Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1987, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1987.
Hafið allt við höndina sem þarf aö nota og geymið á köldum
stað þar til kemur aö hverju fyrir sig.
Það er alltaf matsatriði hvernig á að brytja mörinn. Sumir vilja
hafa hann gróft brytjaðan en aðrir mjög smátt. Eitt er víst að
hann verður að vera með en reynið samt að fara sparlega
með hann.
Það er heilmikið „subbuverk" að sauma fyrir. Verið óspör á
að þvo ykkur um hendurnar á meöan á þessari matreiðslu
stendur. Hreinlæti borgar sig.
Rúsínuslátur í Rómaborg
Marga rak í rogastans þegar í ljós
kom aö á veislumatseðli forsetans í
Rómaborg var m.a. boöið upp á steikt-
an rúsínublóðmör með kanil! Með
blóðmömum vom borin fram steikt
epli. Þetta fannst okkur á neytendasíð-
unni skemmtilegt, bæði að þora að
bjóða upp á jafhþjóðlegan og skemmti-
legan mat og blóðmörinn er og
sömuleiöis á þetta ömgglega eftir að
lyfta blóðmör og öðrum haustmat á
hærra plan í meðvitund þjóðarinnar.
Fyrst forsetinn getur boðið rómversk-
um riddurum upp á slíkt, því getum
við þá ekki haft þetta á borðum hér
heima hjá okkur?
Þúsund ára munur
á tuttugu árum
Slátur em nú seld í hentugmn
pakkningum, fimm saman. Flestir
kaupa annaðhvort 5,10 eða 15 slátur.
Hver 5 slátur kosta 1200 kr. en 1650
kr. ef keppimir era saumaðir. Það er
auðvitað mjög mikill vinnuspamaður
að því að losna við saumaskapinn. Þar
að auki vill það vefjast fyrir sumum
hvemig á að sníða úr vömbunum
þannig að vel sé.
Svo er hægt að kaupa í slátursölunni
hjá Sláturfélaginu í Skútuvogi 4 auka-
lega af öllum tegundum vörunnar.
Þannig kosta t.d. aukalifrar 160 kr„
sviðnir hausar og sundursagaðir 130
kr. kg„ hjörtu 220 kr„ nýra 60 kr. og
eistu 80 kr. kg.
Ungt fólk, sem tekur slátur í dag,
getur ekki gert sér í hugarlund hvílík
breyting hefur orðið á allri afgreiðslu
þessa þjóðlega matar á síðustu árum.
Það hefur orðið algjör bylting frá því
sem áður var, engu líkara en það séu
liðin þúsund ár á svona tuttugu árum!
Blóðmörinn
Uppskrifti^era sennilega til í hverri
fjölskyldu en ef einhvem skyldi vanta
eina slíka látum við hana fljóta með:
11 blóð
1,5 dl vatn
1 msk. salt
3- 400 gr rúgmjöl
4- 500 gr mör
tæpur pakki af rúsínum.
Síið blóðið. Sumir kjósa að blanda
meira vatni saman við og einnig að
nota eitthvað af hveiti í stað hluta af
rúgmjölinu. Það er líka betra að halda
sig ekki afitof fast við þessa vigt því
ekki er gott að hafa „deigið“ eða hrær-
una, eins og það er kafiað á fagmáli,
afitof þykka. Þá verður blóðmörinn
alltof fastur í sér.
Það hefur þótt ágæt þumalfingurs-
regla að þegar trésleif getur staðið
upprétt í hrærunni er hún hæfilega
stíf.
Og svo er það þetta með mörinn. Það
er ekki gott að hafa alltof mikið af
honum en litíð væri varið í blóðmör-
inn ef enginn væri í honum mörinn.
Skeriu hann ekki of smátt og bætið
honum út í hræruna.
Lifrarpylsan
Mörgum þykir lifrarpylsan miklu
betri en blóðmörinn en þetta jafnast
sennilega út á heimilinum. Okkar upp-
skrift er eftírfarandi:
1 lifur
2 nýru
3 dl mjólk
/i msk. salt
250-300 gr rúgmjöl
150-200 gr haframjöl
ÍVi msk. kjötkraftur
(Toro hefur reynst mjög vel)
350-400 gr mör.
Þama kemur aftur sama spuming
og með blóðmörinn, hve mikið mjöl
er hæfilegt að nota. Sumir vilja hafa
lifrarpylsuna stífa og þá er um aö gera
að nota meira mjöl. Gætíð að því aö
hreinsa stærstu æðamar úr lifrinni
og himnuna utan af nýrunum áður
en hakkað er í hakkavél eða marið í
blandara.
Það má nota sömu regluna með
þykktina, þegar sleifin getur staðið í
henni er hún hæfilega þykk.
Ekki bara kanill og sykur,
líka bráðið smjör
Svo var það þetta með kanilinn. Á
æskuheimili undirritaðrar var alsiða
að nota ekki bara kanil út á slátrið
heldur einnig kanil blandaðan sykri
og brætt sxnjör út á afit saman. Þetta
hljómar ef til vill einkennilega en satt
að segja er þetta mjög gott. Þessi siður
er víst kominn frá Danmörku. Þar var
allur matur nýttur í gamla daga rétt
eins og hér og búin til blóðpylsa. Hún
var þá gjaman úr kálfa- eða svínsblóði.
Þá þóttí einnig mjög gott að borða
kaldan, niðursneiddan rúsínublóðmör
með rabarbarasultu. Góð tifiaga að
prófa það næst þegar þið hafiö „vefiing
og slátur“.
-A.BJ.
Styttri sláturtíð en áður
„Slátursalan verður ekki opin eins
lengi hjá okkur og undanfarin ár því
færra fé er slátrað hér en áður,“ sagði
Ólafur Magnússon sem stjómar slát-
ursölu Sláturfélags Suðurlands,
Skútuvogi 4, í samtali við DV.
„Slátursalan verður opin alla næstu
viku en eftir það er óvíst um hve lengi
veröur opið,“ sagði Ólafur.
Þeir opna í slátursölunni kl. 9 á
morgnana og hafa opið til kl. 6. Á laug-
ardögum er opið kl. 9-12. Það hefur
verið heilmikið að gera í slátursölunni
og þess dæmi að fólk hafi tekið allt
upp í 15 slátur. Nóg hefur verið af
saumuðum vömbum sem er vinsælt.
-A.BJ.
Þess eru dæmi að fólk hafi keypt allt upp 115 slátur. Fimm slátur í kassa kosta um 1200 kr. en 1600 kr. ef vambimar
eru saumaðar, DV-myndir S
Stöðugur straumur var af fólki að kaupa sér slátur.
U pplýsingaseðill
| til samanburðar á heimiliskostnaði
i Hvað kostar heimilishaldið?
i . ., .
| Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
| andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltai heimiliskostnaðar
I fjölskyldu af sömu stærð og yðar.
I
: Nafn áskrifanda
i
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks
i Kostnaður í september 1987:
i______________________
j Matur og hreinlætisvörur
l Annað
kr.
kr.
Alls kr.