Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1987, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR 22. OKTÖBER 1987.
Frjálst.óháÖ dagblaö
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÚNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 600 kr.
Verð í lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr.
Bleika skýið er horfið
Heimskreppa er ekki í aðsigi, þótt verðbréfamarkað-
urinn í Wall Street hafi á mánudaginn var tekið dýfu,
sem tölulega séð jafnast á við svarta fimmtudaginn á
sama stað fyrir tæpum sex áratugum. Dýfan hefur stöðv-
azt og mun ekki hafa veruleg áhrif til skamms tíma.
Líkja má verðlagi pappíra í Bandaríkjunum við
blöðru, sem einfeldningar, bjartsýnismenn og Reagan-
istar hafa verið að þenja út í fimm ár og hættulega
mikið síðasta árið. Nú hefur blaðran verið sprengd og
verðlagið hefur nálgast gráan raunveruleikann.
Reikna má með, að stjórn Reagans Bandaríkjaforseta
geti ekki lengur flotið á bleiku skýi í fjármálum. Hún
neyðist til að hefla baráttu við geigvænlegan halla á
rekstri ríkisins og á utanríkisviðskiptum landsins. Hún
lærir sennilega mánudagslexíuna frá Wall Street.
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum og víðar hafa undanfarn-
ar vikur spáð dýfunni, svo að hún átti ekki að koma á
óvart þeim, sem hagsmuna hafa að gæta. Öll lögmál
bentu til, að blaðran hlyti að springa fyrr en síðar, því
að ekki er hægt að fljóta á bleiku skýi til eilífðarnóns.
Það var ekki aðeins í Bandaríkjunum, að verðlag
hlutabréfa var komið langt fram úr afkastagetu bréf-
anna til arðgreiðslu. Einnig í Japan hlaut slík blaðra
að springa og gerði það. En víða annars staðar í heimin-
um voru dýfurnar minni og jöfnuðu sig fljótt og vel.
Til langs tíma er aðalhættan sú, að útlendingar fái
varanlega ótrú á fjárfestingu í Bandaríkjunum og dragi
jafnvel til baka fjármagn, sem þeir hafa Qárfest þar.
Slíkt mun hafa alvarleg áhrif á hagþróun vestra og á
kaupgetu fólks, sem hefur vanizt að lifa um efni fram.
Sennilega hefur þetta lítil áhrif á helztu útflutningsaf-
urð íslendinga, freðfiskinn. Hann er matur, sem fólk
vill og getur síður sparað við sig en margt af eyðsluvör-
unum. Fiskur verður því áfram keyptur og ætti að geta
haldið eðlilegum verðhlutfóllum, miðað við annan mat.
Þá eru ekki heldur teikn á lofti um, að dollarinn
muni halda áfram að falla gagnvart hörðu gjaldmiðlun-
um og magna enn frekar þann halla okkar, sem stafar
af tiltölulega mikilli sölu í dollurum og miklum kaupum
í annarri mynt. Dollarinn hefur þegar falhð nóg.
Að sjálfsögðu þurfum við að fylgjast vel með þróun
mála. Við rekum sérhæft atvinnulíf og erum þjóða háð-
astir viðskiptum við önnur ríki. Allar dýfur í viðskipta-
löhdunum eru óþægilegar. Verstar eru útblásnar
blöðrur, sem springa skyndilega og jafnvel óvænt.
Vítahringur Bandaríkjanna var ekki flókinn. Gífur-
legur viðskiptahalli rýrði gengi dollarans í sífellu.
Gengissigið framkallaði vaxtahækkanir, sem gerðu
hlutabréf arðminni en áður. Framan af neituðu menn
að horfast í augu við þetta og fengu loks stóran skell.
Við getum lært af þessu hér norður í höfum. Við
búum við gífurlegan viðskiptahalla, samfara krampa-
kenndri fastgengisstefnu og ótrúlegri tregðu ríkisstjórn-
ar við að draga saman seglin í ríkisrekstri. Við fáum
af þessu efnahagslega skelli eins og Bandaríkjamenn.
Kauphallarhrunið getur orðið öllum ríkjum til góðs,
ef menn læra af reynslunni. Bandaríkjamenn geta til
dæmis farið að snúa sér að öflun tekna með samkeppnis-
hæfri framleiðslu og að minnkaðri ofneyzlu. Og eftir
rúmt ár fer Reagan forseti hvort sem er frá völdum.
Við íslendingar megum svo hætta að trúa, að leið-
togar okkar geti komið okkur hjá óþægindum með því
að reisa stíflur, er stöðvi framrás efnahagslegra fljóta.
Jónas Kristjánsson
Misréttið og matar-
skattur ríkbsyómarinnar
Samkvæmt stjómarsáttmálanum
er eitt af grundvallarmarkmiöum
ríkisstjómarinnar aö vinna aö
auknu jafnrétti. Þetta markmiö
samræmist að vísu illa ýmsum öðr-
um markmiðum sem em tíunduð
í fyrmefndum sáttmála, enda er
það að koma á daginn.
Fyrstu aögerðir ríkisstjórnarinn-
ar sýna okkur svo um munar að
djúpt er á jafnréttishugsjóninni og
öll kosningaloforðin frá í vor um
bættan hag landsbyggðarinnar
löngu gleymd.
Hinir óskeikulu
Síðastliðinn fimmtudag var rætt
í sameinuðu þingi utan dagskrár
um efnahagsráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar. Þó þessar umræður
væm ekki rismiklar kom ýmislegt
athyglisvert fram sem ekki má fara
framhjá almenningi. Jón Baldvin
Hannibalsson íjármálaráðherra
sagði t.d. að matarskatturinn frægi
yrði settur á til að minnka við-
skiptahallann. Ekki er ólíklegt að
þessi ummæli Jóns Baldvins séu
byggð á hagfræðilegri niðurstöðu
ríkisstjórnarinnar eða ráðunauta
hennar. Það er til dæmis í sam-
ræmi viö annað sem frá sumum
þeirra hefur komið.
Þessir hagfræðingar virðast líta á
sig sem óskeikula og ætlast til að
almenningur taki allt gott og gilt
sem frá þeim kemur um efnahags-
og fjármál, hvernig sem reynslan
er af þeirra spádómum. Það var t.d.
haft eftir þessum spekingum á síö-
ustu vordögum að vextir mundu
lækka á þessu ári. Þegar gengið var
til kosninga í vor voru vextir á
óverðtryggðum lánum um 21,5%
en eru nú 31%. Nú segja lands-
feðumir að búast megi við að vextir
hækki enn í kjölfar efnahagsráð-
stafana. Er það þá nokkuð undar-
legt þó fólk taki þjóðhagsspánni
meö fyrirvara meö vaxtaspádóm-
inn í huga?
öfugmæli
Þá er það matarskatturinn. Fyr-
irhugað var og er að setja 10%
söluskatt á allar búvörur frá 1.
nóvember að telja sem á að gilda
til áramóta. Uppi hafa verið hug-
myndir um að hækka hann upp í
18% síðar. Sé miðað við sölu þess-
ara búvara síðastliðið ár og reiknað
með engri breytingu á magni þá
má gera ráð fyrir að á næsta ári
verði salan á þessum búvörum um
13 milljarðar og þá 10% söluskattur
á ársgrundvelli 1300 milljónir. Ef
söluskatturinn yrði 18% miðað viö
sömu forsendu gæfi hann ríkissjóði
um 2.340 milljónir.
í þessum tölum er gert ráð fyrir
hóflegri verslunarálagningu, en
hætt er við að í reynd reynist hún
hærri.
Hér er ekki um neinar smáupp-
hæðir að ræða. Hafa ber í huga að
verið er að ræða eingöngu um sölu-
skatt á innlenda búvörufram-
leiöslu. Útsöluverð á inníluttum
vörum breytist því ekkert við þessa
skattheimtu. Það eru því hrein
öfugmæh að slík skattheimta muni
bæta viðskiptastööuna við útlönd
heldur þvert á móti. Einu áhrifin,
sem hugsanlegt er að þessi skatt-
heimta hafi, eru að af henni leiði
neyslubreyting, að almenningur
minnki kaup á búvörum vegna
hækkunarinnar og fari í staðinn
aö kaupa innfluttar matvörur; aö
áhrifin verði meiri innflutningur á
matvörum. En tU þeirra kaupa þarf
gjaldeyri og ekki batnar viðskipta-
staðan við útlönd við það.
En gerir ekki ríkisstjórnin ein-
mitt ráð fyrir slíkri neyslubreyt-
ingu þó annað sé látið í veðri vaka?
Ekki yrðu innflytjendur henni
andsnúnir a.m.k.
Raunhæf byggðastefna?
AthygUsvert er að ríkisstjómin
segir að söluskatturinn á búvörum
muni skila 150 miUjónum í ríkis-
sjóð þessa tvo mánuði þrátt fyrir
Kjallarinn
Stefán Valgeirsson
alþingismaður fyrir Samtök
um jafnrétti og félagshyggju
að niðurgreiðslur verði auknar um
75 mUlj. kr. Framleiðsluráð telur
aftur á móti aö með óbreyttri
neyslu á búvörum gefi skatturinn
a.m.k. 216 mUlj. Því virðist sem rík-
isstjórnin geri ráð fyrir minni
neyslu á þessum vörum um 40%
þessa tvo mánuði eða að gert sé ráð
fyrir að verslunin skili ekki nema
um 2/3 af innheimtum söluskatti tU
ríkissjóðs?
Nú er gert ráð fyrir að þessi mat-
arskattur verði hækkaður upp í
18% og niðurgreiðslur aflagðar.
Má vera að með þessum breyting-
um náist hið langþráða markmið
sumra stjórnmálamanna sem þeir
kalla raunhæfa byggðastefnu, það
er að segja að greiða landbúnaðin-
um það þungt högg að muni ríða
honum að fuUu.
Þessi skattheimta hefur fleiri nei-
kvæð áhrif í för með sér í þjóö-
félaginu. Um síðustu mánaðamót
hækkaði aUt kaup í landinu um
7,23%. Þau sem höfðu í síðasta
mánuði 28.500 kr. fengu hækkun
um 2.000 kr. Þetta er stærri hópur
en sumir vilja viöurkenna, að
stærstum hluta konur. Hinir tekju-
hæstu fengu 14-20 þús. kr. hækkun
og einstaka enn meira. Ráðherr-
arnir sögðu að kaupmáttur myndi
skerðast um 2% af þessum sökum
en slík r'eikningskúnst er miðuð við
meðaltal. Þau meö lægstu launin
fara með öll sín laun í mat og hús-
næðiskostnað. 2-3 þús. kr. hækk-
unin fer því öll í þennan skatt. Er
því kaupmáttarskerðing þeirra
margfalt uppgefið meðaltal.
Hins vegar mun kaupmátturinn
hjá hinum tekjuhæstu ekki skerð-
ast við matarskattinn nema um
1%, í sumum tilfellum enn minna.
Þannig vinnur þessi ríkisstjórn að
launajafnrétti. En er það í sam-
ræmi við stjómarsáttmálann?
Léttvæg rök
Formaður Framsóknarflokksins
sagði að þingflokkur hans væri
sammála þeirri stefnu sem nú væri
unnið eftir. - Þá vitum við þaö.
Þeir ráðherrar, sem til máls tóku,
sögðu að þjóðin hefði um tvennt
að velja: óðaverðbólgu eða þær
efnahagsráðstafanir sem ríkis-
stjórnin væri búin að kynna fyrir
þjóðinni, þar með tahnn matar-
skatturinn.
Á miðöldum vom mörg óhæfu-
verk unnin og galdrar hafðir að
yfirskini. Á þessari öld var reynt
að notfæra sér Rússagrýluna til
þess að rugla þjóðina. Og nú er það
óðaverðbólgan.
En málið er ekki það einfalt að
aðeins sé um eina leið að ræða til
þess að hamla á móti verðbólgu.
Þær em miklu fleiri. Hitt er eflaust
rétt að þessi ríkisstjóm, eins og hún
er samansett, nær ekki samstöðu
um efnahagsráðstafanir nema hún
komi fyrst og fremst niður á lands-
byggðinni og á lágtekjufólkinu í
landinu enda bera þessar ráðstaf-
anir það með sér. Það þarf ekki
fleiri vitna við. - Af verkunum
skulum við þekkja þá og dæma.
Það á að minnka spennuna hér á
suðvesturhorninu með því að
draga úr framkvæmdum úti um
land. Það er mjög frumleg hug-
mynd. Og það á að bæta hag bænda
með því að draga úr leiðbeiningar-
þjónustunni og tilraunum í land-
búnaði og með þvi að hækka
áburðarverðið, að ógleymdri
vaxtahækkuninni og matarskatt-
inum.
Hvað hugsa stjómarþingmenn
landsbyggðarinnar? Var það þessi
stefna sem þeir sögðu fyrir kosn-
ingar að þeir myndu vinna eftir ef
þeir næðu kosningu? Eða eru þeir
með öllu dáðlausir? Það kemur í
Ijós á næstu vikum.
í sameinuðu þingi talaði ég síð-
astur i umræðunni um efnahags-
mál. Ég lauk máli mínu með
þessum orðum:
Léttvæg ykkar reynast rökin
réttlætið er horfið sjónum.
Þeir sem hafa breiðust bökin
bera minnst hjá þessum Jónum.
Stefán Valgeirsson
„Það á að minnka spennuna hér á suð-
vesturhorninu með því að draga úr
framkvæmdum úti um land. Það er
mjög frumleg hugmynd.“
....verið að ræða eingöngu um söluskatt á innlenda búvörufram-
leiðslu," segir í greininni.