Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 40
F R TTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987. r i Verkamannasambandið: Verðum ekki í samfloti með Al- þýðusambandinu - segir Guðmundur J. „Verkamannasambandið verður ekki í samfloti með ASÍ í komandi kjarasamningum. Við verðum með ráðstefnu á föstudaginn kemur. Þar á ég von á að línumar verði lagðar fyr- ir samninga og að við munum síðan fara í kjarasamninga við Vinnuveiten- dasambandið viku eða tíu dögum eftir ráðstefnuna,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka- mannasambands Islands, í samtali við DV. Guðmundur sagði að fljótlega eftir ráðstefnuna yrði skipuð samninga- nefnd og þar yrði fiskvinnslufólk fjölmennt. Væri ætlunin að fá sem 'lf'flesta beint af frystihúsgólfinu og inn á samningafund með stjóm sambands- ins. Hann sagði mikla óánægju ríkja hjá fiskvinnslufólki með kjörin. Starfs- aldurshækkanir hefðu verið teknar af þvi í síðustu kjarasamningum og eins væri fólk orðið langþreytt á því að vera alltaf haft í neðsta launaflokki. „Sjómenn hafa fengið vemlegar launahækkanir, fiskverð hefur hækk- að á Bandaríkjamarkaði, saltfiskur hefur hækkað enn meira og vinnuveit- endur lýsa því nú yfir að þeir séu svo ^stondugir að þeir vilji kaupa banka. Þegar allt þetta kemur saman hljóta menn að vera tilbúnir að hækka kaup fólksins sem skapar öll verðmætin, og það verulega," sagði Guðmundur J. Guðmundsson. -S.dór Oivaður maður stal bíl Mikið ölvaður maður stal í gær- kvöldi Volkswagen bifreið á Hafnar- bakkanum á Sauðárkróki. Var það um klukkan hálfníu að lögreglunni var tilkynnt um ofsaakstur á götum bæjarins. Var þar hinn ölvaði bíl- þjófur á ferð. Ökuferðina endaði maðurinn síðan með því að aka á fiskkassastæðu og *-Aíið það skemmdist bíllinn töluvert mikið. Maðurinn slapp með skrekk- inn. Lögreglan á Sauðárkróki segir að maðurinn hafi verið blekfullur og hafi hann enga stjórn haft á bílnum. JVC LOKI Allt dettur nú pólitíkus- unum í hug! Hugsanleg „lausn“ Utvegsbankamálsins: Ráðherra geri tilboð sem allir hafhi - síðan efnt til lokaðs tilboðs í hlutabréfin Salan á Útvegsbankanum er kom- in í illleysanlegan hnút að því er virðist. Jón Sigurðsson viðskipta- ráðherra hefúr undanfama daga leitað leiða til lausnar því en engin þeirra virðist fær með góðu móti ekki síst í Ijósi þeirra yfirlýsinga sem formenn Pramsóknar- og Sjálfstæð- isflokksins haia gefíð. Nú eru menn að velta þeim möguleika fyrir sér að gera aðilum sem boðið hafa í hlutabréf Útvegsbankans þannig til- boð að þeir geti ekki annað en hafiiað því. Eftir það er hægt að bjóða bréfin aftur út með þeim skil- málum að tilboð í þau verði lokuð. Ríkið geti þá tekið hvaða boði sem er eða hafnað öllum. Sú leið sem menn eru mest að velta fyrir sér nú er að gera hverjum og einum þeirra sem boðið hafa í bréfin kost á að kaupa ákveðna upphæð sem ríkið ákveður. Aðifamir eru 37, það eru Sambandið og þrjú dóttur- fyi-irtæki þess og svo aðilamir 33 á hinum vængnum. Vitað er að þessu myndu allir hafna. Þegar þeir hefðu hafhað gæti Jón Sigurðsson ákveðið að bjóða bréfin út aftur og hafa til- boðin lokuð. Þeir aðilar sera DV hefur rætt við halda því fram að nær útilokað sé fyrir fagráðherra eins og Jón Síg- urðsson og raunar ráðherragengi Alþýðuflokksins að ganga gegn vilja forsætásráðherra i þessu máli. Þótt lagalega séð só það viðskiptaráð- herra sem tckur ákvörðun í málinu þá sé hefð fyrir því í ölfum lýðræðis- ríkjum að fagráðherrar gangi ekki gegn eindregnum vilja forsætisráð- herra. Ríkisstjómarfundur hófst í morg- un en óvíst var talið að Útvegs- bankamálið yrði þar á dagskrá. -S.dór Skákkapparnir ungu komu til landsins á mótinu. nótt og sjást hér á Keflavíkurflugvelli með verðlaunagripinn sem þeir unnu til DV-mynd BG Veðrið á morgun: Víða rigning á Suður- og Vesturlandi Það verður sunnan- og suðvest- anátt um land allt. Víða rigning á Suður- og Vesturlandi en þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi. Fremur hlýtt verður þó á landinu öllu. Hiti á bilinu 10 til 14 stig. Hlýjast á Austfjörðunum. SS ræður utiendinga: „Skaplegra fyrst það eru Danir“ „Það er auðvitað ekki gott þegar þarf að ráða erlent vinnuafl í stórum hópum í íslensk fyrirtæki en mér finnst þó skaplegra að þarna er um Dani að ræða sem eru hvort eð er líkir íslend- ingum að mörgu leyti,“ sagði Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssambands iðnverkafólks, um það að Sláturfélag Suðurlands hefur nú ráðið 27 Dani, bæði ófaglært iðn- verkafólk og sérmenntað kjötiðnaðar- fólk í framleiðsludeildir og verslanir fyrirtækisins og koma þeir fyrstu og hefja störf í næstu viku. „Það hefúr verið gríðarlegur skortur á starfsfólki í sumar og þegar skóla- fólkið fer i haust var um fáar aðrar leiðir að ræða en að ráða erlendis frá,“ sagði Teitur Lárusson, starfs- mannastjóri SS. „Við fengum reynslu af starfskröftum frá Norðurlöndum í sumar og líkaði vel. Það er búið að finna húsnæði fyrir hluta af hópnum en fólkið hefúr undirritað ráðningar- samning upp á sex mánuði til að byrja með,“ sagði Teitur. -BTH Jón G. vann „Þetta gekk ekki nógu vel í gær,“ sagði Þröstur Þórhallsson skákmaður í morgun, en hann teflir ásamt þremur öðrum íslendingum á skákmóti Lloyds bankans í London. Þröstur tapaði í gær fyrir Indverjan- um Anand sem er heimsmeistari skákmanna 20 ára og yngri. Hannes gerði aftur á móti jafútefli við enskan skákmann og sama gerði Jón G. Við- arsson. Jón er nú efstur þeirra félaga með 2 vinninga eftir 3 umferðir, en þeir Þröstur og Hannes eru með 1,5 vinninga og eru í miðjum hópi. -oj í i i i i i i i i i i i i i i i i i Sigurvegar- ar komnir heim íslenska sveitin í skólaskák grunn- skólanema kom heim seint í gærkveldi en sveitin vann nýlega Norðurlanda- meistaratitil í þessum aldursflokki en þetta er sveit Seljaskóla sem vann Is- landsmeistaratitilinn í vor. Hlutu strákamir 16,5 vinninga af 20 mögulegum og vom nokkuð ömggir sigurvegarar á mótinu. Næstir í röð- inni urðu Norðmenn með 14,5 vinn- inga og Danir urðu í þriðja sæti með 12,5 vinninga. íslenska sveitin lagði báðar þessar sveitir að velli, Danina með 3:1 vinningi en Norðmenn með 2,5:1,5 vinningum. Þá vann sveitin Svía með 3,5:0,5 vinningum, B-sveit Finna með sömu vinningatölu, en rót- burstaði aftur á móti A-sveit Finna með 4 vinningum gegn engum. í sveitinni em þeir Þröstur Ámason sem teflir á 1. borði, Sigurður Daði Sigfússon á 2. borði, Sæberg Sigurðs- son á 3. borði, Snorri Karlsson á 4. borði og varamaður er Kristinn Frið- riksson. Vararstjórar í ferðinni vom þeir Ólafúr H. Ólafsson og Guðmund- ur Guðjónsson. -ój t t t t t : i i i i í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.