Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987.
í vörslu óskilamunadeildar lögreglunnar
er margt óskilamuna, svo sem:
reiðhjól, barnakerrur, fatnaður, lyklaveski, lyklakipp-
ur, seðlaveski, handtöskur, úr, gleraugu, hjólastólar
o.fl.
Er þeim sem slíkum munum hafa glatað bent á að
spyrjast fyrir um þá á skrifstofu óskilamuna, Hverfis-
götu 113 (gengið inn frá Snorrabraut) frá kl. 14.00-
16.00 virka daga.
Þeir óskilamunir sem eru búnir að vera í vörslu lögregl-
unnar ár eða lengur verða seldir á uppboði í portinu
að Borgartúni 7, laugardaginn 9. maí 1987.
Uppboðið hefst kl. 13.30.
24. apríl 1987,
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Sólbaðsstofa
N*ia./Astu B. Vilhjálms,
peruif °
Grettisgötu 18,
sími 28705
Aftur er komið að
okkar vinsæla tilboði
sem allir þekkja, 24
tímará aoeins 1600
krónur.
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI
getrmuía-
VINNINGAR!
36. LEIKVIKA - 25. APRÍL 1987
VINNINGSRÖÐ: 121-X11-XX1-122
1. VINNINGUR: 12 RÉTTIR,
kr. 196.580,-
11076 53930(4/11)
2. VINNINGUR: 11 RÉTTIR,
kr. 12.035,-
9727 51537+ 129121 úr 19. viku
11075 55709 590642 49168
47835 97386 590643
Kærufrestur er til mánudagsins 18. mai 1987 kl. 12.00 á hádegi.
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstöðinni v/Sigtún, Reykjavík
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og a skritstofunni
Reykjavik. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar natnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn oa heimilisfana til Istönskra Getrauna fyrir lok kærufrests.
Utlönd
lan Sindair, formaður Þjóðarflokkins, á leið til fundar við John Howard, formann frjálslyndra, til viðræðna um samstarfs-
slit flokkanna. Símamynd Reuter
Andstaðan sundruð
Sundrung hefur komið upp meðal
stjómarandstæðinga í Ástralíu eftir
íjömtíu ára samstarf. Segja stjóm-
málaandstæðingar að margra mánaða
árangurslausar tilraunir leiðtoga
fijálslyndra, John Howard, og leiðtoga
þjóðarflokksins, Ian Sinclair, til þess
að leysa vandann séu stjóm Verka-
mannaflokksins í hag. Samkvæmt
skoðanakönnunum nýtur stjóm Bob
Hawke, sem setið hefur í fjögur ár,
vaxandi vinsælda.
John Howard sleit í gær samstarfi
stjómarandstöðunnar eftir að honum
mistókst að meina tólf meðlimum
Þjóðarflokksins að sækja fundi stjóm-
arandstöðunnar en þeir vildu, undir
forystu Bjelke-Petersen, reyna að
komast á sambandsþing.
Ný rikisstjóm
mynduð í Finnlandi
Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi;
Nær sex vikum eftir þingkosning-
arnar var loks mynduð ný ríkisstjórn
í Finnlandi í gær undir forsæti seðla-
bankastjórans og hægri mannsins
Harri Holkeri.
Fengu jafhaðarmenn flesta ráð-
herrana í stjórninni, eða átta, og
verður formaður Jafnaðarmanna-
flokksins, Kalevi Sorsa, utanríkis-
ráðherra. - Hægri menn fengu sjö
ráðherra, Sænski þjóðarflokkurinn
tvo og Dreifbýlisflokkurinn einn.
Þessi ríkisstjórn er mjög óvenjuleg
því að jafnaðarmenn og hægrimenn
hafa verið höfuðandstæðingar í
finnskum stjórnmálum undanfarna
áratugi. Talsmenn flokkanna fjög-
urra, sem aðild eiga að stjórnar-
mynduninni, lýstu því samt yfir allir
að þeir væru mjög ánægðir með
stjórnarsáttmálann.
Þó hefur heyrst gagnrýni um að
stjórnarsáttmálinn byggi fyrst og
fremst á sviknum kosningaloforðum.
- Koivisto Finnlandsforseti er einnig
sakaður um að hafa svikið loforð sitt
um að völd þingsins mundu aukin.
Þegar í ljós kom að borgaralegur
þingmeirihluti var fyrir hendi og
Ilkka Suominen, formaður hægri-
flokksins, hafði lýst þeirri skoðun
sinni að tími væri kominn til þess
að mynda borgaralega stjórn greip
Koivisto inn í stjórnarmyndunarvið-
ræðurnar og fól seðlabankastjóran-
um Harri Holkeri að kanna
möguleika á myndun ríkisstjórnar
hægri manna og jafnaðarmanna. Sú
tilraun tókst og þar með hafði forset-
anum tekist að afstýra því að
Jafnaðarflokkurinn (hans gamli
flokkur) lenti í stjómarandstöðu,
eins og Sorsa, forsætisráðherra síð-
ustu ríkisstjórnar, hafði hálft í hvoru
ætlast til, ef stjóm hans félli í kosn-
ingunum, sem varð, því að jafnaðar-
flokkurinn tapaði fylgi og þingsæt-
um .
Atvmnusjúkdómum
fjölgar í Danmörku
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmanuahöfe
Danska vinnueftirlitið óttast gífur-
lega aukningu vinnuslysa og vinnu-
sjúkdóma fram að aldamótum. í
skýrslu vinnueftirlitsins frá 1986 er
talað um tvöföldun vinnuslysa ef fyrir-
byggjandi aðgerðir verði ekki efldar.
Arið 1986 jókst tala tilkynntra
vinnuslysa og vinnusjúkdóma. Er það
ekki álitið vera vegna þess að tilkynnt
sé um fleiri tilfelli en áður heldur hef-
ur þeim í raun og vem fjölgað og
tengist það að einhverju leyti aukinni
atvinnusköpun.
Tilkynningum um atvinnusjúkdóma
hefur Ijölgað gífurlega. Við upphaf
skráningar vinnusjúkdóma 1983 vom
nimlega sex þúsund tilfelli tilkynnt.
1986 var fjöldi tilfellanna sautján þús-
und.
Sjúkdómar í liðum em algengastir
en þar em sinaskeiðabólga og bak-
veiki í meirihluta. Á eftir liðsjúk-
dómum koma húðsjúkdómar,
heymarskemmdir og heilaskemmdir.
Heymarskemmdir hafa aukist um
fimmtíu prósent en heilaskemmdum
hefur fækkað. Lítur út fyrir að heila-
skemmdir meðal málara og starfsfólks
í grafískum fögum séu á niðurleið en
mikil umræða hefur lengi átt sér stað
um hættuna á heilaskemmdum vegna
uppleysiefha sem notuð em í þessum
starfsgreinum.
Tvöföldun hefur orðið á tilkynntum
krabbameinstilfellum, tveir þriðju
hlutar em lungna- og lungnahimnu-
krabbamein sem í helmingi tilfella em
sett í tengsl við vinnu með asbest.
Umsjón:
Halldór Valdimarsson,
Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
og
Guðmundur Pétursson