Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. ÚtLönd Verðfall varð enn á verðbréfamarkaöinum í Tokýo, þrátt fyrir að verð- niður fyrir 1,75 v-þýsk mörk. Bankar víöa um heim reyna nú aö aðstoða við að rétta veröbréfamarkaö- KranS féiS í London Tuttugu og átta metra hár bygg- ingakrani brotnaöi niöur og féll á röð bifreiða á mikilli umferöargötu í miðborg London t gær. Kraninn eyðilagði nokkrar bif- reiöar og slösuðust nokkrir ökumenn og farþegar, auk gang- andi vegfarenda sem urðu fyrir braki úr krananum. Kranastjórinn lét lifiö í slysinu ogkraninn sjálfur er meö öllu ónýt- ur. Ekki er vitaö hvaö olli alysinu. Fjórða fómariambið í gær lést í Goiania í Brasilíu fjórða fómarlamb geislavirknileg- kans sem þar varö fyrir nokkru. Unnið er að rannsókn málsins en talið er aö allt að eitt þúsund manns þegar unglingar fundu cesium 136 í rusli. Haföi því veriö fleygt frá sjúkrahúsi, ásamt öðrum hlutum sem verið og verkfallsmamia armars vegar og lögreglu hins vegar í Qu- ito í Ecuador. Verkamenní landinu efiidu þá til daglangs verlcfalls þrátt fyrir rikjandi neyðarlög sem tóku gildi nýlega. Stúdentamir grýttu lögregluna í átökunum f gær og lögreglumenn svömöu með því að varpa tára- Talið er hugsanlegt að hátt verð á fasteignum í Japan eigi hlut að þvf hversu innflutningur bifreiða þar hefur aukist. Kenningai- em uppi um aö neytendur vilji frekar lcggja fjármuni sína í dýra evr- ópska og bandaríska bíla, heldur en festa peningana í fbúöum, en jafnvel minnstu íbúðarholur í Tokýo kosta nú fimm til sex millj- ónir króna. Taliö er að á þessu ári muni selj- ast nær hundrað þúsund erlendir bílar i Japan og era blfreiðaffam- leiðendur Evrópu og Bandaríkj- anna, að vonum ánægðir því þessi markaður hefur verið þeim þvf sem næst lokaður til þessa. Cnn DV Stjómarandstað- an foimlega klofin Kim Dae-Jung, stjórnarandstæðingur í Suður-Kóreu, ætlar að mynda nýjan flokk. Símamynd Reuter Stjómarandstæðingurinn Kim Da- e-Jung sagði í morgun formlega skilið við aðalsljómarandstöðu- flokkinn í Suður-Kóreu um leið og hann tilkynnti aö hann myndi reyna að mynda nýjan flokk til þess að styðja við bakið á sér í baráttunni um forsetaembættið. Þegar hafa margir tilkynnt að þeir muni fylgja honum að málum og ganga í flokk hans. Kim Dae-Jung kveðst viss um að hann vinni kosn- ingarnar, sem fram eiga að fara í desember, þrátt fyrir vaxandi hræðslu um að ef tveir stjómarand- stæðingar bjóði sig fram færi það frambjóðanda stjómarflokksins heim sigurinn. Búist er við að Kim Young-Sam útnefni sig frambjóðanda stjómar- andstöðuflokksins þann 5. nóvember næstkomandi á flokksþingi sem þá er ráðgert að verði sett. Gmuilaugur A. jórusoa DV, StokWvólrai; Tveir læknar hafa verið hand- teknir í Stokkhólmi, granaöir um morð á tuttugu og sjö ára gamalli va.ndiskonu. Konan var myrt árið 1984 og fannst ifk hennar sundur- skoriö í plastpokura. Sama ár var annar læknanna handtekínn en sleppt vegna skorts á sönnunar- gögnum. Né hefur það hins vegar gerst að dóttir annars læknanna segist liafa séð pabba sinn og vin hans búta líkiö niður. Annar læknanna, sem hér ura ræðir, er kmfningalæknir og ýtir það undir grunsemdimar þar sem það vakti athygli við rannsókn löcs- ins strax í uppuafi hversu „fag- mannlega*' það var skoriö í stykki. Flestir snúnir aftur til náms Snorri Valason, DV, Vínarborgr Eins og búist haföi verið við snera flestir stúdentar aftur til náms og starfa í gær eftir verkfóll síðustu viku. Formaður samtaka háskóla- stúdenta, Szyszkowitz að nafni, lýsti sig ánægðan með gang samningavið- ræðna nú yfir helgina og mæltist til þess við nemendur að þeir hættu aðgerðum í bili. Um það bil áttatíu prósent nema hlýddu kallinu og var þvi skólastarf með nokkuð eðlilegum hætti í gær. Sérstök verkfallsnefnd, sem skipuð var fulltrúum úr öllum háskólum landsins, mótmælti því harðlega að aðgerðum yrði hætt áður en gengið yrði að kröfum nemenda um aukið fjárstreymi til menntamála. Gagnrýndu þeir Szyszkowitz harð- lega fyrir linkindina og segja hann alls ekki hafa rétt til að aflýsa aðgerð- um. Szyszkowitz segir þetta hins vegar hina mestu firra og það liggi í augum uppi að sjálfskipaðir verkfallsverðir hafi minna vald í þessum efnum en löglega kosnir fulltrúar nemenda. Átök em hafin á ný á Persaflóa milli írana og íraka eftir nær viku- langt hlé. íraskar flugvélar gerðu árásir á skip undan strönd írans á noröurhluta flóans og einnig vom gerðar loftárásir á olíubirgðastöðvar í íran. írönsk yfirvöld tilkynntu að átján manns hefðu látiö lífið og sjötíu særst í árásunum sem sagðar vom hafa veriö gerðar á byggð svæði. Tilkynnt var í Bagdad að íranir hefðu gert árásir á hafnarborgina Basra og drepið nokkra óbreytta borgara. Á Persaflóa sigldi birgðaskip á olíu- leiðslu undan ströndum Saudi-Arab- íu og kom upp mikill eldur sem þó tókst að slökkva í gærkvöldi. Olía lak þá enn úr leiðslunni og var unnið að þvi að stöðva lekann. Iranskt herskip á slglfngu meðfram flutningaskipi á Persaflóa. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.