Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1987, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1987. ViðskiptL Kaffihehmirinn bíður í ofvæni Kaffiheimurinn bíður nú í ofvæni eftir því á hvaða verði Brasilíumenn ætla að opna þegar þeir fara að selja aftur á kaffimarkaðnum. Þegar sam- komulag þjóðanna sem rækta kaffi og þeirra sem kaupa var gert fyrir rúmum þremur vikum voru Brasil- íiunenn búnir að selja það mikið af kaffi að þeir lokuðu fyrir söluna hjá sér. Búist er við að þeir gefi um það yfirlýsingu um eða eftir helgi hvort og á hvaða verði þeir ætli að selja. Samkomulag kaffiræktenda og kaffi- kaupenda gengur út á að halda verðinu á miUi 120 og 140 centa fyrir pundið af kaffibaunum. Verðið er nú í kringum 120 cent. Því er spáð að það fari hækkandi þar sem tilgátur eru um að Brasilíumenn ætli að opna söluna hjá sér á háu verði. Hátt kaffiverð Brasilíumanna bendir til að þeir trúi því aö frekar lítið framboð sé af kaffibaunum á markaðnum og að kafiikaupendur geti ekki snúið sér í jafnríkum mæli til annarra þjóða með kaffikaup. Brasilíiunenn eru með um 33 prósent af markaðnum og því mjög leiðandi hvað verð snertir. Verð á áh hefur síðustu vikuna haldið áfram að lækka á markaðnum í London. Verðið var í fyrradag kom- ið niður í 1125 sterlingspund en var viku áður um 1150 sterlingspund. Verðið var á toppnum fyrir hálfum mánuði eða um 1250 sterlingspund fyrir tonnið. ÁI er dollaravara, það er að gengi dollarans ræður verðinu mjög. Lækkandi gengi dollars að undan- fömu er talið vera aðalorsökin fyrir lækkandi álverði í London. Verð á fínni ull mjakast enn upp á við í Sydney í Ástralíu. Verðið er um 8,90 dollarar fyrir kílóið af mjög fínni uU. Verðið á grófari uU, sem til dæm- is Álafoss kaupir, rauk upp í um 5,30 dollara fyrir rúmum mánuði. Það hefur sigið örlítið upp á síðkastið, er nú um 5,20 dollarar. Áður en verðiö hækkaði var það í kringum 4,90 doll- ara. Verðiö á bensíni og olíu í Rotter- dam hefur verið tiltölulega stöðugt síðustu vikuna og er enn á sömu nótunum og fyrir viku. En við sýnum hér að lokum töflu yfir verð á venju- legu bensíni og gasolíu síðustu þrjá mánuðina. Bensínið hefur ætíð tilhneigingu til að vera hátt yfír sumarið, þegar mesti ferðamannatíminn er, og það lækkar svo á haustin. Gasolían hefur hækkað síðustu þrjá mánuði. -JGH Verð á eriendum mörkuðum Bensín og olía Verð í Rotterdam, fob. 27. okt. Bensín, venjul..165,00$ tonnið eða um......4,77 ísl. kr. lítrinn Bensín, súper...186,75$ tonnið eða um......5,36 ísl. kr. lítrinn Gasolía.........167,50$ tonnið eða um......5,41 ísl. kr. tonnið Hráolía Verð í Rotterdam, fob., 27. okt. Um..........19 dollarar tunnan eða um......722 ísl. kr. tunnan Gull Peningamarkaður Inn'án með sérkjörum Alþyoubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað innstæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mán- aða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris- sjóðum eða almannatryggingum. Innstæðureru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 18% og ársávöxtun 18%. Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 15% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttekt- ar upp í 21%. Hvert innlegg er meðhöndlað sérstaklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uói ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður við ávöxtun þriggja mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2% vöxtum eftir þrjá mánuði og 4% eftir sex mán- uði, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eöa ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxta- leiðréttingu. Vextir færast misserislega. Metbók er meö hvert innlegg bundið í 18 mánuði á 27% nafnvöxtum og 28,8% ársávöxt- un, eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir misserislega. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð- tryggður reikningur með 20% nafnvöxtum og 23,4% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru 3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verö- tryggð og óverótryggó kjör og gilda þau sem hærri eru. Heimilt er aö taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Hreyfðar innstæður innan mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á mánuði, og verðbætur reiknast síðasta dag sama mánaðar af lægstu innstæðu. Vextir fær- ast misserislega á höfuðstól. 18 mánaða bundinn reikningur er með 27% nafnvöxtum og 28,8% ársávöxtun. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun. Af óhreyfð- um hluta innstæóu frá síðustu áramótum eða stofndegi reiknings síðar greiðast 25,4% nafn- vextir (ársávöxtun 27%) eftir 16 mánuöi og 26% eftir 24 mánuði (ársávöxtun 27,7%). Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaöa verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svo- nefnda vaxtaleiðréttingu. Vextir færast misseris- lega á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxtatímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuðina 15%, eftir 3 mánuöi 19%, eftir 6 mánuði 25%, eftir 24 mánuði 27% eða ársávöxt- un 28,8%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verð- tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta- reikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 26% nafnvexti og 27,7% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast misserislega. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt- um síðustu 12 mánaða. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 24,88% (ársávöxtun 25,80%), eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda al- mennir sparisjóðsvextir, 15%, þann mánuð. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuði tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn- aðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá í 26,73-29,55%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg- inreglan er að innistæða, sem er óhreyfð í heilan ársfjórðung, nýtur kjara 6 mánaða bundins óverðtryggs reiknings, nú með 21,0% ársávöxt- un, eða 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxt- un fyrir þann ársfjórðung. Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess- ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar hafa verið á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: N Við eina úttekt í fjóröungi reiknast almennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virk- an dag ársfjórðungs, fær innistæðan hlutfalls- legar veröbætur m.v. dagafjölda í innleggsmán- uði, en ber síðan kaskókjör út fjórðunginn. Reikningur, sem stofnaður er síðar fær til bráða- birgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið sér kaskókjör frá stofndegi að uppfyllt- um skilyrðum. Sparisjóðir: Trompreikningur er verðtryggö- ur og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 22,5% með 24,12% ársávöxtun. Miðað er við lægstu innstæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóðsvexti, 15%. Vextir færast misserislega. 12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð- tryggða en á 26,5% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman við óverð- tryggða ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóða er með inn- stæðu bundna í 18 mánuði óverðtryggða á 25,5% nafnvöxtum og 27,6% ársávöxtun eöa á kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á eftir. Sparisjóöirnir í Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Nes- kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavík- ur og nágrennis bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verö- bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veöi undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverðtryggðum skuldabréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20% eða meðalvextir bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð- tryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins getur numið 2.688.000 krónum á 3. ársfjórð- ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á síðustu þrem árum, annars 1.882.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.882.000 krónum, hafi viökomandi ekki átt íbúð á sl. þrem árum, annars 1.317.000 krónum. Undantekningar frá þriggja ára reglurini eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæöna. Lánin eru til allt að 40 ára og verðtryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóðá Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggð og meö 5-9% vöxtum, algengastir eru meðalvextir, nú 8,1%. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóöa eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxta- vextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í veröbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,5% á mánuði eða 42% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í september 1987 er 1778 stig en var 1743 stig í ágúst. Miðaðervið grunn- inn 100 I júní 1979. Byggingarvisitala fyrir september 1987 er 324 stig á grunninum 100 frá 1983, en 101,3 á grunni 100 frá júll 1987. Húsalelguvísitala hækkaði um 9% 1. júlí. Þessi vlsitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega I samn- ingum leigusala og leigjenda. Hækkun vlsi- tölunnar miðast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá mánuði á undan. INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 14-17 Lb.Úb Úb 3ja mán. uppsögn 15-19 6mán. uppsögn 16-20 Úb.Vb 12 mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 25,5-27 Bb.lb Tékkareikningar 6-8 Allir nema Vb Sér-tékkareikningar Innlán verðtryggð 6-17 Ib Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán meðsérkjörum Innlán gengistryggð 3-4 14-24,32 Ab.Úb Úb Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Ab.Vb Sterlingspund 8,25-9 Ab.Úb. Vb Vestur-þýskmörk 2,5-3,5 Ab.Vb Danskarkrónur 9-10,5 Ib ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennir víxlar(forv.) 28-29,5 Bb,Lb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) 30,5-31 eöa kge Almennskuldabréf 29,5-31 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggð 30 Allir . Skuldabréf Útlán til framleiðslu 8-9 Lb Isl. krónur 28-29 Vb SDR 8-8,25 Bb.Lb, Úb.Vb Bandaríkjadalir 8,5-8,75 Bb.Úb, Vb Sterlingspund 11,25- 11,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,5-5,75 Bb.Sp, Úb.Vb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 42 MEÐALVEXTIR Óverðtr. sept. 87 29,9 Verðtr. sept. 87 VÍSITÖLUR 8,4% Lánskjaravísitala sept. 1778stig Byggingavísitala 1 sept. 324 stig Byggingavísitala 2 sept. 101,3 stig Húsaleiguvísitala Hækkaöi 9% 1. júlí VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestingarfélaginu): Ávöxtunarbréf 1,2777 Einingabréf 1 2,301 Einingabréf 2 1,356 Einingabréf 3 1,422 Fjölþjóðabréf 1,060 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,369 Lífeyrisbréf 1,157 Markbréf 1,207 Sjóösbréf 1 1,156 Sjóósbréf 2 1,118 Tekjubréf HLUTABRÉF 1,250 Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 278 kr. Flugleiðir 196 kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 119 kr. Iðnaðarbankinn 143 kr. Skagstrendingurhf. 182 kr. Verslunarbankinn 126 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum. Verð í London 28. okt. Um...........476 dollarar únsan eða um.......18.088 ísl. kr. únsan AI Verð á áli í London 26. okt. Um....1125 sterlingspund tonnið eða um.....72.900 ísl. kr. tonnið ;;t v ' • Ull Verð í Sydney, Ástralíu Um 890 cent kílóið eða um 338 ísl. kr. kílóið Bómull Verð á bómull í New York Um 70 cent pundið eða um 58 ísl. kr. kílóiö Hrásykur Verð í London Um .150 dollarar tonnið eða um 5.700 ísl. kr. tonnið Sojamjöl Verð í Chicago Um 177 dollarar tonnið eða um 6.726 ísl. kr. tonnið : 1» mm Kaffibaunir Um..........120 cent pundið eða um......2,64 dollarar kílóið eða um......100,32 ísl. kr. kílóið Á í myrkri gildir að sjást. Notaðu endurskinsmerki! mÉUMFERÐAR FamheÉt Uráð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.