Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987.
3
dv________________________________________________________________Sljómmál
Albert Guðmundsson risinn úr rekkju:
„Samemaðir valdtakar
munu sundrastfljótlega“
Albert Guðmundsson, stofnandi
Borgaraflokksins, heíur legið undan-
farið á sjúkrahúsi. Hann fékk vægt
kast af kransæðastíflu og hefur verið
í umsjá lækna í þrjár vikur. Hann
hefur nú náð sér að mestu og fór heim
af sjúkrahúsinu fyrir helgi.
Riddarar rógsins
Fljótlega eftir að Albert veiktist bár-
ust sögur um bæinn um að hann væri
á gjörgæsludeild, mjög alvarlega veik-
ur. Eftir að þær voru bomar til baka
komust þær sögusagnir á kreik að
hann hefði ákveðið að draga sig í hlé
og hætta afskiptum af stjómmálum
af heilsufarslegum ástæðum.
„Riddarar rógsins hafa komið því
af stað að ég sé að draga mig út úr
stjómmálum. Það er af og frá, alger-
lega út í hött.
Ég er nú að jafna mig eftir veikindi
og það getur varla talist óvanalegt.
Maður þarf ekki annað en að hrasa á
götu og snúa sig til að þurfa að jafha
sig í nokkra daga.“
Ofsóknirnar taka á
„Hins vegar hefur það verið gífurleg
líkamleg þrekraun að verða fyrir þeim
ofsóknum sem ég hef þurft að ganga
í gegnum í mörg ár. Það hlýtur auðvit-
að eitthvað að láta undan. Þetta hefur
líka haft áhrif á fjölskyldu mína og
það hefur tekið mikið á mig.“
Læknar hafa ráðlagt Albert að fara
sér hægt næstu daga. Hann sagði að
læknamir hefðu ekki bannað sér að
reykja sína stóm vindla en að þeir
hefðu ráðlagt honum sterklega að láta
það eiga sig. „Það gildir víst um alla,
unga sem aldna.“
Segist síður en
„Ég mun leiða Borgaraflokkinn
áfram eins lengi og mér verður sýndur
trúnaður til þess. Síðan munum við
raunar halda landsfund í september.
Það hefur sjaldan verið eins mikil-
vægt að Borgaraflokkurinn haldi vel
á málum. Atburðir undanfarinna daga
hafa nefnilega sýnt berlega það sem
ég hef varað mjög við og. kalla alræði
hinna fáu.“
Valdaklíka vill bankann gefins
„Formaður Sjálfstæðisflokksins hót-
ar stjómarslitum ef valdaklíka í
fiokknum fær ekki einn þjóðbankann,
nánast gefins. Svo er gerð einhver
skoðanakönnun i flokksráði Sjálf-
stæðisflokksins en í því em flestir þeir
sem að tilboðinu standa.
Niðurstaða einhverra stofiiana
flokksins skiptir hins vegar engu.
Þingflokkurinn samanstendur af
mönnum sem em búnir að eiðsveija
það gagnvart þjóðinni að fylgja aðeins
eigin sannfæringu. Ef formaðurinn
telur nauðsynlegt að ráðfæra sig við
einhverja þá á hann að ráðgast við
þann hóp.
Það er talað um að ekki megi láta
Sambandið fá meirihluta í bankanum
en það em bara ekkert fleiri ,sem fá
völdin í hendur ef bankinn væri seldur
hinni klíkunni. Það em sömu menn-
imir í stjómum þessara fyrirtækja
fram og til baka. Menn eins og Jón
Ingvarsson, Halldór H. Jónsson og
Indriði Pálsson. Og ákaflega fáir
þeirra em að taka ákvörðun um eigið
fé, þeir em flestir að taka ákvörðun
um annarra manna fé.
Lífeyrissjóður verslunarmanna er
eitt dæmið. Sjóðstjóminni ber auðvit-
svo hættur afskiptum
að fyrst og fremst að tryggja hag
sjóðsins og þar með lífeyrisþeganna.
En sama dag og formaður sjóðsstjóm-
ar talar um í útvarpi hvað það sé ömgg
fjárfestmg að kaupa hlutabréf í Út-
vegsbankanum fýrir 60 milljónir
birtast fréttir af þvi að bankinn hafi
tapað 186 milljónum króna á síðasta
ári. Hann er búinn að tapa i áraraðir.
Það er ekkert sem bendir til að þetta
sé arðbær fjárfesting. Það sést líka á
því að fjármálaráðherra upplýsir í
málgagni sínu að ríkið muni þurfa að
leggja fram til bankans 1,5 milljarða
króna fyrir utan hlutaféð."
Hafskip setti bankann ekki á
hausinn
„Það er einnig ljóst, miðað við þess-
ar upplýsingar fjármálaráðherra, að
Útvegsbankinn er ekki að fara á haus-
inn vegna 400 milljóna króna taps á
viðskiptum við Hafskip. Það var kynnt
rækilega að endanlegt tap Útvegs-
bankans vegna gjaldþrots Hafskips
væri tæpar 400 milljónir. Hvað með
alla hina úr því að heildarmínUsinn
er 1.500 milljónir? Það er búið að tí-
unda tap eins aðila, hveijir em allir
hinir? Nú verður að birta lista yfir þá
alla því greinilega hafa ýmsir aðrir
orðið gjaldþrota þar sem þeir standa
ekki í skilum."
Á móti sölu bankanna
„Ég er á móti því að selja ríkis-
bankana, þessa máttarstólpa þjóðfé-
lagsins í efhahags- og Qármálum. Við
erum einfaldlega það lítið þjóðfélag
að við verðum að styðjast við þessai'
stofnanir. Og þú selur ekki þær undir-
af stjómmálum
stöður sem þjóðfélagið byggir á.
Hins vegar er ég jafnsannfærður um
að einkabankar eigi fullan rétt á sér.
Ég tók sjálfur þátt í þvi að berjast
fyrir því að Verslunarsparisjóðurinn,
síðar Verslunarbankinn, væri settur á
laggimar. Ég sé ekki að þeir sem í
forsvari em fyrir Verslunarbankann í
dag hafi umboð til þess einu sinni að
tala um að leggja hann inn í hálfopin-
bera heild. Það er algerlega andstætt
hinni upphaflegu hugsjón.
Ég átti tillöguna í ríkisstjóminni um
að selja ríkisfyrirtæki, þau fyrirtæki
sem ríkið er með í rekstri og einstakl-
ingar geta rekið jafnvel og oft mun
betur. En hugmyndin var hins vegar
ekki að selja þá máttarstólpa sem þjóð-
félagið hvílir á.“
Sambandið á sama rétt og
aðrir
„Það er visslega umhugsunarefni
hve Sambandið er orðið stórt í svona
litlu þjóðfélagi. Hins vegar starfar
samvinnuhreyfingin samkvæmt lög-
um. Meðan þeim lögum er ekki brev-tt
hafa samvinnumenn. innan ramma
laganna, þann rétt sem hverjum og
einum er áskilinn hér. Við getum ekki
tekið þann rétt af Sambandsmönnum
á þeim forsendum að þeir hafi ekki
réttu flokksskírteinin. Það verður það
sama yfir alla að ganga.
Ég sé raunar ekki betur en að búið
sé að selja Sambandinu bankann mið-
að við allar venjulegar viðskiptavenj-
ur.
Þetta mál hefur verið með miklum
eindæmum eins og flest annað sem
komið hefur frá þessari stjóm. Enda
koma þama saman flokkar sem tapa
eða standa í stað í kosningunum. Þess-
ir fiokkar sameinast í ríkisstjóm með
forsætisráðherra sem. fékk 7% fylgi i
skoðanakönnun meðan fráfarandi for-
sætisráðherra fékk >471 60%. Það er
allt öfugt við það sem fólkið vill.
Það er eins og forsætisráðherrann,
með öllum ákvarðanatökum sínum, sé
að verða einhver mesti axarskafta-
smiður frá stofnun lýðveldisins.“
Fyrirgreiösla við litla eða stóra
manninn
„Ég hef verið ákaft gagnrý-ndur fyTÍr
það að leggja mikið upp úr fyrir-
greiðslu við litla manninn. Nú sést að
þeir sem gagnrýna em sjálfir f>TÍr-
greiðslumenn þeirra fáu og stóm.
Menn sjá nú þegar gömlu flokkamir
hlaupa í hnút og sameinast um völdin.
Til þess þurfa þeir að kasta hugsjón
sinni og stefnu. Þetta em ekki flokk-
ar. þetta er ein valdagrúppa: Samein-
aðir valdtakar.“
Sameinaðir valdtakar sundrast
„Þeir hafa breytt þvert ofan í sína
stefnuskrá. Þeir hafa ekki barist gegn
verðbólgu og við sjáum hækkanir á
öllum sviðum. Allt sem talað var um
í kosningabaráttunni hefur snúist í
höndum þessarar stjómar sem ræður
ekki við neitt. Því verður hún ekki
langlíf. Sameinaðir valdtakar munu
sundrast aftur.
Ég hvet því alla ábvrga kjósendur
til að halda vöku sinni og átta sig vel
á því sem er að gerjast í íslenskum
stjómmálum á þessum umbrotatím-
um.“ sagði Albert. -ES
Albert Guðmundsson var hress á heimili sinu í gær og sagði að sér hefði
hvorki verið bannað að reykja vindla né drekka kaffi.
DV-mynd GVA
TOPP-
ÚLPUR FRÁ
Margar gerðir. Margir litir. Hagstætt verð. Póstsendum.
ÚTILÍF
Glæsibæ, sími 82922.
5
-r
r,