Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987. 13 Neytendur Rauðkál í örbylgjuofrii íslendingar eru margir hverjir hrifiúr af rauðkáli og nú er orðið hægt að' fá nýtt rauðkál næstum árið í kring. En flestum finnst það of tímafrekt að sjóða sjálfir rauðkál og kaupa það þess vegna oftast nið- ursoðið. En það tekur ekki nema 20 mínútur að s,‘ 5ða rauðkál í örbylgju- ofni. Ég er mjög hrifin af mysu í mat og tel hana ólíkt hollari heldur en edik og nota hana því orðið óspart í staðinn fyrá" það. Ef ekki er til rife- beijahlaup sem mörgum ftnnst ómissandi í rauðkál er hægt að not- ast við rabarbarasultu í staðinn. 650 gr rauðkál 1 stórt matarepli 2 msk rifsberjahlaup 2 msk mysa Rífið rauðkálið niður. Takið kjamahúsið úr eplinu og saxið það frekar fint. Blandið rauðkálinu og eplinu saman í skál. Hrærið saman rifsbeijahlaupinu og mysunni og hellið yfir. Þekið skálina með plast- Hollustuinatiir Svanfríður Hagvag skrifar filmu og sjóðið á hæsta í 10 mínútur. Hrærið í og sjóðið í 10 mínútur í viðbót. Þetta er nokkuð stór skammtur þannig að það er alveg tilvalið að frysta helminginn af rauðkálinu til seinni nota. Kostnaður er um 70 krónur. Heillaráö Stíft sturtuhengi Ef sturtuhengið rennur ekki auðveldlega til á stönginni er heillaráð að fægja stöngina með húsgagnaáburði. Þá renna klemmumar auðveldlega fram og til baka. Stirðir rennilásar Stirðir og óþjálir rennilásar verða eins og nýir ef nuddað er með blýanti yfir þá. Kaffi og tekonnur Þvoið kaffikönnur og tepotta úr matarsóta-upplausn, ca 3 msk. af matar- sóta út í hálfan lítra af vatni. Látið blönduna standa nokkra stund og skolið síðan vel. Salmonella í kjötvörum Fréttatilkynning Neytendasanvtakanna Að undanfömu hafa oft borist fregnir af því að salmonellumengað svína- og kjúklingakjöt sé á markaðnum. Einn- ig hefur komið í ljós að framleiðendur og sláturleyfishafar þessa kjötmetis hafa lítið eftirlit með gæðum vöm sinnar og opinbert eftirlit hefúr einnig verið af skomum skammti. Vegna þessa krefjast Neytendasamtökin eft- irfarandi: 1. Sláturhúsum og vinnslustöðvum verði gert skylt að hafa öflugt innra eftirlit með framleiðslu sinni. Einnig skulu fyrirtæki þessi fylgjast náið með þeim búum sem slátrað er frá. 2. Heilbrigðisfúlltrúar og Hollustu- vemd ríkisins herði eftirlit sitt með öllum stigum framleiðslunnar. Jafn- firamt verði þeir framleiðendur sviptir leyfi til búskapar, slátrunar eða vinnslu ef aðstæður þeirra em ekki nógu góðar til að tryggt sé að fram- leiðsluvara þeirra sé ómenguð. 3. Þar sem líkur em fyrir því að salm- onellusýkingar geti átt rætur sínar að rekja til meindýra og fúgla sem nær- ast á sorpi eða fiskúrgangi, ber að stórauka almennar mengunarvamir og koma sorpeyðingar- og holræsa- málum í sómasamlegt horf. 4. Herða skal eftirlit með öllu fóðri. 5. Stóraukin verði öll fræðsla til al- mennings og þeirra sem að starfa við matvælagerð, þannig að öllum sé ljóst hvað ber að gera til að hindra matar- sýkingar. Að lokum beina Neytendasamtökin því til almennings að temja sér varúð í meðhöndlun á hráum kjötvörum. Salmonella drepst við 70° hita og er því ekki hættuleg í fullsoðnu, eða steiktu kjöti, svo fremi sem það hafi verið meðhöndlað á réttan hátt hrátt. Vekja samtökin sérstaka athygli á eft- irfarandi atriðum: - að taka hráa kjötið tímanlega úr frysti til að tryggt sé að það sé að fúllu þítt þegar steiking eða suða hefst. - að gæta þess að hrátt kjöt eða blóð- vatn úr þvi komist ekki í snertingu við aðra matvöru, sem fær aðra mat- reiðslu eða er fúllsoðin. - að þrífa vandlega öll ilát .og áhöld sem notuð hafa verið við meðhöndlun á hráu kjöti. - að gæta þess að kjötið sé nægilega vel soðið eða steikt. - að gæta þess við geymslu matvæla að þau séu höfð við hitastig undir 10° og ef tilbúnum mat er haldið heitum, að það sé gert við hitastig yfir 60°. SÁSTÆRSTI PEP9 2,0 LÍTRAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.