Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987.
Frjálst.óháð dagblað,
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr.
Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr.
Arias gegn róttæklingum
Oscar Arias Sánchez er vel aö friðarverðlaunum
Nóbels kominn. Hann er forseti Costa Rica, herlauss
ríkis á ófriðarsvæði Mið-Ameríku, og höfundur friðar-
samkomulagsins 7. ágúst, sem varð grundvöllur aukins
lýðræðis í Nicaragua, er áður var á leið til einræðis.
Arias er betur að verðlaununum kominn en þjóðar-
leiðtogarnir Corazon Aquino á Filippseyjum og Raul
Alfonsin í Argentínu, sem eru meira eða minna undir
hælnum á herforingjum ríkja sinna. Val Ariasar bendir
til, að verðlaunanefndin hafi hugsað málið vandlega.
Róttæklingurinn Reagan Bandaríkjaforseti var sein-
heppinn um daginn, þegar hann reyndi á ýmsan hátt
að lítillækka Arias við komu hans til Bandaríkjanna,
meðal annars með því að láta ekki embættismenn vera
viðstadda, þegar hann ávarpaði bandaríska þingið.
Friðarsamkomulag Ariasar var einnig undirritað af
Ortega frá Nicaragua, Duarte frá E1 Salvador, Azcona
frá Honduras og Cerezo frá Guatemala. Það leggur þess-
um Mið-Ameríkuríkjum ýmsar skyldur á herðar til að
ná friði innan landamæra sinna og milli þeirra.
Hingað til hefur stjórn sandinista í Nicaragua fram-
kvæmt það, sem hún lofaði í samkomulaginu. La Prensa,
óháða dagblaðið, sem barðist áður gegn einræðisherran-
um Somoza og síðan gegn sandinistum, hefur hafið
útgáfu að nýju og er að þessu sinni ekki ritskoðað.
Útvarpsstöð kaþólikka er aftur tekin til starfa. Tals-
manni kaþólsku kirkjunnar, Bismarck Carballo, hefur
verið hleypt inn í landið að nýju. Kardínálinn og stjórn-
arandstæðingurinn Miguel Obando y Bravo hefur verið
gerður að formanni svokallaðrar Þjóðarsáttarnefndar.
Margt bendir til, að sandinistar séu meira að snyrta
á yfirborðinu en undir niðri. Nýlega voru handteknir
Lino Hernandez, formaður mannréttindanefndar lands-
ins, og Alberto Saborio, forseti lögmannafélagsins.
Lögregluhundum er sigað á mannréttindafundi
Þegar Cruz Flores frá La Prensa tók mynd 15. ágúst
af lögregluhundum, sem sigað var á friðsamt fundar-
fólk, var filman gerð upptæk og ljósmyndaranum varpað
í svartholið. Það er í ýmsu slíku afar grunnt á stalín-
ismánum í sandinisma stjórnvaldanna í Nicaragua.
Sandinistar treysta völd sín með því að skipa hvar-
vetna hverfisnefndir sandinista, sem hafa tvenns konar
hlutverk. Þær útdeila nauðsynlegum skömmtunarseðl-
um til sumra, en ekki annarra. Og þær gefa skýrslur
til leyniþjónustunnar um stjórnmálaskoðanir fólks.
Raunar hafa sandinistar ekki lýðræðislegt umboð til
að fara með völd í Nicaragua. Stjórnarandstaðan tók
ekki þátt í síðustu kosningum, af því að sandinistar
réðu öllum íjölmiðlum landsins og beittu slagsmálaliði
til að hleypa upp fundum stjórnarandstöðuflokkanna.
í þessum efnum skjóta sandinistar sér á bak við Reag-
an Bandaríkjaforseta. Þeir segjast verða að láta hart
mæta hörðu, því að hann haldi uppi sveitum skæruliða
í landinu. Þetta eru svonefndir Contras, hópar ribbalda
undir stjórn glæpamanna frá Somoza-tímanum.
Bandaríkin ættu að reyna að bæta fyrir brot sín frá
Somoza-tímanum með því að stuðla að friði í Nic-
aragua. í staðinn bætir forsetinn gráu ofan á svart með
því að halda uppi glæpasveitum Contras með löglega
og ólöglega fengnu fé, meðal annars frá vinunum í íran.
Arias verðlaunahafi hefur hins vegar sómann af að
hafa tekizt að vinda lítillega ofan af ósómanum, sem
róttækhngar Reagans og sandinista hafa undið upp.
Jónas Kristjánsson
Frá „slagveðursgöngunni" í Mosfellsbæ. Farin til að vekja athygli, ekki til að mótmæla.
Umferð í þéttbýli
Unvferðarijds eða hringtorg?
Nýlega tók ég þátt í slagveðurs-
göngu í Mosfellsbæ til að vekja
athygli á tíðum og alvarlegum slys-
um þar sem Vesturlandsvegur
liggur í gegnum þéttbýlið. Með þess-
ari göngu var ekki verið að mótmæla
einu eða neinu eða hafa uppi kröfur,
aöeins að vekja okkur sem við þetta
búum og aðra er leiö eiga um þenn-
an vegarpart til umhugsunar um
ástandið og hvað væri til úrbóta.
Þaö var ekki laust við að mér
hnykkti við þegar mér varð ljóst að
margir göngumanna voru með í för-
um til aö segja bOaumferð stríð á
hendur! Hvar værum við Mosfell-
ingar staddir ef bUaumferðar nyti
ekki við, og ef hún væri ekki svo
greið sem hún þó er?
Vissulega vUdum við fegnir sjá af
gegnumakstrinum gegnum bæinn
okkar og má í því sambandi minna
á að þegar núverandi þjóðvegur var
lagður þar sem hann er var það tU
bráðabirgða til að spara peninga.
Samþykkt aðalskipulag gerir ráð
fyrir aUt öðru fyrirkomulagi. Ég fyr-
ir mitt leyti vUdi koma umferðinni
vestur og norður fyrir okkur niður
að sjó, eöa allra helst, eins og stung-
ið hefur verið upp á, út í Geldinganes
og þaðan á brú yfir á Kjalames. En
þangað til niðurstaða er fundin og
fariö veröur að varanlegu skipulagi
verðum við að læra að Ufa við þessa
umferð og hún við okkur.
Viö verðum líka sjálf að temja okk-
ur mannsæmandi ökusiði, bæði í
bænum okkar og annars staöar. Við
verðum einnig og ekki síður að sýna
fyrirhyggju og aðgát þegar við erum
gangandi, hjólandi, á hestbaki eða
jafnvel á vinnuvélum. Og viö verð-
um að innræta bömunum okkar
þetta líka.
Hjólaði fyrir bii
Fyrir nokkrum árum varð eitt
bama minna fyrir bU á þessum kafla
Vesturlandsvegar. Það hjólaði fyrir
bU sem á eftir því kom á mjög skikk-
anlegri ferð. Veslings bUstjórinn gat
ekkert gert til að afstýra þessu. Sem
betur fór varð ekki slys á fólki í
þessu ttiviki, aðeins eignatjón. Þama
var „hinni vondu btiaumferð” ekki
um að kenna, aðeins kunnáttuleysi,
ábyrgðarleysi og aðgæsluleysi af-
komanda míns.
Hann er ekki einn um svona
glópsku, því miður. Oft hefur hlotist
verra af glópskunni en í þetta skipti.
Hins vegar er okkur, sem eigum
heima í Hhðartúni, enn til undrunar
hvers vegna ekki er lagað agnarögn
til meðfram veginum, svo þar komi
þægUeg göngu- og jafnvel reiðhjóla-
braut upp að miðbænum. Það heföi
Kjallariim
Sigurður Hreiðar
ritstjóri
ekki þurft að laga ljósleiðaraskurð-
inn frá í sumar svo ýkja mikið að
ofan til þess að gera á honum ágæta
braut til þessara nota, mestan hluta
leiðarinnar.
Hringtorg fýsilegur kostur
Nú les maður í blöðum að til standi
aö gera okkur undirgöng á móts við
Brúarland og umferðarljós á gatna-
mótum Vesturlandsvegar og Þver-
holts/Reykjavegar. Eflaust verður
þetta til bóta. Ef vel ætti að vera
þyrfti að fá fleiri umferðarljós á
Vesturlandsveg: við Hlíðartún,
Langatanga, Þverholt, Álafossveg,
Ásland og ÞingvaUaveg. En þetta
blöskrar mönnum efalaust og fæst
Uklega seint.
Ekki fyrr en eftir allnokkur slys í
viðbót.
Ennþá betra en umferðarljós væri
að fá góð hringtorg á einhverja af
þessum stöðum, svo sem staðinn þar
sem nú er gefið fyrirheit um ljós.
Raunar er undrunarefni hvers
vegna hringtorg eru ekki notuð
meira en raun ber vitni. Það sýnir
sig á helstu hringtorgum Reykjavík-
ur að þau flytja ótrúlega mikla
umferð og hafa þann augljósa kost
umfram umferðarljós að hleypa
umferðinni hindrunarlaust í gegn
þegar hún er lítti.
Hringtorg eru daglega að sanna
gUdi sitt í umferðinni í Reykjavík.
Umferð um þau tefst minna heldur
en þar sem ljós eru. Þar við bætist
að slys á þeim eru fátíðari en sam-
bærUegum gatnamótum þar sem
umferð er stjómað með ljósum. Árin
1971 til 1979 urðu 370 umferðaróhöpp
á MUdatorgi og 7 manns slösuðust.
Á sama tíma urðu 390 óhöpp á gatna-
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar en 48 manns
slösuðust, auk þess sem eignatjón
varð miklu meira. Nýrri tölur era
mér ekki handbærar en ég þori að
fuUyrða að þær hafa ekki breyst
umferðarljósum í hag.
Stórfelld fækkun slysa
Erlendis er reynslan sú að slysum
fækkar við að breyta ljósagatnamót-
um í hringtorg. í Buckinghamshire
á Englandi voru aðeins þrjú hring-
torg árið 1965. Síðan hefur þeim
verið ftölgaö upp í 150 og yfirvöld
skírisins segja að við það hafi slysum
fækkað um 65% á þessum gatnamót-
um. Annað dæmi er gatnamót í
Gabýl á Suður-Jótlandi í Danmörku.
Þar mættust tvær götur með fimm
akreinum, tvær með tveimur og
tvær með einni, stjómað með um-
ferðarljósum. Þar slösuðust átta á
tveimur síðustu árunum áður en
ljósunum var hent og hringtorg lagt
í staðinn. Næstu tvö árin á eftir slös-
uðust aðeins tveir á þessum stað.
Ég er fuUviss um að í mörgum til-
vikum eru hringtorg heppUegri
kostur en sú hörmung sem gerð er
úr sumum gatnamótum með steypt-
um eyjum inn á miUi akreina og
útvíkkuðum akbrautum út frá þeim
upprunalegu. Dæmi um þetta eru
títtnefndar krossgötur Vesturlands-
vegar og Þverholts/Reykjavegar í
Mosfellsbæ, þar sem þegar hafa orð-
ið hrikaleg slys af því menn hafa
ekki áttað sig á því að svona hindrun
sprettur aUt í einu upp úr miðjum
vegi. Þar að auki hleður snjó að þess-
um upphækkunum og veldur
þæfingi og hálku.
Óskapnaðurinn
við Höfðabakka
Annað svona afstyrmi er nýkomiö
til skjalanna á mótum Vesturlands-
vegar og Höföabakka. Hætt er við
að einhver sem kemur ofan að eigi
eftir í dimmviðri við vondar aðstæð-
ur að lenda á eyjarkleggjanum sem
aUt í einu rís upp af miðri götunni,
þar sem allri umferð er skyndtiega
skotið til hægri. Þar við bætist, sem
fram kom fyrsta frostmorguninn á
þessu hausti, að vatn lekur undan
og meðfram eyjaróskapnaðinum
Reykjavíkurmegin og myndar þar
sveUbunka, einmitt þar sem lykkjan
Uggur af útskotinu aftur upp á eðU-
lega akbraut. Og gatnamálastjóri viU
ekki að við notum nagla.
Enn verri eru þessi gatnamót sjálf-
sagt frá sjónarhóh Árbæinga og
Breiðhyltinga, sem eiga undan halla
að fara og þurfa svo í þokkabót að
aka í J en ekki bara L eins og eðUleg
gatnamót ættu að vera.
Eru svona klastursgatnamót virki-
lega skásti kosturinn?
Sigurður Hreiðar
„Raunar er undrunarefni hvers vegna
hringtorg eru ekki notuð meira en raun
ber vitni.“