslandi, við að ala upp „sveita-
. menn“ í stað lítilla gervieinleikara.
Og krakkamir fengu sannarlega
fljótt að flytja lúðurhljóminn úr
Kópavogi víða um lönd, en þó fyrst
og fremst til vinabæjanna á hinum
Norðurlöndunum.
Raunsönn mynd
Afmælisplatan, sem hér um ræðir,
þykir mér gefa raunsanna mynd af
lúðrasveitunum öllum þremur, eins
„Blásarinn" frumkvöðull luðrablást urs í Kópavogi.
Tónlist
Eyjóifur Meisted
og þær hafa komið fyrir í leik sínum
á hátíðum og tyllidögum á undanf-
ömum árum. Það er kraftur í
krökkunum. Mikill kraftur og þykir
mér stundum sem dugnaðurinn sé
tekinn fram yfir fágun. Mín skoðun
er sú að þeim atriðum þyldi að vera
blandað saman í jafhari hlutföllum
hjá homaflokkunum í Kópavogi.
Þetta á þó síður við um Djassband-
ið. Þar er keyrslan ekki látin sitja
að sama skapi í fyrirrúmi, heldur
meira sinnt sveiflu og fleiri góðum
djassins siðum. Þessu gr reynt að
koma óbrengluðu til skila í upptö-
kunni og þykir mér sem það hafi
tekist eftir föngum vel. Hefur skiln-
ingur upptökustjóra þar eflaust
miklu ráðið. Það sýnir vel afstöðu
ráðamanna í bænum að það er Lista-
og menningarráð Kópavogs sem gef-
ur plötuna út. Kópavogsbúum hefur
frá upphafi þótt sómi að sínum
homaflokkum og styðja þeir von-
andi áfram myndarlega við bakið á
starfseminni, enda næg ástæða til.
EM
Tire$tone
Torfæruhjólharðar
semskila
þérá leiðarenda
Þessir hjólbaröar hafa veriö marg-
prófaðir við erfiðustu aðstæður og
útkoman er stórkostleg. Þeir eru
þrælsterkir og gripmiklir í torfæru-
akstri en samt þýðir og hljóðlátir á
malbiki.
Fáanlegir á mjög hagstæðu
verði.
Stærðir:
215/75 R 15
235/75 R 15
30x9.50 R 15
31x10.50 R 15
32x11.50 R 15
33x12.50 R 15
255/85 R 16
JÖFURHF , / •
NVBÝLAVECI 2 • SÍMI 42600 /> .’ J/Vh1