Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987.
23
Merming
Kristinn Reyr.
Á ánim áður
Auðnuspil.
Lelkrit.
Höfundur: Kristinn Reyr.
Útg. Reykjavík 1987.
í leikritinu Auönuspili er horfið
aftur til stríðsáranna og meinleg
öriög manna látin fléttast saman
við atburði mikilla umbrotatíma í
sögu þjóðarinnar. Einstakar per-
sónur verða fulltrúar ákveðinna
viðhorfa og endurspegla þann
klofning sem hvarvetna mátti sjá
dæmi um meðal fólks á þessum
tíma.
Kristinn Reyr velur sér að sögu-
sviði sjávarpláss þar sem venju-
bundinni tilveru fólks er raskað
þegar erlendir hermenn setja sig
niður í nágrenninu og bjóða fólki
gull og græna skóga. Teflt er saman
sjónarmiðum þeirra sem vilja fara
að öllu með gát í samskiptunum
við hinn erlenda her og hinum sem
haga seglum eftir vindi og eru til-
búnir til að selja land.
En þessi bakgrunnur, sem óneit-
anlega er mjög kunnuglegur,
verður þrátt fyrir mikilvægi sitt
einhvern veginn aukaatriði í þessu
leikriti. Hinn erlendi her, sem
breytir svo mörgu í tilveru þjóðar-
innar, verður aö vísu líka örlaga-
valdur í lífi einstaklinganna. En
það virðist meira fyrir tilviljun.
Aðaláherslan er lögð á samskipti
persónanna í leiknum, einkum eru
það ástaMlin, sem flækja líf þeirra
og örlög á ýmsa lund.
Langt um liðið
Þó að þetta verk sé gefið út nú á
haustdögum bendir ýmislegt til
þess að það sé að grunni til skrifað
mun nær þeim tíma, sem það á að
gerast á. Ef til vill hefði það komið
öðruvísi fyrir sjónir nær „sínum“
tíma og skírskotunin til ákveðinna
atburöa og þar meö ádeiluþáttur
verksins orðið sterkari.
Verkið skiptist í átta atriði og er
í tveimur hlutum. Höfundur notar
þekkta aðferö og lætur tvö fyrstu
atriðin gerast í höfuðborginni þeg-
ar langt er um Uðið frá hinum
örlagaríku atburöum á Tanga,
sjávarplássinu, þar sem meginhluti
leiksins fer fram. Þannig kynnir
hann örlög aðalpersónunnar, Frí-
manns, en víkur síðan sögunni til
fyrri tíma.
Höfundi virðist í mun aö koma á
framfæri ýmsum skeytum og kem-
ur það óneitanlega niður á per-
sónusköpuninni, sem er aUlosara-
leg. Jafnvel Frímann er
brotakennd og óljós persóna og er
þó meiri rækt lögð við hann en
aðra í verkinu.
Svipmyndir
Aðrar persónur eru lítið meira
en svipmyndir. Það gildir líka um
konurnar tvær sem Frímann er í
tygjum við. Önnur þeirra er algóð,
hin alvond, að öðru leyti fá þær
ekki skýr persónueinkenni. Hin
góða hlýtur að falla fyrir erlendri
byssukúlu, hin illa veit að alltaf
má fá annað skip og annaö fóru-
neyti.
Daglegur erill í verbúðarkontór á
Tanga kallar þangað fjölda fólks.
Ákveðin stéttaskipting í plássinu
er gefin til kynna og smáinnsýn
gefst í tilveru þessa fólks. Þessi lýs-
ing á tíðaranda og togstreitu, sem
koma hins erlenda hers skapar, er
að mínum dómi best heppnuð í
Leiklist
Auður Eydal
verkinu, þó að þetta verði aldrei
méira en bakgrunnur fyrir ástamál
Frímanns.
Atburðarásin byrjar í raun-
sæisstíl, en verður með töluverðum
ólíkinum áður en yfir lýkur. Upp-
lýsingar um örlög tveggja aðalper-
sónanna eftir þá feikna atburði,
sem verkið endar á, fást eins og
áöur sagði í upphafi og þar lokast
hringurinn.
Gufar upp
Málfar persónanna er. með ýms-
um brag. „Fóstran" í fyrsta hlutan-
um talar fyrnt mál, óþarflega
fornlegt faunst mér. I seinni hlut-
anum fara aftur á móti saman
mengun hugar og málfars, ensku-
slettur og slanguryrði vaða uppi
og á það ekki illa viö þó að óþarf-
lega væri þykkt smurt á stundum.
En að öðru leyti er textinn víðast
á eðlilegu talmáli.
Helsta brotlömin í leikritinu
Auðnuspili fannst mér vera tog-
streitan á milli mannlega þáttarins
og pólitísku ádeilunnar. Hún verð-
ur þess einhvern veginn valdandi
að hvor þáttur um sig hálf gufar
upp í stað þess aö þessir tveir þætt-
ir styðji hvor annan og magni.
Auðnuspil er gefið út í snyrtilegri
og tilgerðarlegri útgáfu af höfundi
sjálfum. Aftan við leikritið fylgir
lítið lag, sem kemur við sögu í verk-
inu, og er það eftir sama höfund.
•fi*
UMTALAÐASTI MEGRUNARKÚRINN
FÆST í APÓTEKUM OG HEILSUBÚÐUM
Heiöar Jónsson snyrtir: Þetta er sá alsniðugasti, hollasti og áhrifaríkasti
megrunarkúr sem ég hef kynnst.
auglýsingastofa magnúsar ólafssonar
MÁTTUR GEAPE FRUIT ÁVAXTARINS
í MEGRUNARKÚRNUM.
Megrunareiginleikar US GRAPE SLIM
tafnanna koma fyrst og fremst vegna
tilverknaöar trefja grape ávaxtarins. sem
gefur velliðan. - Og þar fyrir utan, flýtir fyrir
meltingunni. Þaö er. styttir þann tima sem
maturinn dvelur i þörmunum, áöur en
likaminn skilar honum frá sér.
Þessl virkun eykst samtimis vegna innihalds
taflananna af kelp (Kyrrahafsþara), lecitini,
eplavinsedikl og þeirra vitamina sem eru i
töflunum..
HVAÐ ER KELP?
Þaö kelp sem notaö er hér, er hinn stóri
brúni hafþörungur(phaeophyta), sem er
ræktaöur i Kyrrahafinu úti fyrir strönd
Kaliforniu. Kelp inniheldur ógrynni af
steinefnum og snefilefnum. Asiu-megin
Kyrrahafsins er kelp í dag nauösynleg
fæöuuppbót fyrir Japani og Kóreubúa, eftir
aö þeir fóru í miklu mæli aö boröa hýöislaus
hrísgrjón. Kelp vegur á móti næringartapi
þess sem heföi verið í hýöi hrísgrjónanna.
Hinn heimsþekkti svissneski náttúrulæknir
og næringarsérfræöingur dr. A. Vogel, segir
í bók sinni ,,Der kleine Doktof", aö kelp, jafni
líkamsþyngdina.
HVAÐ ER LECITIN?
Lecitin veröur til í sojabaunum, svo og
einnig i lifurmannsins. Lecitin finnst i miklu
mæli hjá mönnum, m.a., í taugavefjum og
40% af heilanum samanstendur af lecitin.
Hiö „góöa kólestról", HDL-kólestróliö er
lecitin. Þaö vinnur á móti kransæöastíflu.
Lecitin er fosfatiö, senj virkar sem venjulegt
byggingarefni ifrumhihmum og hvatberum.
Þetta síöasttalda er taliö vera, af hinum
þekkta finnska fjörefna- og steinefnavisinda
manni Matti Tolonen dóser.t, „miniatur
kraftverk" í frumunum. Þau breyta nær-
ingarefnum í vatn, kolsýru og orku.
Lecitin er hluti af varnarkerfi líkamans, þar
sem þaö hemur eitraöar sýrur, sem safnast í
likamanum og geturbrotiöniöurfrumurnar.
Lecitin örvar niöurbrot fitunnar í líkam-
anum, losar á þann hátt líkamann viö
ónauösynlega fitu.
Þessa sömu virkni hafa E-vitamin og B-6
vítamín hér.
HVERNIG VIRKAR E-VÍTAMÍN HÉR?
Fituleysiö og geymt i lifrinni, fituvefjunum,
hjartanu, vöövunum, eistunum, leginu,
blóöinu, nýrnahettum og heiladingli. E-
vítamin er virkt þrávarnarefni, hindrar oxun
fjölómettaöra fitusýra, og oxun A-vítamíns,
selens, tveggja aminósýra sem innihalda
brennistein, auk nokkurs C-vítamíns. Eykur
einnig starfsemi A-vítamíns.
E-vitam ín hjálpar viö aö halda þér unglegum
meö því aö seinka frumöldrun vegna
oxunar. E-vítamín eykur úthald likamans,
og dregur úr þreytu. Kemur i veg fyrir og
leysir upp blóökekki. Virkar sem þvag-
ræsilyf og gæti læknaö of háan blóö-
þrýsting.
HVAÐ GERIR C-VITAMÍN HÉR?
Flest dýr geta myndaö sitt eigiö C- vítamin,
en apar og mannfólkiö veröa aö treysta á
fæöuna. C-vítamín hjálpar öörum
vítamínum til aö vinna betur, þaö gerir
vöövavefjunum kleyft aö breyta fitu í orku -
þannig sparar það aöalorkugjafann
fjölsykru (GLYKOGEN) og eykur á þann
hátt úthald.
HVAÐ GERIR EPLAVfNSEDIKIÐ HÉR?
Þaö er vatnslosandi, en einnig er þaö
nauösynlegur efnaskiptahvati.
HVERNIG VINNA ÖLL ÞESSIEFNISAMAN
f US GRAPE SLIM?
öll þessi efni i US GRAPE SLIM, vinna
saman meö tilliti til aö jafna líkamsþyngd
sem næst kjörþyngd og gefa meiri velliöan
sem hlýst óhjákvæmilega af eölilegra
ástandi meltingarfæranna og likamans.
HVER ER ÁRANGURINN?
Notkun ÚS GRAPE SLIM eins útaf fyrir sig,
getur losaö um 1,5 til 2 kg. á viku hjá fólki
meö þyngdarvandamál, þó breytilegt eftir
einstaklingum.
Meö notkun LEIÐBEINANDI-matseöilsins
sem fylgir hverri dós af US GRAPE SLIM,
eöa uppskriftum úr Scardale-kúrnum eöa
álika, er möguleiki á aö auka þyngdartapiö
um tvöfalt eöa jafnvel rúmlega þaö, 3-5 kg.
fyrstu vikuna.
Til eru viöskiptavinir okkar. sem hafa
grennst um eöa yfir 10 kg. fyrstu 2 vikurnar,
án þess aö hafa farið í svelti eöa fundiö til
tifinnanlegra óþæginda. Þess ber þó aö geta
aö þessar manneskjur þurftu á þessu
þyngdartapi að halda, sér aö skaölausu.
KRISTIN, INNFLUTNINGSVERSLUN
SKÓLABRAUT 1, SÍMI 91-611659,
BOX 290, 172 SELTJARNARNES
HVER ER EFTIRLEIKURINN?
Þegar kjörþyngd er náö, þá borgar sig ekki
aö halda hátíö og útbúa veisluborö meö öllu
því forboöna sem áöur mátti ekki neyta.
Kjörþyngdin er nú oröiö viökvæmt fjöregg,
sem þarf aö venja líkamann viö, og venja
sjálfan sig á næringar- og fjörefnaríkt
fæöuval, og hægt og rólega minnka US
GRAPE SLIM f rá 2 töflum fyrir hverja máltíö,
niöur í 1 töflu fyrir hverja máltiö, þar til aö
skammturinn er oröinn 1 tafla aöeins fyrir
morgunmat (eöa kvöldmat), og hætta svo.
NÚ ERT ÞÚ EIN(N) UM FRAMHALDIÐ.
Ef útaf ber, og þú byrjar aö safna aftur
þyngd, skalt þú ekki örvænta, því þú getur
byrjaö aftur á aö auka US GRAPE SLIM
skamtinn þér aö skaölausu, því US GRAPE
SLIM er ekki lyf, heldur fæöa og fjörefni
fyrst og tremst, og alls ekki vanabindandi.
NOTKUNARREGLUR!
Nákvæmar leiöbeiningar fylgja hverri dós,
ásamt leiöbeinandi mataruppskriftum.
Muniö aö mataruppskriftirnar eru aöeins
LEIÐBEINANDI, og ef breytt er útaf, þáskal
reynt aö hafa þaö sem í staöinn kemur, eins
líkt og hægt er. Þessi kúr er á engan veg
heilagur, og hægt er aö nota hann mjög
auöveldlega hver á sinn hátt, meö
heilbrigöri skynsemi.
2 töflur (3 fyrir magastóra) tyggist vel áöur
en þeim er kyngt, um 30 mínútum fyrir
máltiö. Vatn eöa hreinan ávaxtasafa má aö
skaölausu drekka á eftir.
BANNVARA!
Látiö salt og sætindi eiga sig.
Nóg salt er i matnum til aö sjá fyrir
dagsþörfinni. Salt bindur vatn i líkamanum
og mun því aö nauösynjalausu auka á
líkamsþyngd, þótt ekki sé um raunverulega
fitun aö ræöa. Notiö frekar hunang eöa
gervisætu út í te og kaffi, fremur en hvitan
sykur.
MUNIÐ AÐ US GRAPE SLIM ER MEÐ
ÖLLU SKAÐLAUSTi
Barnshafandi konum er aldrei ráölagt aö
fara i megrun án samráös viö heimilis-
lækninn.
Fólk sem vill losna viö óeölilega mikla
þyngd ætti alltaf aö ráöfæra sig viö
heimilislækninn, sama hver megrunarkúr-
inn er!