Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987.
17
Lesendur
iíl
„Dollarinn er enn einn sterkasti gjaldmiöill heims,“ segir bréfritari. Frá verðbréfamarkaðinum í Chicago i Banda-
Verðbréfahrunið:
Hárgreiðsiustofan Klapparstíg
Pantanasími 13010
Litakynning.
Permanentkynning.
Strípukynning.
Rakarastofan Klapparstíg
Pantanasími 12725
AÐALFUNDUR
verður haldin 24. október að Mjölnisholti 14, efstU
hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Allir
velkomnir.
Þjóðnefnd AUS
ALÞJÓOLEG UNGMENNASKIPTI
Taugatitringur
hér að óþórfu
R.L. skrifar:
Við hina snöggu uppákomu í verð-
bréfamarkaði í New York hinn 19.
þ.m. kom heldur en ekki hreyfmg á
fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Þar
var settur í gang sérstakur umræðu-
þáttur um málið og fengnir til þeir
sem helst máttu kunna skil á fyrir-
bærinu og afleiðingum þess.
Þetta mál var líka tekið fyrir á Stöð
2 og reynt að kryfja málið. Engin
niðurstaða fékkst og kannski allra
síst sú, sem augljóslega var verið að
sækjast eftir, af spumingum frétta-
manna að dæma..
Þannig voru sérfræðingar og aðrir
viðmælendur spurðir hvort ekki
væri nú einhver möguleiki á að þetta
hefði mikil áhrif hér á landi, eða þá
hvort gengi dollarans myndi nú ekki
snarlækka!.
Sá aðili, sem best útskýrði hvað hér
væri um að ræða, var Björn Matthí-
asson, hagfræðingur hjá alþjóðadeild
Seðlabankans, og einnig viðskipta-
ráðherra, Jón Sigurðsson.
Þeir sögðu sem var að þetta verð-
hrun á hlutabréfum í New York hefði
í raun lítil sem engin áhrif hér á
landi. Dollarinn stæöi enn sem einn
sterkasti gjaldmiðill heims og þær
auðlindir, sem stæðu undir honum,
tryggðu haxm enn í sessi.
En fréttamennirnir létu sem óðir
væru og vildu eitthvað allt annaö,
eða það fannst manni sem áhorf-
anda. Þeir skilja kannski ekki,
fremur en svo margir hér á landi,
að bandaríski dollarinn er sá gjald-
miðill sem ekki bognar fyrr en þær
auðlindir í Bandaríkjunum, sem enn
eru svo til ósnertar, t.d. í jörðu niðri
og svo hinar tæknilegu, sem notaðar
eru við daglegar framkvæmdir, eyði-
leggjast.
Það var mikiö reynt að gera úr
óhagstæðum viðskiptajöfnuði
Bandaríkjanna og í því sambandi
talað um „verðbólguvæntingu"! og
„skort á minnkun á halla"! Yflrleitt
var málfar þess aðila, sem fenginn
var til viðtals úr verðbréfamarkaðin-
um hér, óskiljanlegt og þekking af
skornum skammti.
Það sem eftir stendm1 af umræð-
unni til þessa er að viö íslendingar
þurfum lítið að óttast skammtíma
verðhrun á mörkuðum í New York
eða annars staðar. Gengi íslensku
krónunnar fylgir dollamum að
meira og minna leyti, hvemig sem
viö skráum krónuna. Viöskipti okk-
ar eru einnig meira og minna bundin
viö hinn bandaríska markað, ekki
aöeins í flsksölu heldur líka lána-
markað sem ekki skiptir okkur
minna máli.
Hvað varðar verðbréf á hinum inn-
lenda markaði hér, þá er ekki um aö
ræða hlutabréf í stórfyrirtækjum
eins og í New York, þar sem fólk er
að fjárfesta í eignum. Hér em þessi
bréf mest skuldabréf, í flestum tilfell-
um einskis nýtir pappírar, sem ganga
milli manna með affóllum þegar best
lætur, og flestir em að reyna að losna
við.
Taugatitringur hér á landi er því
óþarfur vegna tilfallandi hreyfinga á
verðbréfamarkaöi New Yorkborgar
og sem sennilega er tilkominn vegna
tilrauna annarra ríkja, mest í Evr-
ópu, til aö hnekkja veldi Bandaríkj-
anna á alþjóðlegum flármagnsmark-
aði. Þær tiJraunir em dæmdar til að
mistakast, a.m.k. í fyrirsjáanlegri
framtíð.
Húsvörður
Staða húsvarðar við Menntaskólann á ísafirði er laus
til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar
1988.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist til skólameistara Menntaskólans á Isafirði
sem veitir nánari upplýsingar.
Menntamálaráðuneytið
VETRARDAGSKRÁ
FR-deildar 4 að Dugguvogi 2.
KONUKVÖLD
Mánudaginn 2. nóvember kl. 20. - Mánudaginn 7. desember kl. 20. -
FÉLAGSVIST
Sunnudaginn 25. október kl. 14. - Sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.
FJÖLSKYLDUBINGÓ
Sunnudaginn 8. nóvember kl. 14. - Sunnudaginn 6. desember kl. 14.
JÓLAGLEÐI
Sunnudaginn 3. janúar '88 kl. 14. - Mætum öll kát og hress til leiks.
Skemmtinefnd FR-deildar 4.
Framvarp til fyrirmyndar:
Þökk
sé
Salome
Elnar hringdi:
Salome Þorkelsdóttir alþingis-
maður hefur nú flutt frumvarp
til laga um að skírlífisbrot og svo-
kölluð sifskaparbrot skuli hafa
sérstakan forgang fram yfir önn-
ur hegningarlagabrot varðandi
rannsókn og meðferð.
Það var löngu tímabært að setja
slík lög og ef virðing á að ríkja
fyrir lögum hér á landi verður
að taka ofangreind mál, sem og
önnur, mun skjótar fyrir en áöur
hefur tíðkast.
Þetta frumkvæði þingmannsins
verður til að auka álit hennar,
sem og annarra sem styðja þetta
frumkvæði hennar.
TEGUND PORTO
STIGATEPPI
Hentug fyrir
stigaganga, skrifstofur,
verslanir, forstofur o.fl.
Verð á fermetra
890
kr
V/SA_
(fþlBYGCIHMVÖWml
BYGGINGAVORUR
Hringbraut 120 - sími 28600,
Stórhöfða - sími 671100.