Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1987, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚNÍ 1987. ___________________________________ Erlend myndsjá Hvað segirðu, Georg minn? Hvað segirðu, Georg minn, til hvers á ég að nota þetta? Er þetta eitt af þessum nýmóðins tækniundrum sem stjörnustríðsstrákarnir hafa verið að búa til handa okkur? Símamynd Reuter Ja, nú skil ég. Og ég set bara krossinn þarna á línuna, ha? Alveg eins og indíánarnir í bíómyndunum. Með vétlvi fotgangstöð Það er ekki að spyrja að sambandi hunds og drengs. Þegar brestur skyndilega á svo illt veður að ekki er hundi út sigandi kemur regnhlífin í góðar þarfir. Og hann Pétur, ellefu ára drengur i Hamborg, gerði sér glögga grein fyrir mikilvægi þess að halda Dino þurrum þótt hann sjálf- ur vöknaði ofurlítið. Síðar í lífinu verður þessi tillitssemi nefnd riddara- mennska og beinist gegn konum ef blessaðar kvenréttindakonurnar verða ekki búnar að setja slíkt á bannlista. „Og allt dótið mltt líka“ Hurð skall nærri hælum hjá honum Matthew Kautz í Harrenton, Virginiufylki í Bandaríkjunum, þegar húsið, sem hann bjó I, brann til kaldra kola í síö- ustu viku. Ellefu fjölskyldur urðu heimilislausar þótt enginn slasaðist alvarlega. Matthew var bjargað út á siðustu stundu af slökkviliðsmanni. Hann virðist þó ekki of hrifinn af björguninni, vill ef til vill mótmæla því að allt dótið hans var skilið eftir í eldinum. Þeir þekkja ekkert á mikilvægisröð hlutanna, þessir slökkviliðsmenn. Björguðu ekki svo mikið sem einum kubbi. Manhattan í sóttkví „Manhattan í sóttkví - höfuðborg eyðni“ stendur á kröfuspjöldum þessa náunga sem gerði rusk við hádegisverðarfund i bandaríska blaðamannaklúbbnum i síðustu viku. Von var á Elisabetu Taylor til veislunnar og þótti ekki rétt að spilla matarlyst stjörnunnar meö uppákomu af þessu tagi svo maðurinn var fjarlægður. Varla hefur það þó verið boðskapur- inn sem var óvelkominn því ræðuefni Taylor á fundinum var eyðni og útbreiðsla hennar. Dauðadómur fýrir fíkniefnasmygl Hann Reginald Spiers man líklega tímana tvenna. Fyrrum margfaldur verðlaunahafi vegna árangurs í spjótkasti en nú fangelsislimur og það sem verra er, með dauðadóm vofandi yfir sér. Spiers, sem er Ástraliumaður, var i siðustu viku dæmdur til lifláts af dómstóli í Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Hafði hann gert tilraun til að smygla inn í landið einhverju magni af heróini og yfirvöld Sri Lanka telja þá leið liklegasta til árangurs í baráttunni gegn fikniefnum að fella nógu harða dóma yfir þejm sem flytja þau inn. Úrskurður dómara var því sá að Spiers skyldi liflátinn. Það fylgdi þó sögunni að dómurinn væri öðrum til viðvörunar fyrst ogfremst. Litlir möguleikar væru taldir á að honum yrði fullnægt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.