Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Qupperneq 34
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987. 46 LUKKUDAGAR 17. ágúst 26361 Hljómplata frá FÁLKANUM að verðmæti kr. 800,- Vinningshafar hringi i sima 91-82580. UTANHÚS MÁLNING SEM DUGAR VEL KÓPAL-DÝRÓTEX hleyptir raka auðveldlega í gegnum sig. Mjög gott verðrunar- og lútarþol og rakagegnstreymi. KÓPAL-DÝRÓTEX dugar vel. Kvikmyndir Háskólabíó/Löggan í Beverty Hills II Sumarsmellurinn vestanhafs Axel Foley, lögreglumaðurinn geðþekki með kímnigáfuna, er aftur kominn á kreik í snobbhæðum Be- verly til að taka í lurginn á „uppa“- glæpamönnum og viðureignin væntanleg í Háskólabíó. Að þessu sinni mun hann gerast leynilögregla og eiga í höggi við alþjóðlegan glæpaflokk. Eddie Murphy er að sjálfsögðu í aðalhlutverki í myndinni og þiggur litlar 316 milljónir fyrir viðvikið auk hlutfalls af tekjum þeim sem myndin kemur til með að skila inn. Segir sagan að forráðamenn Paramount kvikmyndafyrirtækisins hafi verið Kvikmyndahús Bíóborg Bíóborgin Sérsveitin Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Angel Heart Sýnd ki. 5, 7, 9 og 11.05 Krókódíla Dundee Sýnd kl. 5 og 7. Bláa Betty Sýnd kl. 9 og 11.10. Bíóhúsid Um miðnætti Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bíóhöllin The Living Daylights Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Hættulegur vinur Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Morgan kemur heim Sýnd kl. 7 og 11. Innbrotsþjófurinn Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Lögregluskólinn Allir á vakt Sýnd kl. 5 og 9. Blátt flauel Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Háskólabíó Villtir dagar Sýnd kl. 7. 9 og 11.10. Laugarásbíó Foli Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Andaboð Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Meiriháttar mál Sýnd kl. 5, 7. 9 og 11. Kvennabúri Sýnd kl. 3, 5.20, 9 og 11.15. Hættuförin Sýnd kl. 3.15. 5.15, 7.15, 9.15 og 11.15 Herdeildin Sýnd kl. 3. 5.20 9 og 11.15. Þrír vinir Sýnd kl. 3.10 og 5.10. Óvætturinn Endursýnd kl. 7.10, 9.10 og 11.10. Otto Sýnd kl. 3.05, 5.05, 9.05 og 11.15. Herbergi með útsýni Sýnd kl. 7. Stjömubíó Óvænt stefnumót Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Hættulegur leikur Sýnd kl. 7 og 11. Wisdom Sýnd kl. 5 og 9. Canon Ljósmyndabúöin Canon Canon Tm með 50 mm f 1.8 Verðkr. 24.500.- LJÓSMYNDABÚÐIN LAUGAVEG1118, * 27744 reiðubúnir að greiða Murphy mun meira. Skýringin er sú að myndir þær sem Murphy hefur leikið í síð- ustu ár hafa skilað góðum hagnaði. Beverly Hills Cop er fimmta mest sótta kvikmynd sem gerð hefur verið og það ætti að segja alla söguna. Annars verða fleiri gamlir félagar úr fyrri myndinni sem leika í þeirri nýju. Judge Reinhold og John Ástin, sem léku löggumar, og fylgdarmenn Foleys, Taggert og Rosewood, verða að sjálfsögðu á sínum stað og leyni- lögreglunni til aðstoðar. Glæpa- mennina leika meðal annarra Jugen Prochnov og Birgitte Nielsen, fyrr- verandi Stallone. Mörg handrit voru gerð og færir handritahöfundar fengu að spreyta sig en var hafhað. Það þurfti eina 4 handritshöfunda til að koma sög- unni endanlega saman. Larry Ferguson (Highlander) skrifaði grunninn, Warren Skarren (Top Gun) færði meiri hasar í handritið og David Giler/Dennis Klein fylltu hlutvérk Foleys meiri húmor. En í kvikmyndir nútímans er ekki nóg að hafa handritið og leikarana í lagi. Tónlistin verður að vera með á nótunum til að velgengnisblandan gangi upp. Bob Seger, Corey Hart, Pointer Sisters og George Michael eiga öll lög í myndinni en yfirumsjón með tónlistinni hefiir svo Harold Faltermeyer eins og í fyrri myndinni. Myndin var frumsýnd í Bandaríkj- unum í lok maí og ku vera best sótta myndin vestanhafs í sumar. Áformað er að sýningar myndarinnar hefjist fyrstu vikuna í september og sagði Friðjón Guðmundsson, sýningar- stjóri í Háskólabíói, að stefnt væri að einhvers konar uppákomu í tengslum við frumsýninguna. Meira vildi hann ekki segja en sagði ýmis- legt koma til greina. -JFJ to;- Axel Foley ásamt Taggert og Rosewood. Þeir verða allir á sínum stað í nýju myndinni og nú mega misyndismenn i Beveriy Hilis aldeiiis fara að vara sig. Á ferdalagi Eldborgarhraun og Gullborgarfiellir í Hnappadalnum miðjum er 32 ferk- ílómetra stórt hraun. Eldborgar- hraun. Eldstöðvar hraunsins eru nálægt miðju þess og þar yfir trónir hinn formfagri gígur Eldborg eins og kastali tilsýndar. Upp að Eldborginni, sem friðlýst var árið 1974, er u.þ.b. hálftímagang- ur frá þjóðveginum. Veggir gigsins eru örþunnir en gígopið er um 200 m á lengd og 50 m á dýpt. í Eldborg hafa tvisvar orðið gos. Eldra hraun- ið er helluhraun en hið yngra apalhraun og er það mun minna að flatarmáli. Hraunið er gamalt og víða kjarri vaxið svo gaman er að ráfa um það en nauðsynlegt er að fylgja merktum göngustígum í hlíð- um Eldborgarinnar sjálfrar. Hægra megin við Eldborgina og hægra megin við þjóðveginn eru Kaldá og Kaldármelar. Þar eru á hverju sumri haldin hestamannamót á melunum sem liggja í skjóli undir fallegum hraunjaðri. Upp af Kaldár- melunum, vinstra megin, er Kol- beinsstaðafjall sem er víða girt hrikalegum hamraflugum og er fysi- legt fyrir fjallgöngufólk til að spreyta sig á. Vert er að halda til hægri þegar komið er að vegamótunum inn á Heydal, sem er lægsti og snjóléttasti fiallvegur yfir Snæfellsnesfiallgarð- inn, og aka þann veg stuttan spöl. Þá er fljótlega komið í Gullborgar- hraun sem runnið er frá eldborginni Gullborg. í Gullborgarhrauni eru margir fallegir hellar og ber þar hæst dropa- steinshellinn Gullborgarhelli sem talinn er með fegurstu hraunhellum landsins. Hellirinn er friðlýstur og óheimilt er að fara um hann nema í fylgd leiðsögumanns frá bænum Heggsstöðum. Marga fleiri hella er þama að finna og sífellt þætast nýir og nýir i hópinn. Fyrir veiðiáhugamenn má benda á Hlíðarvatn og Oddastaðavatn aðeins lengra uppi í Heydalnum. Þetta eru góð silungsvötn og hægt er að fá veiðileyfi í þau í Hallkelsstaðahlíð, Hraunholti og á Heggsstöðum. Á Hlíðarvatni var árið 1964 gerð til- raun til að reka fljótandi sumarhótel í líki víkingaskips en sú tilraun gekk ekki. Eldborgarhraunið er viða gróið kjarri og upp ur því miðju trónir eins og kastali hinn formfagri gígur, Eldborgin. BINGO! Hefst kl. 19.30 Aðalvlnnlnqur að verðmaeti kr.40 bús. Helldarvcrðmaetl vlnnlnga kr.180 bús. * ii TEMPLARAHOLUN Bríksgötu 5 - 5. 20010

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.