Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Síða 12
12 MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987. Neytendur Asbestí bremsuborðum Asbestplötur teknar niður. Svo hættuleg er rykmengunin að menn þurfa að hylja allan líkamann og anda í gegnum grimur. Það hefur sýnt sig að notkun as- bests í bremsuborðum bifreiða er mikill mengunarvaldur og veldur þetta þungum áhyggjum víða um lönd en asbest er sem kunnugt er stórhættulegur krabbameinsvald- ur og hefur verið bannað um árabil. Vegna bremsuborða er talið að um helmingur allra bifreiða í V- Þýskalandi valdi verulegri um- hverfismengun og hafa yfirvöld þar af þessu þungar áhyggjur. Hafa nú borgaryfirvöld í borginni Munchen í V-Þýskalandi gengið á undan með góðu fordæmi og látið setja as- bestlausa bremsuborða í alla strætisvagna. Helstu bifreiðaframleiðendur í Mið-Evrópu hafa nú þegar hafið notkun annarra efna í framleiðslu á bremsuborðum í nýjustu gerðum bifreiða sinna. Þessir framleiðend- ur eru Audi, Volkswagen, BMW, Ford, Opel og Peugeot. Ástæða þess að asbest hefur verið notað í bremsuborða er að það hef- ur einstakt hitaþol en bremsuborð- ar þurfa einmitt að þola mikinn hita. Asbest hefur þannig eigin- leika sem eru einstakir og var það jafnvel notað i búninga slökkvi- liðsmanna um tíma. Þá kom í ljós að abestryk er mikill krabbameins- valdur, svo skæður að það var bannað undireins og er það fjar- lægt úr öllum byggingum um leið og spyrst til þess. En hvernig skyldi málum vera háttað hér á landi? Við spurðum Sigurbjörgu Gísladóttur hjá Holl- ustuvernd ríkisins þessarar spum- ingar: „Við vitum að bremsuborðar eru gjarnan úr asbesti og við vitum að þegar þeir slitna þá fer þetta ryk út í umhverfið. Hversu mikið það er vitum við hins vegar ekki. Þetta hefur aldrei verið mælt hérlendis en við höfum verið að taka ryksýni við Miklatorg og safnað þeim sam- an. Við höfum hug á að senda sýnin út og láta mæla asbestmagnið en þetta er dýr mæling. Það er hins vegar full ástæða til að athuga þetta nú, er umferð hefur aukist svona mikið.“ Einnig kom fram í máli Sigur- bjargar að asbest hefur verið tekið úr notkun smám saman undanfarin 20 ár. Er mengun mældist í Fellaskóla nú nýlega var allt asbest rifið úr húsinu. Sigurbjörg tjáði DV að það væri hins vegar ekki víst að meng- unin hefði verið af völdum asbest- platna í veggjum, þar hefði getað verið um umhverfismengun að ræða. -PLP Allir strætisvagnar i Miinchen eru nú búnir asbestlausum bremsuborðum Til okkar kom stúlka með dós af skóáburði sem hún hafði keypt í versl- uninni Nýjabæ við Eiðistorg. Hún var ekki alveg sátt við verðið, enda ekki nema von. Öðru megin á dósinni var verðmerkt kr. 29,50 en ef dósinni var snúið við kom í ljós annar verðmiði, og sá heldur hærri, eða kr. 61,80. Að sjálfsögðu var hún látin borga samkvæmt hærra verðinu. En þetta Skiýtin verft lagning í Nýjabæ hlýtur að teljast mjög einkennileg verðmerking. Hver skyldi vera réttur neytandans í þessu máli? Á hann kannski rétt á að fá að greiða sam- kvæmt lægra verðinu? Verðmiðinn hlýtur a.m.k. að skuldbinda verslunina til að standa við verðið. DV sneri sér til Neytendasamtakanna til að fá svar við þessu: „Við stöndum náttúrulega illa að vígi þar sem írjáls verðlagning er í landinu. Hins vegar eru til lög um ólögmæta viðskiptahætti þar sem seg- ir að ólöglegt sé að blekkja. Það er þá aftur spuming hvort hér sé um blekkingu að ræða eða mistök. En ef mikið er um þetta í versluninni þá er náttúrulega vert að athuga málið.“ -PLP Hvort verðið skyldi vera það rétta? DV-mynd JAK þrioju hverja viku M/S JÖKULFELL lestar í Portsmouth 19/8 Gloucester 20/8 New York 21/8 Hafðu samband.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.