Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987.
41
Dægradvöl
DV
Langmest spilað
á Siglufiiði
og Akureyri
- segir billiardkóngurinn fyrir norðan
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri
„Áhuginn á billiard er langmestur á
vetuma hér á Akureyri en mun minni
á surfirin," segir Pálmi Geir Jónsson,
billiardkóngurinn á Akureyri. Hann
rekur einu billiardstoftma í bænum
Að sögn Pálma byrja billiardmenn
að streyma inn á stofuna til hans í
ágúst þegar skyggja tekur. Þetta er
þó langt frá því að vera skuggaleg
íþrótt, hún er mjög skemmtileg,“ segir
Pálmi og brosir. ~
Billiard á Norðurlandi er mest
stundaður á Siglufrrði og Akureyri en
frekar lítið annars staðar, eins og á
Húsavík og Ólafsfirði. Reyndar er Si-
glufjörður gamalgróinn billiardstaður.
„Þeir sem spila mest hér á Akureyri
eru á aldrinum sextán til tuttugu ára
en gamlir kunningjar líta þó gjaman
héma inn annað slagið. Þetta er því
nokkuð öðmvísi heldur en í Reykja-
vík.“
Pálmi segir að billiard hafi verið
spilaður í heiminum í tvö hundmð ár,
í óbreyttri mýnd. Og á Bretlandi sé
billiard ein vinsælasta íþróttin í sjón-
Pálmi Geir Jónsson, eigandi einu billi-
ardstofunnar á Akureyri. Hann er
sjálfur þrælliötækur í íþróttinni.
DV-mynd JGH
varpinu. Og að sjálfsögðu grípur Pálmi
í kjuðann sjálfur og er bara þrælgóður.
Var dreginn nauðugur
viljugur í billiard
- segir Viðar Freyr, íslandsmeistarinn í billiard
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
„íslandsmeistarinnn í Snóker er
frá Akureyri. Hann heitir Viðar
Freyr Viðarsson og er tuttugu og
þriggja ára. Hann spilar billiard
mest um helgar og þá þetta fimm
tíma í senn. Þessa dagana æfir hann
sig á hverju kvöldi, enda er úrslita-
leikurinn á milli hans og Brynjars
Valdimarssonar frá Reykjavík fram-
undan.
„Billiard er bæði afslappandi og
skemmtilegur. En samt er íþróttin
mjög spennandi, það gera hinar
miklu sviptingar sem verða í hverj-
um leik. Þetta er skapandi áhuga-
mál,“ segir Viðar.
Hann bytjaði sextán ára að spila
billiard og það vildi svolítið
skemmtilega til. Eldri bróðir hans
dró hann nauðugan viljugan með sér
á billiardstofuna á Akureyri.
„Ég fékk strax áhuga á íþróttinni
og hef spilað mikið síðan. Én bróðir
minn, sem dró mig hingað, er löngu
hættur. Svona getur þetta verið.“
Æfir mikið einn
Viðar segir útilokað að ná árangri
i billiard nema æfa sig stíft í tækni.
„Ég æfi mig langmest einn, stilli upp
ákveðnum stöðum á borðinu og
reyni að vinna sem mest úr þeim.“
Að sjálfsögðu grípur Viðar þó í
kjuðann með félögum sínum en það
er meira í gamni segir hann. „Þegar
maður er kominn þetta langt nær
maður samt ekki árangri nema æfa
einn og gera sérstakar billiardæfing-
ar. Maður staðnar ef maður gerir
ekkert annað en að spila við félag-
ana.“
Viðar vinnur hjá föður sínum í
skíðaþjónustunni á Akureyri þar
sem hann gerir við skíði, og selur
reyndar líka, og gerir við reiðhjól.
Nú er mikil reiðhjóladella á Akur-
eyri og því í nógu að snúast í
vinnunni.
„Ég gef mér samt tíma þessa dag-
ana að koma hingað á billann tvo
tíma á hveiju kvöldi til að æfa mig
fyrir úrslitakeppnina. Eftir æfingar
fer ég síðan aftur í vinnuna og er
þar ffarn yfir miðnætti."
Viðar er fyrsti íslandsmeistarinn í
billiard frá Akureyri. Hann vann tit-
ilinn frekar óvænt í fyrra og það er
einmitt núna um helgina sem hann
keppir við Biynjar Valdimarsson.
Það verður hörkukeppni á milli
tveggja dellumanna í billiard. Þetta
er ekki bara áhugamál þeirra, heldur
spila þeir þetta sem þrautþjálfaðir
íþróttamenn.
Viðar Freyr Viðarsson, íslandsmeistarinn í billiard, er sannarlega leikinn
með kjuðann. „Billiard er bæði afslappandi og skemmtilegt áhugamál,"
segir hann. Um helgina leikur hann til úrslita um íslandsmeistaratitilinn
við Brynjar Valdimarsson frá Reykjavik. Hörkukeppni það.
DV-mynd JGH
TRIO FORTJÚLD
Höfum fyrir|iggjandi hústjöld, margar stærðir. Einnig
göngutjöld. Útvegum fortjöld á hjólhýsi með stuttum
fyrirvara. Vönduð, dönsk gæðavara. Sendum mynda-
lista. 10% staðgreiðsluafsláttur á öllum tjöldum.
Tjaldbúðir hf.
Geithálsi við Suðurlandsveg.
Sími 44392.
Er vegurinn háll?
Vertu því viðbúin/n að
vetrarlagi. y
UMFEROAR FanMheilf
RÁO
^ATún/
HL)£>
lOíroe
BilaVavít
Daihatsu Runabout árg. 1983, fallegur
bíll á krómfelgum. Verð 255.000.
Honda Accord EX árg. 1982, ekinn
aðeins 45.000 km. Ath. skipti á Range
Rover '82.
Honda Civic árg. 1983, ekinn aðeins
34.000 km. Verð 290.000.
Daihatsu Charade árg. 1986, ekinn
13.000 km. Verð 330.000.
Fiat Uno 45 árg. 1984, ekinn 47.000
km. Verð 185.000.
Range Rover árg. 1976, uppt. vél og
kassi, gullfallegur bíll. Ath. skipti á dýrari.
Honda Civic sport 1,5 árg. 1984,
ekinn 53.000 km. Verð 380.000.
VW Golf CL árg. 1982, ekinn aðeins
49.000 km. Ath. skipti á Golf '84-'85.
Verð 245.000.
Mazda 626 1600 XL árg. ’85, ekinn
32.000 km. Verð 430.000. Ath. skipti á
ódýrari.
Lada Lux árg. 1985, ekinn aðeins
15.000 km. Verð 180.000. Skipti á dýrari.
BMW 520 árg. 1981, ekinn 100.000
km. Verð 380.000. Skipti á ódýrari.
Saab 900i árg. 1987, ekinn aðeins
5.000 km. Ath. skipti á nýlegum Range
Rover.
M. Benz 913 árg. 1974, uppt. vél, lyfta.
Verð 580.000.
M. Benz 608 D árg. 1979. Verð
730.000.
BÍLASALAN
HLÍÐ
Borgartúni 25,
Brottfarardagar:
daga eða 3 vikur.
Júní 13., 22.
Júlí 4., 13., 25.
Ágúst 3., 15., 24.
Sept. 5., 14., 26.
Okt. 5.
FJOLSKYLDUAFSLATTUR
Einn borgar fuilt - aðrir í fjölskyldunni minna.
Verðdæmi: í 10 daga ferð kr. 17.400, í 3 vikur kr. 27.300.
Verö á mann miðað við hjón og tvö börn yngri en 16 ára.
KRI
FA.
FER
iiaöarhúsinu Hallveigarstigl.'
Umboð á islandi fyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL