Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Blaðsíða 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 9. JUNl 1987.
Fréttir
Á útimótum gripur ástin gjarnan unglingana og þau viröast sannarlega heltek-
in skötuhjúin sem sjást hér fremst á myndinni. DV-mynd S
Borgarfjörðurínn:
Gifúrleg umferð
Gífurleg umferð var um umdæmi
Borgameslögreglunnar um helgina en
lítið um stór óhöpp eða slys.
Vegir voru mjög þurrir og því mikið
ryk, stundum svo að ekki sá út úr
augum þegar umferðin var hvað mest.
Að sögn lögreglunnar í Borgamesi
kvörtuðu margir vegfarendur undan
því að ökumenn hefðu ekki sýnt næga
tillitssemi við þessar aðstæður. Öku-
menn hefðu sparað ljósin og ekki gætt
þess að draga úr hraða þegar þeir
mættu öðrum bílum. Var nokkuð um
útafakstur af þessum sökum.
Strax á sunnudagskvöld fóm ferða-
langar að huga að heimferð, flestir á
leið suður, og var mikil umferð um
þetta svæði seinnipart sunnudagsins
og í gær. Heimferðin dreifist því á
lengri tíma og er ekki eins þung og
við upphaf helgarinnar, sagði lögregl-
an í Borgamesi.
VAJ
Húsafell:
Ekið á stúlku og pilt utan vegar
Jeppaökumaður ók á pilt og stúlku
utan vegar í Húsafelli aðfaranótt laug-
ardagsins með þeim afleiðingum að
flytja varð bæði í sjúkrahús. Stúlkan
slapp nokkuð vel frá slysinu en flytja
varð piltinn suður og var hann í marga
tíma undir læknishendi. Líðan hans
mun vera eftir atvikum.
Ökumaðurinn er gmnaður um ölvun
við akstur og að sögn lögreglunnar í
Borgamesi þótti brotið það vítavert
að hann var sviptur ökuskírteini sínu
strax til bráðabirgða.
VAJ
HELGI JÓNSSON - LEIGUFLUG
REYKJAVÍKURFLUGVELLI
SÍMI 91-10880 - 91-10858
Jafnþrýstibúnu skrúfuþoturnar okkar flytja ykkur hratt
og þægilega innanlands og milli landa.
Fyrirtæki og félög, leitið tilboðs í næstu ferð!
fiamc
UMBOÐIÐ
Árgerð 1988
ri Jeep
UMBOÐIÐ
CHEROKEE
BASE , 1.010.000 PIONEER kr.
CHIEF kr. 1.160.000 LAREDO kr.
1.108.000
1.245.000
Lúxus útgáfa - WAGONEER LIMITED
Verð kr. 1.635.000,-
Bíll þar sem fara saman
gæði og glæsilegt útlit.
ATH. Þegar að endurnýjun
kemur tryggir bíll
innfiuttur af AGLI
mun betri endursölu.
Stuttur afgreiðslufrestur.
n Jeep. EGILL VILHJÁLMSSON HF.
umboðið Smiðjuvegi 4, Kóp., s. 7 72 00 - 7 72 02.