Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Side 15
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987.
15
Heima er ekki best -
heima er hættulegasl
Hagstofa EBE rannsakaði fjölda
slysa á bömum í Evrópu og komst
að þeirri niðurstöðu að á ári hverju
verða 20.000.000 (tuttugu milljónir)
bama fyrir slysum í heimahúsum.
Af þeim deyja 20.000 og 30.000 verða
öryrkjar.
En bömin em ekki eini hópurinn.
Gamalt fólk er einnig oft í hættu
þótt ástæðumar séu ekki þær sömu.
Athugað hefur verið að heildarfjöldi
heimaslysa er stærsti ílokkur slysa
á einstaklingum og er það einnig
staðreynd á öllum Norðurlöndum.
Eitt mesta slysalandið er ísland.
Á Norðurlöndum var byijað að
athuga slysafjölda og orsakir slysa
þegar 1975. Samkvæmt rannsóknum
í ýmsum löndum, t.d. Japan, Bret-
landi og Bandaríkjunum, kom í ljós
að upplýsingar um skrásetningu
slasaðra, sem komu á slysadeildir
sjúkrahúsa, vom bestar hér. Hér var
hægt að finna, auk aldurs og kyns,
upplýsingar um tildrög slysa og
siysavalda. Þessar upplýsingar em
nauðsynlegar til að finna aðferðir til
að fækka slysum. Samnorrænar
rannsóknir em íslandi að kostnað-
arlausu. Þrátt fyrir þaö fóm fulltrú-
ar íslands úr samvinnu í rannsókn-
armálum árið 1985 (Utskott for
undersökningssamordning) og er
ástandið nú eins og í þróunarlönd-
um.
Rannsókn á íslandi 1979 var að
fullu greidd af íslendingum. 6 mán-
uði af árinu 1977 var ákveðið að
athuga heimaslys á öllum Norðurl-
öndunum og tók ísland þátt í
rannsókninni sem ég stjómaði.
Slysavaldar vom skrásettir og staðl-
aðir og handbók, sem þá var skrifuð,
er ennþá í notkun.
Hvernig er ástandið á íslandi?
Árið 1980 var ár fatlaðra og því
ákveðið að athuga alls konar slys.
Var mér þá faiið að athuga heima-
slys og ákvað ég að taka saman allar
fáanlegar upplýsingar um sjúklinga
sem komu á slysadeild Borgarspítal-
ans árið 1979 og komu frá „slysstaðn-
um nr. 06 - heimahúsi“. Vora þeir
samtals 8.405 af alls 35.767 manns.
Líklegt er að um 8% þeirra hafi kom-
ið frá öðrum sjúkrasamlögum utan
höfuðborgarsvæðis og 1% vom út-
lendingar (skv. reynslu ára 1980 og
1981).
Þegar dregin em frá slys í heima-
húsum, orsökuð af ölvun, sjálfsá-
verkum og viljandi áverkum frá
öðrum, vom 7.562 manns eftir. Fjöldi
heimaslysa var mun meiri en slys
annars staðar. í umferðarslysum
höfðu lent 1.736 manns. Læknar at-
huguðu slysaorsakir og slysavalda
ogfundu að af þessum 7.562 sjúkling-
um vora 2.305 böm undir fimm ára
aldri. Vegna bráðra sjúkdóma komu
alls 672. Raunverulega slasaðir í
heimahúsum vom því 6.890. Fjöldi
slasaðra var þvi mjög mikill enda
dó 21 þar sem heimaslys var aðalor-
sökin eða samverkandi.
Hvað er hættulegast?
a. Eitrað gas. Árið 1979 dóu 5
manns, þ.m.t. 4 ára bam, af völdum
eitrunar af kolsýringi (kolmonoxide)
sem myndast oft við bruna í húsum
og húsgögnum. Ári seinna dóu tvö
böm af blásýmeitrun. Vindlingur,
sem logaði í, mun hafa dottið niður
milli baks og sætis í stól eða sófa.
Vom húsgögn stoppuð með ullar-
bútum. Prótín brennur með myndun
blásým og dúnn er einnig prótín-
efni. Þetta þýðir að fólk, sem reykir
í rúminu, getur dáið af blásýmeitrun
pg em dæmi um slík dauðaslys á
íslandi, þó ekki í heimaslysum, árið
1979 á höfuðborgarsvæðinu.
b. Fall og hras era algengustu
slysavaldar og má þá benda á tvennt:
hringstiga og fall á jafnsléttu. Gam-
alt fólk dettur oft úr rúmum sínum
og auk þess dettur gamalt fólk af því
að hægindastólar á íslandi era of
lágir og erfitt að standa upp úr þeim
eða setjast niður. Gamalt fólk, sem
fær oft brot á lærleggshálsi, verður
að liggja kyrrt og fær þess vegna
lungnabólgu.
Fallið var því samverkandi dánar-
orsök. Ráðlegt er því að hafa rúm
með grind handa gömlu fólki eins
og á sjúkrahúsum. Eins og í Noregi
er nauðsynlegt að framleiða og selja
á íslandi hægindastóla í tveimur
sætishæðum, minnst 45 cm yfir gólfi,
fyrir fólk á efri árum.
c. Eitranir, þ.m.t. tærandi sár (æt-
isár). Af tærandi efnum er, eins og
allir vita, vítissóti verstur, og hann
má ekki ekki vera í hillum í sjálfsaf-
greiðsluverslunum á íslandi. Næst á
eftir kemur mjög algengt efni, duft
til notkunar í sjálfvirkum upp-
þvottavélum. íslenskur drengur,
Bragi Bragason, 3 ára, er nú þegar
orðinn öryrki af völdum sliks dufts.
Hann getur aldrei framar borðað og
andað á venjulegan hátt. Hann fær
mat og loft gegnum slöngur beint í
maga og beint í lungu. Duftið, sem
bamið neytti, FINISH, var ekki
merkt á íslensku en var merkt með
hættumerkingu og orðinu „Æts-
ende“ á dönsku. Innflytjandi hafði
aldrei tekið eftir þvi. Varan var ekki
merkt, enda ekki til á lista hættulegs
vamings árið 1977. Nauðsynlegt er,
og reglugerð er í deiglunni, að allar
innfluttar vömr, sem eftir innihaldi,
í orðum og myndum sýna hættulegt
efni, verði merktar á islensku og
greinilega allar innlendar vörur. Rétt
er að muna eftir að samkvæmt bygg-
ingarreglugerð frá 1979 ætti að vera
einn læsanlegur, bamaheldur skáp-
ur í öllum íbúðum og er lagt til að
breyta reglugerðinni til að krefjast
tveggja læstra skápa. Það er hægt
og nauðsynlegt að kaupa og setja inn
í alla skápa í eldri húsum lok, sem
bömin geta ekki opnað, og heitir
lokið KINDERGARD.
d. Lyf. Böm taka oft lyf sem þau
þekkja en taka of mikið eða taka
önnur lyf úr ísskápnum og jafnvel
handtösku mömmu eða ömmu. Að-
eins fá lyf, um 4%, er nauðsynlegt
að geyma á köldum stað og em lyfin
þá merkt. Öll önnur lyf ætti að
geyma í læsanlegum lyfjaskáp.
Æskilegt er og að geyma snyrtivörur
þar.
e. Tóbak. Böm leggja sér til munns
allt sem þau geta náð í, þ.á m. vindl-
ingastubba. Því er ráðlegt að hafa í
húsum bamafjölskyldna aðeins
öskubakka með loki.
f. Eitraðar plöntur. í mánuði hveij-
um, jafnvel tvisvar í mánuði, koma
til slysadeildar böm sem hafa borðað
plöntublöð. Skv. skýrslum lyfjafræð-
ings, Ólafs B. Guðmundssonar, og
Blómablaði em varhugaverðustu
heimilisplöntur nería og dieffen-
bacchia (köllubróðir). Nerían getur
orðið fólki aö bana og svipar til cur-
are, eiturs sem indíánar notuðu sem
örvaeitur. Rétt er að hafa engar
plöntur í seilingu bama. í athugun
er að gefa út reglugerð, eins og ann-
ars staðar á Noðurlöndum, um að
hættulegar plöntur verði merktar
við sölu.
KjaUariim
Eiríka A.
Friðriksdóttir
hagfræðingur
g. Köfnun vegna matarbita sem
festist í hálsi. Nokkur dauðaslys í
heimahúsum verða áriega vegna
þess að matarbiti festist í hálsi fólks
og er þetta algengast hjá öldmðu
fólki og vangefnum. Nauðsynlegt er
að athuga að fæða þessa fólks sé
smáskorin og öll bein tekin burt úr
harðfiski.
h. Brunasár. Smáböm brennast oft
er þau sitja í kjöltu fullorðinna sem
em að drekka heita drykki. Böm
eiga að sitja í bamastólum þegar
svona stendur á. Önnur brunasár
orsakast af því að eldunarplötur og
eldavélar em heitar án þess að tekið
sé eftir því. Æskilegt væri því að hér
fengjust „handrið" um yfirborð elda-
véla og öryggisnet við bökunarofna
eins og fást annars staðar á Norður-
löndunum.
i. Almennt er æskilegt að heimilis-
fólk athugi heimilið gaumgæfilega
til þess að finna slysavalda. Rétt er
að benda á að EBE hefur ákveðið
að gera árið 1988 að ári um bamaör-
yggi. Talið er að hægt sé að koma í
veg fyrir 90% heimaslysa á bömum.
Vonandi getur ísland tekið þátt í
þessu.
Aðalnauðsyn
Afar nauðsynlegt er að kyrrna
hættuna almenningi. Best og ein-
faldast er að nota sjónvarpið, ekki
þó í formi fyrirlestra heldur með því
að sýna slysavalda. Nauðsynlegt er
og að kenna í bamaskólum. Bama-
sérfræðingar halda að æskilegt sé
að nota forvitni 9 ára bama og fræða
þau um slysahættu á heimilum.
Bömin munu þá tala við foreldrana.
Eirika A. Friðriksdóttir
„Þegar dregin eru frá slys 1 heimahús-
um, orsökuð af ölvun, sjálfsáverkum
og viljandi áverkum frá öðrum, voru
7.562 manns eftir.“
Launamisréttið í þjóðfélaginu
Kennarar era uppalendur nútím-
ans. Kennarar em í því hlutverki
að matreiða þurr fræði ofan í nem-
endur, sem alast upp hjá fóstmm en
ekki foreldram, á þann hátt að þau
hafi uppeldisgildi. Skyldi þetta vera
fag í Kennaraháskólanum? Er þetta
metið til launa hjá kennurum?
Kannski em laun kennara metin á
svipaðan hátt og hlutverk mæðra
áður eða laun fóstra núna?
Að bera ábyrgð
Hvemig skyldi það vera með þá
sem bera ábyrgð á því að bömin
geti tekið við stjóm landsins? Vita
þeir kannski of vel hvað það vantar
mikið upp á að uppeldisaðstæður
geti talist eðlilegar? Kannski berum
við öll ábyrgð á því að fólk geti ahð
upp böm á heilbrigðan hátt. íslend-
ingar hafa séð sér leik á borði og
viðhaldið gömlu hjúastéttinni. Gam-
alt fólk, þurfamenn og „ólánssamar"
konur og menn af ýmsu tagi gamla
tímans gegndu því hlutverki að taka
að sér skítverk og annað sem þurfa
þótti á heimilum ríkara fólksins.
Þetta var fátækt fólk sem réð sig í
vist og gaf sitt lífsstarf fyrir brauð-
mola og húsaskjól sem mætti afgangi
hjá ríka fólkinu. Við íslendingar er-
um fínt fólk. Reyndar danskir,
norskir, breskir, irskir og bandarísk-
ir, allt eftir því sem hentar aðstæð-
um. Þeir norsku kenna sig við
Harald hárfagra, þeir keltnesku við
Arthúr og riddara hringborðsins og
þeir bandarísku við Rockefeller, síð-
an kenna þeir dönsku sig við Ingiríði
Kjállariim
Magnús Einarsson
nemi
drottningu þótt hún sé sænsk, við
kaupum það besta og dýrasta frá
þessum löndum og reisum hallir til
að minna okkur á ættemið.
Síðan vinsum við úr og þeir sem
koma úr höllunum í ljótum fótum
með fáa poka eða fara ekki í höllina
geta kennt sig við meinlætalifnað
papa, útlegumenn í óbyggð eða lagst
svo lágt að vera af ribböldum frá
Noregi.
Gáfaða fólkið er fyrir utan og ofan
þetta allt og vitnar í fomaldarfræði
Snorra Sturlusonar og ádeilur
Halldórs Laxness. Nú er svo komið
að íslendingar hafa komið gáfaða
fólkinu og þessum utanveltu fyrir í
því gati sem myndaðist í stéttasam-
félaginu þegar húsmennska lagðist
ai'.
Gáfaða fólkið
Sá hlær best sem síðast hlær, segja
þeir sem skála í höllunum þessa
dagana og gáfaða fólkið rembist,
skuldugt, við að ala upp bömin sín
í mismunandi illa búnum stofnmv
um og þeir utanveltu verka fiskinn
og ræsta hallimar.
Þetta fólk mætir „macarthy-isma“
er það berst fyrir hærri lamium og
er allt gert að kommum, fjárhagsleg-
um afætum og þjóðaróvinum 1,2 og
3, líkt og sauðkindin voðalega sem
étur upp skóga, gras og ríkiskass-
ann.
Og síðast en ekki síst er þessari
vondu verðbólgu vísað til fóður-
húsanna, til gáfaða fólksins sem
fann upp þetta stórvarasama hug-
tak, að vont sé að eyða um efni fram.
íslendingar koma gáfaða fólkinu
bara fyrir í stofnunum og láta það
sjá um að ala upp og fræða böm,
unglinga og fullorðna og borga því
lúsarlaun svo hinir geti verið aðall
í fínum og flottum höllum í friði.
Síðan er sagt að þetta sé hvort sem
er bara endemis menntasnobb og
upp til hópa fólk, sem aldrei taki til
hendinni, heldur kjafti frá sér allt
vit og spilli bömunum. Óhæfir upp-
alendur og sanngjamt að láta það
tína brauðmolana sem hrökkva af
veisluborði hallarinnar. Gáfað fólk
(menntafólk), og utanveltu, hefur
sama stimpil í stéttasamfélaginu og
SÍS hefur í viðskiptaheimi landsins,
dálítið dökkan.
Rangtgildismat
Kannski skiptir það ekki máh að
heilbrigt fólk ali upp og fræði heil-
brigð böm? Kannski er fíni bíllinn
nágrannans merkilegra markmið en
að ala bömin upp á heilbrigðan hátt.
Það skiptir e.t.v. meira máli aö borga
minni skatt til uppeldismála en aö
geta ekki keypt video. Eða að vinna
mikla eftirvinnu til að borga af fína
bílnum og einbýlishúsinu en að leyfa
baminu sínu að kynnast sér.
Það er e.t.v. hærra markmið að
efla umfang sálfræðiþjónustu fram-
tíðarinnar svo að það slái við
mennta- og uppeldiskerfinu. Og að í
framtíðinni verði ekki hægt að bæta
laun kennara og fóstra svo að hæft
fólk fáist til að vinna þau störf, án
þess að fóma sér og fá skömm í hatt-
inn vegna þeirrar einfóldu ástæðu
og félags- og sálfræðiþjónusta fram-
tíðarinnar taki of núkhm toll af
skattpeningum.
Hvers vegna ekki að hætta, áöur
en það verður um seinan, efla um-
ræðu um þessi mál svo að eftir sé
tekið, því breytinga er þörf. Það hef-
ur skapast ringulreið. Þetta em bæði
stór orð og sterk, en sterkur litur
sést betur en daufur.
Gildin era vitlaust metin. Peningar
ráða miklu en ef peningar geta ráðið
öllu hvar er þá maðurinn?
Það er auljóst að það er ekkert
slæmt að vinna vel og koma sér
áfram og verða ríkur, það hlýtur að
stuðla að jákvæðri samkeppni og
einnig hlýtur það að velja úr þá
hæfústu til að velta peningum. En
að ríkið sem atvinnurekandi uppeld-
is og ff æðslu i landinu leggi sig fram
um að bjóða léleg laun og starfsað-
stöðu leiðir auðvitað til þess að
samkeppni og val í þessum atvinnu-
greinum verður neikvætt.
Og á hveijum bitnar það? Bömum
sem eiga að taka við baráttunni,
bömum sem eiga eftir að berjast um
hver velti mestum peningum eða ali
best upp og fræði böm. Hver á að
borga brúsann þegar peningamir
fara að stjóma sjálfum sér og fólki
sem kann hvorki aö fara með pen-
inga né böm?
Gildin em vitlaust metin. Er það
eðlilegt í þjóðfélagi á tuttugstu öld
sem á að vera svo vel upplýst? Eflum
umræðu um þessi mál.
Magnús Einarsson
„Það skiptir e.t.v. meira máli að borga
minni skatt til uppeldismála en að geta
ekki keypt video.“