Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Blaðsíða 2
2 6 MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987. Fréttir Kaupin á Utvegsbankanum: Boðið á móti Sambandinu - fyrirtæki úr sjávarútvegi, versiun og þjónustugreinum ætla að bjóða í hlutabréf fyrir rúmar 700 milljónir Um helgina áttu sér stað mikil íundahöld og símaviðræður meðal ráðamanna í sjávarútvegi, verslun og þjónustugreinum, tmdir forystu Kristjáns Ragnarssonar, formanns Landssambands íslenskra útvegs- manna, um samstöðu við að bjóða á móti Sambandinu í Útvegsbankann. Á milli 20 og 30 fyrirtæki mimu nú þegar vera tilbúin að slá til. í morg- un hófst fundur þessara aðila um málið. Þar verður endanleg ákvörð- im tekin en talað er um að kaupa hlutabréf fyrir rúmar 700 milljónir króna. Á fundinum verður eirrnig tekin ákvörðun um með hvaða kjör- um þessir aðilar eru tilbúnir til kaupanna. Moðal þeirra sem að þessu standa eru Verslunarbanki íslands. Guð- mundur H. Garðarsson, bankaráðs- maður í Verslunarbankanum, sagði í samtali við DV að á fimdi banka- ráðsins, sem haldinn var í gær, hefði verið samþykkt að Verslunarbank- inn tæki þétt í þessu. Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður bankaráðs Iðnaðarbank- ans, sagði að þar hefði þetta mál ekki verið rætt nú en í vor, þegar viðræður áttu sér stað milli Iðnaðar- og Verslunarbanka um sameiningu við Útvegsbankann, hefði Iðnaðar- bankinn lýst þvi yfir að hann vildi stefna að þessu. „Og þaö vorum ekki við sem slitum þeim viðræðum," sagði Davíð. Hann taldi víst að bankaráð Iðnaðarbank- ans væri enn sama sinnis. Sofianias Cecilsson, formaður Fé- lags fiskvinnslustöðva á íslandi, sagði í samtali við DV að hann teldi vandalaust að ná saman nægum fjölda manna til að kaupa Útvegs- bakann ef vilji væri fyrir hendi. Hins vegar sagðist hann óttast að menn væru orðnir of seinir. Hann sagði ennfremur að nauðsynlegt væri að fá nákvæmari upplýsingar um stöðu bankans. „Þótt Sambandið só tilbúið til að ganga inn í sóðaskapinn þá vil ég láta sópa áður en ákvörðun er tek- in,“ sagði Soffanías. ,.Ég vona bara að okkur takist þetta. Það er að vísu misjafht hljóð- ið í mönnum en málið ætti að skýrast á fúndinum í dag. Meira get ég ekki sagt um þetta á þessari stundu,“ sagði Kristján Ragnarsson, formað- ur Landssambands fslenskra útvegs- manna, í samtali við DV. -S.dór A sjöunda þúsund manns létu fara vel um sig á tónleikum í bliðskaparveðri i Kerinu Grimsnesi í gær. Þar komu fram m.a. Kristján Jóhannsson, Kristinn Sigmundsson, Björgvin Halldórsson og Magnús Kjartansson. Tónleikapall- urinn var á þremur gúmmíbátum á vatninu í botni Kersins, en hljómburðurinn var mjög góður. Tónleikamir í Kerinu: „Gekk stóikostlega vel“ - hagnaður ein og hátf milljón króna „Þetta gekk í einu orði sagt stór- kostlega. Við höfðum gert okkur vonir um 3-4 þúsund manns en milli 6 og 7 þúsund voru þegar mest var. Veðrið var eins og best varð á kosið og um- gengni fólks alveg til fyrirmyndar. Þótt ótrúlegt sé komum við öllu rusl- inu, sem við tíndum eftir tónleikana, í einn innkaupapoka. Hljómburðurinn á tónleikunum var mjög góður,“ sagði Guðmundur Kr. Jónsson, formaður Héraðssambandsins Skarphéðins, sem stóð fyrir tónleikunum í Kerinu í Grímsnesi í gær. „Hagnaður af þessu verður líklega um ein og hálf milljón og þetta verður til þess að HSK tekst að ná endum saman eftir tapið á Þjórsárdalshátíð- inni um verslunarmannahelgina sem var um tvær milljónir króna. Allir listamenn sem þama komu fram lögðu fram sína vinnu endurgjaldslaust og eigum við þeim mikið að þakka,“ sagði Guðmundur. Þótt mikil bílaumferð væri Grímsnes- inu í gær gekk hún óhappalaust. -BTH Jónatan Þórmundsson: Hefur ráðið aðstoðaimann „Ég hef ráðið mér aðstoðarmann og í dag tökum við til starfa en við reikn- um með að í vikunni verði okkur útvegað húsnæði," sagði Jónatan Þór- mundsson sem skipaður var sérstakur ríkissaksóknari 6. ágúst sl. til að fara með mál sem tengjast gjaldþroti Haf- skips hf. Aðstoðarmaður Jónatans verður Tryggvi Gunnarsson, 33 ára lögfræð- ingur. Tryggvi útskrifaðist úr laga- tekur til starfa í dag deild Háskóla íslands árið 1982 og hefúr undanfarin ár stundað fram- haldsnám í eignarétti í Noregi. „Síðustu daga hef ég sótt þýskt- íslenskt málþing í refsirétti en því er nú lokið og þar með get ég snúið mér óskiptur að því að kynna mér gögn í Hafskipsmálinu. Það má segja að þeg- ar húsnæði er fundið verði komið á laggirnar eins konar stofnun fyrir þetta sérstaklega skipaða ríkissak- sóknaraembætti og við ráðum líklega mann í ritarastarf.“ Jónatan mun áfram gegna stöðu deildarstjóra lagadeildarinnar í vetur þrátt fyrir þetta umfangsmikla starf sem hann á fyrir höndum en sagði hann að eitthvað myndi hann þó minnka við sig i kennslu og verkefnum þar. -BTH Skyttumar fengu auka verðlaun „Myndin fékk fyrstu aukaverðlaun, var við það að fá aðalverðlaun en náði því ekki. Hún var, má segja, í íjórða sæti og ég get ekki annað en verið ánægður með það,“ sagði Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðar- maður. Mynd Friðriks Þórs, Skytturnar, var til sýningar á alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Locamo í Sviss. Þar atti hún kappi við 18 kvikmyndir með fyrr- greindri niðurstöðu. Kvikmyndin, sem fékk gullverðlaun, var frá Portúgal, silfrið fór til Taiwan og bronsið hirtu Sovétmenn. „Menn spáðu Skyttunum bronsinu enda átti enginn von á að sú portúgalska myndi verða meðal þeirra efstu. Hins vegar eru hinar tvær, frá Taiwan og Sovétríkjunum, mjög góðar,“ sagði Friðrik. Aðspurður sagði Friðrik að mikið hefði verið spurt um myndina og við- brögð við henni verið mjög góð. „Það er ýmislegt í gangi, ýmsar samninga- viðræður. Áhuginn kemur aðallega frá Evrópu en einnig hafa Austur- landabúar sýnt henni áhuga. Ég hef alltaf gert mér góðar vonir um að selja myndina út og þær hafa svo sannar- lega ekki minnkað,“ sagði Friðrik. - Hvað þýðir þessi niðurstaða fyrir þig? „Hún þýðir það fyrst og fremst að ég er kominn á blað í evrópskum kvik- myndaheimi. Þetta er mjög gott persónulega, maður kynnist öðrum leikstjónun mjög vel og lærir af þeim. Einnig er gaman að fá uppörvun og hrós frá mönnum eins og ungverska leikstjóranum Szabó,“ sagði Friðrik Þór Friðriksson. -JFJ Ný reglugerð um eriendar lántökur: Alveg ófram- kvæmanleg Reglugerð um umdeildan skatt á skila inn öllum samningsskjölum í erlendar lántökur, sem er liður í Seðlabankaíslandsinnanfimmdaga fyrstu aðgerðum ríkisstjómarinnar, sé samningurinn ekki gerður með var gefin út í morgun. milligöngu banka. Umsvifamiklir Komið heíúr fram í DV að fjöl- kaupsýslumenn, sem rætt var við í mörg fyrirtæki hafa sent ríkisstjóm- morgun, segjast sjá fram á fjölmarg- inni og fjármálaráðherra bréf þar ar ferðir í bankann vegna þessa og sem gerðar eru athugasemdir við halda því raunar fram að skatt- þe6sa gjaldtöku og beðið um undan- heimta með þessum hætti sé ófram- þágur. Ekki virðist hafa verið tekið kvæmanleg. tilUt tál þessara athugasemda en þó Gert er ráð fyrir að tekjur af þess- aagði fjármálaráðherra í viðtali við um skatti verði 60 milljónir það sem DV fyrir nokkru að undanþágu- eftir er ársins en sem nemur 230 beiðnir yrðu skoðaðar eftir að milljónum á heilu ári. reglugerðin hefði séð dagsins ljós. Skatturinn skal greiddur af erlend- Ljóst er að þessi reglugerð verður um lántökum, fjármagnsleigu, mjög umdeild. Vandséð er hvemig kaupleigu, samningum um kaup eða komist verður hjá ringufreið þegar leigu á vöru, vinnu eða þjónustu. skatttakan verður framkvæmd þar Sama gildir um hvers konar reikn- sem hún nær til nálægt allra er- ingsviðskipti til lengri tíma en 60 lendra viðskipta sem ekki eru daga. Skatturinn er 1-3% af láns- staðgreidd. upphæðinni eftir lánstíma Er lán- eða leigutökum gert að -ES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.