Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. 21 íþróttir • Atfi Eðvaldsson. „Fvábær hópur“ „Það var gaman að fá að æfa á þessu fallega grasi. Það eru sex til sjö strákar í liðinu sem ekki hafa enn komist á gras það sem af er árinu svo það er kominn tími til,“ sagði Atli Eðvaldsson landsliðs- fyrirliði eftir æfingu á Parce des Princes. „Það er ávallt frábært að koma saman í þessum hópi - stemningin er engu lík. Maður bókstaflega hlakkar til að koma svona saman og hitta strákana. Það ætla allir að gera sitt besta. Nú eru menn lausir við þá spennu og ergelsi sem fylgir atvinnumönnum ellefu mán- uði á ári. Hér em allir mjög jákvæðir og munum við spila í þessum leik eins og við höfum allt- af gert og hefur gefið okkur árangur - með endalausri baráttu. Það er hins vegar ljóst að Frakkar ætla sér stóran hlut og munu ekk- ert gefa eftir til að vinna okkur stórt,“ sagði Atli. Hann kvað leikmenn ekkert stressaða þó að þeir vissu að öll íslenska þjóðin fylgdist með þeim í beinni útsendingu. Það efldi bara íslenska liðið. „Mikill völlur“ „Ég var að leika á sunnudaginn og var þá í fínu formi. Ég fann ekkert fyrir þeim meiðslum sem vom að hrjá mig um daginn svo ég verð að vona það besta,“ sagði Ragnar Margeirsson sem er eini landsliðsmaðurinn sem á við að stríða smávægileg meiðsl er hann varð fyrir í leik með Waterschei fyrir stuttu. Að öðm leyti eru allir við bestu heilsu í liðinu. „Nei, ég hef aldrei leikið á svona stórum velli og hér má búast við 30 þúsund áhorfendum. Það er hætt við því að það komi til með að hrjá okkur hve fáa æfingaleiki við höfum fengið og vissulega hefði verið betra að leika einhverja. En það er erfitt að koma þeim á og við því er ekkert að gera,“ sagði Ragnar sem að öllum likindum verður í byrjunarliðinu í kvöld. Lúxushótel Íslenska landsliðið dvelst á miklu lúxushóteli í hjarta Parísar. Hotel Concorde heitir það og kost- ar eins manns herbergið 6 þúsund krónur yfir nóttina. Hótel þetta er engin smábygging og er íslenska landsliðið til dæmis á 26. hæð en hótelið sjálft er 32 hæðir. Það er svo stórt að menn villast gjaman tímunum saman á göngum þess og tekUr það landsliðsmenn töluverð- an tíma að koma'st í og úr mat. Franska liðið dvelst hins vegar rétt fyrir utan París og er .þess vandlega gætt af miklum fjölda öryggisvarða sem eiga að tryggja liðinu fullkomna ró. Gyffimeð tilboðfrá Hameln „Ég ákvað að slá til og fara til Vest- ur-Þýskalands eftir nokkra umhugsun og ætla að þiggja boð þar sem mér var boðið að líta á aðstæður hjá vestur- þýska liðinu Hameln," sagði Gylfi Birgisson handknattleiksmaður í sam- tali við DV í gærkvöldi. Atli Hilmars- son og Kristján Arason hafa báðir leikið með Hameln. „Þetta kemur nú ekki á besta tima þar sem ég hef ekkert æft í hálfan mánuð og nánast ekkert gert annað en að vinna. En ég er spenntur fyrir þessu og reyni auðvitað að standa í stykkinu," sagði Gylfi. Gylfi hefur átt mjög góða leiki með Stjömunni í vetur og átti einna mest- an J)átt í sigri liðsins í bikarkeppni HSI á dögunum. Hann er gríðarlega öflug skytta og það kæmi ekki á óvart þótt hann félli vel inn í vestur-þýskan handknattleik. -SK • Gylfi Birgisson. Víkingur sigraði Youri Sedov stýrði Víkingum ! í fyrsta sinn i langan tíma er þeir sigruðu Þrótt í gærkvöldi. [ Leikurinn var liður í Reykjavík- ui-mótinu í knattspymu. Skor- uðu Víkingar tvívegis en I Þróttarar náðu hins vegar ekki | að svara fyrir sig. „Býst við að leika sömustöðu ogAtli' - segir Sigurður Jónsson sem líst vel á leikinn í kvöld „Mér líst mjög vel á leikinn í kvöld og það er alltaf mjög gaman að koma og leika með landsliðinu," sagði Sig- urður Jónsson en hann verður ömgg- lega í byijunarliðinu í kvöld. „Ég býst við að ég og Atli verðum í sömu stöðu, það er að segja að við leikum bæði sem tengiliðir og bak- verðir. Þetta er mjög erfið staða því það er mikið vamarhlutverk sem fylg- ir henni. Ég spila aldrei þessa stöðu nema með landsliðinu," sagði Sigurð- Það má því búast við miklum hlaup- um hjá Sigga og Atla í kvöld en hvernig leikkerfi skyldi verða notað í kvöld? „Við komum til með að leika 3-5-2 kerfi en við höfum áður notað það undir stjóm Sigi Held, nema gegn Austur-Þýskalandi. Þá var aðeins einn leikmaður frammi og það kom alls ekki vel út. Það þarf tvo leikmenn frammi. Þessi uppstilling bendir til SIGURÐUR MÁR JÓNSSON, ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR DV, SKRIFAR FRÁ PARÍS Frakkamir sigumssir - ætla að sigra, skémmta og skora í kvöld þess að þeir Amór og Pétur verði frammi en Held hefui' enn ekki til- kynnt byrjunarliðið." Sigurður leikur enska knattspvmu daglega - hvernig skyldi honum líka við hana samanborið við þýska kerfið hjá Held? „Ég neita þvi ekki að það er athyglisvert að prófa þetta. Þetta er heldur meira spil en ég á að venjast hjá Sheffield Wednesday. Okkur hjá Wednesday hefur ekki gengið sem best að undanfömu. Það má segja að við höfum spmngið um jólin: ef til vill vorum við orðnir útkeyrðir. Ég á nú ekki von á öðru en að Wilkinson verði áfram hjá liðinu. Stuðningsmenn liðsins vilja hann burt en það væri mjög dýrt fyrir félagið að reka hann núna vegna þess að hann er með fimm ára samning. Ég hef leikið um tuttugu leiki í vetur með aðalliðinu og annað eins með varaliðinu þar sem ég er reyndar fyrirliði. Okkur hefur gengið ágætlega þar og erum í fjórða sæti." sagði Sigurður. Hann kvaðst aldrei áður hafa komið til Parísar en sér lit- ist prýðilega á borgina. „\góðu formi“ Sguxöur Már Jánason, DV, París: „Ég hef aldrei verið í betri æf- ingu á ævinni og tel mig vera í geysilega góðu fonni núna. Bæði mér og liði mínu, Moss, hefur gengið vel það sem af er árinu," sagði Gunnar Gíslason sem virðist vera í geysigóðu formi núna ef marka má það sem sást til hans á æfingunni á mánudagskvöldið. Var til dæmis augljóst að tækni hans hafði batnað mikið. „Já, það er rett, ég tel að mér hafi farið mikið fram í tækni í Noregi. Má því segja að Noregs- dvölin hafi þegar gert mér gott. Þar leik ég á miðjunni og líkar það mjög vel enda er ég mikið meira í boltanum. Í kvöld býst ég þó við að leika aflasta mann í vöminni “ Gunnar kvaðst vera bjartsýnn fyrir leikinn í kvöld og allt eins eiga von á góðum úrslitum. „Þetta er orðinn mjög samæfður hópur og liðsandinn er frábær." Stærsti völlur Frakklands íslenska liðið æfði á hinum glæsilega Pai-ce des Princes leik- vangi hér i París á mánudags- kvöldið og var það eina æfingin sem liðið fékk þar f>TÍr viðureign- ina í kvöld. Á þessum velli fór fram úrslita- leikurinn í Evrópukeppni lands- liða 1984 en þar urðu Frakkar sem kunnugt er Evrópumeistarar. Þetta er geysilega fallegui- leik- vangur sem var byggður 1972. Tekrn- hann um 50 þúsund áhorf- endur og eru aðeins sæti á leik- vanginum. Þetta er stærsti völlur Frakka en Racing Club Paris og Paris Saint Germain eiga þar heimavöll. Síðast þegar Frakkar léku þarna töpuðu þeir illa f>TÍr Sovétmönnum. 0-2. í kvöld er búist við 35 þúsund áhorfendum en leiknum verður ekki sjónvarpað mn Frakkland og hefur það vakið mikla reiði. Jafntefli Rúnar Kristinsson gerði mark Islendinga í landsleik U-18 við Dani. Ix'ikurinn er liður í Evrópu- keppni. Liðin skildu jöfn, 1-1. Leikurinn þótti góðui' en fullharður. Sigurður Mar Jánsscm, DV, París: Það er ljóst að Frakkar telja sig nán- ast úr leik í Evrópukeppninni. Eina von þeirra er að Austur-Þjóðverjar vinni Sovétmenn í kvöld. Henri Mic- hel, þjálfari Frakka, hefur ákveðið að nota þennan leik til að gefa nýjum mönnum tækifæri. Hann hefur valið nokkra unga og efnilega leikmenn í liðið og stefnir að því að byggja upp sigurvænlegt lið fyrir HM á Ítalíu 1990. En þetta þýðir ekki að Frakkar ætli að gefa eftir í kvöld - síður en svo. Frakkar mæta nokkuð sigurvissir til leiks og hefúr Michel, þjálfari þeirra, sagt að þeir muni einblína á þrjú át- riði: sigra, skemmta og skora. Það þýðir að Frakkar ætla sér auðvitað sigur, auk þess sem þeir ætla að skemmta sér - væntanlega á kostnað íslendinga. Þá er ekki síður mikilvægt fyrir liðið að skora mark en það hefur Frökkum ekki tekist í síðustu fjórutn leikjum sínum. Jose Toré, sem lék með Nantes gegn Val árið 1985, er ætlað að leika stórt hlutverk í franska liðinu í kvöld og er ástæða fyrir íslenska sjónvarpsáhorfendur að fylgjast vel með honum. Franska byrjunarliðið hefur verið tilkynnt og er það þannig: Bats, Thou- venel, Boli, Domergue, Amoros, Fernandez, Toré, Passi, Platini, Micciche og Stopyra. Micciche er ný- liði og mikið séní. DVSMAAUGLYSINGAR Smáauglýsingadeild DV veröur opin í dag, miðviku- dag, til kl. 22.00 og á morgun, I fimmtudag, frá 9-22. Smáauglýsingadeildin verður lokuð föstudaginn 1. maí. I Opið laugardag 2. maí frá 9-14 og sunnudag 3. maí frá kl. 1S-22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.