Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Page 29
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987. Svidsljós Bob Geldof ordinn einn Friðarsinninn og söngvarinn Bob Geldof hefur nú þurft að horfa á eft- ir konu sinni, Paulu Yates, og fjögurra ára dóttur þeirra, Fifi. Þau hjú kynntust þegar Paula var aðeins sautján ára en Bob var tuttugu og þriggja. Síðan þá hafa þau verið meira eða minna í sambandi. En það er bara rúmt ár síðan þau létu pússa sig saman. I gegnum árin hafa ýmsar sögu- sagnir verið á kreiki þess efnis að samband þeirra gangi ekki sem best. Oft hefur hrikt í því en aldrei eins og eftir að þau giftu sig. Bob var fyrst þekktur sem forsvars- maðijr hljómsveitarinnar Boomtown Rats en eftir að því hljómsveitarsam- starfi lauk hefur Bob haft í ýmsu að snúast. Ber þar hæst Live Aid-hljóm- leikana sem hann stóð fyrir. Fyrir framtakið vakti hann heimsathygli og var meðal annars tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels. Heiðursorðu frá Elísabetu Breta- drottningu nældi hann sér í og ýmislegt uppistand fylgdi í kjölfarið. Paula, kona Bobs, er orðin vinsæll þáttastjórnandi í sjónvarpi en áður fékkst hún mikið við ritstörf fyrir tímarit. En þótt frægð og frami hjónakorn- anna sé fyrir hendi út á við er einkalífið ekkert til að hrópa húrra fyrir. Bæði eru þau sögð hafa verið mikið að dinglast með hinum og þessum út um hvippinn og hvappinn en hvorugt þó verið orðað við ein- hvem sérstakan aðila fyrr en nú nýlega þegar tuttugu og eins árs gömul stúlka, Emma Mclntosh, til- kynnti í bresku blaði að hún og Bob hefðu verið í sambandi síðustu þijá mánuði. Þá varð Paula tryllt, tók sitt hafurtask og gekk út. Samband þeirra Paulu Yates og Bob Geldofs hefur aldrei þótt byggt á traustum grunni. En nú nýlega var frúnni endanlega nóg boðiö og gekk hún út af heimilinu. Frá Verðlaunasjóði íslenskra bamabóka: m LEHpiAÐ NÝJFM RTTHÖRNDIM Skrifar þú verðlaunabóldna í ár? Verðlaunasjóður íslenskra bamabóka lýsir eftir handritum að nýjum bama- og unglingabókum í samkeppni sjóðsins um íslensku bamabókaverðlaunin 1988. Við leitum að nýjum og efnilegum höfundum og hvetjum sem allra flesta til þess að spreyta sig á þessu skemmtilega sviði. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til slíkrar sagnakeppni á vegum sjóðsins. Ánð 1986 hlaut Guðmundur Ólafsson verðlaunin fyrir bók sína Emil og Skundi og nú í vor hlaut Kristín Steinsdóttir verðlaun ársins 1987 fyrir bókina Franskbrauð með sultu. íslensku bamabókaverðlaunin 1988 nema 100.000 krónum auk þess sem sigurvegarinn fær greidd höfundarlaun samkvæmt samningi * Rithöfundasambands íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda. Dómnefnd mun velja verðlaunasöguna úr þeim handritum sem berast. Ekki em sett nein mörk varðandi lengd sagnanna og einungis við það miðað að efnið hæfi bömum og unglingum. Óskað er eftir að handrit séu send í ábyrgðarpósti og utanáskriftin er: Verðlaunasjóður íslenskra bamabóka '«• Vaka-Helgafell Síðumúla 29 108 Reykjavík Sögumar skulu merktar dulnefni en rétt nafn höfundar látið fylgja í lokuðu umslagi. Frestur til að skila handritum er til 31. desember 1987. Stefnt er að því að verðlaunin verði afhent í aprflmánuði 1988 og verðlaunabókin komi þá út hjá Vöku-Helgafelli. Allar nánari upplýsingar um verðlaunasamkeppnina em veittar í síma útgáfunnar 91 - 6 88 300. Verðlaunasjóður íslenskra bamabóka VAKAV^) HELGAFELL Gamall stíll • • • sem fer vel í nýja húsinu þínu. Aðeins kr. 9.618,- gluggalausar 11.193,- fyrir gler Húsasmiðjan hf. s. 687700 Þar sem úrvalið er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.