Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNl' 1987. Frétdr Vertingasalan í flugstöðinni Aætluð velta 150 milljonir „Þetta var unnið þannig að hlut- lausum aðila var falið að gera úttekt á útboðsgögmun og annast útboðið. Síðan var sérsveit fagmanna fengin til að j’firfara tilboðið frá peninga- legu sjónarmiði og þjónustulegu sjónarmiði og fleiru. Það var sam- dóma álit allra sem um þetta fjölluðu að Flugleiðir ættu hagstæðasta til- boðið. Eg skoðaði þetta nákvæmlega sjálfur og féllst á þaðt“ sagði Pétur Guðmundsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli, um útboð á veit- ingasölunni í Leifsstöð. Hjá Almennu verkfræðistofunni, sem sá um útboðið, fengust þær upp- lýsingar að 9 aðilar hefðu boðið í verkið. Hæsta tilboðið hljóðaði upp á rúmar 13,3 mifljónir í ársleigu og kom firá Gagni hf. Flugleiðir hf., sem áttu hagstæðasta tilboðið að mati flugvaUarstjóra, buðu 10,6 miUjónir í fasta leigu en jafnframt þvi 8% af þeirri veltu sem væri umfram 106 milljónir á ári. Pétur Guðmundsson sagði að ef miðað hefði verið við veltuhugmynd- ir bjóðenda hefðu Flugleiðir átt besta boðið. Það þýðir að áætluð velta af veitingasölimni í Leifsbúð getur ekki verið undir um 150 millj- ónum króna. -JFJ Kumlið sem fannst að Granastöðum í Eyjafirði. Telja menn að þarna hafi fundist gröf að heiðnum sið. DV-mynd JGH Merkur fomlerfafundur í Eyjafírði: Gröf úr heiðnum sið finnst við eyðibýli Jón G. Haukssan, DV, Akureyii Bjami Einarsson fomleifafræðingur telur að hann hafi fundið kuml, gröf úr heiðnum sið, við fomleifarannsókn- ir að Granastöðum í Eyjafirði sem staðið hafa yfir frá 1. júní. Ef um kuml er að ræða þá er þetta í fyrsta skipti sem kuml finnst við rannsóknir á eyði- býlum hér á landi. „Þetta em ákaflega spennandi rann- sóknir og fomleifamar em viðameiri hér en ég reiknaði með. Sjálft bæjar- stæðið er einnig mun flóknara. Við höfum fundið um 15 rústir,“ sagði Bjami Einarsson við DV í gær. Beinin úr gröfinni á eftir að rann- saka sem reyndar verður erfitt þar sem um svo lítil brot er að ræða. Eitt bei- nið, augntóftarbein, er þó það mark- verðasta og talið er að hægt verði að ákvarða aldur þess. Auk þess hafa fundist bein af öllum hugsanlegum húsdýrum. Þá hefur fundist snældusnúður úr grænum sandsteini, tafla úr hnefatafli og brýni. Allt er úr sandsteini sem fengist hefur úr umhverfinu. Hvað bæjarstæðið varðar þá er það ekki talið upphaflegi bærinn. í bæjar- stæðinu em tvö jarðhýsi sem bæði hafa líklega verið notuð sem baðhús. „Það jarðhýsi sem ég hef rannsakað er mjög djúpt og vel varðveitt. Ég tel það mjög merkilegt," sagði Bjami. Granastaðir em sögualdarbær. Munnmælasögur segja að hann hafi farið í eyði í Svartadauða árið 1402. Bæjarins er einu sinni getið í Reyk- dælu. Það er stutt frásögn sem segir frá bóndanum Grana sem þar bjó og þess er getið að hann hafi gift dóttur sína vestur í Þingeyjarsýslu. Tilgang-. urinn með rannsóknunum er að komast að aldri eyðibýlisins og hvað það var sem gerði búsetu þama lengst inni í Eyjafirði svo fysilega. Jaínframt er reynt að komast að því hvaðan ábúendumir vom. „Við ljúkum uppgreftrinum núna i vikunni. Við höldum áfram næsta sumar fáist til þess fé,“ sagði Bjami Einarsson. Isaflörður. Nefnd ræðir um steypudeiluna Búist var við að samstarfsnefhd ísafiarðar, Bolungarvíkur og Súða- víkurhrepps fjallaði um uppsetningu steypuatöðvar BM Vallár í Bolung- arvík á fundi sínum í morgun samkvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Haraldi L. Haraldssyni, bæjarstjóra á ísafirði, í morgun. Svo sem kunnugt er vom hlutar steypustöðvar sem BM Vallá flutti til ísaijarðar lokaðir af á brýggjunni af starfsmönnum steypustöðvarinn- ar Steiniðjunnar á ísafirði. Vom þessir hlutar steypustöðvar BM Vallár fluttir frá ísafirði til Bolung- arvfkur í gærkveldi. Til stendur að reisa radarstöð á Bolaijalli og verður steypan keypt af þessari steypustöð BM Vallár og einnig hyggst verktaki, sem ætlar að steypa vegskála i Óshlíð, kaupa steypuna frá þessari steypustöð. Samkvæmt upplýsingum DV hefur BM Vallá fengið lóð undir steypu- stöðina í Bolungarvík og gildir samningur þar um til 15. október. Haraldur L Haraldsson, bæjar- stjóri á ísafirði, sagðist í samtali við DV ekki hafa áhyggjur af samkeppn- inni á þessu sviði heldur því að steypustöðvar væm fluttar á þetta svæði til þess að taka kúfinn af verk- efhunum. Kvaðst hann hræddur við að það leiddi til óhagkvæmara steypuverða á avæðinu, Ekki kvaðst hann haía áhyggjur af samkeppninni ef hún ætti sér stað allt árið. -ðj Hæst verð fyrir lúðu Hæst verð fékkst fyrir lúðu á fisk- markaðnum í Haiharfirði í gær en annars var meðalverðið 35,43 krónur á kílóið. í dag verður síðan boðinn upp afli úr Víði en á morgun úr Karlsefrii. Meðalverð var annars þetta: Þorskur 36,64 - ýsa 61,31 - ufsi 17,46 - skarkoli 16,95 - karfi 21,93 (lítið magn) - grálúða 12,00 - steinbítur 17,20 - lúða 82,70. -JFJ Kynferðisleg áreltni: TVær konur hafa þurft að flýja vinnustaði Samkvæmt könnun Iðju á Akureyri og tímaritsins Vinnunnar um kynferð- islega áreitni á vinnustöðum á Akureyri hafa tíu af þrjátíu og sjö konum, sem spurðar vom, orðið fyrir kynferðislegri áreitni á sínum vinnu- stað. Tvær konur hafa þurft að flýja vinnustað vegna þessa og aðrar tvær sögðust hafa orðið fyrir rógburði. I Vinnunni segir m.a. að„ ... engin kvennanna hafi orðið fyrir nauðgun eða tilraun til nauðgunar á vinnustað, en tvær konur segjast hafa ítrekað orðið fyrir því að farið var fram á sam- ræði. Ein þeirra kvenna sem rætt var við segir að á sínum vinnustað sé mik- ið um áreitni og hún vari nýbyrjaðar stúlkur við. „Við reynum að styðja þær, segjum þeim að bíta frá sér.“ Onnur, nýkomin úr skóla, sagði að einn kennara skólans hefði þuklað á nemendum en þær ekki þorað að kvarta." Valgerður Bjamadóttir félagsráð- gjafi er ein þeirra kvenna sem vann að gerð könnunarinnar. Sagði hún að lengi hefði verið grunur um að ástand þessara mála væri slæmt og þessi for- könnun sýndi það. Valgerður sagði að gera þyrfti stærri könnun og ef niðurstöður úr þeirri könnun yrðu alvarlegar, þá yrði að bregðast við með alvarlegum hætti. Valgerður vildi taka fram að engin ástæða væri til að ætla að ástandið væri verra á Akur- eyri en annars staðar á landinu. Þegar rætt var um að gera svona könnun hefði Iðja á Akureyri látið í Ijós vilja til að leggja sitt af mörkum og þess vegna hefði þessi könnun verið gerð á Akureyri. -sme Mikill asi var á þeim Þorsteini Pálssyni, Jóni Baldvin Hannibalssyni og Guðmundi Bjarnasyni þegar þeir hittust í morgun til að reyna til þrautar að ná samkomulagi milli flokkanna þriggja um breytta skipan ráðuneyta. DV-mynd KAE Stjómarmyndunin: Almennur pirringur að grípa um sig „Nei, stjómarmyndunin er ekki að springa en ósköp er þetta nú samt orðið þreytt," sagði einn af forystu- mönnum Sjálfstæðisflokksins í morgun þegar DV spurði um stöðuna í stjómarmyndunarviðræðunum. Almennur pirringur virðist vera að gripa um sig meðal þeirra sem í við- ræðunum em og ýmiss konar ásakanir og kvartanir em nú bornar á mótaðil- ana á bak við tjöldin. Þrátt fyrir mikil fundahöld hefur ekki náðst endanlegt samkomulag um efnahagsaðgerðir, kaupleiguíbúðir, uppstokkun ráðuneyta og síðast en ekki síst skiptingu ráðuneyta. Forystumenn flokkanna hittust kl. 8 í morgun og gerðu úrslitatilraun til þess að ná samkomulagi um uppstokk- un ráðuneyta. Nokkur skoðanamunur er á því hvaða ráðuneyti skuli samein- uð en svo virðist sem framsóknarmenn geti vel fellt sig við hugmyndir al- þýðuflokksmanna. Mestar virðast deilumar um fram- kvæmd breytinganna. Sjálfstæðis- menn höfðu sagt að þeir teldu að gera ætti lagabreytingu sem tæki t.d. gildi um næstu áramót. Þetta telja alþýðu- flokksmenn ekki nóg. Þeir vilja breyta ráðuneytaskipaninni strax og þá með bráðabirgðalögum. Hugmynd þeirra er sú, samkvæmt heimildum DV, að nýr forsætisráð- herra verði einn skipaður ráðherra á ríkisráðsfundi. Fundi verði slitið og forsætisráðherrann verði á þeim tíma punkti eini ráðherra ríkisstjórnarinn- ar. Hann gefi út bráðabirgðalög um breytta skipan ráðuneyta og leiti eftir staðfestingu forseta. Þegar hún verði fengin verði annar- ríkisráðsfundur haldinn og þar verði hinir ráðherrar ríkisstjómarinnar skipaðir samkvæmt hinni nýju skipan ráðuneyta. Allt ætti þetta að geta gerst á einu síðdegi og telja alþýðuflokksmenn að á þessu séu engir lagalegir meinbugir. Sjálfstæðismenn virðast hins vegar síður en svo hrifnir af þessari aðferð. Um þessi mál verður fjallað á þing- flokksfundum sem ráðgerðir em hjá flokkunum þremur í dag og er stefnt að því að taka endanlega ákvörðun um uppstokkun ráðuneyta á þeim. -ES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.