Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1987.
5
Stjórnmál
Sex frá Alþingi
til New York
Sex þingmenn og varaþingmenn
sitja allsheijarþing Sameinuðu þjóð-
anna í New York fyrir hönd Alþingis,
einn frá hverjum þingflokki. Skipta
þeir sér í tvo hópa og situr hvor í
þijár vikur.
Fyrri hópurinn fór utan í síðustu
viku. í honum eru Jón Sæmundur
Siguijónsson, þingmaður Alþýðu-
flokks, Ólafur Gránz, fyrsti vara-
þingmaður Borgaraflokks í
Suðurlandskjördæmi, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, sem skipaði 35.
sæti Kvennahstans í Reykjavik við
síðustu alþingiskosningar.
Síðari hópurinn leysir þann fyrri
af 6. nóvember og situr aUsherjar-
þingið tíl 27. nóvember. í honum
verða Ólafur G. Einarsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokks,
Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalags, og Ingvar Gíslason,
fyrrverandi alþingismaður, sem
skipaöi síðast heiðurssætí lista
Framsóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra.
-KMU
Þingsályktunartillaga um að ríkið borgi:
Ferðamálafulltiiía
á landsbyggðina
Pétur Bjamason, sem situr á Al-
þingi sem varaþingmaöur fyrir
Framsóknarflokkinn á Vestfjörðum,
hefur mælt fyrir þingsályktunartil-
lögu um að stofnað verði tíl embætta
ferðamálafulltrúa í landsbyggðar-
kjördæmum. Laun þeirra greiðist úr
ríkissjóði en rekstrarkostnaður emb-
ættanna af viðkomandi ferðamála-
samtökum. Með Pétri flytja tillöguna
fjórir aðrir framsóknarþingmenn.
í þingsályktunartillögunni felst
einnig að sérstöku 10% gjaldi af
vörusölu Fríhafnarinnar verði ráð-
stafað óskertu til ferðamála sam-
kvæmt gildandi lögum og að hraöað
verði endurskoðun laga um skipulag
ferðamála.
Þingmenn stjórnarandstöðu bentu
á við umræður um málið að þessi
tillaga fimm stjómarþingmanna
gengi gegn þeirri stefnu fjárlaga-
fmmvarps ríkisstjómarinnar að
draga úr styrkjum til atvinnugreina
og skerða lögbundin framlög Frí-
hafnar til ferðamála.
Pétur Bjarnason segir í greinar-
gerð með tillögunni að ferðamála-
samtök hafi verið stofnuð um allt
land. Starf þeirra hafi víða borið
ríkulegan ávöxt. Nauðsyn beri til að
ráða feröamálafulltrúa til þessara
samtaka tíl að annast skipulag og
samræmingu í ferðamálum í
landinu.
-KMU
Bændasanrtök
mótmæla fjáriaga-
frumvarpinu
Stjóm Stéttarsambands bænda
hefur sent ríkisstjóminni harðorð
mótmæh vegna fjárlagafrumvarps-
ins. Telur hún að fmmvarpið brjóti
í bága við þá landbúnaðarstefnu sem
bændur hafi gengið til samvinnu um.
Stéttarsamband bænda telur að
með álagningu söluskatts á matvæli
og lækkandi hlutfalli niðurgreiðslna
sé áætlunum um sölu kindakjöts og
mjólkurvara, sem búvörusamningur
bænda við ríkið byggi á, kollvarpað
nema til komi auknar niðurgreiðsl-
ur.
Augljóst sé að samdráttur í sölu
kindakjöts og mjólkurvara innan-
lands í kjölfar verðhækkana muni
auka þörfma fyrir útflutning.
„Ekki verður annað séð en með
slíkum aðgerðum sé markvisst stefnt
að því að minnka hlutdeild innlendra
afurða á matvömmarkaðnum og
kippa grundvellinum undan at-
vinnumöguleikum verulegs hluta
bændastéttarinnar, ‘ ‘ segir Stéttar-
sambandið.
Stéttarsambandið segir ennfremur
að niðurskurður á framlögum til
rannsókna og leiðbeininga í land-
búnaði teQi nauðsynlegar búhátta-
breytingar í sveitum. Er loks varað
við samdrætti á framlögum ríkisins
til jarðræktar og búfjárræktar.
-KMU
Jóhanna hótar
- aivaríegir brestir í samstarflð styðji stJómSn ekki öil frumvaip hennar
„Ríkissljóniin stendur öll að þingmenn í Framsóknarflokki og Frumvarpið gerir ráð fyrir heim-
baki þessu frumvarpi. Komi annaö Sjálfstæöisflokki hefðu fyrirvara á fld til húsnæðismálastjómar til að
í ljós em komnir alvarlegir þver- einstökum atriðum. skerða eða synja um lán til þeirra
brestir í stjómarsamstarflð," sagði Hún sagöi að þær aögerðir, sem sem eiga eignir yfir vissu marki.
Jóhanna Sigurðardóttir félags- fælust í fmmvarpinu, myndu einar Þeir sem era aö byggja eða kaupa
málaráðherra er hún kynnti sér ekki nægja til að koma jafn- í fyrsta sinn íá forgang. Þá fær rík-
blaöamönnum fmmvarp um breyt- vægi á húsnæðiskerfið. Eingöngu isstjómin heimild til að ákveða
ingar á lögum um Húsnæðisstofn- væri verið aö stíga á bremsumar mismunandi vexti á húsnæðislán-
un ríkisins. og forða þvi aö husnæðiskerfiö um.
Jóhanna bætti við aö einstakir lenti í algjörum ógöngum. -KMU
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 10-17.30
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 10-17.30
Peugeot 309 GT 1.9, árgerð 1986, ekinn að-
eins 20 þús. km, skemmtilegur smábíll,
framdrifinn, 5 gíra, rafmagn í rúðum og læs-
ingum, topplúga, álfelgur, útvarp/segul-
band, litur blá/sans. Skipti koma til greina
á ódýrari bifreið. Verð 630 þús.
Toyota Cellca 2000 GT, árgerð 1987, meiri
háttar sportbíll, ekinn 13 þús. km, 5 gíra,
vökvastýri, rafmagn i rúðum og læsingum,
rafmagnsstiliing á sætum, útvarp/segul-
band, álfelgur, litur hvitur. Skipti koma til
greina á ódýrari bifreið. Verð 910 þús.
Volvo 740 GLE statlon, árgerð 1986, ekinn
48 þús. km, sjálfskiptur. vökvastýri. topp-
lúga, rafmagn i læsingum og speglum,
útvarp/segulband, litur steingrár. Skipti
koma til greina á ódýrari bifreið. Verð 1 .T60
þús.
KAUPENDUR, ATHUGIÐ: NÆSTU DAGA SELJUM VIÐ BÍLA Á GÓÐUM KJÖRUM,
T.D. 12-24 MÁNAÐA SKULDABRÉFUM. BÍLAR VIÐ FLESTRA HÆFI. NÝ SÖLUSKRÁ.
Ford F-150 pickup XLT 4x4, árgerð 1987,
með plasthúsi, ekinn aðeins 7 þús. mílur,
stórglæsilegur, 8 cyl„ 302 cub., sjálfskiptur,
vökvastýri, upphækkaðurerlendis, 35" breiö
dekk, krómfelgur, rafmagn í rúðum, cruise-
control, útvarp/segulband, litur rauður.
Skipti koma til greina á ódýrari bifreið. Verð
1600 þús.
Nissan Patrol dísil turbo, árgerð 1986, ekinn
39 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, útvarp/
segulband, breið dekk, white spoke felgur,
litur rauður. Skipti koma til greina á ódýrari
bifreið. Verð 1.050 þús.
Nissan Sunny 1500 GLX, árgerð 1987, ekinn
aðeins 13 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, út-
varp/segulband, litur d-blár. Aðeins bein
sala, engin skipti. Verð 460 þús.
Honda Accord EX, árgerð 1987, ekin aðeins
8 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, rafmagn í rúð-
um og læsingum, útvarp/segulband, litur
rauður. Skipti koma til greina á ódýrari bif-
reið. Verð 780 þús.
Subaru 1800 station 4x4 GLX, árgerð 1987,
ekinn aðeins 7 þús. km, sjálfskiptur, vökva-
stýri, topplúga, rafmagnslæsingar, sjálfvirkt
fjórhjóladrif, silfurlitur. Aðeins bein sala,
engin skipti. Verð 720 þús. Einnig Subaru
st„ árg. 1988, ekinn 2 þús. km.
Chrysler Le Baron, árgerö 1979, vel útlít-
andi, ekinn aðeins 80 þús. km, 8 cyl„ sjálf-
skiptur, vökvastýri, rafmagn i rúðum og
læsingum, útvarp/segulband. Ath.: Þessa
bifreið má greiða að hluta eða öllu leyti með
skuldabréfi. Verð 390 þús.
GLÆSIVAGNAR Á GÓÐU VERÐI
VISA
VINNUFATABUÐIN
Laugavegi 76 - Hverfisgötu 26