Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. Spumingin Hvert finnst þér líkleg- asta stjórnarmynstrið? Vilhjálmur Berghreinsson nemi: Það er nú erfitt að segja til um það, sér- staklega er maður fylgist lítið sem ekkert með pólitík. En ég vona bara í lengsu lög að stjórnarflokkarnir sitji ekki við stjórnvölinn aftur því mér finnst þeir engan veginn hafa staðið sig sem skyld.. Örn Héðinsson sölustjóri: Ég myndi telja að það væri ákjósanlegast ef D, A og B eða V-listinn mynduðu þriggja flokka ríkisstjórn. Það er allavega stjóm sem ég myndi sætta mig við úr því sem komið er. Magdalena Gissurardóttir húsmóðir: Ef ég fengi að ráða myndi ég vilja A, V og S-listann en það er býsna óraunhæft dæmi þar sem þeir eru ekki nógu margir. Ég myndi svo sem láta mér það lynda þó að G-listinn bættist við og mynduð yrði 4 flokka stjórn. Ragna Stefánsdóttir matráðskona: Ég tel að dæmið gangi aldrei upp, það verður eflaust kosið aftur í haust. Ég á erfitt með að ímynda mér V-listann í stjórnarsamstarfi með öðrum flokkum og D-listinn á aldrei eftir að viðurkenna S-listann. Sigurbjörg Guðmundsdóttir: Mér sýnist nú staðan vera mjög erfið og mikil málamiðlun vera framundan takist þeim að komast að niðurstöðu. Jón Helgason vélstjóri: Mér finnst ekki nokkur leið að svara þessu, þetta eru allt sömu sveinarnir og þvi get ég ekki ímyndað mér að það breyti nokkru hverjir skipi stjóm. Lesendur__________________ Hvað er að kjörum borgarstarfsmanna? Stefán Karlsson, 8352-2356, skrifar: í viðmiðun við sambærilega starís- hópa annars staðar eru borgarstarfs- menn alls staðar lægstir. I bréfi mánudaginn 13. apr. sl. kalla ég samn- ing borgarstarfsmanna verðbólgu- sprengju gagnvart þeim lægst launuðu. Nákvæmari lýsing væri launamisréttisaukandi og kjararýr- andi. Hann hljóðar upp á 24% launa- hækkun á tveimur árum en verðbólg- uspá fyrir þetta ár er þegar komin í 18%. Þó að verðbóta- eða endurskoð- unarákvæði séu í samningum koma verðbætur seint og illa til launþega og reiknast í prósentum eins og hinar hækkanimar. Jöfn prósentuhækkun er galli sem skilar sér sem ólík krónut- ala til launfólks, minnst til þeirra lægstu, mest til hálaunafólks. Við lág- launafólkið virðumst lenda undir viðmiðunarmörkum þannig að við fáum aldrei bættar til fulls í krónum þær hækkanir sem í kringum okkur eru. Við kaupum fyrir krónuna, ekki prósentutöluna. Frá þessu sjónarmiði séð ríkir því verðbólga, hvort sem ástæðan er að það vanti einhverja mikilvæga þætti í verðbótaviðmiðun- ina eða einfaldlega að hækkanir verði í takt við meðallaun sem við lendum undir. Hálaunamenn koma þá út með hagvöxt en við með verðbólgu. Því er augljóst að í hverjum samn- ingi þarf að kippa þeim lægstu heldur meira upp en hinum, svo að launabilið gliðni ekki í það óendanlega. Við kom- umst ekki af hvert án annars í þessu þjóðfélagi, stjómendur verða engir stjómendur nema einhverjir geti lifað á launum undir stjómendalaunum. Kjaradeila borgarstarísmanna er að taka á sig leiðinlega mynd. Ég sem vagnstjóri á minn þátt í því eins og hver önnur hugsandi og virk mann- eskja á sinn þátt í þróun mála hverju sinni. Meining mín og félaga minna var ekki heilagt stríð heldur að benda á að undanfarin átta ár höfum við dregist jaint og þétt aftur úr öðrum starfshópum borgarinnar. Ábyrgðina höfum við lagt á launa- samninganeíhd í heild. Ég trúi að forsvarsmenn okkar í SVR hafi augun opin fyrir því nú að það sé komið að vagnstjórum að fá verulegar úrbætur, eftir að hafa tekið sinn hluta af byrð- inni í mörg ár. Það er leitt ef ráðamenn borgarinnar sjá ekki hvert tjón það er SVR að missa nú unnvörpum þjálfaða starfs- menn vegna lágra launa. Þjónustufyr- irtæki, sem á jafhmikið undir mannlegum samskiptum, þarf tvi- mælalaust að eiga völ á ánægðum mannskap, svo ekki sé minnst á þjálf- un í meðhöndlun tækja sem kosta íbúðarverð. Það má líta á launamál vagnstjóra sem spumingu um ábyrga afstöðu til fyrirtækisins. Starfið er vanmetið hvað vinnuálag og hæíhi starfsmanna varðar og launin eru í engu samræmi við raunveruleikann. Það verður að vera hægt að fram- fleyta sér af starfinu. Ég læt minni umfjöllun lokið að sinni með von um aukinn skilning. „Starfið er vanmetið hvað vinnuálag og hæfni starfsmanna varðar og laun- in eru í engu samræmi við raunveruleikann." Abyigðarieysi ráðamanna Skattborgari skrifar: Nú þegar ný stjóm er í vændum vonar maður bara að tilvonandi stjóm beri meiri ábyrgð en þær sem á undan hafa gengið. Af hverju eiga ráðamenn þjóðarinnar ekki að bera ábyrgð á sín- um mistökum rétt eins og fram- kvæmdastjóri hjá einkafyrirtæki? Ábyrgðarleysi ráðamanna gerir mann nefriilega hálfvonlausan um rekstur þjóðarskútunnar og verður þess valdandi að maður fyllist tor- tryggni í garð þeirra, Gott dæmi um ábyrgðarleysi þeirra er að á sama tíma og við íslendingar erum með hæstu þjóðartekjur á mann í heiminum virð- ast erlendir skuldir aukast jafht og þétt. Hvemig má þetta vera? Hvemig má það vera að skattborgarar þessa lands þurfi að fara í vasann sinn til að greiða fyrir ófyrirgefanleg mistök varðandi Hafskipsmálið, hvorki meira né minna en 1 milljarð. Þrátt fyrir að milljarður fór í súginn vill enginn kannast við neitt og allir fara eitthvað í kringum þetta. En við skattborgar- amh viljum fá skýringu á milljarðin- um. Það ber einhver ábyrgð á þessu og það er réttast að viðkomandi axli þá ábyrgð. For- eldrar, hafíð varann * a Lára Magnúsdóttir hringdi: Ég vil beina þeim tilmælum til foreldra og annarra þeirra er hafa umsjá bama að gæta þess vel að skilja ekki eftir lyf eða önnur hættuleg efhi á glámbekk. Forvitni er bömunum svo eðlislæg og því er meiri ástæða fyrir okkur fhll- orðna fólkið að koma í veg fyrir að slík slys geti yfir höfuð átt sér stað. Maður sér það bara því miður allt of oft á heimilum að þess er ekki nægilega gætt að hafa slíka hluti á stöðum þar sem böm geta ekki náð til. Máltækið segir allt sem þarf, seint ér að byrgja bmnninn, þá bamið er dottið ofan í. „Eg vil beina þeim tilmælum til foreldra að gæta þess vel að skilja ekki eftir lyf eða önnur hættuleg efni á glámbekk.“ Einstök mynd Helga Pálsdóttir hringdi: Ég'vil þákka sjónvarpinu fyrír alveg einstaka mynd á laugardags- kvöldið, Hempan og hervaldið. Myndin var eiginlega allt of góð til að vera sannsöguleg og það fylf- ir mann vonameista þegar maður veit til þess að það er til fólk í heiminum er kemur svo mörgu góðu til leiðar. Mér fannst myndin i alla staða mjög vel heppnuð en hún íjallaði um írskan sendiklerk sem bjargar þúsundum hermanna bandimianna og öðrum frá j)ví að ('alla í hendur fasista eða Gestajwlögreglu Þjóð- verja. Þetta var ótmleg mynd en sönn engu að síður. Þökk fýrir gott innlegg á pásk- unum. Skemmtileg sýning Jóna skrifar: Oft má sjá í lesendadálkunum nöldur og skammir um hitt og þetta. Minna er gert að því að hæla því sem vel er gert. Mig lang- ar að minnast á hlut sem mér þótti til fýrirmyndar. Ég fór á ákaflega skemmtilega sýningu í Laugar- dalshöllin sem var opnuð á sumardaginn fyrstá. Ég tók lítinn son minn með sem er auðvitað ekki í frásögur færandi. Þegar við höfðum skemmt okkur konung- lega við ýmislegt og komið var að heimför um kvöldið varð sonur minn fyrir því óláni að týna falleg- um bangsa sem hann hafði unnið á tombólu. Bamið varð skelfingu lostið og fór að hágráta. Kom þá til okkar maður á vegum sýníngarinnar og spurði hvað væri að. Þegar hann heyrði það fór hann með okkur aftur á tombóluna og leyfði syni mínum að ná sér í annan bangsa. Langar mig til að þakka þessum manni fyrír og vil í leiðinni hvetja sem flesta til að sjá þessa sýningu sem er bæði falleg og skemmtileg. Rás 2: Næturvaktin góð Soffia Þorsteinsdóttir hringdi: Mér finnst rás 2 hafa farið mjög mikið fram og nú hlusta ég ekkert síður á hana en Bylgjuna. Ég er mjög hrifinn af músíkinni sem er flutt á næturvakt rásar 2 á milli kl. 6 og 9 á morgnana. Þetta em svo hress og drífandi lög að það er alveg dásamlegt að vakna við þessa undurþýðu tóna. Það er þó einn annmarki á þessari sælu að mér finnst kvnningarnar mega vera í meira samræmi við lögin, stjórnendumir mættu vera hressari er þeir kynna lögin. Tónleika með Europe Bóbó skrifar: Ég er alveg sammála lesendum, sem skrifúðu í lesendadálkinn, um að sýna tónleika með hljómsveit- inni Europe. Ég býst ekki við að ríkissjón- varpið bíði hnekki þótt það sýni tónleika með henni. Þessi hljóm- sveit hefúr að mínu mati ekki fengið nærri eins góðar móttökur og hún á skilið, til dæmis em plöt- ur hennar nánast ekkert spilaðar í útvarpinu. Krakkar, við skulum standa saman og skrifa þangað til sjón- varpið sýnir frá tónleikum með Europe.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.