Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDÁGUR 25. ÁGÚST 1987. T\- - í einu af mest spennandi golfmóti sem fer fram fyrir norðan Alpafjöll Það var glampandi sól kl. 15.30 og spannan var komin í hámark á hin- um skemmtilega Strandarvelli, golfvelli Golfklúbbs Hellu. Mikið var í húfi - bifreið var í verðlaun ef einn af þrjátíu kylfingum, sem tóku þátt í einu af mest spennandi golfmótum landsins, næði því að fara „holu í höggi“ á níundu braut. Brautin er 132 metra löng. Heimir Herbertsson lamdi kúluna sína - hún þaut í gegn- um loftið, skoppaði á flötinni og hafnaði aðeins 2,30 m frá holunni. Á sama tíma og Heimir sló kúluna var faðir hans, Herbert Guðmunds- son, á fullri ferð á áttundu braut. Hann sýndi létta sveiflu með fimmtré sínu - lamdi kúluna í öðru höggi. Kúlan skoppaði eftir bautinni, inn á flötina og síðan beint ofan í holuna. „Þetta er eitt af bestu höggum mín- um í golfíþróttinni. Sannkallað sjónvarpshögg," sagði Herbert sigri hrósandi. Hann fór 237 m langa braut á tveimur höggum, sem er frábær árangur. Kúla Herberts var 121 m og eitt fet frá holunni þegar hann sló kúluna beint ofan í hana. Já, spennan var í hámarki. Margir snjallir kylfingar sýndu listir sínar og komu fyrir ótrúlegustu atvik. Mótið sem fór fram á Strandarvelli - einum af skemmtilegustu golfvöll- um landsins - var hið árlega „Flipp- open“, mót starfsmanna Frjálsar fjölmiðlunar, sem er talið mest spennandi golfmót norðan Alpafjalla ár hvert. Ævintýramót, sem fáir vilja missa af. Glæsileg verðlaun voru í boði. Jöfur tilkynnti fyrir mótið að Hér á myndinni má sjá keppendur í „Flipp-open“. Þeir standa við bifreiðina sem var í verðíaun fyrir holu i höggi á niundu braut. Golfskáli Golfklúbbs Hellu er i baksýn. sá kylfingur sem færi holu í höggi á níundu braut fengi Skoda í verðlaun. Bifreiðin stóð við hliðina á braut- inni. Japis gaf útvarpstæki í verð- laun. Þá voru einnig verðlaun i boði frá Póstversjuninni Prima, Bolta- manninum, Ástund, Sanitas, Arnar- hóli og Arnarflug gaf sigurvegaran- um flugfarseðil til meginlands Evrópu. Eins og undanfarin ár er ekki haft hátt um árangur keppenda. En eitt er víst að þeir léku mjög vel á Strand- arvelli sem er mjög skemmtilegur átján holu völlur í fallegu umhverfi. dór Bragason, Kristján Már Unnarsson og Geir Þórðarson. „Þeir síðustu verða alltaf fyrstir," var kjörorð þeirra kylfinga sem voru ræstir siðast út. Hér eru þrir af þeim fjölmörgu keppendum sem léku fing- rum framm i „Flipp-open.“ Kristján Jónasson, Ragnar Sigurjónsson, keppnisstjóri, og Sigurdór Sigurdórsson. Þeir félagar, sem gengu undir nafninu „þúfnabanarnir" - sýndi snjalla takta. Ragnar fékk Flipp-verðlaunin fyrir ævintýralegasta höggið i keppninni. 3X Sviðsljós Ólyginn sagði... Ronald ReaganJ, er yfir sig stoltur af syni sínum, Ron, þessa dagana. Strákurinn er sem kunnugt er balletdansari af lífi og sál og hefur hingað til ekki fengist til að gera nokkuð annað. En nú hefur Ron verið boðið aðal- hlutverk í nýrri kvikmynd sem fjallar um líf og starf Freds Ast- aire, stepparans mikla, sem er nýlátinn. Ron á að leika Fred sjálf- an og líst honum sjálfum svo vel á boð þetta að allt lítur út fyrir að hann muni taka því. Ronald pabbi er svo spenntur fyrir þessu að hann hvetur son sinn með ráðum og dáð til að taka hlutverkinu. Steven Spielberg er ákveðinn maður ef svo ber undir. Hann þarf, eins og aðrar stjörnur, vitanlega dagheimili fyrir barn sitt. En Steven vill ekkert þurfa að fara langar vegalengdir með son sinn heldur hafa hann í næsta nágrenni við vinnustað sinn. Eins og skiljanlegt er sparar það tíma og fyrirhöfn og er að öllu leyti hagstæðara. Steven hef- ur farið fram á það við Universal^V kvikmyndaverið að það komi upp dagheimili fyrir stjörnuforeldra. Nú hefur hann fengið ósk sína uppfyllta og geta þvi öll stjörnu- börnin verið saman að leika sér á meðan foreldrarnir vinna fyrir börnum og búi. <.) Bruce Springsteen, söngvarinn ágæti, er sælkeri með afbrigðum. Hann fer út að borða á degi hverjum og stundum oftar en einu sinni. í uppáhaldi hjá honum er ítalskur matur. ítalskt pasta fær hann hreinlega til að borða á sig gat. Mikið kryddaðt%-, matur á upp á pallborðið hjá Bruce en hann er lítið gefinn fyrir salat eða annan mjög hollan mat. Nautasteikur, þá vel pipraðar, eru lika í sérstöku uppáhaldi. Öllu saman skolar hans svo niður með bjór. Eftirlætiseftirrétturinn er ban- anaís með heitri súkkulaðisósu og rjóma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.