Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Blaðsíða 36
jjpM*1 T ""y" K O T I Ð Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. Fimmtán ára piltur lést í Vaglaskógi Jón G. Hanksscn, DV, Akureyri Fimmtán ára piltur lést í Vagla- skógi aðfaranótt laugardags. Dánarorsök er ekki kunn ep talið er að pilturinn hafi látist af völdum reykeitrunar vegna útigrills. Ekki er vitað til að áfengi eigi sök á þessu hörmulega slysi. Pilturinn hafði grillað úti um kvöldið ásamt félaga sínum. Þeir höfðu síðan farið að sofa tiltölulega snemma um kvöldið og sett grillið inn í tjaldið til að ylja sér en nokkuð kalt var úti. Mikill reykur myndað- ist í tjaldinu og er talið að pilturinn hafi látist af reykeitrun. Hinn piltinn sakaði ekki. Pilturinn, sem lést, er frá Akureyri *B*og hafði í vor lokið samræmdum prófum úr 9. bekk gagnfræðaskólans á Akureyri. Flugumferðarstjórar: Dregur saman „Það dregur saman með okkur, við erum famir að tala svipað tungu- mál,“ sagði Ámi Þorgrímsson, formaður Félags flugumferðarstjóra, í samtali við DV um tilboð sem flug- ■’-^-umferðarstjórar fengu frá ríkinu fyrir helgi. „Þetta tilboð er sambærilegt þeim samningum sem aðrir hafa fengið," sagði Ámi en í því er gert ráð fyrir kauphækkunum á bilinu 22 til 24%. Einnig er þar gert ráð fyrir breyting- um á launatöflu og ýmsum tilfærsl- um. -ój - sjá einnig bls. 5 Þrír fengu 750 þúsund Heildarsala lottósins í síðustu viku var 11.270.225 krónur. Upp komu ^tölumar 2, 4,10,15 og 24 og skiptist > fyrsti vinningur á milli þriggja ein- staklinga sem fengu hver um sig 754.216 krónur. 410 manns vom með fjóra rétta og fær hver í sinn hlut 1.649 krónur. 1073 fengu þrjá rétta og 156 kr. hver. -GKr. LOKI Þessi hvítasunna var nú einum of svört! Ríkissjóðshallinn jafnaður á 3 árum - meðal þess sem Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ræða um Eftir þingflokksfundi Alþýðu- flokks, Sjálfstæðisflokks og FVam- sóknarflokks í dag skýrist hvort viðræður þessíira flokka leiða til myndunar ríkisstjórnar. Góður gangur og jákvæðiu- andi var í við- ræðunum um helgina. Undimefndir hafa rætt sérstaklega um stærstu ágreiningsmálin; ríkis- tjármál og fyrstu aðgerðir, hús- næðismál og landbúnaðarmál. Húsnæðisnefhdin og fjúrmálanefnd- in mættu fyrir aðalviðræðuhópinn í morgun en starf landbúnaðamefnd- arinnar er skemmra á veg komið. Anna Margrét Jónsdóttir, feguröardrottning íslands, krýnd undir lúðrablæstri og dynjandi fagnaðar- látum áhorfenda i veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi. Gígja Birgisdóttir, fegurðardrotting Islands árið 1986, krýndi Önnu Margréti og skilaði þar með kórónunni skrautlegu. DV-mynd: GVA Fegurðardrottning valin í gærkvoldi: „Ég trúi þessu varia enn“ - segir Anna Margrét Jónsdóttir, fegurðardrottning íslands og Reykjavíkur „Þetta er auðvitað alveg stórkost- legt, ég trúi þessu varla enn,” sagði Anna Margrét Jónsdóttir, 19 ára Reykjavíkurmær sem var kjörin feg- urðardrottning Islands í veitinga- húsinu Broadway í gærkvöldi. Hlaut hún einnig titilinn ungfrú Reykjavík og er þetta í fyrsta skipti sem sama stúlka hreppir báða þessa titia. Þátttakendur í keppninni voru tíu. I öðm sæti varð Magnea Magnús- dóttir, Sigríður Guðlaugsdóttir í því þriðja, Fjóla Grétarsdóttir í fjórða og Hildur Guðmundsdóttir í því fimmta. Fjöldi gesta var viðstaddur keppninaog mikil spenna lá í loftinu síðustu augnablikin áður en úrslit voru tilkynnt en að því loknu bmt- ust út mikil fagnaðarlæti. -BTH Hæg norð- læg átt Veður fer nokkuð kólnandi, einkum á Norðurlandi, í dag. Fremur hæg NA-læg átt verður ríkjandi yfir landinu. Léttskýjað um sunnan- og vestanvert landið, víðast skýjað norðanlands og skúr- ir við NA-ströndina. Hiti 7-14 stig. I undimefnd um ríkisfjármál sitja Kjartan Jóhannsson og Jón Sæ- mundur Sigurjónsson frá Alþýðu- flokki, Geir H. Haarde og Birgir ísleifúr Gunnarsson frá Sjálfstæðis- flokki og Guðmundur G. Þórarins- son og Bolli Héðinsson frá Framsóknarflokki. Svo virðist sem starf nefndarinnar hafi gengið nokkuð vel. Fundur var síðast haldinn ki. 9 í morgun. Nefhdamienn sögðu í samtali við DV í morgun að þeir byggjust ekki við því að ákveðnar tillögur yrðu lagðar fyrir aðalviðræðuneftidina heldur væri hér frekar um að ræða kortlagningu á stöðunni. Undimefhdin heföi farið yfir allt svið ríkisfjármálanna og tekið sam- an hvar samkomulag væri og hvar flokkana greindi á. Ekki yrði t.d. um að ræða ákveðnar tillögur um skattahækkanir heldur yrði gengið frá samkomulagi um slíkt á síðasta stigi stjómarmyndunarinnar, ef af verður. Samkomulag virðist vera í nefhd- inni um að hallinn á ríkisbúskapn- um verði jafnaður á nokkrum tíma, t.d. þremur árum. Þá hefur virðis- aukaskatturinn verið nokkuð til umræðu og eru um hann skiptar skoðanir milli flokkanna. Þvi gæti eins farið að hugmyndir um virðis- aukaskatt verði lagðar til hliðar ef af stjómarmyndun verður. -ES/KMU Verkfræðingar í verkfalli Fyrir helgina slitnaði upp úr samningaviðræðum verkfræðinga og viðsemjenda þeirra og em um 80 verk- fræðingar komnir í verkfall. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara var búið að ná sam- komulagi um önnur atriði en launalið- inn þegar upp úr samningaviðræðun- um slitnaði. Guðlaugur sagðist myndi ræða við deiluaðila í dag og kanna hvort gmnd- vöilur er fyrir því að kalla samninga- nefhdir deiluaðila saman á nýjan leik. -S.dór Nato-fundurinn: HotelSogu lokað klukkan eitt í dag „Hótel Sögu verður lokað klukkan 13 í dag og eftir það fer enginn inn á svæðið nema með sérstakan passa og ef tilfallandi gestir eiga nauðsynlegt erindi inn á svæðið fara þeir ferða sinna í fylgd öryggisvarða," sagði Hjálmar W. Hannesson í utanríkis- ráðuneytinu. Hjálmar sagði að mikil undirbún- ingsvinna hefði verið unnin yfir helgina og nú væri allt til reiðu. Tölu- verður hluti af fastastarfsfólki NATO er kominn til landsins og eitthvað af sendinefridum. Engir af utanríkisráð- heminum eru enn komnir, sá fyrsti kemur í dag og er frá Tyrklandi en hinir koma flestir á morgun. -JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.