Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. 9 Utlönd Kosið á Ítalíu fjórtánda júní Ákveðið hefur verið að ganga til kosninga á Italíu þann fjórtánda júní næstkomandi í þeirri von að niður- stöður nýrra kosninga ráði bót á stjómarkreppu þeirri sem ríkt hefur í landinu undanfamar átta vikur; Francesco Cossiga, forseti Ítalíu, sleit í gær þingi og boðaði til nýrra kosninga í júní, ári áður en áætlað var að ganga að kjörborðunum. Þessi ákvörðun forsetans fylgdi í kjölfar vantrausts á stjóm Fanfanis forsætis- ráðherra sem samþykkt var af þinginu í gær. Flokkur Fanfanis, kristilegir demó- kratar, hvatti til nýrra kosninga eftir að tvær tilraunir til að endurreisa samsteypustjóm í landinu fóm út um þúfur. Við atkvæðagreiðsluna um van- traust ákváðu nokkrir fulltrúar stjóm- arandstöðunnar að styðja ríkisstjóm- ina en stjómarþingmenn sátu þá hjá til þess að tryggja að stjómin yrði felld. Einn fulltrúa stjómarandstöð- unnar lýsti því yfir i gær að þessi leikur væri allur hinn fáránlegasti. Stjómarkreppa þessi fylgdi í kjölfar afsagnar Bettino Craxi, fyrrum forsæt- isráðherra, en hann fór frá eftir langvarandi valdabaráttu milli flokks hans, Sósíalistaflokksins, og kristi- legra demókrata, samstarfsflokks þeirra í rikisstjóm. Kristil'egir demókratar kváðust þá orðnir þreyttir á að sitja í skugganum af sósialistum og sósíalistar neituðu að taka þátt í ríkisstjóm þar sem áhrif flokkanna réðust af stærð þeirra en kristilegir demókratar em stærsti flokkur ítalska þingsins. Forseti fulltrúadeildar italska þingsins les niðurstöður atkvæðagreiðslu um vantraust á minnihlutastjórn Amintore Fan- fani en ríkisstjórn hans var felld í gær. fyrkland við dyr Evrópu Jcm Ctanur HaDdórsacm, DV, London; Sendimenn tyrknesku stjórnar- innar hafa að undanfömu verið á ferð milli höfuðborga Evrópu til þess að leita eftir stuðningi við umsókn landsins um aðild að Evr- ópubandalaginu. Umsókn Tyrklands hefúr sett evrópska stjómmálamenn i mik- inn vanda því flestir telja óhugs- andi af póh'tískum og efnahagslog- um ástæðum að veita Tyrklandi aðild að bandalaginu á þessari öld. Um leið er flestum ljóst að framtíð lýðræðis i Tyrklandi getur verið undir því komin að ekki verði sleg- ið á hendur þarlendra stjómvalda í höfuðborgum Evrópu. Aðild að bandalaginu mundi veita öllum íbúum Tyrklands, sem em fjörutíu og fimm milljónir og íjölgai- um meira en milljón á ári, fu.Il réttindi til búsetu, vinnú og annars um mestalla Vestur-Evr- ópu. Þetta þykir ekki fýsilegt í þessum löndum þai- sem spenna hefiu- farið vaxandi vegna vem milljóna verkaraanna frá Tyrkl- andi, Norður-Afríku og í tilviki Bretlands frá Asíu, Alríku og eyj- um Karíbahafsins. Eins er talið óhugsandi að bandalagið geti stutt við land- búnað í Tyrklandi með Sítma hætti og gert er við evrópskan land- búnað en hændum í álfúnni er greitt fast verð fyrir framleiðslu þannig að offramleiðsla á mat er orðin eitt helsta efiiahagsvanda- mái áifúnnar og milljónir tonna af mat liggja undir skemmdum. I Tyrklandi er aðild að bandalag- inu viðkvæmt deilumál milli þeirra sem vilja vesfi*æna siði og hinna sem telja sig eiga meiri samleið meö trúbræðmm sínum í Afríku og Asíu on allur þorri þjóðarinnar aöhyllist islam. Argentínu- foringjar fyrir rétt Argentínskur dómstóll hefúr ákveðið að stefna skuli hershöfö- ingjanum Jose Dante Caridi vegna mannréttindabrofca frá áiínu 1981 þegar Cíiridi var yfirmaður her- skóla nálægt Buenos Aires. Lögfræðingur við réttinn, þar sem mál Caridis verður tekið upp, segir að það getí verið að Caridi hafi tekið þátt í greftmn þein*a er létust eftir misþyrmingar liðs- manna öryggissveitanna. Hingað til hefur þijú hundruð og fimmtíu liðsforingjiun og örygg- issveitamönnum verið stefnt vegna mannréttindabrota. Ekki eru allar ferdir tíl fjár en ferð í Fjörðinn borgar sig! Clæsilegustu gólfteppin, flísarnar, parketiö og hreinlætistækin færöu hjá okkur á viöráöanlegum greiöslukjörum. Og þú ferð ánægður heim. Útborgun 20%. Eftirstöðvar í allt aö 9 mánuði. Kostaði Arafat stuðning þriggja hófsamra arabaríkja Svo virðist sem afgreiðsla mála á þjóðarþingi Palestínumanna ætli að kosta Yasser Arafat, endurkjörinn leiðtoga frelsishreyfingar Palestínu, PLO, stuðning þriggja hófsamra arabaríkja, sem hingað til hafa viljað fá hann sem þátttakanda í friðarvið- ræðum í Mið-Austurlöndum. Þjóðarráð Palestínu, sem fundaði í Alsír í síðustu viku, hafnaði sam- komulagi við Jórdani um sameigin- legar friðaraðgerðir og ákvað að endurskoða samband Palestínu- manna við Egyptaland, eina araba- ríkið sem hefur stjómmálasamband Lögreglumenn á verði fyrir utan eina af skrifstofum PLO i Kaíró í gær en þá lokuðu Egyptar fjórtán skrifstof- um samtakanna. við ísrael. Að kröfú þeirra flokka palestínu- manna sem eiga rætur sínar að rekja til Damaskus lýsti þjóðarráðið því yfir að sambandið við Egypta réðist af því hversu ákveðið Egyptar héldu sig frá ákvæðum friðarsamningsins við Israel sem gerður var árið 1979. Flest arabaríki slitu sambandi við Egyptaland þegar samningar þessir voru undirritaðir. Egyptar reiddust ákaflega þessum yfirlýsingum þjóðarráðsins og lok- uðu öllum skrifstofum PLO í Egyptalandi. Hussein Jórdaníukonungur stöðv- aði á síðasta ári framkvæmd samkomulags við PLO um sameigin- legar friðaraðgerðir. Hann lokaði þá liðlega tuttugu skrifstofúm PLO í Amman og lýsti þvi yfir að stjóm samtakanna væri óstarfhæf. Marokkó sleit sambandi sínu við Palestínumenn eftir að fúlltrúa Polisario, frelsishreyfingar Vestur- Sahara, var meinað að ávarpa þjóð- arráðið. Egyptar, Israelar, Jórdaníumenn og Bandaríkjamenn hafa undanfarið reynt að koma á friðarráðstefnu að- ila að deilum í Mið-Austurlöndum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þær umleitanir hafa strandað á deilum um hver skuli vera fúlltrúi Palest- ínumanna. Egyptaland hefur þjónað sem tengiliður milli PLO annars vegar, Bandaríkjanna og ísraels hins vegar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.