Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987.
7
Atvinnumál
Hvalurinn enn í Hamborg:
Þeir flokka hvalinn með
kaktusum og krókódílum
„Þjóðverjar vilja fá einhver plögg
hvað varðar þessa flutninga með hval-
kjötið. Gallinn er bara sá að við vitum
ekki hvað á að standa í plöggunum.
Þetta er allt mjög snúið en ég á von
á að botn fáist í málið áður en langt
um líður,“ sagði Kristján Loftsson hjá
Hval hf. um hvalkjötið sem kyrrsett
var í Hamborg fyrir mánuði. Þar liggja
170 lestir af hvalkjöti á hafnarbakkan-
um í fríhöfhinni og komast ekki leiðar
sinnar til Japan.
Óljóst er hvers vegna hvalkjötið var
kyrrsett í Hamborg en vitað er að í
ríkjum Efnahagsbandalagsins hafa í
áraraðir verið í gildi lög sem banna
innflutning á afurðum dýra sem eru
friðuð eða talin í útrýmingarhættu.
Það eitt hefði þó ekki átt að stöðva
hvalkjötið í Hamborg því farmurinn
- segir Kristján Loftsson
- Það eru fleiri leiðir til Japan en i gegnum Hamborg, segir Kristján Loftsson hjá Hval hf.
fór um fríhöfri og þvi ekki ætlaður til
innflutnings í landið.
„Þetta mál hefur ekki komið inn á
borð til okkar hér í ráðuneytinu.
Kristján Loftsson hefur alfarið unnið
að lausn þess,“ sagði Þórhallur Ás-
geirsson, ráðuneytisstjóri í viðskipta-
ráðuneytinu, í samtali við DV.
Kristján Loftsson útgerðarmaður
hjá Hval hf. virðist ekki hafa miklar
áhyggjur af hvalkjöti sínu í Hamborg:
„Það eru fleiri leiðir til Japan en í
gegnum Hamborg," sagði hann að-
spurður. „Mér virðist sem Þjóðverjar
séu búnir að setja hvalinn á lista með
kaktusum, krókódílum og ýmsu þess
háttar og því hafi hvalkjötið verið
stoppað af. Á meðan finnst þeim allt
í lagi að ausa súru regni yfir aðra,“
sagði Kristján Loftsson. -EIR
Verðlagsráð fundar um nýtt rækjuverð:
Kaupendur hafa sagt
gildandi rækjuverði
upp frá mánaðamótum
í dag er boðaður fúndur í verðlagsr-
áði sjávarútvegsins um nýtt rækjuverð
en rækjuverksmiðjumar hafa sagt
gildandi verði upp frá 1. maí. Rækju-
verðið átti að gilda til 1. október með
möguleika á uppsögn 1. maí og það
uppsagnarákvæði hafa rækjuverk-
smiðjumar nú notfært sér. Ástæða
þess er sú að verð á rækju hefúr hrap-
að á heimsmarkaði og nemur lækkun-
in um 30% frá því verðið var hæst.
Guðmundur Stefán Maríasson,
framkvæmdastjóri Félags rækjufram-
leiðenda, sagði að ekkert vit hefði
verið í að láta núverandi rækjuverð
gilda áfram miðað við heimsmarkaðs-
verðið. Hann sagði að verðjöfnunar-
sjóður stæði mjög vel og það bjargaði
málunum sem stæði. Rækjuframléið-
endur hefðu þurft að greiða 50% af
því sem þeir fengju umfram viðmiðun-
arverð til verðjöfnunarsjóðs og því
hefði safnast srtórfé í sjóðinn meðan
rækjuverðið hefði verið sem hæst. Það
hefði líka orðið til þess að rækjufram-
leiðendur hefðu ekki getað byggt sig
upp sem skyldi og ekki notið til fulls
þess háa verðs sem um tíma hefði ve-
rið á rækju í heiminum.
Guðmundur Stefán taldi ólíklegt að
rækjuveiðar legðust niður eftir 1. maí
þótt ekki hefði tekist að semja um
nýtt verð. Hann taldi að menn myndu
róa upp á væntanlegt verð. -S.dór
Annar vegskáli
byggður
Annar vegskáli verður byggður í
Óshlíð, milli Bolungarvíkur og Hnífs-
dals, í sumar. Verður hann byggður á
Hvanngjá ytri, að sögn Péturs Ingólfs-
sonar, verkfræðings hjá Vegagerðinni.
Þessi vegskáli verður 30 metra lang-
ur, eða talsvert minni en sá sem
byggður var á Steinsófærugil í fyrra.
Sá skáli, sem er 90 metra langur, var
vígður 3. október síðastliðinn.
Tölboð í Hvanngjárskálann voru
opnuð 13. apríl síðastliðinn. Lægsta
boð átti Gunnar og Guðmundur sf. í
í Oshlíð
Reykjavík, um 12,6 milljónir króna.
Er það nokkuð yfir kostnaðaráætlun,
sem hljóðaði upp á 10,8 milljónir
króna.
Aðrir sem buðu í verkið voru Hag-
virki, Hafnarfirði, með 12,8 milljónir
króna, Ömólfur Guðmundsson, Bol-
ungarvík, 13,5 milljónir króna, og
Vesttak, Isafirði, 13,9 milljónir króna.
Hugsanlegt er að fleiri vegskálar
verði byggðir á Óshlíðarveginn.
-KMU
Félagsráögjafar
samþykktu nýja
kjarasamninga
Félagsráðgjafar sem starfa hjá rík-
inu samþykktu nýgerða kjarasamn-
inga sem Stéttarfélag íslenskra
félagsfræðinga gerði við ríkið á fundi
á mánudaginn var. Um leið var verk-
falli þeirra, sem hófst 26. mars, aflétt.
Stór hluti félagsráðgjafa starfar hjá
Reykjavíkurborg og semur Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar fyrir
þá, þannig að sömu samningar eru
ekki gerðir fyrir alla innan Stéttarfé-
lags íslenskra félagsfræðinga.
-S.dór
Ert þú í œvintýraleit?
Vió kynnum œvintýraferóir um allan heim í kvöld 29. apríl, kl. 20.30.
Derek Biddle frá ENCOUNTER OVERLAND kynnir stórkostlegar feróir
um allan heim, þar á meóal 63 vikna heimsreisu: TRANS GLOBE 88.
Einnig svarar hann fyrirspurnum um aórar œvintýraferóir sem í boói
eru. Sýndar veróa Ijósmyndir og kvikmyndir um feróir til Afríku,
Austurlanda og Mió- og Suóur-Ameríku.
Kynnlngln veröur haldln í ODDA,
Háskóla íslands og hefst kl. 20.30.
Heitt á könnunni.
Allir velkomnir.
FERÐA
SKRIFSTOFA
STÚDENTA
Hnngbraut, siml 16850
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður
haldinn á morgun. fimmtudaginn 30. apríl 1987 að
Hótel Loftleiðum, Kristalssal og hefst kl. 14.30.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild bankaráðs til útgáfu jöfn-
unarhlutabréfa og tillögur til breytinga á
samþykktum bankans, ef fram koma.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir í aðalbanka, Bankastræti 7, dagana
27. - 29. apríl svo og á fundarstað.
Ðankaráð Samvinnubanka íslands hf