Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987. Erlendir fréttaritarar Manntal í V-Þýskalandi veldur miklu Qaðrafoki Fimmtán hundruð tonn af eyðublöðum verða að talnarusli ef Vestur-Þjóðverjar gera alvöru úr hótunum sínum að svara ekki eða svara á rangan hátt spurningum í manntali því sem fara á fram í maílok. Ketflbjöm Tryggvasan, DV, V-BerJin; Þann 25. maí næstkomandi fer fram manntal í öllu Vestur-Þýskalandi. Sex hundruð þúsund teljarar munu þá heimsækja tuttugu og fimm milljónir heimila hérlendis og ná í spuminga- lista sem hefur að geyma þrjátíu og þijár spumingar um húsakynni, tekju- öflun, menntun, notkun farartækja og svo framvegis. Manntalið hefur lengi verið til um- ræðu á þingi í Bonn og margoft verið frestað vegna gagnrýni á notkun þeirra upplýsinga sem við það vinn- ast. Aðallega er það flokkur græningja sem barist hefur gegn þessu manntali og segjast flokksmenn hans ekki sjá ástæðu fyrir beinum persónunjósnum sem þessum. Auk græningjanna hafa ýmsir þingmenn sósíaldemókrata, svo og einstakir þingmenn stjómarflokk- anna þriggja, lýst yfir efasemdum sínum um gildi vinnsluaðferða og til- gang manntalsins yfirleitt. Andstæðingunum fjölgar Vegna þessarar gagnrýni hefur manntalsaðferðinni og lögum um hana verið breytt mikið frá seinasta manntali sem fram fór 1970. Segja stuðningsmenn talningarinnar að nú sé óhugsandi að upplýsingamar verði á einhvem hátt misnotaðar. Þrátt fyrir þessi nýju manntalslög hafa andstæðingar manntalsins ekki látið sannfærast og fer fjöldi þeirra sívaxandi. Skoðanakannanir hafa leitt í ljós að um tveir þriðju hlutar þýsku þjóðarinnar em á einhvem hátt á móti manntalinu og telja hættu á að Innanríkisráðherra V-Þýskalands, Fri- edrich Zimmerman, hefur hótað þeim sem ekki taka þátt i manntalinu lög- sókn og háum fjársektum. Andstæð- ingar talningarinnar hafa þó ráð undir rifi hverju og hafa gefið út lögfræðileg- ar ráðleggingar um hvernig komast megi hjá sliku. upplýsingar, sem þeir gefa, geti verið misnotaðar. í skoðanakönnunum kemur einnig fram að einungis um fimmtíu prósent þjóðarinnar ætla að svara spuming- unum eftir settiun reglum, þrjátíu og sex prósent eru ekki viss um hvort þeir svari þeim öllum eða svari þeim rétt og heil fjórtón prósent ætla alls ekki að svara spumingunum. Gagnslaust talnarusl Ef spár þessara skoðanakannana koma til með að rætast verður að mati sérfræðinga úr hinum fimmtán hundmð tonnum af svarblöðum ein stór hrúga af talnarusli sem hefur ' ekkert verðmæti fyrir hagstofu lands- ins. Þetta vita yfirvöld og gera í augnablikinu allt til að forða því að þessi ffamkvæmd verði þar með að hrapallegum stjómmálalegum mistök- um sem muni kosta þjóðina vel yfir einn milljarð þýskra marka. Lögsókn hótað Innanríkisráðherra landsins, Fri- edrich Zimmermann, hefur í þessu sambandi aukið fjárútlát til auglýs- ingaherferða til stuðnings manntalinu um fjömtíu milljónir marka. Reynt hefur verið að virkja ýmis öfl innan landsins til að kynna hana, þar á meðal kirkjustofiianir og íþróttafélög og síðast en ekki síst hefur hann hótað þeim sem ekki taka þátt í manntalinu lögsókn og háum fjársektum. Hótanir ríkisstjómarinnar hafa lítil áhrif haft á mótmælendur talningar- innar. Stofhuð hafa verið samtök þeirra vítt og breitt um landið til að sameinast í baráttunni og til að dreifa ráðleggingum sérfræðinga á sviði lög- fræði og tölfræði. Frjótt ímyndunarafl Ekki er hægt að segja annað en að ímyndunaraflið við þessa mótmæla- starfsemi sé frjótt. Hafa í þessu sambandi, svo eitthvað sé nefnt, marg- ar bækur verið skrifaðar að undan- fömu með lögfræðilegum ráðlegging- um til handa þeim sem lenda í málaferlum og aðrar bækur um hvern- ig gera megi svarblöðin gagnslaus og jafnvel skaðleg fyrir talninguna í heild. Ein bókin segir meðal annars frá því hvemig megi eyðileggja spuminga- eyðublöðin með vel völdum kaffislett- um og koma þannig í veg fyrir að hægt sé að tölvulesa þau. Á öðrum stað er greint frá hvemig mgla má tölvulesara með því að smyrja þunnri húð af ryðvamarefhi á blöðin og á þriðja staðnum er lýst hvemig gera megi vinnslu blaðanna erfiða með því áð klippa örþunna rönd af efri eða neðri kanti þeirra. Allar eiga þessar bækur það sameiginlegt að þær hafa selst í stórum upplögum. Óttast hryðjuverk Ekki er það einungis þessi tegund mótmæla sem veldur yfirvöldum áhyggjum um framkvæmd talningar- innar. Hættan á að hryðjuverkamenn muni láta til sín taka fyrir eða við manntalið er talin mikil. í því sam- bandi hafa allar geymslustöðvar manntalsgagna verið sérstaklega styrktar til að verjast hugsanlegum sprengjum eða íkveikjuárásum. Elók- in þjófavamarkerfi hafa verið sett upp og sterkur vörður settur við allar opin- berar byggingar sem á einhvem hátt tengjast manntalinu. Enn eitt vandamálið, sem forsvars- menn manntalsins þurfa að leysa á næstu vikum og dögum, er mikill skortur á fólki í störf teljara. I ýmsum borgum, eins og til dæmis í Vestur- Berlín, vantar enn um helming þeirra teljara sem þarf til manntalsins og á öðrum stöðum er ástandið enn verra. Margir, sem vom tilnefndir, hafa ein- faldlega neitað að vinna að fram- kvæmd manntalsins eða fengið lausn frá þessari skyldu á annan hátt. Varnaríþróttir fyrir teljara Ástæðan fyrir þessari tregðu meðal almennings er að miklu leyti sú sama og liggur að baki hinum almennu mótmælum en að auki koma aðrar ástæður og er hin alvarlegasta sú að margir þora beinlínis ekki að ganga í hús og biðja fólk um marintalseyðu- blöðin af ótta við líkamlegt ofbeldi eða almennt aðkast. Aðferðin, sem yfirvöld hafa mest notað til að vega á móti þessari hræðslu almennings, er einfaldlega sú að fólki er bent á að sækja tíma í vam- aríþróttum eins og júdó og karate. Og það sem meira er, yfirvöld hafa boðist til að borga þá að einhverju leyti. Það verður því athyglisvert að fylgj- ast með framkvæmd manntalsins þann 25. maí næstkomandi ef búast má við öllum þessum hryðjuverkum, almennu ofbeldi, lögsóknum og ótrúlegum föls- unum. Straumur fíknilyfja i gegnum Danmörku Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmannahcfa; Frá 1983 þar til í október í fyrra var Danmörk hið gullna hlið fíkniefhas- myglara í Stokkhólmi. í október var Finni, búsettur í Stokkhólmi, hand- tekinn, sakaður um að hafa skipu- lagt smygl á fíkniefhum frá Amsterdam til Svíþjóðar fyrir um fimmtíu milljónir danskra króna. Öll fíkniefhin áttu leið með sendl- um í gegnum Danmörku. Keyrðu smyglaramir gegnum Þýskaland, tóku ferjuna yfir til Sjálands og af- hentu smáskammta í Kaupmanna- höfn. Síðan var feija tekin frá Helsingjaeyri til Helsingjaborgar í Svíþjóð. Þaðan lá leiðin til Stokk- hólms þar sem höfuðpauramir höfðu aðsetur. Samkvæmt upplýsingum yfir- manns fíkniefhalögreglunnar í Stokkhólmi hafa fjórir Danir unnið sem sendlar fyrir smyglhringinn. Sitja þeir í fangelsi í Danmörku en þar er málið langt frá því að vera uppleyst eins og í Stokkhólmi. í fimmtíu ferðum hefur smygl- hringnum tekist að smygla fjömtíu og fjórum kílóum af amfetamíni og þrjú hundruð og áttatíu kílóum af hassi til Svíþjóðar. Þaðan vom fíkni- efhin seld um öll Norðurlönd í gegnum þrælskipulagt net fíkniefna- sala. Samanlagt sitja tuttugu og sjö manns í fangelsi vegna málsins, bæði Finnar, Svíar og Danir. Á þessu tímabili hófu danskir toll- arar og lögregla við landamæri Vestur-Þýskalands og Danmerkur og feijubæja í Danmörku samvinnu í tilraunaskyni með aðstoð fíkni- efhalögreglunnar í Kaupmanna- höfn. Var ætlunin að reyna að stöðva straum fíkniefha inn í Dan- mörku, allavega þá leiðina. Eftir eitt og hálft ár hefur árangurinn verið svn góður að fíkniefnadeildin við landamærin starfar nú sjálfstætt í ferjubænum Rodby. Frá september í fyrra til febrúar í ár hafði fíkniefnadeildin lagt hald á fjögur hundmð og fimmtíu kíló af hassi, níu kíló af amfetamíni, hundr- að og tólf grömm af heróíni og hálft gramm af kókaíni. Verðmæti þessara fíkniefha er metið á fjömtíu milljón- ir danskra króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.