Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. 33 Fólk í fréttum Eyþór Einarsson Eyþór Einarsson, formaður Nátt- úruvemdarráðs, var í DV-fréttum sl. mánudag, en á nýafstöðnu nátt- úruvemdarþingi var helst fjallað um framtíðarskipan náttúmvemd- armála. Eyþór Haraldur er fæddur 8. fe- brúar 1929 í Neskaupstað og lauk mag. scient. prófi í náttúrufræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn 1958. Hann var deildarstjóri grasa- fræðideildar Náttúrufræðistofnun- ar íslands frá 1. janúar 1959 og forstööumaður Náttúrufræöistofn- unar 1963-1965, 1969-1971 og 1978. Eyþór hefur verið í Náttúmvemd- arráðí frá 1. janúar 1959, var varaformaður 1972-1978 og hefur verið formaður frá 1978. Hann var varaformaður stjómar raunvís- indadeildar Vísindasjóðs 1974-1978 og formaður frá 1978. Eyþór hefur verið fulltrúi íslands í náttúru- vemdarnefnd Evrópuráðsins frá stofnun, 1963, og var formaöur Fé- lags íslenskra náttúrufræðinga 1960-1962. Hann var ritari Hins ís- lenska náttúrufræðifélags 1960-1964 og formaður þess 1964-1966 og 1976-1980. Eyþór var í stjóm Ferðafélags íslands 1968-1979 og varaforseti þess 1977-1979. Hann var í stjóm Land- verndar frá stofnun, 1969, til 1973 og í stjórn Surtseyjarfélagsins frá stofnun, 1965. Eyþór var formaður Söngsveitarinnar Fílharmóníu 1968-1969 og hefur ritað íjölda greina um náttúrufræðileg efni. Eyþór giftist 1951 Svandísi Sigur- veigu Ólafsdóttur, f. 27. febrúar 1929, kennara í Æfingaskóla Kenn- araháskóla íslands. Kjörforeldrar Svandísar era Ólafur Ásgeirsson, klæðskeri í Rvík, og kona hans, Sigrid Ásgeirsson, en foreldrar Páll Sigurðsson, prentari í Rvík, og kona hans, Margrét Þorkelsdóttir. Börn Eyþórs og Svandísar eru Margrét, f. 9. febrúar 1954, hjúk- mnarkona í Kaupmannahöfn, Ingibjörg, f. 20. desember 1957, myndhstarmaður í Rvík, sambýlis- maður hennar er Guömundur Andri Thorsson, ritstjóri Tímarits Máls og menningar, Sigríður Ólöf, f. 9. mars 1963, við tónhstanám í Álaborg, og Þórey, f. 6. mars 1965, háskólanemi. Bróðir Eyþórs er Einar Gylfi, f. 24. janúar 1932, húsgagnasmiður í Rvík, giftur Jónu Bjömsdóttur. Foreldrar Eyþórs eru Einar Ein- arsson, sjómaður í Neskaupstað, og kona hans, GísUna Haraldsdótt- ir. Föðurfaðir Eyþórs, Einar, útvegsbóndi á Nesi í Norðfirði, og móðurfaðir Eyþórs, Haraldur, fisk- matsmaður á Norðfiröi, vom bræður, synir Brynjólfs, b. á Skála- teigi, Einarssonar. Móðir Brynjólfs var Ingibjörg Brynjólfsdóttir, b. á Hofi í Noröfirði, bróöur Sigurðar, langafa Haraldar Níelssonar pró- fessors, fóður Jónasar Haralz bankastjóra. Faðir Brynjólfs á Hofi var GísU, b. á Hofi í Norðfirði, Sig- fússon, prests á KUppstað, Gísla- sonar. Móðir þeirra bræðra, Einars og Haraldar, var Björg Jónsdóttir, b. á Sómastöðum í Reyðarfirði, bróður Guðrúnar, langömmu Sigf- inns Þorleifssonar sjúkrahús- prests. Jón var sonur Þorsteins, b. á ísólfsstöðum, Jakobssonar. Móð- ir Þorsteins var Vigdís Jónsdóttir, systir Þorsteins í Reykjahlíð, fóður Jóns, prests í Reykjahlíð, forfóður ReykjahUðarættarinnar. Móðir Gíslínu var Þórey Jónsdóttir, skálds á Grænanesi í Norðfirði, bróður Áma, afa Bjama Vilhjálms- sonar þjóðskjalavarðar. Jón var sonur Davíðs, b. á Grænanesi, Jónssonar. Móðir Davíðs var Sig- ríður Davíðsdóttir, systir Bjama í Viðfirði, afa Alberts Guðmunds- sonar. Systir Sigríðar var Þrúður, amma Ólafs Jóhanns Sigurössonar rithöfundar. Móðir Sigríðar var Eyþór Einarsson. Sesselja Þorsteinsdóttir, systir Guðnýjar, langömmu Jóns Finns- sonar, prests á Hofi í Álftafirði, íoður Eysteins ráöherra. Móðir Einars var Oddný Jónasdóttir, b. í Ámagerði í Fáskrúðsfirði, Jóns- sonar. Móðir Oddnýjar var Ingi- björg Guðmundsdóttir, systir Finns á Tunguhóli, afa bræðranna Finns listmálara og Ríkarðs Jóns- sonar myndskera og langafa Ingvars Gíslasonar, ritstjóra Tímans. Afmæli Þorsteinn Pálsson Þorsteinn Pálsson, Brúnalandi 3, Reykjavík, forsætisráðherra, for- maður Sjálfstæðisflokksins og alþingismaður, sem hélt stefnu- ræðu ríkisstjómar sinnar i fyrra- kvöld, er fertugur í dag. Þorsteinn fæddist á Selfossi og ólst þar upp í foreldrahúsum, en meðal leik- bræðra hans á Selfossi var Davíð Oddsson borgarstjóri. Þorsteinn tók embættispróf í lögfræði frá HÍ 1974 og var blaðamaður við Morg- unblaðið með námi frá 1970 og ritstjóri Vísis 1975-1979. Þorsteinn var framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands 1979-83 og var kjörinn alþingismaður Sunn- lendinga vorið 1983. 6. nóvember sama ár var hann kjörinn formað- ur Sjálfstæðisflokksins. Þorsteinn varð íjármálaráðherra 1985 og for- sætisráöherra 1987. Þorsteinn kvæntist 1. desember 1973 Ingibjörgu Þórunni Rafnar hdl., f. 6. júní 1950. Foreldrar henn- ar era Jónas Rafnar, frv. banka- stjóri, og kona hans, Aðalheiöur Bjarnadóttir Rafnar. Börn Þor- steins og Ingibjargar era Aðal- heiður Inga, f. 14. september 1974, Páll, f. 28. maí 1977, og Þórunn, f. 6. september 1979. Þorsteinn á einn bróður, Valgeir, f. 14. febrúar 1953, lögfræðing í Rvík, giftan Margréti Magnúsdóttur. Foreldrar Þorsteins eru Páll Sigurðsson, skrifstofu- maður í Rvík, og kona hans, Ingigerður Nanna Þorsteinsdóttir, er lést 5. júní 1982. Faðir Páls er Sigurður, kaupmaður á Eyrar- bakka, Guðmundsson, bóksala á Eyrarbakka, Guðmundssonar, b. á Minnahofi á Rangárvöllum, Pét- Þorsteinn Pálsson. urssonar. Móðir Guðmundar bóksala var Ingigerður Ólafsdóttir, b. í Þjóðólfshaga, Loftssonar, b. í Reynisholti í Mýrdal, Ólafssonar. Móðir Ingigerðar var Guðrún Jóns- dóttir, b. og hreppstjóra í Stóru- mörk undir Eyjafjöllum, Guðmundssonar. Móðir Jóns var Ingiríður Ólafsdóttir, prests í Stóradal undir Eyjafiöllum, Thorlaciusar, móðir Ólafs Thorlac- iusar, kaupmanns á Bíldudal, eins brautryðjenda þilskipaútgerðar á íslandi. Móðir Ingigerðar var Sig- ríður Jónsdóttir, b. á Felli í Suðursveit, Sigurðssonar, sýslu- manns á Smyrlabjörgum, Stefáns- sonar. Móöir Sigurðar var Ástríður Guðmundsdóttir, b. á Eystri- Kirkjubæ, Steinssonar. Móðir Páls var Sigríður Ólafsdóttir, b. í Garöabæ á' Eyrarbakka, Bjama- sonar, b. á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, Jónssonar. Móðir Sig- ríðar var Ingibjörg Pálsdóttir, b. á Nýjabæ í Þykkvabæ, Kristjánsson- ar. Móðir Þorsteins var Ingigerður Þorsteinsdóttir, vélstjóra í Rvík, 80 ára Jón Pétur Þorsteinsson, Reykja- hlíð III, Skútustaðahreppi, er áttræður í dag. 75 árá Guðrún Lárusdóttir, Vallarbraut 2, Njarövík, er sjötíu og fimm ára í dag. 70 ára Elín Eiríksdóttir, Votumýri 2, Skeiðahreppi, er sjötug í dag. Kristín Jóhannsdóttir, Hamars- heiði I, Gnúpveijahreppi, er sjötug í dag. 60 ára Árnasonar, yfirfiskmatsmanns og bæjarfulltrúa á ísafirði, Gíslason- ar. Móðir Áma var Solveig Þor- leifsdóttir, b. í Æðey, Benedikts- sonar, b. á Blámýrum, Þórðarsonar, stúdents í Vigur, bróður Solveigar, langömmu Sig- ríðar, langömmu Geirs Hallgríms- sonar. Systir Þórðar var Ingibjörg, amma Jóns forseta. Þórður var sonur Ólafs, lögsagnara á Eyri, Jónssonar. Meðal afkomenda Ólafs eru Matthías Á. Mathiesen, Davíð Oddsson og Valur Arnþórsson. Móðir Solveigar var Sigríður Árna- dóttir, umboðsmanns í Vatnsfirði, Jónssonar, sýslumanns, Arnórs- sonar. Móðir Sigríðar var Elísabet Guðmundsdóttir af Arnardalsætt- inni. Móðir Þorsteins var Kristín, er starfaði mikið að bindindismál- um, systir Halldóru, móður Jóns Baidvinssonar, fyrsta formanns Alþýðuflokksins. Kristín var dóttir Sigurðar, b. í Hörgshhð, Hafliða- sonar, b. á Skarði, Guðmundsson- ar, bróður Jóhannesar, langafa Hannibals Valdimarssonar, fóður Jóns Baldvins. Móðir Ingigerðar var Ásta Jónsdóttir, þurrabúðar- manns í Ánanaustum, Guömunds- sonar í Ánanaustum Gíslasonar. Móðir Jóns var Margrét Ásmunds- dóttir, b. á Bjargi á Kjalarnesi, Guðmundssonar. Móðir Margrétar var Guðrún Þórðardóttir, systir Runólfs, afa Björns Þórðarsonar forsætisráðherra. Móðir Guðrúnar var Sigríður Þórólfsdóttir, b. í Eng- ey, Þorbjarnarsonar, bróður Guðlaugar, langömmu Guðrúnar, langömmu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Haukur Guðjónsson, Staðarhrauni 2, Grindavík, er sextugur í dag. B. Ásgeir Björgvinsson, Kjarr- hólma 6, Kópavogi, er sextugur í dag. Hann tekur á móti gestum að Hótel Ljósbrá í Hveragerði laugar- daginn 31. október milli kl. 16 og 19. Jón M. Baldvinsson, Heiðarási 8, Reykjavík, er sextugur í dag. 50 ára Þóra G. Helgadóttir, Baugholti 19, Keflavík, er fimmtug í dag. Hreinn H. Nielsen, Stangarholti 36, Reykjavík, er fimmtugur í dag. 40 ára Kristjón Jóh. Svavarsson, Hring- braut 43, Reykjavík, er fertugur í dag. Þorgils Jóhannesson, Smáratúni 8, Svalbarðsstrandarhreppi, er fer- tugur í dag. Pálina Sighvatsdóttir, Hólabraut 5, Hafnarhreppi, er fertug í dag. Andlát Birgir Grétarsson, Ölduslóð 45, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalan- um í ReyKjavík þann 27. október. Magnúsa Aðalveig Ólafsdóttir frá Þórkötlustöðum, Grindavík, an- daðist í Hrafnistu, Hafnarfiröi 26. október. Herdís Siguijónsdóttir, Skóla- braut 29, Akranesi, lést í sjúkra- húsi Akraness 27. október. Friðrikka Pólsdóttir frá Veisuseli andaöist að Kristnesspítala 27. október. Glsli Slguibjöm Sigurbjömsson Gísh Sigurbjöm Sigurbjömsson, forstjóri Elh- og hjúkrunarheimil- isins Grundar í Reykjavík og Elli- og dvalarheimilisins Áss í Hvera- gerði, til heimihs að Túngötu 20, Reykjavík, er áttræður í dag. Gísli fæddist í Reykjavík og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Hann lauk prófi frá VÍ 1927 og var um skeið frímerkjakaupmaður. Hann hefur verið forstjóri Grundar frá 1934 og jafnframt forsfióri Áss í Hveragerði frá 1952. Auk þess aö vinna braut- ryöjendastarf í þágu aldraðra hefur Gísli unnið mikið að íþróttamálum, bindindismálum og ferðamálum. Hann var einn af stofnendum Krabbameinsfélags íslands og formaður Víkings um skeið. Að þessu slepptu hefur Gísli gegnt fiölda trúnaðar- og ábyrgðarstarfa sem of langt yrði upp að telja á þessum vettvangi. Hann var sæmd- ur riddarakrossi fálkaorðunnar 1959 og hefur verið sæmdur ítölsku heiðursmerki. Kona Gísla er Ólafía Helga Björnsdóttir, f. í Reykjavík 15.7. 1914. Foreldrar hennar voru Bjöm Magnús, stórkaupmaður í Reykja- vík, f.7.10. 1891, d. 21.7. 1962, Arnórsson, og kona hans, Guörún, f.8.11.1891, d.30.5.1967, Jónsdóttir. Gísli og Helga eiga fiórar dætur: Nína Knstín, f.17.6. 1936, er gift doktor Óttari Pétri Hahdórssyni, prófessor við HÍ, en þau eiga tvö börn; Sigrún, kennari og listmál- ari, f.18.11. 1940, er gift Þorvaldi Grétari Einarssyni, aðallögfræð- ingi Búnaðarbankans; Guðrún Birna, f.1.7.1944, var gift Páh heitn- um Þórðarsyni, presti á Norðfirði og í Njarðvík, og eignuðust þau þrjá drengi, en seinni maður Guð- rúnar er Júlíus Guðfinnur Rafns- son, framkvæmdastjóri í Njarðvík, og eiga þau Guðrún einn son; Helga, f.23.8.1947, er gift Glen Ric- hard Faulk rafeindatæknifræðingi, sem starfar um þessar mundir fyr- ir bandarísku herstöðina á Kefla- víkurflugvelli, en þau eiga tvær dætur. Gísli átti níu systkini en þijú þeirra dóu í bamæsku og tvær systur hans drukknuðu ásamt móður hans í Tungufljóti 1938. Hann á nú tvö systkini á lífi. Syst- kini Gísla: Lárus, rithöfundur og minjavörður Reykjavíkurborgar, f.22.5. 1903, d.5.8. 1974. Fyrri kona Lárusar var Ólafía Sveinsdóttir og áttu þau tvær dætur, en Ólafia lést 1937. Seinni kona Lárusar var Sig- ríður Ámadóttir og áttu þau fiögur böm. Halldór Ástvaldur, verslun- Gísli Sigurbjörn Sigurbjörnsson. armaöur í Reykjavík, f.30.1. 1905, d.20.4.1983. Ekkja hans er Valgerð- ur Ragnheiður Ragnars og eignuð- ust þau þrjú börn. Krístín Guðrún, f.15.3. 1906, d.15.11. 1908. Kristín Sigurbjörg f.17.10.1909, d. 2.2.1919. Friðrik Baldur, stórkaupmaður í Reykjavík, f.14.7. 1911, en hans kona, Anna Stefánsdóttir, er látin. Þau eignuðust fiögur böm. Kirstín Lára, kennari í Reykjavík, f.28.3. 1913, er gift Ásgeiri Olafi Einars- syni dýralækni, en þau eiga fimm börn. Guörún Valgerður, f.26.10. 1915, d.20.8. 1938. Guðrún var gift Einari Sigurði Kristjánssyni, fv. auglýsingastjóra Vísis og síðar stórkaupmanni í Reykjavík. Sigrún Kristín, f.12.2. 1921, d.20.8. 1938. Gústaf, f.10.8. 1924, d.26.2. 1925. Foreldrar Gísla voru Sigurbjöm Ástvaldur, kennari, ritstjóri og prestur, Gíslason, f. í Glæsibæ í Sæmundarhhð 1. janúar 1876, d.2. ágúst 1969, og kona hans, Guðrún, rithöfundur og alþingismaður í Reylfiavík, Lárusdóttir, f. á Val- þjófsstað 8. janúar 1880, d.20.8.1938. Foreldrar Sigurbjöms voru Gísh Sigurösson, b.í Neðri-Ási, og kona hans, Kristín Björnsdóttir. For- eldrar Guðrúnar voru Láras Halldórsson, prestur á Valþjófs- stað, og kona hans, Kirstín Guð- johnsen, dóttir Péturs Guðjohnsen, organleikara og konu hans, Guð- rúnar Knudsen. Sérverslun með blóm og skreytingar. 0oBlóm ^Osknqytii^ar Laugauegi 53. simi 20266 Sendum um land allL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.