Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1987, Blaðsíða 32
32 ■
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1987.
Tippað á tólf
York hefur ekki
unnið enn
Nú, þegar um þaö bil íjórðungi
keppnistímabils ensku knattspym-
unnar er lokiö, er rétt aö staldra viö,
lita yfir farinn veg og kanna það
helsta sem vekur athygli í sambandi
viö árangur liöanna.
í 1. deild er Q.P.R. enn efst með 25
stig eftir 10 leiki, í 2. deild er Brad-
ford efst með 29 stig eftir 12 leiki, í
3. deild er Walsall efst ásamt North-
ampton, Bristol City og Sunderland
með 22 stig eftir 12 leiki og í 4. deild
er Scarboro efst með 25 stig eftir 12
leiki. Öll liðin 96 hafa tapað að
minnsta kosti einum leik nema Liv-
erpool. York í 3. deild og Hudders-
field í 4. deild eru einu liðin sem
ekki hafa enn unnið leik. Ekkert hð
hefur tekið afgerandi forustu í sinni
deild en Láverpool hefur besta árang-
ur liða enn sem komið er, 91,6%
stiga. York er með verstan árangur,
8,33% stiga. Annars er besti og versti
árangur liða í hverri deild þessi: I
1. deild er Liverpool með bestan ár-
angur, 91,66% stig, en Charlton er
með versta árangurinn, 16,66% stig.
í 2. deild er Bradford með bestan
árangur, 80,55% stig, en Hudders-
field með verstan árangur, 15,15%
stig. í 3. deild eru Northampton,
Bristol City, Walsali og Sunderland
með bestan árangur, 61,11% stig, en
York með verstan árangur, 8,33%
stig. í 4. deild er Scarboro með best-
an árangur, 69,44% stig, en Newport
með verstan árangur, 13,88% stig.
Þess má geta að Scarboro var utan-
deildaiið í fyrravetur en komst upp
í 4. deild í vor. Gillingham í 3. deild
hefur skorað flest mörk i deildunum
fiórum, alls 32 mörk í 12 leikjum, en
Southend í 3. deild hefur fengið á sig
flest mörk, alls 34 í 12 leikjum. Here-
ford hefur skorað fæst mörk, sjö í
tólf leikjum, en er þrátt fyrir það
með 14 stig og hefur unniö fjóra leiki
Aston Villa hefur ekki enn unnið
leik á heimavelli í 2. deild, gert þrjú
jafntefli og tapað þremur, en hefur
unnið fimm leiki á útivelli. Reading
er í næstneðsta sæti í 2. deild, hefur
skorað níu mörk og fengið níu stig.
York í 3. deild hefur fengið á sig flest
mörk á heimavelli, þrettán í fimm
leikjum.
> Q Mbl. Tíminn > *o :° !qT Dagur Bylgjan Rikisútvarp Stjarnan CM •O :0 GO
LEIKVIKA NR. 8
Charlton Derby ... 2 X 2 2 1 2 1 X X
Chelsea Coventry ... 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Liverpool QPR ... 1 1 1 1 1 1 1 X 1
Luton Wimbledon ... 1 2 X 1 1 1 1 X 1
Manch Utd Norwich ... 1 1 1 X 1 1 1 1 1
Newcastle Everton ... 2 2 2 2 2 2 1 2 X
Nott Forest Sheff Wed ... 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Oxford West Ham ... 1 1 1 2 X 1 1 2 1
Southampton Watford ... 1 X 2 1 1 1 1 2 1
Barnsley Hull ... 1 1 X 1 1 1 1 X 1
Plymouth Leeds ... 2 2 1 1 X 1 2 2 X
Sheffield Utd... Leicester ? X X 2 1 X 1 1 1
Hve margir réttir eftir 7 leikvikur: 40 37 30 34 34 36 34 8] 34
<^«TIPPA& ,
ATOLF
Umsjón: Eiríkur Jónsson
Enska 1. deildin
L U HEIMALEIKIR J T Mörk U ÚTILEIKIR J T Mörk S
10 4 1 0 9 -2 QPR 4 0 1 7 -3 25
8 4 0 0 13 -2 Liverpool 3 1 0 11 -4 22
10 4 0 1 13 -2 Arsenal 2 2 1 5 -3 20
11 3 2 0 8 -3 Manch Utd 2 3 1 11 -8 20
10 1 2 1 4 -4 Nott Forest 5 0 1 12 -5 20
11 5 0 0 11 -2 Tottenham 1 2 3 4-6 20
11 4 1 0 12-6 Chelsea 2 0 4 9 -11 19
11 4 1 1 12 -4 Everton 1 2 2 6 -4 18
9 2 1 2 4 -8 Coventry 3 0 1 7 -4 16
10 3 0 1 11 -7 Oxford 1 2 3 3-9 14
11 3 2 1 10-9 Portsmouth 0 2 3 2-14 13
10 1 3 1 8 -6 Wimbledon 2 0 3 4 -7 12
10 1 2 3 3-5 Derby 1 2 1 4 -7 10
11 2 1 3 7 -8 Norwich 1 0 4 1 -7 10
9 1 0 3 4 -8 Newcestle 1 3 1 7 -8 9
11 1 3 1 6 -6 Luton 1 0 5 6-12 9
10 1 3 2 5-7 West Ham 0 2 2 4 -6 8
9 1 2 2 2 -5 Watford 1 0 3 3-6 8
9 0 2 2 . 3 -8 Southampton 1 2 2 8 -9 7
11 1 1 4 7 -12 Sheff Wed 0 2 3 4-11 6
10 1 0 4 3-9 Charlton 0 2 3 5-11 5
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk u J T Mörk S
12 5 1 0 12 -3 Bradford 4 1 1 9-6 29
12 5 2 0 12 -6 Hull 3 1 6-5 23
12 4 1 1 13 -7 Crystal Pal 2 2 2 13-9 21
12 3 2 1 9-3 Swindon 3 1 2 10-10 21
12 3 2 1 9 -4 Middlesbro 3 0 3 8 -7 20
13 0 3 3 3-7 Aston Villa 5 1 1 13 -5 19
12 4 1 0 8 -3 Ipswich 1 3 3 4 -6 19
12 3 3 1 8 -9 Birmingham 2 1 2 7 -7 19
13 4 2 1 9 -5 Stoke .'. 1 2 3 1 -7 19
12 4 1 0 12-5 Millwall 1 2 4 4-11 18
12 2 2 2 7 -6 Sheffield Utd 3 0 3 9-10 17
11 4 0 2 16 -8 Manch City 0 3 2 3 -7 15
12 2 1 2 6 -6 Barnsley 2 2 3 4 -6 15
13 3 2 2 5"-5 Leeds 0 4 2 2 -5 15
12 3 2 2 10-5 Leicester 1 0 4 7-11 14
13 2 2 2 7 -7 Blackburn 1 3 3 8-11 14
13 3 1 3 9 -6 WBA 1 1 4 7 -14 14
11 1 3 1 4 -3 Shrewsbury 1 4 1 3 -4 13
13 2 3 1 12 -8 Plymouth 1 1 5 6-14 13
12 2 2 2 11 -8 Bournemouth 1 1 4 3 -11 12
12 3 2 1 8 -7 Oldham 0 1 5 1 -11 12
11 1 0 4 6 -7 Reading 1 3 2 3 -9 9
11 0 3 3 4 -9 Huddersfield 0 2 3 6-14 5
Clive Allen hefur verið frekar róleg-
ur við mark andstæðinganna í haust
en hann hefur einnig verið meiddur.
í fyrravetur skoraði hann 49 mörk
fyrir Tottenham.
Pott-
urinn
bíður
Vegna geysilegs vatnselgs á Bret-
landi varð að fresta þremur leikj-
um sem voru á getraunaseðlinum
um síðustu helgi. Kastað var upp
teningi til að fá fram úrslit. Meðal
þessara leikja var Coventry -
Southampton og samkvæmt ten-
ingnum urðu úrslitin útisigur.
Þessi útisigur banaði flestum tólf-
um þvi einungis fundust fjórar
raðir með ellefu réttar lausnir. 1.
vinningur var 473.098 krónur og
mun hann flyljast áfram í næsta
pott. Annar vinningur var 50.689
krónur á hverja röð. Ef gamla regl-
an um skiptingu vinninga hefði
verið í gildi hefðu ellefu réttir gefið
1/4 af 473.098 krónum eða 118.274
krónur.
Út er kominn bæklingur sem
kynnir hópleik Getrauna. Tipp-
hópunum fjölgaöi í síðustu viku
og eru þeir orðnir 56 alls. Þar af
eru 19 hópar á tölvudiskum og flýt-
ir það mjög fyrir yfirferð eftir að
leikjum er lokið. Það er alls ekki
nauðsynlegt að tippa í hverri viku
til að fá að vera með í tipphópi og
enn er hægt að byrja á hópi.
Kemst Liverpool á toppinn?
1 Charlton - Derby 2
Charltonliðinu tókst naumlega að bjarga sér frá falli i sum-
ar sem leið en Derby kom úr 2. deild. Hvorugt liðið hefur
staðið sig vel en Derby þó betur. Chaxlton hefur einungis
unnið einn leik og gert tvö jafntefh í tíu leikjum. Derby
hefur staðið sig betur og unnið tvo leiki og gert tvö jafn-
tefli. Derby er liklegra til að vinna.
2 Chelsea - Coventry 1
Chelsea hefur staðið sig mjög vel á heimavelli og urvnið
fjóra leiki en gert eitt jafntefli. Coventry hefixr gert góða
hluti á útivelli og unnið þrjá leiki af fjórum. Viðureign
þessara liða er því spennandi. Chelsea er með marga
sókndjarfa leikmerm í liðinu og meðal annarra Gordon
Durie sem hefur skorað sex mörk og Kerry Dixon sem
hefur skorað sjö mörk í þeim ellefu leikjum sem lokið er.
Leikmenn liðsins hafa skorað að minnsta kosti eitt mark í
tíu leikjum af ellefu og markatalan á heimavelli er 12-6.
Heimasigur.
3 Liverpool - Q.P.R. 1
Liverpool hefur tækifæri til að komast á toppinn með sigri
í þessum leik og koma O.P.H. í 2. sæti. Liverpool hefur
staðið sig best allra liða í ensku atvinnumannadeildunum
fjórum og er með 22 stig af 24 mögulegum. Hefur unnið
sjö leiki og gert eitt ja&itefli. Q.P.R. hefur komið á óvart
og hefur liðið unnið átta leiki, gert eitt jafntefli og tapað
einum leik. Nú er það spuming um stöðugleika liðsins og
skapfestu leikmanna. Ég hallast að heimasigri.
4 Luton - Wimbledon 1
Luton og Wimbledon hafa ekki staðið sig eins vel í haust
og í fyrravetur. Wimbledon hefur tapað þremur síðustu
leikjum sínum en Luton hefirr ekki unnið í síðustu fjórum
leikjum sínum. Sóknarleikurinn háir Lutonliðinu en vamar-
leikurinn Wimbledon sem fær á sig fleiri mörk en það
skorar. Heimasigur.
5 Manchester United - Norwich 1
Manchester United halar ixm stig þó að liðið spili ekki eins
sannfærandi og aðdáendur þess hefðu viljað. Liðið hefur
ekki enn tapað á heimavelli. Sóknin er nokkuð góð, nitján
mörk í ellefu leikjum. Norwichliðið hefur verið heillum
horfið í haust. Sigur á Tottenham á laugardaginn bjargaði
þó liðsandanum því §órir síðustu leikir þar á undan töpuð-
ust. Nú er United of sterkt. Heimasigtur.
6 Newcastte - Everton 2
Everton er komið í gang svo um munar og Graham Sharp,
Skotinn marksaakni, hefur skorað sex mörk í tveimur síð-
ustu leikjum. Newcastleliðið er veikt þó svo að brasilíski
knattsnillingurinn Mirra geri mildð fyrir liðið. Það er sama
hvar litið er á Evertonliðið, hvergi er veikur hlekkur. Úti-
sigur.
7 Nott. For. - Sheff. Wed 1
Hið unga lið Brian Clough, Nottingham Forest, er við topp-
inn og hefur liðið unnið sex leiki en tapað tveimur af tíu.
Sheffield Wednesday er allt í óhag og stendur ekki steinn
yfir steini í vöminni sem hefur fengið á sig 23 mörk í 11
leikjum. Það eru að meðaltali tvö mörk í leik. Hér ætti
ekki að verða undantekning. Heimasigur.
8 Oxford - West Ham 1
Hjá West Ham eru erfiðleikar um þessar mundir. Liðið
hefur ekki unnið nema einn leik en gert fimm jafntefli
Fjórir af sex siðustu leikjum hafa endað sem 1-1 jafntefli
en tveir leikir hafa tapast 1-0. Oxford er á nokkru flugi
um þessar mundir, tapaði að vísu fyrir Arsenal á laugar-
daginn en vann þrjá leflri í röð þar á undan. Heimasigur.
9 Southampton - Watford 1
Southampton hefur ekki enn unnið leik á heimavelli sínum
The Dell en þar hefur liðið verið sterkast fyrir undanfarin
ár. Watford hefur að vísu unniö tvo leöri af rúu en liðið
er ekki með nema átta stig. Bæði þessi lið em við botninn
og verða að spjara sig tfl að halda sér í defldinni. Heima-
sigur.
10 Bamsley - Hull 1
Hull barðist við fall í fyrravor en nú er staða liðsins önnur
því Hull er í 2. sæti í 2. deild enn sem komið er og hefur
einungis tapað einum leik í haust. Bamsley gekk vel í
fyrstu leikjum sínum en hefur dalað síðan þá. Ekki hefur
liðinu tekist að knýja fram sigur í síðustu sex leikjum sínum
í deildinni en nú em horfur betri og spáin er heimasigur.
11 Plymouth - Leeds 2
Plymouth og Leeds em bæði í neðri hluta 2. deildar og
hefur ekki gengið eins vel og búist var við fyrirfram.
Leeds hefur til dæmis ekki enn unnið leik á útivelli. Það
sem aðallega háir liðinu er sóknarleikurinn. Plymouth
gengur mjög illa um þessar mundir og hefur liðið ekki
unnið í síðustu átta rimmum sínum í deildarkeppninni. Það
er því ástæða að ætla Leeds fyrsta útisigur sinn.
12 Sheff. Utd. - Leicester 2
Sheffield United er að koma til eftir slæma byrjun. Leicest-
er vann góða sigra á heimavelli fyrir skömmu en hefur
tapað fjórum af fimm leikjum sínum á útívelli. Þrátt fyrir
það er spáin útisigur því Leicesterliðiö er sókndjarft mjög
og hefur skorað 17 mörk í 12 leflcjum. Vöm Sheffield er
að sama skapi slæm og hefur fengið á sig sextán mörk í
12 leikjum. Utisigur.