Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Síða 17
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987.
Menning
17
Songvaraemi
Elin Ósk Óskarsdóttir:
Undirl. Ólafur Vignlr Albertsson.
Útg: örn og örlygur.
Þá eru jólaplötumar komnar á
markaöinn, sumar aö minnsta kosti,
enda vetur í bæ. Sú fyrsta sem okk-
ur barst á fóninn er íslenskt og erlent
söngvasafn með Elínu Ósk Oskars-
dóttur sópran og Ólafi. Vigni Alberts-
Hljómplötur
Leifur Þórarinsson
syni píanóleikara. Það eru Öm og
Örlygur sem gefa plötuna út, en hún
mun hljóðrituð í Hlégaröi, af Hall-
dóri Víkingssyni og skorin og þrykkt
af Teldec í Hamborg. Elín Ósk vakti
mikla athygli þegar hún söng Toscu
í Þjóðleikhúsinu í fyrra. Vora menn
sammála um að þama væri komið
mikið söngvaraefni sem spennandi
væri að fylgjast með. Síðan hefur
bæði heyrst í henni á sinfóníutón-
leikum og á tónleikum Kammer-
sveitar Reykjavikur og olli það
engum vonbrigðum. Og það er held-
Elin Ósk Óskarsdóttir.
ur ekki rétt að segja að þessi fyrsta
plata Elínar valdi beinlínis von-
brigðum þó hún veki þá hugsun að
vissara sé að fara varlega í þessa
sálma. Á grammófónplötu veröur
skiljanlega engu breytt, þar em allir
kostir og gallar greyptir svo lengi
sem plastið endist, sem stundum er
alltof lengi.
Það sem lýtir helst söng Elínar
Óskar á þessari plötu, sérstaklega í
lögum eftir Sigfús Einarsson, Kalda-
lóns og Pál ísólfsson, er óskýr
framburður texta og einhæf radd-
beiting. Það er svosem ekkert nýtt
að ungir og upprennandi ópera-
söngvarar tapi sér í „vókalisum"
suður á Ítalíu. Það tilheyrir kannski
náminu að mýkja samhljóðana svo
að ekki heyrist orðaskil. En oftast
lagast þetta þegar fram líða stundir
og það er ekki ólíklegt að Elín Ósk
eigi eftir að syngja margt fallegt á
íslensku. Einhæf raddbeiting, með
þungu „víbrató“, er líka (vonandi)
stundarfyrirbæri hiá söngkonunni,
hún hefur það mikla og eðlilega nátt-
úrurödd að henni ættu að vera
flestar aðrar leiði færar.
Útlenska músíkin er öll frá Ítalíu,
söngvar eftir Tosti og aríur úr óper-
um eftir Verdi og Puccini. Þar er
túlkunin líka dálítið einhæf, þung,
blæbrigðamunur í lágmarki.
Undirleikur Ólafs Vignis gefur
ekki tilefni til langrar umræðu, hann
er vandaður en vekur ekki sterkar
tilfinningar. I,.Þ.
FERÐAKLÚBBURINN 4x4
HELDUR
SÝNINGU
MEÐ ÞÁTTTÖKU ÝMISSA FYRIRTÆKJA
16.-18. okt:
w
I
REIÐHÖLLINNI VÍÐIDAL
Hafsteinn Austmann - Eftir regn, vatnslitamynd, 1987.
Kliðfastar og hugljúfar
Sýning Hafsteins Austmanns í Gallerí íslensk list
Hafsteinn Austmann verður að
telja úthaldsbestan íslenskra af-
straktmálara og um leið þann
fágaðasta þeirra. í meir en þijátíu
ár hefur hann rækt og ræktað sína
fínlegu afstraktlist, án þess að skeyta
hætishót um tískusveiflur í heims-
listinni, hvaö þá um hina svokölluðu
„fígúratífu skírskotun“ sem raskað
hefuí ró margra góðra listamanna.
Hafsteinn hóf myndlistarferil sinn
um miðjan sjötta áratuginn undir
merkjum strangflatalistarinnar, en
í kjölfar hinnar ljóðrænu afstrakt-
listar tók hann að mýkja allar
áherslur í myndum sínum.
Við upphaf sjöunda áratugarins
var Hafsteinn búinn að fhma sér
gullinn meðalveg milli harðlínu-
stefnu og mýktar í málaralist sinni.
Það gerði hann með því að við-
halda hinu bjarta, stundum við-
kvæmnislega litrófi sínu og
aðlaðandi áferð, en slá utan um þetta
tvennt gfidum innviðum í „flug“-stíl
Þorvalds Skúlasonar.
Þannig lukkaðist Hafsteini aö gera
myndir sínar bæði ramm- og fín-
gerðar. Síðan hefur hann veriö við
þetta sama heygarðshom.
MyncUist
Aðalsteinn Ingólfsson
Vissulega má margt gott segja um
þessar myndir Hafsteins. Þær em
pottþéttar tæknilega, yfirleitt bjartar
í litum og kvikar í teikningu, nokkuð
svo nærverugóðar, hvort sem er á
heimili eða á opinbemm vettvangi.
Þeim má líkja við kliðfasta og hug-
ljúfa Vínarmúsík Roberts Stoltz.
Sem er lika helsti gallinn viö þær.
Hingað til virðist Hafsteinn hafa
haft litla löngun til að breyta til, ýta
við sjálfum sér eða okkur, né heldur
að kafa undir þetta áferðarfallega
yfirborð sem hann hefur gert að sér-
grein sinni.
í seinni tið er þó eins og Hafsteinn
sé á höttunum eftir traustari kjöl-
festu fyrir málverk sín og frjálslegri
vinnubrögðum i vatnslitunum.
Málverkin era mörg massífari í
útiiti en áður og ískyggilegri í litum
og vatnslitimir hafa að hluta til hrist
af sér staðlaða myndskipan á la Þor-
valdur og teygja sig um gjörvalla
pappírsörkina á la Kristján Davíðs-
son.
Sýning Hafsteins á vatnslitamynd-
um í Gallerí íslensk Ust við Vestur-
götu er eins og mitt á milfi þeirra
tveggja vita sem hér hafa verið
nefndir, með tilheyrandi kostum og
göllum.
í tilefni af sýningunni hefur Usta-
maðurinn gefið út vandaða, Utprent-
aða sýningarskrá sem fengur er að.
-ai
SÝND VERÐA FARARTÆKI FÉLAGSMANNA
ÁSAMT ÚRVALI NÝRRA OG BREYTTRA BÍLA
AÐGANGSEYRIR KR.300.-
FRÍTT FYRIR BÖRN YNGRIEN 12ÁRA
í FYLGD FULLORÐNA
KEPPT VERÐUR í
AKSTRI FJARSTÝRÐRA BÍLA
OG MARGT FLEIRA VERÐUR Á
BOÐSTÓLUM
OPIÐ
FÖSTUD. KL.16-22
LAUGARD. OG
SUNNUD. KL. 10-20