Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.1987, Page 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNl 1987.
Grunnskólinn á Flateyri
Kennara vantar í grunnskólann á Flateyri. Meðal
kennslugreina raungreinar. Upplýsingar í síma
94-7645.
Skólastjóri
Dægradvöl
IBUÐ FYRIR STARFSMENN
LANDSPÍTALANS
fbúð, helst 4-5 herbergi, óskast á leigu fyrir erlenda
starfsmenn.
íbúðin þarf að vera nálægt Landspítalanum eða þar
sem góðar strætisvagnaferðir eru til spítalans.
Nánari upplýsingar veitir yfirmatráðskona í síma
29000^491.
Reykjavík 23. júní 1987.
Vinningstölurnar 20. júní 1987
Heildarvinningsupphæð: 4.150.764,-
1. vinningur var kr. 2.078.415,- og skiptist á milli 5 vinningshafa, kr. 415.683,- á mann.
2. vinningur var kr. 622.134,- og skiptist hann á 246 vinningshafa, kr. 2.529,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.450.215,- og skiptist á 7.437 vinningshafa sem fá 195 krónur hver.
Upplýsingasimi: 685111.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 138., 144. og 151. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á
eigninni Brekkutanga 27, Mosfellshreppi, þingl. eign Davíðs Guðmundsson-
ar og Helgu Hansen, fer fram eftir kröfu Brunabótafélags islands, Veðdeildar
Landsbanka íslands, Reynis Karlssonar hdl., Jóns Ingólfssonar hdl. og Arnar
Höskuldssonar hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði,
föstudaginn 26. júní 1987 kl. 14.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 17. og 24. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eigri-
inni Reykjabyggð 6, Mosfellshreppi, þingl. eign Guðrúnar H. Snorradóttur
og Einars H. Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskuldssonar hdl. á
skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 26. júni
1987 kl. 15.00.
_________ Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 24., 30. og 33. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Arkarholti 17, Mosfellshreppi, þingl. eign Jónasar Björnssonar, fer fram
eftir kröfu Iðnaðarþanka islands á skrifstofu emþættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, föstudaginn 26. júní 1987 kl. 15.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 17. og 24. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Víði, Mosfellshreppi, þingl. eign Eygerðar Ingimundardóttur, fer fram
eftir kröfu Sigurðar G. Guðjónssonar hdl. og Björns Ólafs Hallgrímssonar hdl.
á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 26. júní
1987 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 51., 55. og 57 tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984 á eign-
inni Lóð úr landi Miðdals I, Mosfellshr., þingl. eign Einars V. Tryggvasonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Mosfellshreppi á skrifstofu embættisins
að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 26. júní 1987 kl. 16.45.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 12., 19. og 30. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eign-
inni Helguvík, Bessastaðahreppi, þingl. eing Þórðar Jóhannessonar og
Ragnhildar Einarsdóttur, fer fram eftir kröfu bæjarfógetans í Keflavík, Giss-
urar V. Kristjánssonar hdl., Útvegsbanka islands, Jóns G. Briem hdl., Ólafs
Axelssonar hrl., Guðmundar Kristjánssonar hdl. og Friðjóns Ö. Friðjónssonar
hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 26.
júní 1987 kl. 17.30.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu'
Maður heyrir margt skemmtilegt
loftinu, segir Guðjón Einarsson sem verið hefur radíóamatör í fjöldamörg ár.
DV-mynd JAK
Hitti svo marga í loftinu
- segir radíóamatörinn Guðjón Einarsson
„Maður hittir svo marga í loftinu,
það gerir þetta svo skemmtilegt,"
sagði Guðjón Einarsson, fyrrum ljós-
myndari og núverandi skrifstofu-
stjóri á Tímanum, en hann hefur
verið radíóamatör í tugi ára og á
einhverjar fullkomnustu græjur sem
til eru hér á landi.
Guðjón á vini og kunningja um
allan heim í gegnum þessi fjarskipti.
„Margir eru ansi hreint skemmtileg-
ir. Stundum kemur konan mín
hingað inn í herbergi til þess að at-
huga hvort eitthvað sé að því henni
finnast grunsamlega mikil læti í
mér. Þá sit ég hér og veltist um af
hlátri yfir einhverju sem ég heyrði í
loftinu. Einn kunningja á ég á Hawa-
ii sem heitir Bolla, mjög skemmtileg-
ur karl. Ég hitti hann oft klukkan
sjö á kvöldin, þá er hann að fara á
fætur.“
Fyrstu kynni Guðjóns af amatör-
radíói voru í gegnum föður hans.
„Faðir minn, Einar Jónsson, var einn
af þeim fyrstu í þessu svo segja má
að ég hafi haft þetta í blóðinu,“ sagði
hann.
í amatörradíóhreyfingunni er að
finna alls konar fólk, bæði konur og
karla, á öllum aldri og úr öllum stétt-
um. Hér á landi eru fáar konur
radíóamatörar en það mun vera al-
gengara erlendis, hvernig sem á því
stendur. „Ég hef oft talað við eina
þriggja barna móður í Frakklandi.
Hún er alltaf í loftinu, ég veit ekki
hvenær hún sefur, sú manneskja,"
sagði Guðjón og hló.
Að sögn Guðjóns er mikið um það
TF3AC
til dæmis í Bandaríkjunum að eftir-
launaþegar, einkum fyrrverandi
hermenn, gerist radíóamatörar. Fatl-
aðir eru líka fjölmennir og Guðjón
hefur oft talað við einn sem er handa-
laus og morsar með munninum.
„Hann segir að amatörradíóið hafi
opnað fyrir honum nýja heima.“
Landasöfnun
Margir radíóamatörar safna lönd-
um, eins og það er kallað. Þeir
keppast við að ná til sem flestra
landa en til þess að sambandið sé
viðurkennt verða þeir að hafa stað-
festingu í höndunum. Svokölluð QSL
eru hin endanlega sönnun þess að
samband hafi átt sér stað og radíó-
amatörar senda hver öðrum slík kort
sé um það beðið. Á þessum kortum,
sem eru á stærð við venjuleg póst-
kort, eiga að koma fram kallmerki
viðkomandi amatörs, staður og stund
og ýmsar tæknilegar upplýsingar.
Hver radíóamatör útbýr sitt eigið
kort og reynt er að hafa þau á ein-
hvern hátt persónuleg. Á korti
Guðjóns er mynd af honum þriggja
ára gömlum með loftskeytatæki föð-
ur síns - skemmtilegt kort sem
Guðjón segir hafa gert mikla lukku.
Radíóamatörar geta fengið viður-
kenningar fyrir að hafa náð staðfestu
sambandi til ákveðins fjölda landa
og margir safna slíkum viðurkenn-
ingum. Guðjón er það sem á ensku
kallast „award manager" fyrir Is-
land. Það þýðir að hver sá sem vill
fá viðurkenningu verður að senda
Guðjóni kort sín og dagbækur en
Op: GUÐJÓN EINARSSON "John” 'pTh'J A p
Fálkagölu 21, Reykjavík, lceland J. f Ollij
CFM QSO with ______________________
V
DATE GMT
19
MHxBAND RST 2-WAY
CW SSB FM
Rig: Kenwood TS 520 -TR 7200G
Anl- GP/Dinol. YAESU FT-107M
Ant. GP/D.pole 73»a G00D DXj GOOq luck,
TNX FOR QSO
PSE QSL TNX
At my father’s rig in 1926
Via Direcf, I.R.A. Bureau, Box 1058, Reykiavík, lcoland
Þetta kort sendir Guöjón til radióamatöra sem hann nær sambandi við.
Kort af þessu tagi eru hin endanlega sönnun þess að samband hafi komist
á. Myndin á kortinu er af Guðjóni þriggja ára gömlum með loftskeytatæki
föður sins.
radíóamatörar færa öll fjarskipta-
sambönd sín í bækur. Guðjón fer yfir
þetta og kemur því rétta boðleið.
Guðjón segist hafa safnað löndum
hér áður fyrr og telst svo til að hann
hafi náð staðfestu sambandi við um
það bil hundrað og fjörutíu lönd. „En
nú nenni ég ekki lengur að eltast við
slíkt. Það er ekki nema maður heyri
frá einhverjum sérstökum stað að
maður biður viðkomandi að senda
sér kort. Það eru frekar þessi mann-
legu samskipti sem ég hef áhuga á
núorðið.“
Bylting í Bólivíu
Guðjón segist hafa upplifað margt
skemmtilegt í loftinu og að mörgum
radíóamatörum finnist það sérstakt
að heyra í félaga frá íslandi. „Einu
sinni náði ég sambandi við lækni í
Alsír sem var að flýta sér í aðgerð.
Þegar hann heyrði að ég var frá ís-
landi gat hann samt ekki annað en
hinkrað við, honum fannst það svo
sérstakt. Einu sinni heyrði Kuwait-
búi í mér og bað alla í guðanna
bænum að fara af bylgjunni því hann
hefði aldrei talað ■ til íslands áð-
ur.
Radíóamatörar eru alltaf að gera
tilraunir og prófa eitthvað nýtt. Eitt
skiptið talaði ég til Bretlands og sá
sem ég náði sambandi við varð
óskaplega hissa þegar hann heyrði
að ég talaði frá ísíandi. Hann sagðist
vera rétt fyrir utan Liverpool og vera
einungis með kústskaft fyrir loftnet;
datt sjálfsagt ekki í hug að hann
næði svona langt.“
Hussein Jórdaníukonungur er
sagður mikill áhugamaður um amat-
örradíó og við spurðum Guðjón hvort
hann hefði einhvern tíma náð sam-
bandi við hann:
„Nei, en það hafa nokkrir íslend-
ingar talað við hann. Hann er með
mann á stöðinni hjá sér en ef heyrist
frá íslandi lætur hann kalla í sig.
Ég veit ekki af hverju það er.“
Guðjón segist einu sinn hafa talað
til Bólivíu sama dag og bylting var
gerð þar. „Menn tala samt yfirleitt
ekki um stjórnmál á þessum vett-
vangi. Þegar þorskastríðið stóð yfir
töluðum við og Bretar stundum um
„þetta leiðindastríð sem er okkar á
milli“ en annars forðast menn slík
mál og radíóamatörar erp rólegir
menn og kurteisir. Ég hef ekki heyrt
menn blóta í loftinu," sagði Guðjón.