Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987.
11
Utlönd
Bíllinn sem skæruliðarnir tveir ferðuðust i gjöreyðilagðist við sprenginguna.
Símamynd Reuter
Ödýru Glasgow-ferðirnar
Þær byrja aftur frá og með 19. september. Starfsmanna-
hópar sem fóru með okkur í fyrra og ætla aftur eru
beðnir að panta sem fyrst. Sætaframboð er takmarkað.
isienskur fararstjóri. 4 dagar, flug og gisting
verð frá kr. 11.900.-
■ iiMW 1—1 IfcJli 1 c, i ncc i
jmmi ■ mmmm bUfl3.r lUObl,
SuLHRFLUO 22100,15331
Munið sólarlandaferðirnar
Brottför í hverri viku.
Rínarlönd: Helgarferðir
4 dagar frá kr. 11.600,-
Leiðtogi námuverkamanna i Suður-Afriku, Cyril Ramaphosa til hægri,
og meðlimur samtakanna, Marcel Golding, segjast vera reiðubúnir til
viðræðna um hvernig unnt sé að minnka ofbeldið sem fylgir verkfallinu.
Simamynd Reuter
Verkfallið
breiðist út
Flest bendir nú til þess að víð-
tækasta verkfall í sögu Suður-Afr-
íku, sem staðið heíúr yfir í viku,
breiðist út þrátt fyrir að hreyfing sé
komin á samningaviðræður, að sögn
leiðtoga samtaka námuverkamanna,
Cyril Ramaphosa.
Hann vildi þó ekki á fúndi með
fréttamönnum í gær greina frá því
til hvaða fyrirtækja frekara verkfall
myndi ná. Hingað til hafa þrjú
hundruð þúsund verkamenn lagt
niður vinnu í kola- og gullnámum.
Það kom þó fram að eitt stærsta
námufyrirtækið vildi ræða um
hvemig hægt væri að minnka of-
beldi og hefðu samtökin sagst fús til
viðræðna um það. Stöðugt hefur
komið til átaka milli verkfallsmanna
og öryggisvarða eða lögreglu. Hafa
báðir aðilar sakað hinn um ofbeldi.
Tvö hundruð manns hafa verið
handtekin.
Forystumaður samtakanna leggur
þó áherslu á að ekki verði slegið af
kröfunum um þrjátíu prósent launa-
hækkun og betri vinnuskilyrði.
Féllu fyrir eigin sprengju
Tveir meintir skæruliðar Baska biðu
bana er sprengja sprakk í bíl sem þeir
ferðuðust í. Þykir víst að skæmliðam-
ir, maður og kona, hafi ætlað að nota
sprengjuna við tilræði í miðborg San
Sebastian á Spáni.
Rétt fyrir slysið hafði komið tilkynn-
ing um væntanlega árás á skrifstofú
hersins í borginni, aðskilnaðarsamtök
Baska hafa nokkrum sinnum gert árás
á skrifstofuna, síðast fyrir tveimur
mánuðum.
Hátíðahöld hafa farið fram að und-
anfömu í San Sebastian og hefur
komið til átaka á meðan á þeim hefur
staðið. Aukinn viðbúnaður er nú í
Madrid vegna sprengingarinnar í San
Sebastian þar sem óttast er að
sprengjuárásir verði gerðar þar. Þijá-
tíu og einn maður hefur látist það sem
af er þessu ári í árásum skæruliða
Baska.
^SKÓMAGASÍN
SÍÐUMÚLA 23