Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987. Lagafhimvaipið um sláturieyfl til Bíldudals: Stjómmál Ahyggjur af að Alþingi verðl sér til skammar „Eg hef áhyggjur af því aö þingiö veröi sér til skammar ef það sam- þykkir þetta. Ég mun aldrei styðja að frumvarp af þessu tagi fari í gegn- um Alþingi,“ sagði Ámi Gunnars- son, Alþýðuflokki, við umræður í gær um lagafrumvarpið óvænta um að Sláturfélag Amfirðinga fái leyfi til að slátra sauðfé í sláturhúsi sínu á Bíldudal. Ámi Gunnarsson sagði að öllum ráðum þyrfti að beita til að leysa þetta mál án lagasetningar. Fordæm- ið yrði afleitt. Ef það fréttist til samkeppnisaöila íslendinga á mat- vælamörkuðum erlendis yrði það stóralvarlegt. Matthías Bjamason, fyrsti flutn- ingsmaður framvarpsins, hóf umræðuna með því að lýsa því yfir að hann hefði gjaman viljað komast hjá því að flytja frumvarpið en máls- meðferð öll gerði það að verkum að hann sæi sig knúinn til að gera það. Rakti hann nokkur dæmi um slát- urhús sem fengið hefðu leyfi en væra samkvæmt lýsingum engu betri en húsiö á Bíldudal. „Það er ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón. Hér hefur mönnum verið mismunað,“ sagði Matthías. „Hér era ekki heiðarleg vinnu- brögð. Það er ekki hlutverk dýra- lækna að vinna að því að fækka sláturhúsum." Matthías taldi rétt og skylt að rann- sókn færi fram á því hvort settur yfirdýralæknir segði satt um slátur- húsið umdeOda. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra sagði að ef Alþingi ætlaði að marka þá stefnu að ekki skyldi byggt á áliti dýralæknis væri verið að kippa fótunum algjörlega undan möguleikum á útflutningi. „Hér er farið inn á svo hála braut að ég vonast til þess að háttvirtir al- þingismenn hugsi sig vel um áður en þeir gera það,“ sagði Jón. -KMU Siguröur Sigurðarson, settur yfirdýralæknir, afhendir starfsmanni Alþingis bréfabunka sem dreifa átti til alþingis- manna. DV-mynd GVA Stéttarsambandið varar Alþingi við Settur yfírdýralæknir sendir þingmönnum bréf: Vatnið óhæft vegna saurgeriamengunar „Stéttarsamband bænda hefur fram til þessa engin afskipti haft af málefnum sláturhússins á Bíldudal en telur það skyldu sína að benda hæstvirtum landbúnaðarnefndum á þá hættu sem fylgt getur fyrirhuguð- um afskiptum Alþingis af málinu fyrir matvaelaiðnaðinn í landinu og viðhorf neytenda innanlands og er- lendis til heilbrigðiseftirlits með matvælaframleiðslunni. ‘ ‘ Svo segir meðal annars í bréfi sem Stéttarsamband bænda sendi land- búnaðamefndum Alþingis síðdegis í gær. Stéttarsambandið segir enn- fremur: „Á undanfórnum áram hafa verið gerðar sífellt strangari kröfur til matvælaiðnaðar í landinu um að- stöðu alla og eftirlit með framleiðsl- unni. Flest fyrirtæki á þessu sviði sem eitthvað kveður að hafa lagt í gífurlegan kostnað sem mörgum þeirra reynist erfitt að standa undir. Þessar kröfur til matvælaiðnaðarins era væntanlega gerðar í þeim til- gangi að tryggja gæði íslenskra matvæla og auka álit framleiöslunn- ar í augum innlendra og erlendra kaupenda.“ -KMU „Húsið er gamalt og lélegt. Það batnar ekki að ráði þótt klætt sé yfir veikleika og óhreinindi. Slíkt getur jafnvel gert illt verra,“ segir Sigurð- ur Sigurðarson, settur yfirdýralækn- ir, í bréfi sem hann lét dreifa til alþingismanna í gær um sláturhúsið á Bíldudal. Sigurður segir að lokun hússins nú sé ekki byggð á persónulegri óvild eins eða neins heldur því grandvall- aratriði aö neytendur eigi aðeins skilið það besta sem völ sé á og þeirri lagaskyldu, sem lögð sé á dýralækna, að tryggja það að vinnslustaðir fyrir matvæh séu vel búnir og þannig að verki staðið að almenningi stafi eng- in hætta af því sem þaðan kemur. „Kalt vatn hefur dæmst óhæft vegna saurgerlamengunar," segir yfirdýralæknir ennfremur. „Klórblöndun á vatni er ótrygg og neyðarráðstöfun sem ekki er gripið til að þarflausu. Klórblöndun á vinnsluvatni bætir ekki kjötið. Heitt vatn hefur verið af skomum skammti, að sögn dýralækna sem starfað hafa í þessu húsi. Skolplögn nær ekki út fyrir stór- straumsfjöru og þar sem ekki liggur fyrir aö rottum hafi verið útrýmt af Bíldudal eða girt fyrir að þær slæðist þangað er nauðsynlegt að menn geri sér grein fyrir því aö niðurfóll eru ekki rottuheld. Frárennsli hafa raunar verið ótrygg og hafa stíflast stundum í slát- urtíð. Slátursalur, líffærasalur og klefi til aðskilnaðar meltingarfæra era eng- an veginn í samræmi við lög og reglur. Allt er illa aðskilið og ófull- komið. Innréttingar era að hluta til úr efn- um sem ekki er unnt að þrífa svo vel sé, hvaö þá að sótthreinsa, þegar ekki er einu sinni nóg heitt vatn. Aðstaða til handþvotta er léleg að dómi héraðsdýralækna. Aðstaða til heilbrigðisskoðunar er ekki fyrir hendi svo nothæf sé. Eng- inn kostur er að rekja saman liffæri og skrokka svo öraggt sé ef sýking kemur fram í öðra hvora. Engin geymsla er fyrir sjúkt. Kjötsalur er við hliðina á fjárrétt og ef þéttingar era ekki nógu góðar með veggjum getur seytlað saur- mengaö gums inn í kjötsal. Loftræst- ing er ekki í rétt en viftur í kjötsal geta dregið óloft þangað frá gripa- réttinni vegna nálægðarinnar. Sjá má af framanrituðu að það er ekki að ástæðulausu að héraðsdýra- læknar, sem skoðað hafa þetta hús, hafa verið samdóma í áliti sínu og leggjast gegn því allir sem einn að þessi vandræðaaðstaða verði ekki notuð lengur til matvælafram- leiðslu.“ Loks segir yfirdýralæknir að með framvarpi þessu sé lagt til að heil- brigðiseftirlit dýralækna verði brotið á bak aftur og yfirdýralæknisem- bættið vanvirt. Islenskir bændur eigi ekki skilið slíka útreið. íslenska lambakjötið sé dregið niður í skítinn og íslenskir neytendur óvirtir sam- þykki Alþingi flaustursverk þetta. -KMU Ólafsvík: Allir skotnir í Framsókn Alþýðuflokkurinn í Ólafsvík hefur boðið Alþýðubandalagi og Fram- sóknarflokki til formlegra viðræðna um myndun nýs meirihluta. Al- þýðubandalagið hefur þegar svarað játandi. Framsóknarmenn hafa ekki gert upp hug sinn. Þeir hyggjast bíða þar til uppgjör fyrstu níu mánaða þessa árs Úggur fyrir. Stefán Jóhann Sigurðsson, bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins, sagði að sér hefðu borist boð allra flokka um viðræður. Á lokuðum bæjar- stjómarfundi var ákveöið að láta fara fram uppgjör á rekstri bæjarfé- lagsins fyrstu níu mánuði ársins. Ámi Bjöm Birgisson endurskoðandi mun vinna að uppgjörinu. Því á að vera lokið fyrir 2. nóvember. Á bæjarstjómarfundinum, sem er hinn fyrsti frá því aö meirihlutinn sprakk, var uppsagnarbréf bæjar- stjóra, Kristjáns Pálssonar, bókað. -sme Kjarasamningar Jón Baldvin stefnir að nýrri þjóðarsátt - þannig meta ýmslr verkalýðsleiðtogar ummæli hans um matarskatUnn í umræðum á Alþingi I síðustu Ýmsir verkalýösleiðtogar, sem arkiarasamningar hafa veriö og samningar í nóveraber eöa þá ekki viku um fjárlagafrumvarpiö og DV hefur rætt við um þetta mál, kallaðir voru „þjóðarsátt“. fyrr en í lok febrúar eða byijun matarskatönn sagöist Jón Baldvin segja að ekki korai til greina að Aliir eru sammála um að engar mars á næsta ári. Hann segir að fjármálaráðherra vera tilbúinn aö nota matarskattinn sem einhvetja alvörusamningaviöræður fari af verkalýðshreyfingin hafi ekki fresta matarskattinum og hefia við- skáptimynt í kröfum verkalýös- stað miUi aðila vinnuraarkaðarins neina átakastöðu fýrr en vertíð er ræður við verkalýðshreyflnguna hreyfingarinnar í komandi kjara- fyrr en í nóvember að loknu þingi komin vel i gang. Kjarasamning- um skynsaralegar tillögur í kom- samningum. Aftur á móti benda Verkamannasambandsins sem arnir renni ekki út fyrr en um andi kjarasamningum. Einnig þeir á aö uramæli og geröir Jóns haldiöverðursíðustuhelginaíokt- áramótin og meöan þeir eru í gildi kaliaöi hann á fjóra verkalýðsleið- Baldvlns í síðustu viku bendi til óber. geti verkaJýðshreyflngin ekkert toga og bauð þeim til hádegisverðar þess aö hann stefni að því að ná Guömundur J. Guðmundsson, gert til aö knýja á um nýja kjara- og ræddi við þá um matarskattinn heildarkjarasamningum á svipuð- formaður Verkamannasambands- samninga. í vikunni er leiö. um nótum og tveir síðustu heild- ins, segir að annaðhvort náist -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.