Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1987, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1987. Fréttir Rætt við Pétur Guðmundsson á skrifstofu hans. Tvær stórar pottaplöntur sjást á myndinni og segist Pétur aldrei hafa haft blóm á skrifstofu sinni fyrr. Flugstoð Leifs Eiríkssonar heimsótt: Enn vantarveitingabúð og fríhöfh fyrir komufarþega Peningainarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækur ób. 14-15 Ab.Bb, Lb.Sp, Úb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-19 Úb 6mán. uppsögn 16-20 Ib.Vb, Úb 12 mán. uppsögn 17-26.5 Sp.vél. 18mán. uppsogn 25,5-27 Ib.Bb Tékkareikningar 4-8 Allir nema Sb.Vb Sér-tékkareikningar 4—15 Ab.lb, Vb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán meosérkiörum 3-4 Ab.Úb 14-24,32 Úb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Vb.Ab Sterlingspund 7,5-9 Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Danskar krónur 8,5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 28-28,5 Lb.Bb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 30-30,5 eða kge Almenn skuldabréf 29-31 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir , Hlaupareikningar(yfirdr.) 30 Allir Utlán verðtryggð Skuldabréf 8-9 Ab.Lb, Sb.Vb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 25-29 Úb SDR 7,75-8 Bb.Lb. Úb.Vb Bandaríkjadalir 8.5-8,75 Bb.Lb. Úb.Vb Sterlingspund 10-10,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,25-5,75 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 40,8 MEÐALVEXTIR óverðtr. ágúst 87 28,8 Verðtr. ágúst 87 8,1% VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala ágúst 1743stig Byggingavísitala ágúst (2) 321 stig Húsaleiguvísitala Hækkaói 9%1.júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóöa (uppl. frá Fjár- fest ingarfélaginu); Ávöxtunarbréf 1.2084 Einingabréf 1 2,231 Einingabréf 2 1,319 Einingabréf 3 1,385 Fjölþjóðabréf 1,060 Kjarabréf 2,226 Lífeyrisbréf 1,122 Markbréf 1,109 Sjóðsbréf 1 1,089 Sjóðsbréf 2 1,089 Tekjubréf 1,206 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 276 kr. Flugleiðir 190 kr Hampiðjan 118kr Hlutabr.sjóðurinn 117 kr lönaðarbankinn 141 kr. Skagstrendingur hf. 182 kr Verslunarbankinn 124 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160kr (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavíxla gegn 30% ársvöxtum, Samv.banki og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. (2) Byggingarvísitala var sett á 100 þann 1. júli, en þá var hún í 320. Hún verður framvegis reiknuð út mánaðarlega, með einum aukastaf. Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn blrtast i DV á fimmtudögum. Margt er enn ófrágengið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þannig vantar enn veitingastað fyrir farþegar sem hafa innritað sig og viðkomufarþega, og einnig er nokkuð í að verslunar- svæðið sem ætlað er fríhöfn fyrir komufarþega verði tilbúið. Raunar má segja að víða í bygging- unni séu menn enn að koma sér fyrir. „Ég er varla búinn að taka upp úr kössunum ennþá,“ sagði Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri þegar DV heimsótti flugstöðina á dögun- um. Veitingaaðstaðan Pétur kvaðst búast við því að allt yrði komið í endanlegt horf með haustinu. Þessa dagana er verið að afhenda veitingabúð í glerskála á neðri hæð flugstöðvarinnar, en Flug- leiðir sjá um veitingareksturinn i flugstöðinni. Engin veitingastaður er fyrir far- þega sem eru búnir að innrita sig eða viðkomufarþega, en það stendur til bóta að sögn Péturs. Sama á við um barinn, en sá sem nú er í flugstöðinni á eftir að taka miklum breytingum þegar veitinga- staðurinn verður tekinn í notkun. Sagði Pétur að þá yrði flugstöðvar- barinn lengsti bar á íslandi. En enn sem komið er er barinn bæði lítill og litlar veitingar þar að frá, ef und- anskildar eru samlokur eins og þær sem fengust í gömlu flugstöðinni og þykja misgóðar. Fríhöfnin tiibúin í október? Pósthúsið á neðri hæð er tilbúið, en enn er nokkuð í að rými undir fríhöfn fyrir komufarþega verði til- búið til afhendingar. Þegar sú fríhöfn verður tekin í notkun, að líkindum í október, mun aðstaða þar gjörbreytast en verslun- arplássið þar er um 400 fermetrar að stærð, að sögn Péturs. Eftirlits- og öryggiskerfi Fullkomin eftirlitskerfi og hús- stjórnarkerfi er í flugstöðinni og þar er einnig brunavamarkerfi sem fer í gang komi upp eldur í byggingunni. Öryggiskerfi byggingarinnar er tengt myndavélum sem hægt er að beina í ýmsar áttir í húsinu og eru skermar á lögreglustöðinni þar sem lögreglumenn fylgjast með því hvað fram fer. Af öðrum fullkomnum tækjabún- aði sem er í flugstöðinni má nefna sérstaka gegnumlýsingarvél sem er í tollinum. Þar renna töskur í gegn á færibandi og sést þá á skermi hvað taskan hefur að geyma. Sögðu toll- verðir að vél þessi væri ekki notuð að jafnaði, en kváðu hana nauðsyn- legt öryggistæki, ekki síst þegar stórmenni eru hér stödd. Nefna má að gegnumlýsingartæki þetta var notað þegar leiðtogafundurinn var hér síðastliðið haust. Innréttingar með sama sniði Það vekur athygli þegar gengið er um flugstöð Leifs Eiríkssonar að all- ar innréttingar eru þar með sama sniði. Sagði Pétur Guðmundsson flugvallarstjóri að innréttingamar væru samræmdar þannig að sama línan væri gegnumgangandi í flug- stöðinni. Sama á við um veggklæðn- ingar en þar er vikursteinn mjög áberandi. Flugstöðvarbyggingin er teiknuð með það fyrir augum að fatlaðir kom- ist þar allra sinna ferða óhindrað. Þar eru engir þröskuldar, fólk kemst milli hæða í lyftum, salernisaðstaða er fyrir fatlaða í byggingunni og fyrsti þröskuldurinn verður raunar ekki á vegi fólks fyrr en það kemur um borð í flugvélina. Sérherbergi fyrir tigna gesti Sérstakt móttökuherbergi er í byggingunni og ætlað fyrir móttöku tiginna gesta. Sést frá herberginu út á flugvélahlaðið og flugvöllinn. Her- bergið er búið leðursófum og leður- stólar og þar er líka bar i sama stíl og innréttingar flugstöðvarinnar. Á einum vegg herbergisins hangir síðan innrömmuð yfirlýsing Matthí- asar Á. Mathiesen, fyrrverandi utanríkisráðherra, þar sem hann fel- ur flugvallarstjóra rekstur flugstöðv- arinnar. Barnaleikföngin vantar I einu horni biðsalarins er leikhorn fyrir börn þar sem eru sérstök „kubbaborð" og stólar, en heldur virtist lítið vera um kubba á borðun- Sagði Pétur að það væri von þar sem fyrirtæki virtust ekki liggja með leikfangakubba á lager svo að panta hefði þurft kubbana sérstaklega og væru þeir ókomnir. Börnin þurfa að bíða á meðan. Flutningar í gangi í skrifstofuálmu flugstöðvarinnar er verið að leggja lokahönd á frágang og eru þar ýmsir fluttir inn, þar á meðal flugvallarstjóri. Þar rákumst við á Kristján Pétursson, deildar- stjóra í tollgæslunni, og var hann nýlega fluttur inn. Starfsfólk Flugleiða var að hreiðra um sig og virtust flutningamir hafa jákvæð áhrif í fleiru en einu tilliti. Þar virtist hafa farið fram nokkur tiltekt í leiðinni því nokkrir fullir ruslapokar voru við dyrnar. „Kost- urinn við að flytja er að þá hendir maður svo miklu,“ sagði Pétur um leið og við gengum fram hjá rusla- pokunum. Ýmsir eiga enn eftir að flytja inn á ganginn en Pétur bjóst við því að flutningum lyki bráðlega. Á skrif- Tollveröir í flugstööinni geta nú gegnumlýst farangur farþega, leynist grunur um aö þeir flytji inn meö sér eitt- hvað sem ekki á inn að komast. Ekki skemmir þaö fyrir aö hægt er aö grandskoða farangurinn bæöi í svarthvítu og i lit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.