Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987.
Fréttir______________________________________________rx
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, í Ólafsvík:
„Erum saman komin til
að minnast fortíðar"
Vigdís Finnbogadóttir gengur ásamt fylgdarliði að minnismerki um
drukknaða sjómenn. DV-myndir Brynjar Gauti
Ólafsvík skartaði sínu fegursta þeg-
ar frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands, sótti Ólafsvíkinga heim á
laugardaginn. Veðrið var með ein-
dæmum gott, sólskin, hiti og logn. Á
laugardaginn hófst átta daga löng
dagskrá þar sem Ólafsvíkingar halda
upp á það að í ár eru liðin 300 ár frá
því að Ólafsvík var gerð að löggiltum
verslunarstað. Aðaldagar dagskrár-
innar var á laugardag er frú Vigdís
Finnbogadóttir kom í opinbera heim-
sókn. Mikill mannfjöldi tók á móti
forsetanum og fylgdarliði við komuna
til Ólafsvíkur.
Við sýslumörkin
Jóhannes Ámason, sýslumaður
Snæfells- og Hnappadalssýslu og bæj-
arfógeti í Ólafsvík, kona hans, fhi
Sigrún Sigurjónsdóttir, sýslunefnd,
ásamt mörgu fleira fólki tók á móti
forsetanum og fylgdarliði við sýslu-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtiyggó (%) hæst
Sparisjóösbækur ób. 14-15 Lb.Sp, Ub.Bb, Ab
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 15-19 Úb
6 mán. uppsögn 16-20 Ib.Vb. Úb
12 mán. uppsögn 17-26.5 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 25.5-27 Ib.Bb
Ávísanareikningar 4-15 Ab.lb, Vb
Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-8 Ib.Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 - Allir
6 mán. uppsögn Innlán meo sérkjörum 3-4 14-24.32 Ab.Úb Úb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 5.5-6,5 Vb.Ab
Sterlingspund 7,5-9 Vb
Vestur-þýsk mork 2.5-3,5 Vb
Danskar krónur 8.5-10 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennir víxlar(forv.) 28-28.5 Lb.Bb
Viöskiptavixlar(forv.)(1) 25-26 eóa kge
Almenn skuldabréf 29-31 Úb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
HlaupareikningarMirdr.) Útlán verðtryggo 30 Allir
Skuldabréf
Aö 2.5árum 8-9 Lb.Vb, Sb.Ab
Til lengri tima Útlán til framleiðslu 8-9 Lb.Vb. Sb.Ab
Isl. krónur 25-29 Úb
SDR 7.75-8 Bb.Lb, Úb.Vb
Bandarikjadalir 8.5-8.75 Bb.Lb, Úb.Vb
Sterlingspund 10-10.75 Sp
Vestur-þýsk mörk 5.25-5.75 Ub
Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 3.5 5-6.75
Dráttarvextir 40.8
VÍSirÖLUR
Lánskjaravísitala ágúst 1743 stig
Byggingavísitala ágúst 321 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði9%1.júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestini
arfélaginu);
Ávöxtunarbréf 1,1995
Einingabréf 1 2.216
Einingabréf 2 1.311
Einingabréf 3 1,375
Fjölþjóðabréf 1,030
Kjarabréf 2,211
Lífeyrisbréf 1.114
Markbréf 1.101
Sjóösbréf 1 1.086
Sjóðsbréf 2 1.086
Tekjubréf HLUTABRÉF 1.202
Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 114 kr.
Eimskip 273 kr.
Flugleiðir 190 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 116 kr
Iðnaðarbankinn 140 kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn —.123 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavixla
gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25% og
nokkrir sparisj. 26%.
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
(2) Byggingarvlsitala var sett á 100 þann
1. júli, en þá var hún I 320. Hún verður
framvegis reiknuð út mánaðarlega, með
einum aukastaf.
mörkin við Hítará klukkan fimmtán
mínútur yfir níu á laugardagsmorgun.
Bæjarfógeti og frú fylgdu síðan frú
Vigdísi Finnbogadóttur og föruneyti
til Ólafsvíkur. Þangað var komið
fimmtán mínútur yfir ellefu. Við bæj-
armörk Ólafsvíkur við Fossá tók
bæjarstjóm Ólafsvíkur ásamt mökum
á móti hinum tigna gesti. Við það
tækifæri færði ung stúlka úr Ólafsvík
forsetanum fagran blómvönd.
Mikill fjöldi fagnaði forsetanum
Síðan var haldið að húsi Lands-
bankans í Ólafsvík en þar gisti forset-
inn á meðan á heimsókninni til
Ólafsvíkur stóð. Við hús Landsbank-
ans höfðu safhast saman mörg
hundruð manns og klöppuðu forsetan-
um lof í lófa er hún steig úr bíl sínum.
Frú Vigdís gaf sér góðan tíma til að
ræða við fólkið sem komið hafði til
að taka á móti henni. Bömin flykkt-
ust að forsetanum og ræddi hún við
þau góða stund. Mörg böm vom
klædd í íslenska þjóðbúninga.
Eftir að hafa heilsað Ólafsvíkingum
og óskað þeim innilega til hamingju
með afmælið hélt forsetinn á hátíðar-
fúnd bæjarstjómar sem haldinn var í
Pakkhúsinu. Pakkhúsið er elsta hús
Ólafsvíkur, var það byggt árið 1844
og er nú langt komið með að færa
húsið í sinn upphaflega búning.
Sveinn Þór Elínbergsson, forseti bæj-
arstjómar, stýrði fundinum. Eitt mál
var á dagskrá fundarins flutt af öllum
fulltrúum bæjarstjómar. Var þar sam-
þykkt að í Pakkhúsinu skuli vera
byggðasafh Ólafsvíkur. Jóhannes
Ámason, bæjarfógeti og sýslumaður,
kvaddi sér hljóðs á fundinum og færði
hann fyrir hönd sýslunefndar Ólaf-
svíkingum fagran fuhdarhamar.
Hamarinn var skorinn út af Halldóri
Sigurðssyni i Miðhúsum á Héraði. Var
skorið í hann merki Ólafsvíkur og lét
Jóhannes þau orð fylgja gjöfinni að
merkið ætti ætíð að snúa rétt er ham-
arinn væri notaður. Sveinn Þór
Elínbergsson tók við gjöfinni og þakk-
aði hann fyrir gjöfina fyrir hönd
Ólafsvíkinga. Var fundi síðan slitið
og notaði forseti bæjarstjómar hamar-
inn við fundarslitin.
Ljósmynda- og listasýning
Að loknum fundi hélt forsetinn til
hádegisverðar að Hótel Nesi ásamt
öðrum gestum. Eftir hádegisverð opn-
aði forsetinn sögu-, ljósmynda- og
listasýningu í grunnskólanum. í sýn-
ingarskrá myndlistarsýningarinnar
segir: „I tilefhi af 300 ára verslunaraf-
mæli Ólafsvíkur ákvað lista- og
menningamefnd, í samráði við af-
mælisnefnd, að bjóða myndlistar-
mönnum að dvelja í Ólafsvík í sumar
í styttri eða lengri tíma. Átta myndlist-
armenn þáðu boð okkar og em
myndimar sem þeir unnu hér til sýnis
og sölu. Lista- og menningamefrid vill
þakka myndlistarmönnunum fyrir
þann áhuga sem þeir hafa sýnt Ólaf-
svík.“ Á fyrstu fjömtíu mínútum
sýningarinnar seldust 22 listaverk.
Listamennimir sem gistu Ólafsvík í
sumar vom: Alda Sveinsdóttir, Eygló
Harðardóttir, Guðrún G. Gröndal,
Guðrún Svava Svavarsdóttir, Karl E.
Vemharðss, Kristín Reynisdóttir,
Sonja Hákansson og Þorbjörg Hö-
skuldsdóttir.
I ávarpi forseta við setningu sýning-
arinnar sagði hún að nauðsynlegt
væri fyrir okkur öll að varðveita hið
gamla. „Við erum saman komin á þess-
um fagra degi til að minnast fortíðar,"
sagði forsetinn.
Auk myndlistar var sögu- og ljós-
myndasýning. Á sögusýningunni var
sagt frá verslun, samgöngum, sjávar-
útvegi og mannlífi í Ólafsvík fyrr á
tímum. Ljósmyndasýning vakti
ánægju gesta en þar var mikill fjöldi
gamalla ljósmynda frá Ólafsvík, bæði
af fólki, húsum og viðburðum. Veg og
vanda af frágangi myndanna hafði
Ævar Guðmundsson.
Frú Vigdís Finnbogadóttir heimsótti
síðan Dvalarheimilið Jaðar, en það er
nýlegt heimili fyrir aldna Ólafsvík-
inga. Forsetinn gaf sér rúman tíma til
að tala við gamla fólkið og kunni það
vel að meta heimsókn forsetans. Þegar
forsetinn kom út aftur slepptu ungir
drengir í Ólafsvík 300 bréfdúfum til
heiðurs forsetanum. Gekk forsetinn til
þeirra og þakkaði þeim kærlega fyrir.
„Hvort þykir ykkur fallegra að segja
kom þú sæll og kom þú sæl eða hæ
hæ,“ spurði Vigdís bömin. Vom öll á
einu máli um að kom þú sæll og kom
þú sæl væri fallegra. Eftir atkvæða-
greiðslu sem forsetinn stjómaði var
samþykkt að nota orðin kom þú sæll
og kom þú sæl hér eftir. Tívolí sem
skátar höfðu sett upp var skoðað næst
og reyndi forsetinn fyrir sér í bolta-
kasti og vann hún til verðlauna sem
hún eftirlét ungum dreng.
Lagði blómsveig við minnis-
merki um drukknaða sjómenn
Næst fór forseti í Sjómannagarðinn
en þar lagði hún blómsveig að minnis-
merki um drukknaða sjómenn. Forseti
gróðursetti síðan þrjár birkihríslur.
Fékk hún böm sér til aðstoðar. Fyrstu
hrísluna sagði hún drengina eiga, aðra
stúlkumar og þá þriðju ættu ófæddir
Ólafsvíkingar að eiga og væri það
sameiginlegt verk drengja og stúlkna
að gæta hríslunnar.
Félagsheimilið tekið formlega
í notkun
Kvöldverðarboð í boði bæjarstjómar
var næst á dagskrá forseta. Var kvöld-
verðurinn haldinn í hinu nýja og
glæsilega félagsheimili Ólafsvíkur.
Alls var 140 manns boðið til kvöld-
verðar. Að kvöldverði loknum tók frú
Vigdís Finnbogadóttir félagsheimilið
formlega í notkun. Sveinn Þór Elín-
bergsson, forseti bæjarstjómar, flutti
ávarp við upphaf samkomunnar og
þakkaði hann öllum sem hlut hafa átt
að byggingu félagsheimilisins. Kristj-
án Pálsson bæjarstjóri sagði í sínu
ávarpi að „eftir þrotlausa vinnu og það
sem margir kölluðu draumsýn" væm
Ólafsvíkingar og gestir nú saman
komin í þessu glæsilega félagsheimili.
Vigdís Finnbogadóttir lýsti félags-
heimilið formlega opnað og sagði hún
meðal annars við það tækifæri að
hvert byggðarlag yrði að geta varð-
veitt sérkenni sín og að því stuðli
félagsheimili ekki síst. Allir þingmenn
Vesturlands vom mættir í Ólafsvík og
flutti Alexander Stefánsson Ólafsvík-
ingum kveðjur þeirra. Ráðherramir
Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin
Hannibalsson vom og viðstaddir. For-
sætisráðherra flutti Ólafsvíkingum
kveðju ríkisstjómar íslands. Jón Bald-
vin Hannibalsson fjármálaráðherra
tilkynnti að hann og Þorsteinn Páls-
son hefðu ákveðið að félagsheimila-
sjóður greiddi Ólafsvíkingum 2
milljónir króna á þessum tímamótum.
Sóknarpresturinn í Ólafsvík, séra
Guðmundur Karl Ágústsson, flutti
hugvekju. Nokkrir aðrir gestir tóku
til máls. Flutt var hljómlist, leiklist
og sýndur dans. Þessi síðasti dagskrár-
liður laugardagsins 15. ágúst var
velheppnaður og vel sóttur af Ólaf-
svíkingum sem og öll önnur atriði
dagskrár dagsins.
-sme
Víglundur Jónsson, fyrsti og eini heiöursborgari Ólafsvíkur, býður forseta ís- Vigdís Finnbogadóttir þakkar drengjunum sem slepptu dutunum þrjú hundruð.
lands velkominn til Ólafsvíkur.