Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.1987, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 6. APRÍL 1987. NÝIR BÍLAR í SÝNINGARSAL ★ Nýjar hugmyndir. ★ Góð kjör. . ★ Úrval notaðra bíla ★ Heitt á könnunni. NPMÐIB mmÉmmm \%E2Dnis VOLVOSALURINN SKEIFUNN115. S. 35200 OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 9.00 TIL 18.00. LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 16.00. VOLYOSALURINN SKEIFUNNI 15, SÍMI 35200 - 35207. Volvo 740 GL árg. 1985, ekinn 32.000 km, silfurmetal., sjálfskipt- ur m/yfirgír, vökvastýri, sumar/ vetrardekk, upphækkaður, dráttarkrókur o.fl. Verö kr. Toyota 17.000 km, Ijósblár metal., sjálf- skiptur, sumar/vetrardekk. Verð kr. 395.000,- Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn Subaru 1800 GL station, árg. 1983, 69.000 km, Ijósblár metal., sjálf- ekinn 83.000 km, rauöur metal., skiptur, m/vökvastýri. Verð kr. beinsk., góð kjör. Verð kr. 395.000,- 370.000,- Volvo 244 DL árg. 1980, ekinn 108.000 km, brúnn, beinsk., m/vökva- st. Verð kr. 270.000,- Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 60.000 km, Ijós blá/grár metal., beinsk., m/yfirgír, vökvast. Verð kr. 400.000,-. Ath. skipti á ódýrari. Volvo 245 GL árg. 1982, ekinn 65.000 km, silfurmetal. beinsk., m/ yfirgír, vökvast. Verð kr. 440.000,- Volvo 244 GL árg. 1979, ekinn 114.000 km, brúnn, beinsk., vökva- st. Verð kr. 260.000. Góð kjör. Suzuki Fox árg. 1984, ekinn 47.000 km, silfurmetal. Verð kr. 350.000,- Góð kjör. Volvo 343 DL árg. 1979, blár metal., sjálfsk. Verð kr. 130.000,- Mik- ið yfirfarinn. Volvo 244 DL árg. 1980, ekinn 104.000 km, blár, beinsk., m/vökva- st. Verð kr. 270.000,- Góð kjör. Volvo 244 GL árg. 1981, ekinn 108.000 km, silfurmetal., beinsk., m/yfirgír, topplúga, turba útlit. Verð kr. 370.000,- Volvo 245 GL árg. 1982, ekinn 104.000 km, gullmetal. sjálfsk., m/ vökvast. Verð kr. 420.000,- Fiat Regata árg. 1984, ekinn 48.000 km, blár, beinsk. Góð kjör. Verð kr. 280.000,- Suzuki Alto Van árg. 1981, silfurmetal., ekinn 75.000 km. Verð 100.000,- Góð kjör. Volvo 240 GL árg. 1987, ekinn 8.500 km, Ijósgrár, sjálfskiptur, m/yfirgir, vökvastýri, útvarp/ segulband, læst drif. Verð kr. 750.000,- Toyota Royal Saloon árg. 1982, ekinn 65.000 km, silfurmetal., sjálfskiptur, vökvastýri, vetrar- dekk, rafm. í rúðum, læsingar og speglar, útvarp/segulband m/ upptöku, A/C miðstöð, kælibox, álfelgur, 6 cyl., 175 hö. og margt fleira. Verð aðeins kr. 550.000,- Bill í toppástandi. Volvo 240 turbo árg. 1984, ekinn 32.000 km, silfurgrár metal, beinsk., overdrive, m/vökvast., topplúga, Sumar- og vetrardekk á felgum. Verð kr. 720.000,- Volvo 740 GLE árg. 1985, ekinn 45.000 km, dökkgrár metal, sjálf- skiptur, m/overdrive, m/vökvast. Verð kr. 780.000,- ,Þjóðarflokkurinn, sem stofnaður var nýlega, er þverpólitísk tilraun til að ná fram raunverulegri valddreifingu. Valddreifing er nauðsyn Að sanna tilverurétt Þorpið er bæði samfélag og hagkerfi og sama gildir um héraðið. Oft virðist sem hagspekingamir, sem fjalla um efnahagsmál þjóðanna, gleymi þessu. Þeir standa þá gjaman í miðdepli hins pólitíska þjóðfélags og gera kröfu um að hinn eða þessi sanni tilverurétt sinn hagfræðilega. í seinni tíð hefur fólk í frumatvinnuvegunum orðið í æ ríkara mæli fómarlömb slíkra ábendinga. Öllum ætti t.d. að vera kunn löng píslarganga bænda sem hafa verið settir í þá ómögulegu aðstöðu að þurfa annars vegar að keppast við að auka framleiðni sína, oft með æmum til- kostnaði, til að standast samanburð við erlendar fyrirmyndir og hins vegar að keppa við niðurgreiddar afurðir þessara sömu fyrirmynda. Þeir sem hafa sett bændur í þessa ómögulegu aðstöðu era stjómmálamennimir, reyndar með dyggri aðstoð fjölmiðl- anna, milliliðanna og jafnvel forystu- liðs verkalýðsins, svo furðulegt sem það nú er. Enginn ofangreindra mundi þola að til þeirra væra gerðar sömu kröfur. Tákninblasa við Við verðum að gera okkur grein fyr- ir því að íslenska þjóðfélagið er dvergvaxið í samanburði við þær fyrir- myndir sem mest er horft til og jafn- framt að stærðardýrkun og síauknar kröfur um framleiðni era að leiða þær flestar í ógöngur sem erfitt verður að rata úr. Sumum kann að finnast þessi fullyrðing dálítið djörf en ég hika ekki við að setja hana fram þvi táknin blasa við hvert sem litið er. í einni átt sjáum við vistkerfí sem gæti hranið þá og þegar vegna óhóf- legrar fyrirferðar mannanna. í annarri átt sjáum við her atvinnuleysingja sem reika um og fá ekki viðeigandi við- fangsefni fyrir vit sitt eða hendur. í enn einni átt sjáum við bláfátækar þjóðir þar sem þegnamir svelta meðan ríkisstjómimar greiða hvem eyri sem í næst í vexti og afborganir af lánum sem tekin vora í þeim tilgangi að elt- ast við stærðardrauminn. Og í einni áttinni enn sjáum við svo þjóðir sem eyða risavöxnum upphæðum til að smíða stórvirk drápsleikföng sem auð- sjáanlega geta aldrei komið neinu mannlegu að gagni. Allar athafnir og allir hlutir þurfa að vera af viðeigandi stærðargráðu og því er ekki rétt að leggja á þá einfalda mælistiku hámarksgróða og fram- leiðni. Það er svo mikið af mótsögnum og slæmum fylgifiskum í þessum markmiðum, sem stórþjóðimar virðast hafa gert að keppikefli, að það getur varla verið eftirsóknarvert að apa allt eftir þeim. Keðjuverkandi samanburður Við skulum líka gera okkur grein fyrir að ef við byijum að krefjast þess að einhver sanni tilverurétt sinn á hagfræðilegan hátt má halda áfram koll af kolli. Ef við t.d. krefjumst þess af bónda vestur í Ketildölum í Amar- firði að hann lúti hagfræðilegum niðurstöðum spekinganna getum við alveg eins spurt hvort ekki sé della að búa á íslandi því 240 þúsund manns KjaUaiinn Sveinbjörn Jónsson formaður verkalýðs- og sjómannafélags Súgandafjarðar komast auðveldlega fyrir í úthverfi einhverrar borgar t.d. í Bretlandi, Frakklandi eða á Spáni, og allar þess- ar þjóðir gætu auðveldlega nýtt fiski- miðin hér við land og nóg er þar af ódýrum niðurgreiddum landbúnaðar-. vörum sem þarf að borða. Við skulum því forðast að skoða alla hluti ofan úr fílabeinstumi „centralsins" því það er jú bara örlítill punktur í miklu stærri heimi. Fórnarlömb pólitískrar forsjár Hvar á þá að taka ákvarðanir og hveijir eiga að gera það? Ég tel að best sé að sem flestir geti ráðið sem mestu um eigin aðstæður, þ.e. að völd- in og fjármagnið séu látin vera hjá fólkinu, þar sem það er niðurkomið, en ekki safriað saman á einn stað. Sá frumkvæðisþjófnaður sem átt hefur sér stað á Islandi, er stórhættulegur fyrir þjóðina alla. Hann hefur ræktað með fólki þá tilfinningu að það fái litlu um örlög sín og umhverfi ráðið og gert það að auðveldum fómarlömbum pólitískrar forsjár, sem stjómmála- menn hafa síðan notað sér í ríkum mæli við atkvæðaveiðar og til viðhalds hefðbundinni valdaskiptingu. Gömlu stjórnmálaflokkamir hafa allir óhreinkað sig meira og minna á að misnota þjóðfélagið á þennan hátt og ekki era miklar líkur á að hegðan þeirra muni breytast. Það er því nauð- synlegt að til komi nýtt afl sem hefur það að aðalmarkmiði að breyta þjóð- skipulaginu með það fyrir augum að skila valdinu aftur til fólksins svo að það geti haft sem mest áhrif á sitt nánasta umhverfi. Líklegt er að ef ekki tekst að spyma við fótum fljót- lega verði þessi þjóð fómarlamb þeirrar samhrunstilhneigingar sem er að eyðileggja mörg vanþróuð og sum þróuð ríki í dag. Það er því ekki seinna vænna að eitthvað sé gert í málunum. Sérstaða Þjóðarflokksins Þjóðarflokkurinn, sem stofriaður var nýlega, ér þverpólitísk tilraun til að ná fram raunveralegri valddreifingu. Þjóðarflokkurinn kærir sig ekki um pólitísk hreiður eins og hinir flokkam- ir hafa komið sér upp í þjóðfélaginu og vill reyndar mjög gjaman komast í aðstöðu til að eyðileggja eitthvað af hreiðrum gömlu flokkanna. Það er mjög brýnt að fólk átti sig á þessari sérstöðu Þjóðarflokksins og veiti hon- um brautargengi í kosningunum 25. apríl. Pólitískar galdrabrennur Látið ekki blekkjast af þeirri sýndar- mennsku sem gömlu flokkamir viðhafa nú rétt fyrir kosningar þegar þeir fóma manni og manni til að reyna að telja fólki trú um hreinleika sinn. Það er eðli og aðstaða flokkanna sjálfra sem spillir og þeim á ekki að líðast að fela það eitt augnablik meðan kosningar nálgast, með því að láta fara fram einhveijar pólitískar galdra- brennur. Látum ekki blekkjast af leikrænum tilburðum þeirra, notum tækifærið og látum Þjóðarflokkinn hreinsa til. Nýir vendir sópa best. Lifið heil. Sveinbjöm Jónsson Höfundur skipar annað sætið á lista Þjóðar- flokksins á VestQörðum. „Ég tel að best sé að sem flestir geti ráðið sem mestu um eigin aðstæður, þ.e. að völd- in og fjármagnið séu látin vera hjá fólkinu þar sem það er niðurkomið en ekki safnað saman á einn stað.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.