Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1987, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987.
Viðskipti
Trabantinn er (ramleiddur i Rostock
í Austur-Þýskalandi. Um 300 bílar
koma að jafnaði til íslands á ári.
Þeir seljast allir og hægt væri að
selja meira til, slík er eftirspurnin.
Trabantinn
flýgur út
Austur-þýska bifreiðin Trabant flýg-
ur út á Islandi, hún rokselst. „Við
önnum ekki eftirspum, það seljast all-
ir bílar sem við fáum,“ segir Smári
Hreiðarsson, sölumaður hjá Ingvari
Helgasyni.
Þegar hafa verið afgreiddir 220 Tra-
bantar á árinu og 60 eru á leiðinni,
allir seldir. Bíllinn kostar aðeins 85
þúsund krónur. Hægt er að borga
helminginn út og restina á 10 mánuð-
um. Kaupendur ganga sjálikrafa í
klúbbinn Skynsemin ræöur.
„Mér sýnist að Trabantinn sé oftast
þriðji til fjórði bíll á heimili,“ segir
Smári. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggö
Sparisjóösbækur ób. 14-17 Lb.Úb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 15-19 Úb
6 mán. uppsógn 16-20 Úb.Vb
12mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél.
18 mán. uppsögn 25.5-27 Bb.lb
Tékkareikningar 6-8 Allir
Sér-tékkareikningar 6-17 nema Vb Ib
Innlán verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn Innlán meo sérKjörum 3-4 Ab.Úb
14-24,32 Úb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 5,5-6,5 Ab.Vb
Sterlingspund 8,25-9 Ab.Úb.
Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Ab.Vb
Danskarkrónur 9-10,5 ib
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 28-29,5 Bb.Lb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) 30.5-31
Almenn skuldabréf eða kge 29,5-31 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
H!aupareikningar(vfirdr.) 30 Allir
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 8-9 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 28-29 Vb
SDR 8-8,25 Bb.Lb,
Bandaríkjadalir 8,5-8,75 Úb.Vb Bb.Úb,
Sterlingspund 11,25- Vb Sp
Vestur-þýsk mörk 11.75 5.5 5,75 Bb.Sp,
Húsnæðislán 3.5 Úb.Vb
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 42
MEÐALVEXTIR
Óverötr. sept. 87 29,9
Verötr. sept. 87 8,4%
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala sept. 1778 stig
Byggingavisitala 1 sept. 324 stig
Byggingavísitala 2 sept. 101,3 stig
Húsaleiguvisitala Haekkaöi 9% 1. júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
(uppl. frá Fjárfestingarfélaginu):
Ávöxtunarbréf 1,2588
Einingabréf 1 2,301
Einingabréf 2 1,356
Einingabréf 3 1,422
Fjölþjóðabréf 1,060
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,322
Lífeyrisbréf 1,157
Markbréf 1,178
Sjóðsbréf 1 1,135
Sjóðsbréf 2 1,097
Tekjubréf 1,220
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaðarbankinn 143 kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaöarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nðnari upplýslngar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
___________________DV
Geislaspilarinn er
vopnið hjá Nesco
- fýrirtækið selur nú um alla Evrópu
Óli Anton Bieltvedt, forstjóri Nesco Manufacturing. Fyrirtækið hefur staðið
fyrir árangursrikri markaðssókn á Evrópumarkaði en vegna verulegs gengi-
staps í fyrra, þegar yenið hækkaði gagnvart dollar, á Nesco Manufacturing
í tímabundnum greiðsluerfiðleikum sem leysast væntanlega á næstu þrem-
ur til sex mánuðum, að sögn Óla.
Sfldarvertíðin:
Töf á plasttunn-
unum fra
Plasteinangrun
„Við forum ekki í gang með að fram-
leiða síldartunnumar úr plasti fyn- en
í lok mánaðarins, þannig að við seljum
lítið af tunnum fyrir þessa síldarver-
tið, hugsanlega um 5 til 6 þúsund
tunnur af um 240 þúsund tunnum sem
verður saltað í,“ segir Sigurður Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri Plast-
einangrunar á Akureyri.
Sigurður sagði að fyrirtækið hefði
haldið að sér höndum með að lofa síld-
arsaltendum tunnum þessa vertíð, þar
sem það hefði tafist að framleiðsla
tunnanna hæfist.
- Nú segja sumir að Sovétmenn og
Svíar séu á móti síldartunnum úr
plasti. Er eitthvað hæft é því?
„Nei, það er liðin tíð að plasttunnur
séu sagðar óvinsælar."
Að sögn Sigurðar verður afkastageta
Plasteinangrunar um 200 þúsund
tunnur á ári. „Við teljum okkur að
öllu leytí. samkeppnishæfa við þær
plasttunnur sem fluttar eru inn.“
Á vertíðinni í fyrra var saltaö í um
100 þúsund plasttunnur. Afgangurinn,
140 þúsund tunnur, var úr tré.
-JGH
Gamla trétunnan er að hverfa í síldarsöltun. Akureyrska fyrirtækið Plasteinangr-
un stefnir að því að ná markaðnum meö plasttunnum sem það er að hefja
framleiðslu á.
Nesco Manufacturing hefur herj-
að inn á Evrópumarkaðinn með
geislaspilarann að vopni. Fyrirtækið
er nú það annað stærsta af evrópsk-
um aðilum á geislaspilaramarkaðn-
um í Evrópu, einungis Philips er
stærra. Það var í fyrrahaust sem
ákveðið var að færa út kviamar,
selja ekki aðeins á Norðurlöndun-
um, heldur líka í Hollandi og Belgíu,
svona í fyrstu umferð. Árangurúm
varð annar og betri, að sögn Óla
Antons Bieltvedt. Nesco og Xenon
geislaspilarar era nú seldir út um
alla Evrópu, að Ítalíu, Sviss og Aust-
urríki undanskildum. Vestur-Þýska-
land er stærsti markaðurinn.
„Þróunin hefur verið hröð frá því
við fórum að framleiða undir okkar
eigin vörumerkjum fyrir nokkrum
árum,“ segir Óli Anton. „Nú leggjum
viö alla áherslu á nýjar vörutegund-
ir og hátæknivörur, svokallaða
digital-tækni.“
Að sögn Óla mun Nesco Manufact-
uring aðeins framleiða geislaspilara,
myndgeislaspilara, myndbandstæki
og myndbandstökuvélar framvegis.
Fyrirtækið er þar með hætt að fram-
leiða sjónvarpstæki, útvarpskas-
settutæki og önnur hefðbundin tæki.
Markaðurinn fyrir geislaplötuspil-
ara í Evrópu er um þessar mundir
í kringum 2,5 milljónir spilarar.
Philips er langstærst en Nesco kem-
ur í öðru sæti af evrópskum aðOum
með nálægt 70 þúsund spilara sölu
á ári. í heiminum eru nú 6 til 8 fyrir-
tæki stærri í framleiðslu á geislaspil-
urum en Nesco Manufacturing.
„Þrátt fyrir þessa árangursríku
markaðssókn urðum við fyrir áfalli
í fyrra er við lentum í umtalsverðu
gengistapi þegar yenið hækkaði
gagnvart dollar. Þetta eru þó aðeins
tímabundnir erfiðleikar sem við
munum væntanlega vinna okkur út
úr á næstu þemur til sex mánuð-
um,“ segir Óli Anton.
„Þar munar mestu að í ágúst gerð-
um við samning til 4ra ára um sölu
á Xenon-vörum til Vestur-Þýska-
lands. Þessi viðskipti ein sér eru
meiri en heildarviðskiptin á Norð-
urlöndunum. Og nýlega gerðum við
annan stórsamning líka við fyrir-
tæki í Vestur-Þýskalandi um sölu á
Nesco-vörum. Þessir samningar fara
að skila sér eftir þijá til sex mánuði."
Nesco framleiðir nú einungis und-
ir tveimur merkjum, Nesco og
Xenon. Framleiðslain fer fram í Jap-
an, þar sem undirverktakar annast
vinnsluna. Það er stutt á milli
Laugavegs og Tokyo.
-JGH
Jakinn hefur haft nóg að gera hjá Eimskip. Félagið hefur hafl meðbyr á árinu,
Eimskip:
Útiit fyrir hagnað
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri þróunardeildar Eim-
skips, segir að útlit sé fyrir hagnað hjá
félaginu á árinu en ákveðin óvissa sé
framundan varðandi efnahagsaðgerð-
ir ríkisstjómarinnar, sem geti haft
áhrif á flutninga og afkomu ársins.
„Það hefur verið mikill útflutningur
á þessu ári á ferskum fiski, saltfiski
og frystum fiski. TU viðbótar kemur
að innflutningur hefur vaxið mun
meira en við reiknuðum með, sérstak-
lega innflutningur á bílum,“ segir
Þorkell.
Eimskip er nú með 17 skip í rekstri,
þaraf4erlendleiguskip. -JGH
Flelri borða
nú kjúklinga
„Kjúklinganeysla er greinilega að
aukast. Mér sýnist að salan í septemb-
er hafi verið um 140 tonn en hún var
á milli 90 til 100 tonn á mánuði þegar
verst lét í vor,“ segir Bjami Asgeir
Jónsson, eigandi Holtakjúklinga.
Að sögn Bjama er algengasta heild-
söluverð á kjúklingum nú um 296
krónur kílóið en var um 260 krónur
fyrir tveimur árum. „Að mínu mati
þyrfti að hækka verðið um 7 prósent
á næstunni vegna fóðurbætisskattsins
hjá okkur kjúklingabændum. En
hvort markaðurinn tæki við slíkri
hækkun er óvíst enda er samkeppnin
hörð og fremur hreyfing til verðlækk-
unar en hitt.“
Bjami segir að kílóið af kjúklinga-
fóðri kosti núna 24 krónur, þar af fari
12 krónur beint í fóðurbætisskattinn.
-JGH