Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1987, Qupperneq 36
36
—
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987.
Sviðsljós
Með
viku-
vistir
á höfðinu
Páskamáltíð Kampútseu-
manna í flóttamannabúð-
unum thailensku var með
svipuðu sniði og aðrir
málsverðir undanfarna
mánuði og ár. Hrísgrjón í
aðalrétt og allar aukamál-
tíðir líka. Stúlkan á
meðfylgjandi Reutersmynd
ræðir við eiginkonu Bret-
ans Sir Geoffrey Howe og
ber sú fyrrnefnda matar-
birgðir íjölskyldu sinnar
fyrir heila viku á höfðinu.
Ólyginn
i...
Bruce Willis er núna aðalstjarnan í sjónvarpsmyndaflokknum Moonlighting
ásamt Cybill Shepherd.
Bruce Willis:
Handtakan
bjargaði
lífi
mínu!
andi ungling upp á bátinn.
F ortíðin var ekkert glæsileg - árás-
ir á kennara og nemendur í skólan-
um, samkvæmislífið tók allan han§
tíma þannig að lítið var um bóklestur
og vímuefnin urðu sífellt stærri þátt-
ur í skemmtuninni. Það eina sem
Bruee mætti í um nokkurt skeið voru
leiklistartímarnir en svo fór að þeir
fuku líka. En eftir handtökuna flutti
Bruce til New York, ákvað að taka
leiklistina alvarlega og var skömmu
síðar kominn í aukahlutverk á Bro-
adway. Nú fer talsverður tími leikar-
ans í vinnu meðal þeirra sem berjast
gegn vímuefnanotkuninni og auglýs-
ingaherferð í sjónvarpinu er tengd
nafni kappans. Þar talar karl blaða-
laust frá eigin brjósti: „Þeir sem
bjóða þér vímuefni eru engir vinir.
Þú vilt verða húsbóndi yfir eigin lífi
og láttu því efnin öll eiga sig.“
„Það var lögreglumaður sem raun-
verulega bjargaði lífi mínu frá því
að lenda endanlega í víti vímuefn-
anna,“ segir súperstjarnan Bruce
Willis. Hann kemur fram í sjónvarps-
þáttum til varnar vímuefnaneyslu og
segir þar frá eigin reynslu í því sam-
bandi.
Bruce var handtekinn á skólaárun-
um fyrir að bera á sér ólögleg
vímuefni og átti á hættu að lenda í
fangelsi fyrir vikið. Þar sem hann sat
inni og óttaðist yfirvofandi dóm kom
á vettvang lögreglumaður sem ræddi
við hann góða stund um lífið og til-
veruna. Honum tókst að hræða
Bruce svo frá vímuefnaneyslunni að
hann sneri gersamlega við blaðinu
og segir í dag að ekki nokkur maður
myndi kannast við nafnið Bruce
Willis ef þessi laganna vörður hefði
ekki neitað að gefa þennan villuráf-
Liberace
vildi fá að deyja með sæmd og
reyndi að halda reisninni allt fram
í andlátið. Hringamir frægu, sem
hann bar á hverjum fingri, urðu
undir lokin alltof stórir á þennan
dáða píanista og það var ekki
mikill íburður á kappanum við sjú-
krabeðið í Eisenhower Medical
Centre. Síðasta beiðnin var að
verða jarðsettur við hlið móður
sinnar og bróður - og Liberace
vildi alls ekki að aðdáendurnir
grétu örlögin. „Fylgið mér síðasta
spölinn brosandi og léttir í lundu,"
4 voru hans eigin orð en ekki tókst
öllum að fara að þeirri ósk hins
ógleymanlega Liberace.
Heimsins mesta
vöövakerling
Konur sækja fram á öllum sviöum þessa dagana og hérna er vöðva-
stæltasti kvenmannsbúkur heimsins. Hún heitir Gabriela Sievers og er
frá Vestur-Þýskalandi og vann heimsmeistaratitilinn í vaxtarrækt i Vínar-
borg síðastliðinn fimmtudag. Á Reutersmyndinni hnyklar kerla vöðvana
og það dylst engum að þarna er svo sannarlega ekki neinn pappirs-
búkur á ferðinni.
lifir svo sannarlega spennandi lífi
ef marka má vinkonu hans - Luc-
ille Ball. Sú orðhvata kona segir
að karl þurfi ekki annað en mæta
í kirkju til þess að efna til upp-
þots og ringulreiðar. Þar verði
æsingurinn mesturmilli prestanna
sem troðist hver um annan um
besta sætið í skriftastólnum. Inni
í boxinu verði síðan hin mesta
örtröð andaktugra útsendara
' > drottins á jörðu niðri sem missi
ekki af einu orði, stunu eða hósta
sem frá þeim margfræga söngvara
kemur undan tjaldinu.
Joan Collins
segist vilja sjá einhvern á hinum
frjálsa markaði greiða eiginmann-
inum Peter Holm þau laun sem
hann fer fram á frá hennar hendi
fyrir aðstoð við bókhald og fram-
kvæmdir. Hann sá um fjármál
leikkonunnar-að sögn Joan með
þeim árangri að hún tapaði ótöld-
um fjármunum á ævintýrinu.
Peter lætur ekki staðar numið við
fjárkröfurnar, kappinn lýsir því yfir
bæði hátt og í hljóði að hann vilji
Joan sína helst alla aftur því ástin
hafi ekkert dofnað frá hans hendi
þrátt fyrir undangengna atburði.
Stjarnan Joan Collins snýr snúð-
ugt upp á sig þegar ástin berst í
tal og bendir á lögfræðinginn sem
áframhaldandi samræðugrun-
dvöll.
Frank Sinatra