Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGtJST 1987. 33' Fólk í fréttum Jón Sigurðsson Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur verið í fréttum DV vegna um- ræðna um sölu Útvegsbankans. Jón Sigurðsson er fæddur 17. apríl 1941 á ísafirði og lauk fil. cand. prófi í þjóðhagfræði og tölfræði frá Stokk- hólmsháskóla 1964, M. Sc. Econ. í þjóðhagfræði frá London School of Economics 1967. Jón var hagfræð- ingur við Efnahagsstofnun 1964-1967 og deildarstjóri hagdeildar Efhahagsstofriunar 1967-1970. Hann var hagrannsóknastjóri 1970-1971 og forstöðumaður hagrannsókna- deildar Framkvæmdastofnunar , ríkisins 1972-1974 og forstjóri Þjóð- hagsstofhunar 1974-1987. Jón var fastafulltrúi Norðurlanda í fram- kvæmdastjóm Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins í Washington 1980-1983 og varafulltrúi íslands í stjóm Alþjóða gjaldeyrissjóðsins frá 1974. Hann var fúlltrúi íslands í stjóm Norræna fjárfestingarbankans frá 1976 og stjómarformaður frá 1984. Jón var fulltrúi íslands í hagþróunar- og hagstjómunamefnd OECD frá 1970. Hann varð þingmaður Reykvíkinga fyrir Alþýðuflokkinn 1987 og við- skiptaráðherra í núverandi ríkis- stjóm. Kona Jóns er Laufey Þorbjamar- dóttir, stúdent frá MA 1962, útgerð- armanns á Grenivík, Áskelssonar, og konu hans, Önnu Guðmunds- dóttur ljósmóður. Böm þeirra eru Þorbjöm, Sigurður Þór, Anna Krist- in og Rebekka. Bræður Jóns em Þórir mennta- skólakennari og Guðmundur, héraðslæknir á Seltjamamesi. Foreldrar þeirra em Sigurður Guðmundsson bakarameistari og bankagjaldkeri á Isafirði og kona hans, Kristín Guðjóna Guðmunds- dóttir. Föðursystkini Jóns: Jón, skrif- stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, Steingrímur, prentsmiðjustjóri í Rvík, Haraldur ráðherra, Ketill, kaupfélagsstjóri á Isafirði, Þórir, kennari á Hvanneyri, Þorlákur, skipstjóri í Boston, Unnur, kona Bjama Ásgeirssonar, sjómanns á ísafirði, Þóra, hjúkmnarkona í Rvík og Ása, bankastarfsmaður í Rvík. Móðursystkini Jóns: Guðmunda, dó ung, Jóhann Sigurður og Gísli Hoffinann, sjómaður á Isafirði. Faðir Jóns, Sigurður, var sonur Guðmundar, prests í Gufudal, Guð- mundssonar, bóndasonar á Stóm- Giljá í Þingi, Eiríkssonar, b. á Stóm-Giljá, Jónssonar. Guðmundur á Stóm-Giljá var kominn af Stóm- Brekkuættinni í Fljótum í móðurætt og lést ungur. Móðir Guðmundar var Kristjana Jónsdóttir, b. í Meðal- heimi á Ásum, Einarssonar. Móðir Sigurðar, Rebekka, var dóttir Jóns, alþingismanns á Gautlöndum í Mý- vatnssveit, sem Gautlandaættin er kennd við, og vom þrír synir Jóns á Gautlöndum alþingismenn og urðu tveir af þeim ráðherrar. Dóttursonur Jóns á Gautlöndum var Steingrímur Steinþórsson forsætisráðherra. Fað- ir Jóns á Gautlöndum var Sigurður, b. á Gautlöndum, Jónsson, b. á Mýri í Bárðardal, forföður Mýrarættar- innar, Halldórssonar. Móðir Re- bekku var Sólveig Jónsdóttir, prests í Reykjahlíð í Mývatnssveit, Þor- steinssonar, forföður Reykjahlíðar- ættarinnar. Sigurður, faðir Jóns, og Geir Hallgrímsson seðlabankastjóri em þremenningar frá Jóni í Reykja- hlíð. Móðir Jóns, Kristín, er dóttir Guð- mundar Hilaríusar, sjómanns á ísafirði, Halldórssonar. Kristín var komin af Amardalsættinni og var hún þremenningur við Jakob Bjömsson orkumálastjóra. Móðir Kristínar var Guðrún Friðriksdóttir, b. á Hrafhseyrarhúsum við Amar- fjörð, Jónssonar, prests á Hrafnseyri, Ásgeirssonar, prófasts i Holti í Ön- undarfirði, Jónssonar, bróður Þórdísar, móður Jóns Sigurðssonar forseta. Kristin, móðir Jóns, var fimmmenningur við Jóhannes Nor- dal seðlabankastjóra frá Jóni Ásgeirssyni, afa Jóns forseta, og Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. fimmmenningur við Matthías Á. Mathiesen samgöngumálaráðherra frá Matthíasi Þórðarsyni á Eyri í Seyðisfirði, afa Jóns prests á Hrafns- eyri, en afi Matthíasar á Eyri var Olafur Jónsson á Eyri, langafi Jóns forseta. AfmæH Magnus Magnusson Magnús Magnússon, skipstjóri og útgerðarmaður, Langeyrarvegi 15, Hafharftrði, verður áttræður í dag. Magnús fæddist að Efri-Flankastöð- um í Sandgerði. Faðir hans, sem var sjómaður, dmkknaði áður en Magn- ús fæddist. Magnús var hjá móður sinni til fimm ára aldurs en fór þá í fóstur að Vallarhúsum að Miðnesi til hjónanna Margrétar Þórarins- dóttur og Jóns Ólafssonar. Þar var hann til ellefu ára aldurs en þá fór hann aftur til móður sinnar. Magnús fór nítján ára gamall í Sjómanna- skólann og lauk þaðan prófi 1930. Þegar Magnús var þrettán ára gam- all hóf hann sinn sjómennskuferil og sautján ára varð hann formaður á Barðanum frá Ólafsvík sem gerður var út frá Sandgerði. Hann hefur síðan verið skipstjóri á ýmsum bát- um og má þar t.d. nefna mb. Soffiu frá Sandgerði, mb. Auði GK, mb. Hafdísi GK, mb. Öm Amarson GK og Hafrúnu GK. Magnús gerði út trillu nú síðustu ár og sótti á henni þar til í fyrra. Kona Magnúsar var Kristín Magnúsdóttir, f. 26. 4. 1913, d. 24. 2. 1967. Faðir hennar var Magnús, b. í Efri Hömrum í Holtum, Bjömsson- ar, Snæbjömssonar sem var síðasti ábúandinn í Trausthólshólma í Þjórsá. Móðir Kristínar var Stefanía Ámundadóttir, b. í Bjólu í Rangár- vallasýslu, Filippussonar. Magnús og Kristín eignuðust tvö böm, Magnús rafvirkja, f. 23.8.1942, en hann er kvæntur Kristínu Jóns- dóttur bankastarfsmanni, Hafdísi skrifstofustjóra, f. 6.7. 1937, en hún er gift Hjörleifi Bergsteinssyni vél- virkja. Stjúpdóttir Magnúsar er svo Bára Guðmundsdóttir kennari, f. 27.6. 1936, en hennar maður er Jón Gíslason skipstjóri. Magnús átti tvo bræður. Annar þeirra, Einar Helgi, dó nýfæddur en Magnús Magnússon, skipstjóri og útgerðarmaður. hinn, sem einnig hét Einar Helgi, f. 8.2. 1902, lést í hárri elli 1985. Var hann b. að Klöpp í Sandgerði. Faðir Magnúsar hét Magnús, son- ur Einars Vigfússonar og Helgu Bjömsdóttur en móðir hans var Snjáfriður, dóttir Einars Guðmunds- sonar og Ragnhildar Jónsdóttur. Magnús ætlar að taka á móti gest- um á heimili dóttur sinnar á Flóka- götu 4 eftir kl. 16. á afmælisdaginn. 80 ára Kristinn J. Guðmundsson sjómað- ur, Ásgarði 53, Reykjavík, er 80 ára í dag. Margrét Lárusdóttir, Langanes- vegi 17A, Þórshöfn, er 80 ára í dag. 70 ára Sigríður Sigurðardót.tir, Ásbyrgi, Gerðahreppi, er 70 ára í dag. Guðný Sigfríður Jónsdóttir, Krummahólum 6, Reykjavík, er 70 ára í dag. Hún verður að heiman. Jón V. Bjarnason, Valþjófsstað II, Fljótsdalshreppi, er 70 ára í dag. Ágústa Þorkelsdóttir, Helgugötu 1, Borgarnesi, er 70 ára i dag. 60 ára_________________________ Sigríður Theodóra Jónsdóttir, Hraunbæ 86, Reykjavík, er 60 ára í dag. Sigurður Valgarð Jónsson, Fann- arfelli 12, Reykjavík, er 60 ára í dag.___________________________ 50 ára Þorvaldur Kjartansson rakari, Akraseli 26, Reykjavík, er 50 ára í dag. Ragna Hjaltadóttir, Esjugrund 33, Kjalarnesi, er 50 ára í dag. Guðmundur Guðbergsson hús- gagnasmiður, Svalbarða 6, Hafnar- firði, er 50 ára í dag. Ólöf Magnúsdóttir, Álfhólsvegi 42, Kópavogi, er 50 ára í dag. Hún tek- ur á móti gestum að heimili sínu í kvöld,_________________________ 40 ára_________________________ Sigríður Ragnardóttir, Brú 11, Jök- uldalshreppi, er 40 ára í dag. Örn Grundfjörð, Nóatúni 26. Reykjavík, er 40 ára í dag. Karl Jóhann Karelsson, Heiðar- lundi ÍG, Akureyri. er 40 ára í dag. Jón Guðmundsson, Krosseyrarvegi 8, Hafnarfirði, er 40 ára í dag. Kristinn Friðriksson Kristinn Friðriksson sjómaður, Vallarbraut 15, Akranesi, er áttræð- ur i dag. Kristinn fseddist á Grund í Borgarfirði eystra. Kristinn missti föður sinn þrettán ára gamall og varð þá vinnumaður á Fljótsdals- héraði hjá foðurbróður sínum. Kristinn byrjaði ellefu ára að stunda sjómennsku og hefur gert það nán- ast óslitið síðan. Kristinn fluttist til Seyðisfjarðar árið 1934 og 1935 gifti séra Sveinn Víkingur Kristin og Ágústu Gústafs- dóttur sem er feedd 1913. Ágústa er dóttir Gústafs Kristjánssonar í Brekku á Djúpavogi og Jónínu Hjör- leifsdóttur frá Núpi við Djúpavog, en ýmsar sögur hafa verið sagðar og skráðar af kröftum og knáleika þeirra Núpsbræðra, Hjörleifs og Ein- ars. Faðir Núpsbræðra var Þórarinn sonur Ríkarðs Long sem Long-ættin er komin út af, en bróðir Þórarins var Jón faðir Ríkarðs mvmdhöggv- ara. Kristinn og Ágústa eiga sjö böm. Elstur er Friðrik Eldjám sjómaður. f. 1935, en harrn er giftur Þómýju Elísdóttur, eftirlitskonu hjá Haraldi Guðrún Sigurðardóttir, Lundum, Stafholtstungum, er 40 ára í dag. Rúnar Jóhannsson bifvélavirki, Holtabrún 4. Bolungarvík. er 40 ára í dag. Daði Ingimundarson skólastjóri. Hjöllum 19, Patreksfirði. er 40 ára í dag. íris Gréta Valberg, Víðivangi 7, Hafnarfirði. er 40 ára í dag. Rúna Björg Jónsdóttir, Stóragerði 14, Hvolhreppi, er 40 ára í dag. Böðvarssyni á Akranesi, þá Hlin verslunarkona. f. 1937, gift Hreini Jónssyni, starfsmanni hjá Ágæti, og búa þau í Reykjavík, Hrefna kaup- kona, f. 1940, gift Kenneth L. Tullen, en þau búa í Mississippifylki í Bandaríkjunum, Þórarinn sjómaður, f. 1942, giftur Erlu Ármannsdóttur, Hjördís, ræstingastjóri á sjúkrahús- inu á Akranesi. f. 1944. gift færeysk- um manni. Sigurði Henrikssen, starfsmanni á Grundartanga, Gústaf lestunarstjóri hjá SIF, f. 1949, giftur Gyðu Guðjónsdóttur, hjúkruna- rfræðingi á Landspítalanum. Yngst- ur er Guðmundur viðskiptafræði- nemi, f. 1958. en sambýliskona hans er Linda Friðjónsdóttir. Hálfbróðir Kristins var Ásgrímur sem nú er látinn. Eftirlifandi kona Ásgríms er Margrét Sigurðardóttir sem nú býr ’ Kópavogi. Kristinn á einnig tvær hálfsystur, Guðnýju Friðriksdóttur. gifta Haraldi Guð- jónssvmi, fyrrverandi leigubílstjóra hjá Hrev’fli, og Sigríði Friðriksdótt- ur. gifta Aðalsteini Sveinssyni múrara. Faðir Kristins var Friðrik, b. á Grund í Borgarfirði, Jóhannsson, Einarssonar af Jökuldal. og Kristín- ar Eldjámsdóttur, stúdents í Mikla- garði í Evjafirði. Hallgrímssonar, afabróður Jónasar Hallgrímssonar skálds og Þórarins Kristjánssonar. prófasts í Vatnsfirði. langafa Krist- jáns Eldjáms forseta. Móðir Kristins var Björg, dóttir Ásgríms b. á Gmnd í Borgarfirði, Guðmundssonar. af Galdra-Imbu-ætt, en Ásgrímur var langafi Halldórs sjávarútvegsráð- herra. Andlát Olafur Jónsson Ólafur Jónsson læknir andaðist á Landspítalanum mánudaginn 17. ágúst sl. Ólafur var fæddur í Skálavík í Vatnsfjarðarsveit 4. september 1924. Hann lauk læknisprófi frá Háskóla íslands og lagði stund á lyflæknis- fræði, aðallega í meltingarsjúk- dómum, við Pennsylvaniuháskóla 1957-1958. Ólafur var aðstoðarlækn- ir við McLaren General Hospital í Flint í Michigan og var síðan styrk- þegi og aðstoðarkennari í University Medical Center í Norður-Karólínu. Ólafur starfaði sem læknir í Reykja- vík frá 1960 og var aðstoðarlæknir við lyflæknisdeild Landspítalans og kennari í lyflæknis- og lyflafræði við Hjúkrunarskóla íslands. Kona Ólafs er Drífa Garðarsdóttir, útgerðarmanns á Patreksfirði, Ólafs- sonar Jóhannessonar og konu hans, Lauru Carlsdóttur Proppé, og eign- uðust þau fjögur böm, Eddu, Ólaf, Kristínu og Garðar. Foreldrar Ólafe: Jón Benediktsson, læknir í Rvík, og Kristín Ólafsdótt- ir. Hálfbróðir Ólafe, sammæðra, er Reynir Oddsson kvikmyndagerðar- maður. Faðir Ólafe, Jón, var sonur Bene- dikts, prófasts á Grenjaðarstað, Kristjánssonar, b. í Stóradal í Svína- vatnshreppi, Jónssonar. Móðir Benedikts var Sigurlaug Sæmunds- dóttir, b. í Gröf í Víðidal, Jónssonar. Ólafúr og Gunnar Bjamason ráðu- nautur vom bræðraböm, frá Benedikt á Múla. Föðuramma Ólafe, seinni kona Benedikts á Grenjaðar- stað, var Ólöf Ásta, föðursystir Þórarins Bjömssonar skólameist- ara, dóttir Þórarins, b. á Víkinga- vatni, Bjömssonar, b. og smiðs á Víkingavatni, Þórarinssonar, Ólöf, systir Þórarins á Víkingavatni, var móðir Sveins Víkings Magnússonar, gestgjafa á Húsavík, afa Bjama Ben- ediktssonar forsætisráðherra. Meðal annarra afkomenda Víkingavatns- ættarinnar vom rithöfundamir Sveinn Víkingur Grímsson, síðast biskupritari, og Ámi óla. Móðir Ólafs, Kristín, var dóttir Ólafe, b. í SkálaviVí Isafjarðardjúpi, Ólafssonar, b. í Reykjarfirði, Jóns- sonar, og Salvarar Kristjánsdóttur, / H Ólafur Jónsson læknir. af Eyrardalsætt í Isafirði. Móður- amma Ólafe var Jóhanna Sigurborg Þorleifsdóttir, b. í Kleifarkoti, Helgasonar. Ingunn Maria Friðriksdóttir, Skriðustekk 3, lést í Landspítalan- um að morgni 22. ágúst. Jóhann Jóhannsson, hárskera- meistari, Álfheimum 54, Reykjavík, andaðist að heimili sínu 23. ágúst. Ólafía Haraldsdóttir, Faxabraut 5, Keflavík, andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur 22. ágúst. Þorvaldur Teitsson frá Víðidals- tungu, til heimilis að Framnesvegi 58B, Reykjavík, lést á Landspítal- anum 23. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.