Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. Fréttir Svavar Gestsson á fundi í Eins og ketftir í kring um heitan graut - annar boðaði sókn flokksins en hinn skilgreindi sósíalisma Alþýðubandalagsfélagið í Kjós- arsýslu hélt aðaifund sinn í gaerkvöldi. Þar mættu þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gests- son og ávörpuöu fundinn ásamt Geir Gunnarssyni, þingmanni Dokksins í kiördæminu. Þeir Ólaf- ur og Svavar reyndu hvað þeir gátu að komast hjá að nefna formanns- slaginn í flokknum þar sem Ólafur hefur boðið sig fram en Svavar er helsti stuðningsmaöur Sigríðar Stefánsdóttur, hins formannsfram- bjóðandans. Það var aðeins vegna fyrirspumar utan úr sal sem þeir ympruðu á því máli en báöir af hinni mestu hófsemd. Vegna hinna stóru orða sem Svavar Gestsson viöhafði í fjöl- miðlum eftir landsfundarfulltrúa- kjörið í Reykjavflc á dögunum áttu ýmsir von á að hann gerði nánari grein fyrir þvi sem hann sagði þá en svo varð ekki. Þá skildu sumir orö Svavars á þann veg að hann myndi yfírgefa flokkinn ef Ólafur Ragnar næði kjöri sem formaður Alþýöubandalagsins en Svavar nefhdi þetta ekki einu orði. Ólafur Ragnar talaði mest um nauösyn þess að flokkurinn hæfi nýja sókn og lýsti í fáum orðum hvemig hann vildi aö þeirri sókn yrði hagað. Má því skflja það svo aö hann hafi veriö að lýsa því hvemig hann ætlaði að fara að ef hann yrði kosinn formaður. Svavar Gestsson valdi þann kost í sinni ræðu að fara út í þaö að reyna aö skflgreina sósíalisma og lýsa því hvemig hann vfldi aö flokkurinn yrði í framtíðinni. Einnig fór hann nokkrum oröum um stefhuskrárplagg sem unniö verður eftir á landsfúndinum í næstu viku. Loks vom þeir sammála um aö vel mætti vera að hollt væri fyrir öokkinn að láta kjósa á milli fólks í formannskjöri, það hefði aldrei gerst áður í sögu hans. Fundargest- ir vom því litlu fróðari eftir en áður um þau hrikalegu átök sem nú eiga sér stað milli átakaar- manna í Alþýðubandalaginu. -S.dór DV Mælt fýrir bjórnum Bjórinn er kominn tfl umræðu á Alþingi. „Álit ýmissa á skaðsemi bjórs er úr öllu samhengi við raunveruleik- ann,“ sagði fyrsti flutningsmaður bjórframvarpsins, sjálfstæðismað- urinn Jón Magnússon, sem situr á þingi sem varamaður, þegar hann mælti fyrir því í neöri deild í gær. Með Jóni flytja frumvarpið Geir H. Haarde, samflokksmaður hans, Guðrún Helgadóttir, Alþýðubanda- lagi, og Ingi Björn Albertsson, Borgaraflokki. Verði það samþykkt, eins og athug- un DV á vilja þingmanna bendir til, verður bjórinn leyföur frá 1. október 1988. Flutningsmenn segja í greinargerð að tilgangur þeirra með frumvarpinu sé að draga úr hinni miklu neyslu sterkra drykkja, að breyta drykkju- siöum þjóðarinnar til batnaðar, að afla ríkissjóði tekna, að efla þann hluta íslensks iðnaðar sem annast framleiðslu á öli og gosdrykkjum og að samræma áfengislöggjöfma. -KMU Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra: Tekst ekki að nauðga heilum þingflokki - sagði Páll Pétursson um húsnæðisfmmvavpið Vestmannaeyjum fór fram umfangsmikil sýning á björgunarbúnaði fyrir skömmu. Tilgangurinn var að kynna öryggisbúnað sem björgunarsveitir og félög í Vestmannaeyjum hafa yfir að ráða. Þótti sýningin mætavel heppnuð og fylgdust margir með henni af áhuga eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. DV-mynd Ómar Tillaga sjávarútvegsráðuneytisins: Kvótakeifið gildi næstu 4 árin - með minniháttar breytingum frá því sem nú er Á fundi undirbúningsnefndar um mótun fiskveiðistefnu, sem haldinn var í gær, vora lögð fram drög að frumvarpi sjávarútvegsráðuneytis- ins um fiskveiðistefnuna frá næstu áramótum. í frumvarpsdrögum ráðuneytisins er gert ráð fyrir að kvótakerfið, með smá breytingum frá því sem nú er, gildi næstu 4 árin. Hætt er við að miklar deilur rísi nú vegna þessara frumvarpsdraga, þó ekki væri nema vegna hugmyndar- innar um að kerfið gildi í 4 ár. Þær breytingar á kvótakerfmu frá því sem nú er, sem gert er ráð fyrir í framvarpsdrögunum, era þær helstar að smábátar undir 10 tonnum falli undir kvótakerfið. Settur verði kvóti á rækjuveiðamar og nokkur breyting á sóknarmarkinu. Ekki er gert ráö fyrir að óskir rækjuvinnslunnar, um að hún fái helming rækjukvótans, verði teknar tfl greina. Ekki er heldur gert ráð fyrir því að fiskvinnslan fái hluta af kvótanurp til sín. Sem fyrr segir er hér um drög að framvarpi að ræða. Matthías Bjama- son alþingismaður, sem sæti á í undirbúningsnefndinni, sagði í sam- tali við DV fyrir nokkru að hann væri viss um að miklar breytingar yrðu gerðar á fiskveiðistefnunni í meöferð Alþingis á henni. Skúli Alexandersson alþingismað- ur á einnig sæti í undirbúnings- nefndinni. Hann telur að veigamikl- ar breytingar verði gerðar á fiskveiðistefnunni og að enn liggi ekki fyrir hvort undirbúningsnefnd- in mæli með þeim frumvarpsdrögum sem lögð vora fram í gær. -S.dór Sjálfstæðismenn og framsóknar- menn héldu áfram að gagnrýna Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra við umræður um hús- næðisfrumvarpið á Alþingi í gær. Geir H. Haarde, Sjálfstæðisflokki, lýsti furöu sinni á málflutningi fé- lagsmálaráðherra. Einsýnt væri að greitt heíði fyrir lausn málsins hefði ráðherrann farið sér hægar. Kvaðst Geir því miður þurfa að segja að Jóhanna hefði ekki dregið af sér í fullyrðingum fyrir og eftir kosningar um að húsnæðiskerfið væri sprungið. Víst væri biðröðin lengri en gert hefði verið ráð fyrir en því færi fjarri að ástandiö væri þannig að það þyrfti að valda óróa og æsingi. Sagði hann óeðlflegt að skerða lánsrétt án samráðs við lífeyrissjóði. Vaxtaákvæði framvarpsins taldi hann marklaust. Páll Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, sagði „Það er búið að snúa þessu upp- sagnarmáli við, það er sett upp á þann hátt aö fyrram trúnaöarmaöur starfsfólks hafi verið rekinn vegna þess að hann vfldi aö starfsmenn mínir gengju í verkalýðsfélag og að hann vfldi leiðrétta kaup og kjör starfsmanna hér,“ sagði Kjartan Scheving, eigandi Öryggismiðstöðv- arinnar, sem sér um gæslu í Kringl- unni. „Það er hins vegar ekki rétt, hann var rekinn vegna trúnaðarbrota. Starfssvið öryggisvarða er trúnaöar- mál. Eitt af brotum hans var að Ijósrita úr dagbók sem er á staðnum. Ljósritinu dreifði hann síðan niðri í Dagsbrún sem honum var með öllu óheimflt. Ef menn virða ekki þær að Jóhanna Sigurðardóttir hefði ekki farið vel af stað þegar hún fylgdi frumvarpi þessu úr hlaði. Henni hefði verið ákaflega mikið niöri fyrir. Páll lýsti sig sammála þeirri hugs- un í frumvarpinu að takmarka húsnæöislán til þeirra sem ekkert hefðu með þau að gera. Orðalag væri hins vegar klaufalegt. Finna þyrfti ákveðnara form til að gera þetta. Þingflokksformaðurinn kvaðst vflja leggja höfuðáherslu á að lífeyr- issjóðir samþykktu breytingamar. Varhugavert væri að breyta löggjöf- inni án samráðs við verkalýðshreyf- ingu og lífeyrissjóöi. „Ráðherra má ekki búast við að hún fái allt sem hún vill,“ sagði Páll. „Ég óska þess að félagsmálaráð- herra taki tilsögn og hemji skap sitt. Henni þarf ekki að detta í hug aö henni takist að nauðga heilum þing- flokki tfl aö ná fram vilja sínum," sagði þingflokksformaðurinn. -KMU reglur, sem ég set, þá segi ég þeim upp. Og það er á hreinu að ég tek ekki við trúnaðarmanninum í vinnu aftur. Það er hart ef trúnaðarmenn eru komnir með æviráðningu, að það sé ekki hægt að hreyfa við þeim hvemig svo sem þeir standa sig í starfi. Eg álít uppsögnina hafa verið löglega og rétt að henni staðið því ég ráðfærði mig við Vinnuveitendasam- band íslands áður en tfl hennar kom. Mér er alveg sama þó að starfs- menn mínir gangi í verkalýðsfélög og mér finnst sjálfsagt að þeir hafi trúnaðarmann á staðnum, en sá hinn sami veröur þá að virða þær vinnu- reglur sem hér eru settar,“ sagði Kjartan aö lokum. -J.Mar Ekki tókst að bjarga Glað Ólafúr Halldórsson útgerðar- maður sagði í morgun að ekki hefði tekist að ná Glað ÍS á flot í gær. Reynt veröur áfram í dag. Það sem olli mönnum mestum erfiðleikum í gær var að þau átta tonn af skel, sem eru í lest bátsins, drógust fyrir - reynt áfram í dag dælumar og stífluðu þær. í dag verður farið með þijár stór- ar dælur, sem fengnar voru úr Reykjavík, og haugsugu sem dæla á upp skelinni. Veður er gott á Breiðafiröi og gera menn sér enn vonir um aö takast megi að bjarga bátnum. Mik- il verðmæti eru í húfi þar sem áætla má að söluverð bátsins sé 25 til 30 milljónir króna. Fimmtán manns unnu viö björg- unartilraunir í gær og verða þeir ekki færri í dag. -sme Trúnaðantiaðurinn í Kringlunni: Fær ekki vinnu aftur - segir Kjartan Scheving

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.