Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987. 33 Erlendir fréttaritarar Bandalagið að sundrast? Jón Ormnx HaMórsson, DV, Landon; David Owen og nokkrir af stuðn- ingsmönnum hans munu hafa ákveðið að berjast gegn sameiningu Frjáls- lynda flokksins og Bandalags lýð- ræðisjafnaðarmanna, SDP, i Bretlandi. David Steele og nær allir þingmenn Frjálslynda flokksins hafa byrjað baráttu íyrir sameiningu flokk- anna sem hafa unnið saman í síðustu tveimur þingkosningum í Bretlandi en eru þó'enn tveir sjálístæðir flokkar. Nokkrir af helstu leiðtogum SDP hafa tekið undir hugmyndir frjálslyndra og þar á meðal þrír af fjórum stofnendum flokksins, þau Roy Jenkins, Shirley Williams og Bill Rogers en þau voru öll ráðherrar Verkamannaflokksins, ásamt David Owen og gengu úr flokknum árið 1981 til að stofoa SDP. I þingkosningunum fyrir rúmri viku fengu fijálslyndir sautján þingmenn, en SDP aðeins fimm. Ef flokkamir hefðu fengið þingsæti í samræmi við atkvæðamagn hefðu þingmenn þeirra hins vegar orðið mmlega hundrað og fjörutíu talsins og Ihaldsflokkinn hefði þá vantað fimmtíu þingsæti á að ná meirihluta. Það var einmitt vegna ein- menningskjördæmaskipunar í Bret- landi sem flokkamir tveir tóku höndum saman, en hvor um sig hafa þeir enga möguleika til að ná nægileg- um §ölda þingmanna til að hafa áhrif í þvf tveggja flokka kerfi sem kjör- dæmaskipan hefur búið til í landinu. En þrátt fyrir samvinnuna hafa flokk- amir ekki náð að brjóta niður þá múra sem em á milli tveggja stærstu flokkanna og í þeim umræðum sem farið hafa fram eftir kosningar hefur komið í ljós, að flestir kenna því um að flokkamir tveir hafa hvor sinn leið- togann og hvor sína stefnuna í mikil- vægum málum, þó um flest megi heita eining. Margir vilja trúa því að ef flokkamir verða sameinaðir muni staða þeirra styrkjast vemlega. David Owen virðist hins vegar hafa tekið þá ákvörðun að leggja pólitískt líf sitt að veði í baráttu fyrir áframhaldandi til- vem SDP sem sjálfstæðs flokks en litlar líkur em taldar á því að Owen geti náð kjöri sem leiðtogi sameinaðs flokks frjálslyndra og jafhaðarmanna, því staða fijálslyndra yrði mun sterk- ari en jafhaðarmanna í þeim flokki. Fyrir utan persónulega hagsmuni mun Owen einnig vantreysta fijálslyndum í nokkrum mikilvægum málum og þá einkum í vamarmálum en þótt Owen komi úr Verkamannaflokknum er hann talinn lengra til hægri í flestum efnum en þingflokkur fijálslyndra. David Owen leggur nú pólitíska framtíð sina að veði fyrir áframhaldandi sjálfstæði SDP. Símamynd Reuter Stjórnmálaframtið Rajiv Gandhis er nú mjög óviss eftir undanfarna ósigra. - Símamynd Reuter Vaxandi erfiðleikar Rajiv Gandhis Jón Ormur HaMórssan, DV, Landoru Þingmenn Kongressflokksins á Ind- landi stefndu til Delhí um helgina til að votta Rajiv Gandhi hollustu sína eftir ósigur flokksins í Haryana-fylki á norður Indlandi í síðustu viku. Um leið hafa nokkrir andstæðingar Gand- is í flokknum skorað á V.P. Singh, sem Gandhi rak nýlega úr embætti vamar- málaráðhera, að leiða baráttu innan flokksins fyrir því að reka Gandhi frá völdum. Hver ósigurinn af öðrum Ósigur Kongressflokksins í Haryana var mikill og kom í kjölfar ósigra í fleiri fylkjum. Nær allir ráðherrar í ríkisstjóm fylkisins töpuðu sætum sín- um á fylkisþinginu og kongressflokk- urinn fékk aðeins fjögur sæti á þinginu í staðinn fyrir sextíu og eitt árið áður. Fyrr á þessu ári náðu kommúnistar hreiniun meirihluta á þingi Kerala- fylkis á Suður-Indlandi og um leið styrktu kommúnistar meirihluta sinn í Vestur-Bengal, þar sem sextiu millj- ónir manna hafa búið undir stjórn marxista í nokkur ár, en nær hundrað milljónir Indveija búa nú undir stjórn kommúnistaflokka. Andstæð öfl Um leið hefur íhaldssömum flokkum einnig vaxið ásmegin á kostnað Kon- gi-essflokksins, en flokkurinn inni- heldur bæði sósialisk öfl og fólk sem vill aukið fijálsræði fyrir fjámiagn á Indlandi. Gandhi hefur fyrst og fremst stuðst við þau öfl sem vilja auka fijáls- ræði í efnahagsmálum en stór hluti flokksins aðhvllist skipulagshyggju og meirihlutinn er andsnúinn því að er- lendu fjármagni verði hleypt inn á Indland í nokkm mæli. Gandhi hefúr mátt eiga við stjóm- málalegan ágreining af þessu tagi, en um leið hefur hann lent upp á kant við þá aðila sem stjóma mestu í flokks- maskínu Kongressflokksins með viðleitni sinni til að draga úr spillingu í landinu. Þessi viðleitni Gandhis hef- ur hins vegar ekki gengið lengra en svo að þegar V.P. Singh. þá fjármála- ráðherra, þótti höggva of of nærri þeim peningamönnum sem styðja Kon- gi-essflokkinn var hann færður til í ríkisstjóminni og gerður að vamar- málaráðherra. Þegai- Singh síðan fyrirskipaði rannsókn á spillingu í kringum vopnakaup frá Svíþjóð var honum vikið úr ríkisstjóminni. Singh er því í mjög sterkri aðstöðu gagnvart almenningi á Indlandi sem er lang- þreyttur á pólitískri spillingu í landinu. Margir af hörðustu andstæð- ingum Gandhis í Kongressflokknum em hins vegar enn meiri andstæðingar Singhs vegna baráttu hans gegn spill- ingu þannig að vafasamt er að hann hafi mikinn árangur þótt hann leggi upp í herferð gegn Gandhi í flokknum. Meirihluti á móti Kongressflokkurinn hefur tapað öll- um fylkiskosningum sem haldnar hafa verið í landinu frá því Rajiv Gandhi tók við völdum fyrir tæplega þremur árum. Gandhi hefur tapað vemlegum hluta þess trausts sem við hann var bundið í fyrstu og honum verður sí- fellt erfiðara að koma stefnu sinni í framkvæmd því þótt meirihluti hans á þingi sé tryggur hefur þar hvort tveggja gerst, að meirihluti fylkis- stjóma landsins em nú flokki hans andvígar og svo hitt að minna afl er á bak við orð forsætisráðherrans eftir hvern ósigur hans af öðrum. Dagleg vandamál þeirra fimm hundruð milljóna Indveija sem búa í námunda við hungurmörkin hafa lítið blandast i valdabai'áttuna í Delhi. Ind- veijum fjölgar nú um átján milljónir á ári, eða um fjölda sem svarar til ís- lensku þjóðarinnar á hverjum fimm dögum. Af þeim 785 milljónum sem búa í landinu em varla nema um þrjú hundmð milljónir i beinum tengslum við peningahagkerfið en fimm hundr- uð milljónir fátæklinga mynda meira en þriðjung allra hinna fátækustu í heiminum. Urn leið hefur Indverjum hins vegar tekist að byggja upp marg- þættan iðnað heima fyrir, að miklu leyti án erlendrar tækniaðstoðar, og stefha þeir að því að bætast í hóp helstu iðnríkja heims innan fárra ára- tuga. • • TEPPIN KOMIN Mikið úrval. Sérlega hagstætt verð. TEPPAVERSLUIM FRIÐRIKS BERTELSEN H/F, SÍÐUMÚLA 23, S. 686266.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.