Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritst|órn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987. Bifreiðaeftiriitið: Starfsmenn fundaí dag í morgun lá starfsemi Bifreiðaeftir- litsins enn niðri. Gunnar Jónasson. formaður Starfsmannafélagsins. sagði að samstaða meðal starfs- manna væri mikil og órofin og barist yrði til þrautar. Gunnar sagði að starfsmenn væru famir að ræða upp- sagnir án þess að það væri neitt til að bvggja á. alla vega ekki enn. í gær felldi starfsmannaráð tillögu um að starfsmenn létu af þessimi aðgerðum. Tillagan féll á jöfhu en í ráðinu sitja sex rnenn. þrír frá stjóm- endum fvrirtækisins og þrír frá öðrum starfsmönnum. Frá stjóm- endum sitia í ráðinu Guðni Karlsson forstióri. Heiðar Viggósson skrif- stofustjóri og Rúnar Guðmundsson umdæmisfulltrúi í Reykjavík. Frá ^ starfsmönnum sitja í ráðinu Gunnar Jónasson. Siguijón Bjamason og Anna Helgadóttir. Þeir þrír fvrst- nefndu samþykktu tillöguna en hin þrjú greiddu atkvæði gegn henni. Fyrir hádegi í dag gengu síðan fulltrúar úr starfsmannaráði til fundar í dómsmálaráðuneytinu. Enn er óljóst hvað kemur út úr þeim fúndi en dagurinn í dag er sá fjórði sem Bifreiðaeftirlitið er lokað vegna aðgerða starfsmanna. Haukur Ingibergsson forstjóri sagði við DV í morgun að á smærri stöðum úti á landi væri starfsemin með eðlilegum hætti en á stærri stöðum væri svipað ástand og í Reykjavik. Haukur bætti við: ..Kjami málsins er sá að Bifreiðaeft- irlitið á ekki meiri peninga nú en fyrir viku." -sme Hassolían: Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur hefur staðfest gæslu- varðhaldsúrskurð yfir einum af mönnunum þremur sem handteknir vom á hvítasunnudag með um 750 ^ grömm af hassolíu í fórum sínum. Hinir tveir áfrýjuðu ekki en úr- skurðirnir kveða allir á um 30 daga gæsluvarðhald. í félagi með mönn- unum þremur var Englendingur sem handtekinn var i Manchester en ólíklegt þykir að farið verði fram á framsal hans. -JFJ LOKI Þá er Framleiðsluráðið farið í hundana. Alþjóða hvalveiðiráðið að klofna? Halldór hótar nýjum hval- veiðisamtökum Djúpstæður ágreiningur lun hval- veiðar í vísindaskyni kom fram strax í gær, á fyrsta degi ársfúndar Al- þjóða hvalveiðiráðsins sem haldinn er í Boumemouth í Bretlandi. Islend- ingar brugðust þar hart við gegn tillögu Bandaríkjamanna um yfir- stjóm ráðsins á vísindaveiðunum. hótuðu úrsögn úr ráðinu og stofnun nýrra samtaka hvalveiðiþjóða um hagsmuni sína. Tillaga Bandaríkjamanna er studd af Svíum, Finnum, Hollendingum, Ástrah'umönnum og Ný-Sjálending- um. Gert er ráð fi,TÍr umsögn vís- indanefiidar .Alþjóða hvalveiðiráðs- ins um fyrirhugaðar vísindaveiðar hverrar þjóðar og pólitískri ákvörð- un ráðsins sjálfs. ísJendingar vilja halda sjálfrtæði þjóðanna um vis- indaveiðamar en samþykkja ákveðnari reglur. Japanir, Kóreu- menn, Norðmenn, Sovétoenn og meira að segja Kínverjar styðja þessa afstöðu. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra var talsmaður íslendinga í gær og sagði að við mvndum ekki samþykkja tillögu Bandaríkja- manna ef til kæmi. Til greina kæmi að skjóta málinu tíl Alþjóðadóm- stólsins og eins að íslendingar segðu sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu og beittu sér fyrir stofhun annarra sam- taka hvalveiðiþjóða um ákveðna vísindalega nýtingu hvalastofeanna. Þetta mál kemur aftur til umræðu á morgun. Éf tillaga Bandaríkja- manna verður samþykkt kemur til kasta íslensku ríkisstjómarinnar að ákveða endanleg viðbrögð. Þetta mál hefiu ekki verið rætt þar form- lega en einstakir ráðherrar Islands hafa reynt að tala Bandaríkjamenn til, þar á meðal Matthías Mathiesen er hann ræddi við George Shultz utanríkisráðherra þegar hann var hér á dögunum. -HERB Það er mikil stemmning á ísafirði þá daga sem staðarblöðin, Vestfirska fréttablaðið og Bæjarins besta, koma út. Þá fara blaðburðarbörnin sem eldur í sinu um bæinn og selja blöðin sín. Hér er það Erlingur Gíslason leikari sem ætlar greinilega að fræðast um það helsta sem er að gerast í bænum með því að festa kaup á blaði. DV-mynd GVA Veðrið á morgun: Áfram hægviðri Veðrið helst ennþá óbreytt að mestu. Hæg norðaustanátt eða hæg- viðri verður um mestallt landið. Hitastigið er frá níu og upp í sextán stig. Kindakjötið í bandariska hunda? „Eg er að bíða eftir svari frá Banda- ríkjunum,“ sagði Gunnar Páll Ingólfs- son, bryti í Bændaskólanum á Hvanneyri í Borgarfirði. „I Bandaríkjunum er fullt af fólki sem kaupir ekki nema það dýrasta fyrir hundinn sinn,“ sagði Gunnar Páll, sem hóf upp á sitt eindæmi að kanna möguleika á að selja kindakjöt til Bandaríkjanna sem hundamat þeg- ar DV birti fréttir um að verið væri að fleygja því að öskuhauga. „Eg var í Bandaríkjunum í maímán- uði og var þá spurður hvort það væri möguleiki á að fá afskurð fyrir gælu- dýr. Þegar ég sá í blöðum um daginn að verið væri að fleygja þessu hringdi ég strax út.“ Gunnar hugsar sér að bestu hlutum skrokksins, lundum, hryggvöðvum og innra læri, verði haldið eftir en af- skurðurinn seldur út sem hundamatur. -KMU Burðarþolið: Hönnuðir fá útreikninga Rannsóknastofaun byggingariðnað- arins fær fyrirmæli um það í dag að veita hönnuðum burðarþols í bygging- unum tíu, sem frá var greint í skýrslu á dögunum, aðgang að útreikningum sem niðurstöður þessar byggja á, sam- kvæmt upplýsingum sem DV fékk hjá Alexander Stefánssyni félagsmálaráð- herra. „Það er eðlilegt að hönnuðimir fái þessarupplýsingar, hvemig niðurstað- an hefúr verið fundin út. Rannsókna- stofaun byggingariðnaðarins fær formlega tilkynningu um þetta,“ sagði Alexander. „Þetta var unnið af virtum sérfræð- ingum en ég taldi aldrei að þessi athugun færi út á þessa braut. Það var ekki búist við því að svona mörg hús yrðu athuguð þannig að könnunin varð víðtækari en ráð var fyrir gert,“ sagði Alexander. -ój Akureyri: 100.000 krónur í seðlum sviðnuðu Jón G. Haukssan, DV, Akureyii Trillukarl á Akureyri, sem er með verbúð í svonefndri Sandgerðisbót, ætlar að kanna hvort bankamir taka við 100.000 krónum í seðlum en seðlamir sviðnuðu örlítið þegar eldur kom upp í verbúð sjómannsins í gær- morgun. í verbúðinni voru veiðarfæri en þar var jafnframt viðverupláss. 100.000 krónurnar vom í beinhörðum peningum og geymdar í vcski. Möðruvellir: Kviknaði í jarðvegi Jón G. Haukssan, DV, Akuieyri: Slökkviliðið á Akureyri var kvatt að tilraunástöðinni á Möðruvöllum við Eyjafjörð um hálffimmloytið í gær en þar hafði kviknað í mó sem mikið er af fyrir ofan stöðina. „Það eru mestar líkur á að kviknað hafi í út frá sígarettu. Það kraumar vel í þessu eftir alla þurrkana að und- anfömu. Það má eiginlega líkja þessu við skógareldana hjá Kínverjum," sagði Gunnlaugur Búi, varðstjóri í slökkviliðjnu, í morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.