Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Bilstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Oreifing: Sínní 27022
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 29. 0KTÓBER 1987.
Matar-
skatti
frestað
- til áramóta
Stjómvöld hafa ákveðið að fresta
matarskattinum svokallaða til ára-
móta. Búist er við að yfirlýsing um
það verði gefm eftir ríkisstjómar-
fund sem hófst klukkan 10 í morgun,
þegar DV var að fara í prentun.
Ríkisstjómin hafði ákveðið að
leggja 10% söluskatt á kjöt, fisk,
mjólkurvörur, ávexti og grænmeti
frá 1. nóvember, næstkomandi
í. sunnudag. Áætlað var að hann gæfi
^íkissjóði um 75 milljónir króna í
tekjur fram að áramótum.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra átti fund með forystu-
mönnum verkalýðshreyfingarinnar
í gærkvöldi um matarskattinn. Þar
lýsti fjármálaráðherra því yfir að
skattinum yröi frestað.
Verkalýðsforingjar, sem DV ræddi
við í morgun, tóku skýrt fram að
þessi frestun væri algjörlega án skil-
yrða af hendi verkalýðshreyfingar-
innar.
Ljóst er þó að þessi ákvörðun
stjómvalda er tekin í þeirri von að
hún greiði fyrir þjóðarsátt um hóf-
lega kjarasamninga. -KMU /S.dór
Steingrímur Njálsson:
Málið er
á hraðferð
Hjörtur Aðaisteinsson, sakadómari
hjá Sakadómi Reykjavíkur, segir að
vöm í máh ákæruvaldsins gegn
Steingrími Njálssyni verði skilað 6.
nóvember næstkomandi.
Hjörtur sagði að þá yrði stutt í að
dómur yrði upp kveðinn í málinu.
Steingrímur Njálsson lýkur af-
plánun 28. nóvember og bendir því
allt til þess aö dómur verði fallinn
áður en afplánuninni lýkur.
-sme
ÞROSTUR
68-50-60
VANIR MENN
LOKI
Þá fær maöur
matarlystina aftur!
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra:
íslenskur hugbúnaður í
3,7 milljarða radarnet
-ákvörðun um vamarliðsframkvæmdir var frestað með samþykki forsætísráðheira
„Það er eitt mjög skemmtilegt
sem er að gerast núna í sambandi
við radarstöðvamar hér sem verða
fjórar samkeyrðar á mjög full-
komnu tölvuneti. Það er ekki
ólíklegt að íslensk hugbúnaðarfyr-
irtæki komist inn í það með
bandaríksu fyrirtæki. Þetta er
verkefni upp á hvorki meira né
minna en 95 milljónir dollara eða
um 3,7 milljarða króna,“ segir
Steingrímur Hermannsson utan-
ríkisráðherra.
Þetta ásamt mörgu öðm athyglis-
verðu kemur fram í DV-yfirheyrslu
í blaðinu á morgun. Það er ljóst aö
ef af samningum verður um þetta
verkefni verður það ekki aðeins
risastórt á okkar mælikvarða held-
ur einnig saga til næsta bæjar að
íslendingar leggi Bandaríkjamönn-
um Uð tæknilega við uppbyggingu
á hervamaneti þeirra.
í DV-yfirheyrslunni er Stein-
grímur spurður um ummæli
Þorsteins Pálssonar forsætisráð-
herra í stefnuræðu hans í fyrra-
kvöld um að „vamar- og
öryggismál verði ekki gerö aö
verslunarvöru“. Margir mátu þetta
sem skot á utanríkisráðherra sem
frestaði ákvörðim um vamarhðs-
framkvæmdir á næsta ári í miðri
hvaladeilunni við Bandaríkja-
menn.
„Þetta var gert í samráði við for-
sætisráðherra og ef skilja á
ummæh hans eins og ýmsir túlka
þau nú þá koma þau úr hörðustu
átt. Um þetta var full samvinna
okkar á milh,“ segir Steingrímur
Hermannsson utanríkisráðherra. í
svari hans felst jafnframt viður-
kenning á tengslum þessara mála
sem ekki hafa verið viðm-kennd
beinlínis fyrr en nú.
-HERB
Op og kóll frá skemmdum bílum
Mikil óp og köll heyrðust frá stórskemmdum bilum I Funahöfðanum i gær og var engu líkara en þama hefði orð-
ið hræðilegt umferðaróhapp. Þegar nánar var að gáð kom í Ijós aö i gangi var námskeið á vegum slysadeildar
Borgarspftalans, lögreglunnar og slökkviliðsins i að ná slösuðu fólki út úr bílflökum. Námskeiðið er fyrir tilvon-
andi sjúkraflutningamenn og slökkviliðsmenn og var haldlð í geymslu Einars Finnssonar í skemmdum bílum f
Funahöfða. Þegar Ijósmyndara DV bar að var Lilja Harðardóttir, deildarhjúkrunarfræðingur á slysadeild, að kenna
mönnum réttu handtökin. Lilja er lengst til hægri á myndinni. DV-mynd S
Veðrið á moigun:
Frost
víðast
hvar
Á morgun verður hæg norðanátt
norðanlands en hætt við snjókomu
eða slyddu á Vestfjörðum. Bjart
verður um sunnanvert landið. Hiti
á bilinu 0 til-10 stig.
Sfldarsölumálið:
Viðræðum
haldið áfram
„Við erum að hefja fund núna. Ég
get því miður ekki sagt neitt meira
nú, þetta er á viðkvæmu stigi. Ég get
vonandi sagt meira eftir fundinn í
dag,“ sagði Gunnar Flóvenz, fyrirhði
Síldarútvegsnefndar, um samninga-
viðræður nefndarinnar í Moskvu.
í gær voru litlar breytingar á gangi
mála. Gunnar vildi ekki segja til um
hvort hann væri vongóður fyrir
fundinn í dag en sagði aö frekari
frétta væri að vænta eför fundinn í
dag. -sme
Akureyri:
Tílraun
til íkveikju
Tilraim var gerö tíl að kveikja í
húsinu númer 3 við Lækjargötu á
Akureyri í fyrradag. Húsið er gamalt
tvhyft timburhús. Einn íbúi býr hús-
inu. Hann var ekki heima þegar
eldur var borinn að húsinu.
Kveikt var í forstofubyggingu
hússins. Maður í nágrenninu varð
snemma var við eldinn og gerði
slökkvihðinu á Akureyri viðvart.
Þegar slökkvihðið kom á vettvang
var maðurinn langt kominn með að
slökkva eldinn. Það tók skamma
stund að Ijúka slökkvistarfi. Litlar
skemmdir eru á húsinu eftir brun-
ann.
Þegar síðast fréttist hafði ekki tek-
ist aö hafa uppi á þeim er bar eld að
húsinu en unnið er að rannsókn
málsins. -sme
Eldur í
dagheimili
Seint í gærkvöldi varð vart við að
eldur væri laus í klæðningu á skóla-
dagheimilinu að Dalbrekku 2 í
Kópavogi. Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins. Skemmdir urðu
ekki verulegar.
Grunur er um að kveikt hafi verið
í. Eldurinn var í klæðningu og grind
á utanverðu húsinu. Unnið er að
raxmsókn málsins. -sme