Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987. 13 Fréttir Sauðfé, sem étur salt á vegum og hreyfir sig hvergi, hlýtur aö enda lifdagana sem grjótbarið saltkjöt. DV-mynd JGH DY í Kelduhverfi: Grjótbarið saltkjöt Jón G. Hanksson, DV, Aknreyn; Sauðkindur landsins láta sér ekki nægja að bíta gras og annan gróður heldur eru þær líka komnar á malar- vegina. Þær sækja í saltið sem er í rykbindingunni. Sumar eru svo spakar að þær hverfa hvergi þótt ekið sé að þeim með bensínið og bíl- flautumar í botni. Svona sauðkindur hljóta að enda sem saltkjöt - grjót- barið saltkjöt. ____________________Viðtalið „Með ferðabrans- ann og Þingeying- inn í bloðinu 4 - segir Knútur Óskarsson „Ég ætlaði alveg að detta niður af þreytu þrjá síðustu kílómetrana í hálímaraþoninu, þetta var töluvert erfiðara en ég bjóst við enda lengsta vegalengd sem ég hef hlaupið í einu á ævinni," sagði Knútur Óskarsson, formaður Reykjavíkurmaraþons, Knútur Óskarsson, formaður Reykjavikurmaraþons og fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals, en að maraþoninu stóðu Úrval, Flugleiðir, Reykjavikurborg og Frjálsíþróttasamband íslands. DV-mynd GVA sem haldið var á sunnudaginn var í fjórða skipti með mikilli þátttöku. Hefur Knútur verið formaður mar- þonsins frá því það var haldið í fyrsta skipti. Knútur er jafnframt framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofunnar Urvals siðan í janúar á þessu ári. „Ég fór að vinna í þessum málum þegar ég starfaði hjá innanlandsdeild Úrvals á árunum i kringum 1984. Þá var ég staddur í Gautaborg þar sem frið- arhlaup fór fram og við komumst að þvi að þetta laðaði að fjölda er- lendra ferðamanna. Þar sem innan- landsdeildin annast móttöku erlendra ferðamanna og spáir mikið í hvemig hægt er að hafa ofan af fyrir þeim á meðan þeir eru staddir hér leist okkur vel á þá hugmvnd að halda Reykjavíkurmaraþon." Knútur er Þingeyingur. fæddur að Laugum í S-Þingeyjarsýslu árið 1952 og er því 35 ára. Hann útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1973 og hóf sama haust nám í viðskiptafræði við Há- skólann en þaðan útskrifaðist hann árið 1977. Hann starfaði hjá Ferða- málaráði fram tií ársins 1979 en þá hóf hann störf hjá innanlandsdeild Úrvals og var þar til 1984. Frá ’84-'86 var hann framkvæmdastjóri Sam- bands fiskvinnslustöðvanna en síðasta haust hóf hann störf hjá markaðsdeild Flugleiða þar til hann var fluttur yfir í framkvæmdastjóra- stöðu hjá Úrvali í janúar sl. Hann er kvæntur Guðnýju Jónsdóttur sjúkraþjálfara og eiga þau fjórar dætur, 15, 8 og 3 ára og eina tíu mánaða. „Ég breytti þama til í tvö ár þegar ég starfaði hjá sambandi fiskvinnslu- stöðvanna. Þótt það væri þægilegt starf kunni ég ekki almennilega við mig í þessu, fannst. vanta hraða og fjölbreytni sem ég var orðinn vanur af fyrri störfúm. Þá komst ég að því að ferðamannaþjónustan er bransi sem fer ekki svo auðveldlega úr blóð- inu þannig að ég dreif mig í þetta af fullum krafti aftur og sé ekki eftir því.“ Áhugamál Knúts eru eins og við er að búast m.a. hlaup. „Ég hleyp þetta 8 kílómetra í einu, 2-3 sinnimi í viku, ég á heima í Mosfellsbæ og þar em margar skemmtilegar hlaupaleiðir. Síðan reyni ég að fara norður í Þingeyjarsýslu á mínar heimaslóðir og renna fyrir lax, a.m. k. einu sinni á ári, í Reykjadalsá sem rennur fram hjá Laugum. Ætli ég sé ekki með Þingeyinginn í blóðinu líka?“ sagði Knútur að lokum. -BTH Þverá, Kjarrá 1555 laxar: Um 35 punda lax er á sveimi en tekur ekki „Það hafa veiðst 1555 laxar í Þverá og Kjarrá i sumar sem telst nokkuð gott miðað við aðstæður og i ánum er mikið af fiski víða,“ sagði tiðinda- maður okkar er við spurðum um ámar. „í gærmorgun byrjaði að rigna þama efra og það á eftir að hleypa lífi í þetta í lokin en við veiðum í ánum fram í ágústlok. Tveir nýir laxar veidd- ust í Kjarrá í gærdag og það þýðir að laxinn sé að ganga ennþá, 4 punda fiskar. í Berghylnum eru ótrúlega Veiðivon Gunnar Bender margir laxar, eða um 200 fiskar, segja fróðir menn. Veiðimenn hafa séð þama í lengri tíma boltafisk, um 35 pund, og hefur verið reynt við hann en ekkert vill hann taka, er mjög var um sig sá stóri. Litla-Þverá hefur gefið mjög lítið í sumar, eða aðeins 6 laxa, lítið sem ekkert vatn er í henni. í síðasta holli veiddust tveir 15 punda laxar og mikið hefúr veiðst af 8 til 10 punda fiskum í sumar. Sést hefur mikið af seiðum víða í ánum, meira en undanfarin sum- ur, sem veit á gott fyrir næstu sumur. Þessi rigning, sem núna kom, hleypir vonandi lífi í veiðina í lokin og fróðir menn telja að áin -nái 1700 löxum,“ sagði tíðindamaður ennfremur. Hafljarðará er komin í 454 laxa og það byrjaði líka að rigna við ána í fyrrinótt og veiðimaður, sem renndi í gærmorgun, veiddi á stuttum tíma 4 laxa. Mikið er af fiski í ánni og er hann víða. Veiðimaður, sem var að koma úr Straumfjarðará, veiddi á þrjár stangir 3 laxa og sagði mjög lítið af fiski í ánni. „Einn og einn lax var í sumum hyljum,“ sagði veiðimaðurinn og bætti við; „Það eru komnir 110 laxar úr ánni í allt sumar.“ Rólegt það. Betri veiði núna en í fyrra í Breiðdalsá „Það er kominn 171 lax og veiðin hefur verið frekar treg síðustu daga vegna vatnsleysis, það hefur ekkert rignt héma nýlega en mikið er af fiski víða í ánni,“ sagði Skafti Ottesen á Breiðdalsvík er við spurðum um Breið- dalsá. 1 fyrra veiddust 158 laxar en núna em komnfr 171 og menn spá vel yfir 200 löxum. „Veiðimenn em að reyna héma alla daga en fiskurinn er tregur og tekur illa, þarf regn héma eins og viða. Silungsveiðin hefúr verið upp og niður, líklega komnir um nokk- uð hundmð silungar fþað heila.“ sagði Skafti í lokin. -G.Bender Hlöðver Vilhjálmsson er einn af þeim sem renndi fyrir fisk i Kjarrá í sumar og hér hefur hann sett í lax og landaði skömmu seinna einum 12 punda. DV-mynd G.Bender BLAÐAUKI ALLA LAUGARDAGA BILAMARKAÐUR DV er nú á fullii ferð Nú getur þú spáö í spilin og valið þér bíl í ró og næði. Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum- boðum ásamt bílasmáauglýsingum DV býður þér ótrúlegt úrval bíla. Auglýsendur athugið! Auglýsingar í bílakálf þurfa aö berast 1 síðasta lagi fyrir kl. 17.00 fimmtudaga. Smáauglýsingar í helgarblaö þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga. Síminn er 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.