Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1987, Side 36
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst.óháð dagblað
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 1987.
Banaslys á
Breiðadalsheiði
Maður á bifhjóli beið bana
snemma í gærmorgun þegar hann fór
út af veginum á Breiðadalsheiði ofan
við ísafjörð.
_ Maðurinn var á leið frá Súganda-
nrði til Önundarfjarðar. Hann fór
út af veginum skömmu eftir að hann
kom af Botnsheiði þar sem vegurinn
liggur yfir á Breiðadalsheiði.
Orskakir slyssins eru ekki að fullu
ljósar en mikil þoka var á heiðinni
og skyggni slæmt. Talið er að maður-
inn hafi látist samstundis. Ekki er
hægt að birta nafn hans að svo
stöddu. -GK
Stórstraumsfyil-
irí á ísafirði
“*r.Mikil ölvun var á Isafirði aðfara-
nótt laugardagsins. Að sögn lögregl-
unnar á staðnum voru fangageymsl-
ur þar fullar og dugði ekki til þvi
ólætin stóðu fram undir morgun.
Töluverðar skemmdir voru unnar
á ýmsu smálegu í bænum. Lögreglan
sagði að nánast hver einasti rusla-
kassi í bænum hefði fengið slæma
útreið. Þá voru blómaskreytingar
eyðilagaðar og rúður brotnar.
Stórstreymt var um helgina og seg-
ir lögreglan að þegar þannig standi
_ L sió bregðist ekki að ölvun keyri
' nr hófi fram. -GK
Ekið á Ijósastaur
Ökumaðurinn
festist í bflnum
Tvennt var flutt á slysadeild tölu-
vert slasað eftir að bifreið var ekið
á ljósastaur við Kleppsveg laust eftir
hádegið í gær. Ökumaðurinn festist
í bílnum og þurfti að að nota klippur
við að ná honum út. Farþegi sem
með honum var komst út af sjálfe-
dáðum.
Litlu munaði að verr færi því eldur
kviknaði í bílnum við áreksturinn
en snarráðum starfsmanni á bensín-
stöð þar nærri tókst að slökkva
eldinn áður en hann breiddist út.
-GK
LOKI
Hvað er einn banki
á milli vina!
„Svefneyjamálió“:
Jatningar
liggja fyrir
- segja foreldrar bamanna
„Við fórum til Rannsóknarlög-
reglu á laugardag og afhentum
áskorun fhi foreldrum og aðstand-
endum bama sem voru í Svefneyjum
sumarið 1985. Við viljum að Rann-
sóknarlögreglan gefi fjölmiðlum
sams konar upplýsingar og okkur,“
sagði móðir bams sem var í Svefh-
eyjum. Bamið hefur verið mikið hjá
hjónunum í Hafharfirði eftir að dvöl
í sumarbúðunum lauk. Áskorunin
er svo hljóðandi: „Við undirrituð
foreldrar og aðstandendur þeirra
bama sem tengjast „Svefiieyjamál-
inu“ svo kallaða gerum þá kröfu að
Rannsóknarlögregla ríkisins gefi
fjöbniðlum samskonar upplýsingar
og okkur, um þær játningar um kyn-
ferðislega misnotkun á bömum sem
nú þegar liggja fyrir og eru undirrit-
aðar af þeim hjónum.“ Undir áskor-
unina rita sex manns nafn sitt en
þau eru aðstandendur fjögurra
bama.
„Eftir að hafa talað við Rannsókn-
arlögregluna veit ég að þetta er
alvarlegt mál og það liggja fyrirjátn-
ingar. Við myndum ekki gera þetta
nema vegna þess að við vitum að
það liggja fyrir játningar,“ sagði
móðirin við DV í gær. Hún vill halda
nafrii sínu leyndu, alla vega enn sem
komið er.
Amar Guðmundsson hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins segist
kannast við að hafa fengið áskorun
um að fjölmiðlum verði gefnar sams
konar upplýsingar og foreldrum.
Amar segir að foreldramir hafi ekki
fengið neinar upplýsingar um þetta
mál, það hafi enginn fengið nema
ákæruvaldið og bamavemdamefnd-
ir.
-sme
íslenska knapasveitin í hestaiþróttum gerði stormandi lukku á heimsmeistaramótinu i Weistrach i Austurriki
um helgina og vann fimm gullverðlaun. Reynir Aðalsteinsson á Spóa (til hægri) vann þrenn gullverðlaun
og Erling Sigurðsson (til vinstri) á Þrym vann silfurverðlaun og bronsverðlaun.Sjást þeir hér i einum verð-
launasprettinum. Sigurbjörn Bárðarson vann tvenn gullverðlaun. DV-mynd E.J.
Austumki: ^
Fimm gull til Islands
- sjá nánar bls. 24-25
Veðrið á morgun:
Hlýjast
á SV-landi
Það lítur út fyrir að á morgun
verði austanátt á landinu öllu. Á
Suðaustur- og Austurlandi verður
skýjað og súld eða rigning en þurrt
og víða bjartviðri norðvestanlands.
Hiti verður á bilinu 8 til 16 stig.
Hlýjast á Suðvesturlandi.
Norðuriandamótið í skólaskák:
SveH Seljaskóla
sigraði
Sveit Seljaskóla sigraði á Norður-
landamótinu í skólaskák sem fram fór
í Finnlandi og lauk nú um helgina. í
lokaumferðinni tefldi sveitin við Finna
og sigraði á öllum borðum og hlaut
alls 16 ‘/íi vinning.
Sveit frá Noregi varð í öðru sæti.
Hún tefldi við dönsku sveitina í loka-
umferðinni og gerði jafntefli. Fyrir
lokaumferðina skildi 'A vinningur að
íslensku og norsku sveitimar. Danska
sveitin varð í þriðja sæti.
Sveit Seljaskóla varð einnig Norður-
landameistari í skólaskák á síðasta ári
og tókst því að verja titilinn.
-GK
Skákmótið í Gausdal:
Margeir er
einn efstur
Margeir Pétursson stórmeistari er
einn efstur á skákmótinu í Gausdal í
Noregi með 5,5 vinninga eftir 6 um-
ferðir en á eftir honum með 4,5
vinninga koma 6 alþjóðlegir meistar-
ar.
Þeir Þröstur Þórhallsson og Hannes
Hlífar Stefánsson, sem tefla á mótinu,
eru með 4 og 3 vinninga og tapaði
Hannes Hlífar illa í gær fyrir Piu
Cramling. ,Var Hannes með gjörunnið
tafl, manni yfir, og Pia auk þess að
því komin að falla á tíma þegar hann
lék af sér drottningunni og varð að
gefast upp. Þröstur gerði hins vegar
jafntefli í gær við sænska alþjóðlega
meistarann Emst, en hann er einn
þeirra sex skákmanna sem em í öðm
sæti á mótinu. Ef Þröstur nær 1,5 vinn-
ingi út úr þein þremur umferðum sem
eftir em nær hann áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli. Margeir vann í
gær alþjóðlega meistarann Hertneck.
Níu umferðir verða tefldar á mótinu
og því lýkur á miðvikudag en á því
tefla 56 skákmenn þar af 6 stórmeistar-
ar og 15 alþjóðlegir meistarar.
-ój
Nauðgunartilraun
í Strandasýslu
Tvítugur maður hefur verið dæmdur
til að vera í gæsluvarðhaldi til 4. sept-
ember og gert að sæta geðrannsókn.
Maðurinn réðst inn í íbúðarhús í
Strandasýslu aðfaranótt laugardags-
ins og gerði þar tilraun til að nauðga
konu. Hún var ein heima ásamt sex
mánaða gömlu bami sínu. Maður kon-
unnar var á sjó þegar árásin var gerð.
Maðurinn, sem réðst inn á heimili
konunnar, var vopnaður hnífi og
reyndi hann að fá konuna til samræð-
is við sig. Konunni tókst að veijast
manninum og koma honum út. Mað-
urinn veitti konunni minni háttar
áverka. Honum tókst ekki að koma
fram vilja sínum. Sýslumaður
Strandasýslu óskaði eftir því við
Rannsóknarlögreglu á laugardag að
hún tæki málið að sér. Játningar liggja
nú fyrir í málinu.
-sme
Snæfellsnes:
Þrír utan vegar
Þrír bílar lentu utan vegar á utan-
verðu Snæfellsnesi um helgina.
Tvennt slasaðist í þessum óhöppum
en ekki alvarlega. TVeir bílanna fóm
út af á Fróðárheiði og einn í Staðar-
sveit. Lögreglan telur líklegast að
rekja megi þessi óhöpp til hraðs akst-
urs. -GK