Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Qupperneq 26
38
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987.
UflLBRAUTASKÚUNN
BREIflHOLTI
FRÁ FJÖLBRAUTASKÓLANUM
í BREIÐHOLTI
Stundakennara í íslensku vantar við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti.
Upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 75600.
Skólameistari
RÝMINGARSALA
Nýir vörubílahjólbarðar.
Mikil verðlækkun.
900x20 nælon frá kr.
8.500,-
1000x20 nælon frá kr.
10.500, -
1100x20 nælon frá kr.
11.500, -
1200x20 nælon frá kr.
12.500, -
1000x20 radial frá kr. 12.600,-
1100x20 radial frá kr. 14.500,-
1200x20 radial frá kr. 16.600,-
Gerið kjarakaup. Sendum
um allt land.
BARÐINN HF.,
Skútuvogi 2 - Reykjavík.
Sími 30501 og 84844.
Sandkom
Kurr fór um mannskapinn þegar
Valur mætti.
Hann var
mættur
Valur Arnþórsson. kaup-
fclagsstjóri KEA. cr jöfur í
augum fólks. Hann mætti á
nauðungaruppboðið á þrota-
búi Kaupfclags Svalbarðs-
eyrar í síðustu viku um tíu
mínútum áður en ein eignin.
kartöfluverksmiðjan, var boð-
in upp. Fjölmenni var á
uppboðinu. En um leið og
Valur kom fór kurr um mann-
skapinn. Hann varmættur.
Kjörland hf.. sem KEA á 60%
í, keypti verksmiðjuna. Og um
tuttugu mínútum síðar var
Valurfarinn.
Plotteða ekki
plott?
Enn um kartöfluverksmiðj-
una á Svalbarðseyri. Rætt var
á uppboðinu um plott á sölu
hennar. Iðnlánasjóður átti
hátt veð og hafði hagsmuna
að gæta. Við heyrum að full-
trúi hans og KEA-menn, sem
eiga 60% í kartöflufélaginu
Kjörlandi. hafi fundað saman
um morguninn áður en til
uppboðsins kom. Á sjálfu upp-
boðinu bauð Iðnlánasjóður
fyrst 16 milljónir. KEA fór
hærra en Iðnlánasjóður
hækkaði. Aftur fór Kjörland
hærra. Iðnlánasjóður bauð þá
19,5 milljónir. Kjörland fór þá
í 19,6. Iðnlánasjóður hækkaði
sig í 19,8 en Kjörland bætti
við 50 þúsund krónum. Og
þannig fór það í fyrsta öðru
og þriðja. Samvinnubankinn,
sem hafði boðið grimmt fram
að þessu, þagði hins vegar all-
an tímann þunnu hljóði.
Lögfræðinga-
ger
Það var mikið ger af lög-
fræðingum á uppboðinu á
Svalbarðseyri. AUir voru þeir
í áberandi ljósum rykfrökk-
um. Og það vakti einnig
athygli manna hve vel fór á
með lögfræðingunum. En
jafnmarga hvíta frakka hefur
maður ekki séð síðan lífverð-
irnir frægu mættu á toppfund
Reagans og Gorbatsjovs.
Bíóstjóri í
brauð
Nú heyrum við að bíókóng-
urinn á Akureyri, Sigurður
Arnfinnsson bíóstjóri Borg-
arbíós á Akureyri, sé að hætta
í bíóinu. Sigurður er menntað-
ur bakari og kvað ætla að
helga sig bakstrinum í fram-
tíðinni. Ekki hefurheyrst
hvcr tekur við af Sigurði.
Hver aðstoðar
Ásmund?
Lára V. Júlíusdóttir, lög-
fræðingur ASÍ, er orðin
aðstoðarráðherra Jóhönnu
Sigurðardóttur og allar líkur
eru á að Bjöm Björnsson, hag-
fræðingur ASÍ, verði ráðinn
aðstoðarráðherra Jóns Bald-
vins. Menn spyrja sig auðvit-
að hver komi til með að
aðstoða Ásmund Stefánsson,
forseta ASI, nema Ásmundur
ráði sig líka sem aðstoðarráð-
herra.
Halldórá
Kirkjubóli
Halldór á Kirkjubóli var í
umræðuþætti á Stöð tvö á
fimmtudagskvöldið þar sem
rætt var um hvort leyfa ætti
bjórinn. Halldór var eins og
fyrri daginn mjög á móti
bjórnum og svo hátt lét í hon-
um og svo fast hélt hann sér
í stólinn að orð Hrafns Gunn-
laugssonar eitt sinn um
Halldór skutust upp í hugann:
„Það verður enginn eins illa
ódrukkinn og Halldór á
Kirkjubóli.“
Rífið húsið
Auglýst var eftir verktaka
til að rífa Snorrahús, gamalt
hús við Strandgötuna á Akur-
eyri. í síðustu viku. Það fylgdi
með að verkinu yrði að vera
lokið fyrir 125 ára afmæli
Akureyrar, laugardaginn 29.
ágúst. Þegar svo hratt á að
rífa hefði verið nær að hafa
niðurrif hússins sem þraut í
keppninni um sterkasta mann
Norðurlands fyrr í sumar. Þeir
hefðu neglt húsið niður á
klukkutíma.
Fækka
mávum
Umhverfismálanefnd Akur-
eyrar vill að mávum í bænum
verði fækkað en mikið máva-
fargan hefur verið í görðum
bæjarbúa í vor og í sumar.
Svona skipun verður að senda
skriflega en ekki í síma. Ann-
ars gæti einhver meindýra-
eyðirinn, sem hefur staðið
vaktina í þrjá sólarhringa,
tekið þetta sem mága en þá
liggja margir góðir í valnum.
Jafnframt yrði þá úti um
fólksfjölgunaráætlun Sigfúsar
bæjarstjóra.
Þjórfé
Sigurður Ringsted, fyrrum
bankastjóri Iðnaðarbankans á
Akureyri, var í helgarviðtali
hjá Degi á föstudaginn. Hann
sagði menn hafa verið ábyrg-
ari ogskilvísari með lánin í
gamla daga. Orðrétt sagði
Ringsted:
„Eitt sinn kom til dæmis
einn góðborgari hér í bæ inn
í bankann og þurfti að borga
víxil. Þessi maður hafði nú
haldið sig fullmikið við flösk-
una enda sagði hann þegar
hann birtist í dyrunum: „Æi,
afgreiðið mig áður en ég dey,
ég þarf að borga víxilinn
minn.“ “
Þessi víxill hefur ljóslega
verið eins og hvert annað
þjórfé hjá góðborgaranum.
Kalli refur
Einhver Kalli refur er nú að
skjóta öðrum refum ref fyrir
rass og slá í gegn á land-
búnaðarsýningunni, BÚ ’87.
Ef fram fer sem horfir er Mikki
refur úr dýrunum í Hálsaskógi
í mikilli hættu sem frægasti
refur landsins. Annars er vís
farið að kalla leikritið Dýrin
í háls-, nef- og eyrnaskógi.
Hringlan
Menn halda því nú fram að
líklegast hafí það verið rangt
að skíra verslunarhúsið mikla
Kringluna. Við vígsluna var
þúsund manna lið mætt sem
gerði ekki annað en óska
hvert öðru til hamingju. Svo
hringlaði í sumum að við-
staddir óttuðust að þeir væru
konir með Parkinsons veik-
ina.
Umsjón:
Jónas F. Jónsson
Vidtaliö
APÓTEKIÐ 1
KRINGL UNNI
Xngolfsapotek er flutt í Kringl-
una.
Apótekið er opið eins og verslanirnar í
Kringlunni.
Nýtt símanúmer
68-99-70.
Læknasími 68-99-35.
Kringlunni.
segir dr. Hermann Sveinbjömsson, aðstoðannaður sjávarútvegsráðherra
Hermann Sveinbjörnsson sem tekur við starfi aðstoðarmanns sjávarútvegs-
ráðherra á mánudaginn. DV-mynd GVA
„Ég nota þessa viku til að ganga
frá mínum málum hér í iðnaðarráðu-
neytinu áður en ég hef störf í sjávar-
útvegsráðuneytinu á mánudaginn
kemur. Það verður ánægjulegt að
breyta til, starfsvið mitt hjá sjávarút-
vegsráðuneytinu verður víðtækara
og á kannski frekar við mína mennt-
un, í náttúrufræði og hagfræði. Þar
mun ég fást við ýmis þróunarverk-
efni, athuganir á nýtingu fiskistofna
auk almennrar aðstoðar við ráðherra
og tengsl ráðuneytisins við flokks-
starfið,“ segir dr. Hermann Svein-
björnsson sem ráðinn hefur verið
aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms-
sonar sjávarútvegsráðherra.
Hermann er 36 ára gamall Reyk-
víkingur, kvæntur sr. Solveigu Láru
Guðmundsóttur, sóknarpresti á Sel-
tjarnamesi, og eiga þau sjö ára son.
Eftir að hafa lokið stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
árið 1971 stundaði hann líffræðinám
við Háskóla íslands, þaðan sem hann
lauk BS-gráðu árið 1976. MS gráðu
í umhverfisvísindum lauk Hermann
frá Miami University Oxford Ohio í
Bandaríkjunum árið 1978 og síðan
doktorsgráðu í auðlindahagfræði frá
umhverfis- og verkfræðideild Johns
Hopkins University í Baltimore árið
1983. Síðan þá hefur hann starfað
sem deildarstjóri í iðnaðarráðuneyt-
inu í iðnþróunardeild þar sem hann
hafði umsjón með málefnum tengd-
um orkufrekum iðnaði og ýmsum
nýiðnaðarverkefnum.
„Ég kunni geysilega vel við mig í
Bandaríkjunum, bæði við fólk og
land og gæti vel hugsað mér að vera
búsettur þar síðar meir, þótt of
snemmt sé að spá nokkru um það
núna,“. segir Hermann.
Áhugamálin segir hann vera aðal-
lega af einum toga. „Allur veiðiskap-
ur nema á sjó er mitt helsta
tómstundagaman, bæði skotveiði og
lax- og silungsveiði. Það má segja
að ég eigi mér uppáhaldsveiðistaði,
en það er urriðasvæði í Laxá rétt við
Mývatn. Þangað hef ég farið einu
sinni í sumar en siðan reyni ég að
komast í aðrar ár eins og Sogið og
Elliðaár. Með veiðunum get ég líka
sinnt öðru áhugamáli mínu sem er
einfaldlega útivera. Við fjölskyldan
eigum jörð í Reykholtsdal í Borgar-
firði þar sem við höfum okkar
sumarbústað og förum þangað þegar
færi gefst,“ sagði Hermann. -BTH
„Stunda veiðiskap
útivera í fiftímanum1