Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987.
5
dv Sljómmál
Sjálfstæðismenn á miðstjórnarfundi í gær. Þrátt fyrir stórtap í kosningum hafa þeir lykilstöðu í komandi stjómar-
myndunarviðræðum. DV-mynd Brynjar Gauti
Togstreíta milli
Jóns Baldvins
og Steingríms
líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn fari sér hægt næstu vikur
Viðbrögð Steingríms Hermannsson-
ar, formanns Framsóknarflokksins,
við frumkvæði Jóns Baldvins Hannib-
alssonar, með könnunarviðræðum við
Kvennalista og Sjálfstæðisflokk, birt-
ust í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í
gær. Steingrímur lýsti þvi afdráttár-
laust yfir að Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur ættu að halda
áfram ríkisstjórnarsamstarfi og fá með
sér þriðja aðila.
Togstreita er þannig komin upp á
milli Jóns Baldvins og Steingríms.
Yfirlýsingar Tímans, málgagns fram-
sóknarmanna, um Jón Baldvin og sú
staðreynd að Steingrímur kaus í fyrra-
dag að ræða frekar við Jón Sigurðs-
son, efsta mann Alþýðuflokksins í
Reykjavík, undirstrika að Steingrími
og framsóknarmönnum er ekki of hlýtt
til Jóns Baldvins fyrir að reyna að
„stinga undan“ Framsóknarflokknum.
Kvennalistinn sýni spilin
Förmaður Sjálfstæðisflokksins, Þor-
steinn Pálsson, hefur metið stöðuna
svo að réttast sé að fá fram skýran
vilja Kvennalistans.
Það virðist því standa upp á
Kvennalistann að leggja fyrst spilin á
borðið. Hvaða kröfur gera konurnar
til málefna og ráðuneyta? Hversu dýr-
ar verða þær? Munu gömlu flokkarnir
fá tækifæri til að afgreiða þær sem
ósamstarfshæfan þrýstihóp?
Sjálfstæðismenn ætla að fara sér
hægt. Útkoman úr kosningunum segir
þeim að bíða átekta. Þeir minnast
þess hins vegar að ótrúlega oft koma
þeir sem tapa í kosningunum út sem
sigurvegarar í stjómarmyndunarvið-
ræðum, samanber Framsóknarflokk-
inn árið 1978.
Það myndi heldur ekki verða til
skaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn að sjá
allar viðræður sigla í strand og fá fram
nýjar kosningar í haust. Þá gætu sjálf-
stæðismenn sagt: Sögðum við ekki.
Séum við ekki sterkir ríkir upplausn.
Fýsir ekki í stjórn án Sjálfstæð-
isflokks
Sjálfstæðismenn vita að hvorki Al-
þýðuflokk né Framsóknarflokk fysir
að fara í stjóm án þeirra. Með því að.
hafa hægt um sig gætu þeir vænst ört
hækkandi bónorðstilboða frá bæði
Steingrími og Jóni Baldvini.
Borgaraflokkur Alberts Guðmunds-
sonar er ekki í myndinni ennþá.
Forysta Sjálfstæðisflokksins kærir sig
ekki, að minnsta kosti ekki fyrst um
sinn, um að kanna samstarfsgrundvöll
þar á milli. Albert reynir á móti að
afla fjögurra flokka stjóm án Sjálf-
stæðisflokks fylgis.
Þjóðviljinn í morgun hvetur eiimig
til fjögurra flokka stjómar, vinstri
stjómar án Alberts og Sjálfstæðis-
flokks. Á fyrstu stigum gimast hvorki
Jón Baldvin né Steingrímur þessa
kosti.
Næstu vikumar er því eðlilegast að
álykta að fyrst og fremst verði reyndar
samstarfsleiðir milli Sjálfstæðisflokks
og tveggja af þessum þremur: Al-
þýðuflokks, Framsóknarflokks og
Kvennalista.
Landbúnaðarmálin em stærsta
hindrun samstarfs milli Alþýðuflokks
og Framsóknar. Verði Kvennalistinn
ekki talinn of útgjaldafrekur er spurn-
ing hvort þær kyngja utanríkismála-
stefnu hinna. -KMU
Forseti gefur frest
fram yfir helgina
Eftir að ríkisstjóm Steingríms Her-
mannssonar hefur nú sagt af sér
verður forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, að taka fyrsta skrefið við
að mynda hér starfhæfa ríkisstjóm.
Formlegar stjómarmyndunarvið-
ræður geta ekki hafist fyrr en forsetinn
hefur fengið einhverjum stjómmála-
leiðtoganna umboð til myndunar
ríkisstjómar. Stjómarmyndun nú er
við nokkuð viðkvæmar aðstæður og
því getur það skipt miklu máli hveij-
um forsetinn felur umboðið.
Líklegt er að forsetinn muni eiga
ítarlegar viðræður við formenn flokk-
anna áður en hún gerir upp hug sinn
varðandi það hveijum skal falið um-
boðið í fyrstu atrennu.
Viðræður þessar munu að öllum lík-
indum hefjast strax eftir helgina.
Forsetinn vill gefa formönnunum
nokkurra daga frest til þess að ræða
við sína flokksmenn og sín á milli.
Vonast er til að línur muni nokkuð
skýrast við það en í dag er alls ómögu-
legt að sjá fyrir hver muni fá umboðið.
-ES
„Enginn ágreiningur"
„Þetta em hrein ósannindi hjá
Ríkisútvarpinu," sagði Sighvatur
Björgvinsson alþingismaður um
kvöldfréttir í gærkvöldi þar sem sagt
var að ágreiningur væri innan þing-
flokks Álþýðuflokksins um fram-
göngu Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar, formanns flokksins.
Sighvatur sagði að menn hefðu
gert því skóna að hann hefði verið
að bera á borð slíkar fréttir til að
koma höggi á Jón Baldvin.
„Þessi frétt útvarpsins er í öllum
atriðum röng, staðlausir stafir. Það
ríkir enginn ágreiningur innan þing-
flokksins um aðferðir Jóns Baldvins
eða hvemig hann eigi að halda á
málum,“ sagði Sighvatur. -KMU
VANTAR í EFTIRTALIN HVERFI
Markarflöt Keilufell
Sunnuflöt
Bakkaflöt Laugarásveg
Móaflöt Sunnuveg
Tjarnarflöt
Völvufell Álfhólsveg 1-45
Yrsufell Digranesveg 1-42
Kötlufell Álfatröð, Vallartröð
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Sími 27022
N* MYNDBÖND
á myndbandaleigur í dag
ÍSLENSKUR TEXT1
Always (Dejávu): Mögnuð
spennumynd frá Cannon
sem fjallar um dulræna
hluti og ótrúlegar sálar-
flækjur. I aðalhlutverkum
eru úrvalsleikararnir Jack-
lyn Smith, Shelley Winters,
Claire Bloom og Nigel
Terry.
Heavenly Pursuits: Stór-
skemmtileg gamanmynd
frá CBS með grínaranum
góðkunna, Tom Conti
(American Dreamer, Sav-
ing Grace) og Helen
Mirren (Cal, 0 Lucky
Man).
ÍSLENSKUR TEXTI
................................... íAt^tíír &..................
1 Vix'Vt • *. 9 •,<*«:
ivft JJC,*
u\m .. v».«" '
Ninja III The Domination:
Andi ninjastríðsmanns tek-
ur sér bólfestu í líkama
ungrar stúlku sem við það
breytis í morðmaskinu.
Með aðalhlutverk fer
stjarnan úr Breakdance II,
Lucinda Dickey.
America 3000: Þræl-
skemmtileg ævintýramynd
frá Cannon fyrir unga jafnt
sem aldna. Aðalhlutverk:
Chuck Wagner, Laurene
Landon, Victoria Barrett og
Camilla Sparv.
HE'S THE Ut Jimií KiLlB)
SHE'S THE PERFWT WEAPON
'S. /f
f
i\ i \*ia xn \
THE DOMINATIDN
Leikið rétta leikiiin—
lakiðmyndfmTEFII
Ármúla 36, 108 Reykjavík - sími 686250